Morgunblaðið - 06.07.1968, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1968
17
Ornólfur Arnason
skrifar um
LEIKLIST
ABSÚRDISTALEIKHÚS
Lifið er fyndið nð vissu mnrki — Pinter
FLESTIR helztu spámenn leik-
húss absúrdista eiga það sameig-
inlegt að búa í París og skrifa á
frönsku, þótt þeir séu af ýmsum
þjóðernum (Beckett er íri, Ad-
amov Rússi, Ionesco Rúmeni, Ge-
net Frakki, Arrabal Spánverji
o.s.frv.). En merkasti höfundur-
inn, sem býr utan Parísar og
4. grein
ritar á enska tungu, er vafalít-
ið Harold Pinter. Hann er um
margt ólíkur öðrum höfundum
absúrdistaleikhússins, en afstaða
hans til mannlífsins og þó eink
um tjáningarmeðals þess, tungu-
málsins, er hin sama og t.d. Beck
etts og Ionescos. Pinter er ung-
ur, aðeins 37 ára, og hóf ekki
að skrifa leikrit fyrr en árið
1957 en hefur þegar samið nokk-
ur leikrit, sem án efa eru með
allra merkustu leikhúsverkum
þessarar aldar. Hann er líklega
sá brezkra leikritahöfunda, sem
mest áhrif hefur á aðra rithöf-
unda í dag.
Harold Pinter er Lundúnagyð
ingur, klæðskerasonur frá Hack
ney. Hann hóf ungur að yrkja
ljóð, stundaði leiklistarnám
bæði við Royal Academy of
Dramatic Art og Central School
of Speech and Drama og starf-
aði nokkur ár sem leikari. Árið
1957 skrifaði hann að beiðni vin
ar síns einJþáttung sem sýndur
var við leiklistadeild Bristol-há-
skóla og vakti strax mjög mikla
athygli. Þetta var leikritið ,,Her-
bergið“ (The Room), sem hefur
sama undirtón og mjög svo per-
sónulega stíl og síðari verk
Pinters, — næstum grimmdar-
lega nákvæmni í eftirlíkingu
fetta og hretta og fánýtis i dag
legu máli manna, hinu hversdags
lega hlutskipti manna, sem smám
saman magnast af ógnum og
leyndardómum, og þau vinnu-
brögð að sleppa viljandi öllum
útskýringum eða forsendum fyr-
ir atburðum leiksins. Herberg-
ið, sem er miðpunktur og skáld-
Kking þessa verks, skýtur oft
upp kollinum í leikritum Pint-
ers. Eins og hann sagði sjálfur:
„Tvær manneskjur í herbergi —
ég fæst mjög oft við þessa hug-
mynd um tvær manneskjur í
herbergi. Tjaldið er dregið frá
sviðinu og þá vaknar mikilvæg
spurning. Hvað mun koma fyrir
þessar tvær manneskjur í þessu
herbergi? Skyldi einhver opna
dyrnar og koma inn?“ Upphafs-
punktur leikhúss Pinters er því
eins og afturhvarf til frumþátta
leiklistarinnar, — eftirvænting-
in, s>em skapaðist af „hreinrækt
uðu“ leikhúsi eins og það hefur
gerzt fyrir tíma leikritunar. Við
höfum fyrir framan okkur svið,
tvær persónur og dyr, — skáld-
Hkingu um óskilgreindan ótta
og eftirvæntingu. Þegar gagn-
rýnandi nokkur spurði Pinter
eitt sinn, hvað þessar tvær per-
sónur hans í herberginu væru
eiginlega hræddar við, svaraði
hann: „Þær eru bersýnilega
hræddar við það sem er utan
herbergisins. Utan herbergisins
er heimur, sem þeim stendur
ógn af. Ég er sannfærður um að
okkur stendur báðum ógn af
honum líka.“
í næsta leikriti Pinters, „The
Dumb Waiter" (nafnið hefur tvi
ræða merkingu og getur annað-
hvort þýtt „Mállausi þjónninn"
eða „Veitingalyftan"), sem einn-
ig er ritað árið 1957, er tjaldið
aftur dregið frá herbergi með
tveimur mönnum og dyrum, sem
opnast út í hið óþekkta. Menn-
Ríkisútvarpið flytur í kvöld'
leikritið „Dálítil óþægindi“ I
eftir Harold Pinter á þýðinguj
I Örnólfs Árnasonar. Þessi grein (
fjallar um höfundinn.
irnir eru tveir leigumorðingjar,
ráðnir af einhverjum dularfull-
um samtökum til að ferðast um
og myrða fólk. Þeir fá lykil og
heimilisfang, og er sagt að bíða
eftir nánari fyrirmælum. Fyrr
eða síðar kemur fórnardýrið,
þeir drepa það, og forða sér.
Þeir vita ekki, hvað skeður svo:
„Hver gerir hreint eftir að við
erum farnir? Mér þætti fróðlegt
að vita það. Hver sér um hrein-
gerninguna? Kannski gera þeir
alls ekki hreint. Kannski eru
þeir bara látnir liggja þarna,
ha? Hvað heldur þú“ Hvers-
dagslegt tal og nöldur þessara
tveggja leigumorðingja er geysi-
staðurinn var harðlæstur, ekki
einu sinni húsvörður.“ Síðan,
eins og í hinum tveim leikritun-
um, opnast dyrnar. Inn ganga
tveir undarlegir gestir, sem líkj-
ast mjög leigumorðingjunum.
að kemur brátt í ljós að þeir
eru sendir út til að ná í Stan-
ley. Eru þeir sendimenn ein-
hverra leynisambaka, sem hann
hefur svikið? Eða hjúkrumar
menn af geðveikrahæli, sem
hann hefur strokið af? Þessari
spurningu er aldrei svarað. Við
sjáum þá hins vegar undirbúa
afmælisveizlu fyrir Stanley, sem
fullyrðir að hann eigi alls ekki
afmæli. Afmælisveizlan fer fram
og leiknum lýkur með því að
mennirnir tveir leiða Stanley á
brott.
„Afmælisveizlan" hefur verið
túlkuð sem líking um allt mögu-
legt. í henni má finna margt til
að renna stoðum undir ólíkustu
tilgátur um slíkt, og þessvegna
gæti maður ímyndað sér að leik-
ritið hafi verið skrifað með ein-
Af sýningu Arts Theatre í London á „Herberginu". Á myndinni
eru Vivien Merchant (eiginkona Pinters) og Michael Brennan.
lega fyndið og áhrifamikið, þar
sem Pinter tekst að blanda sam-
an harmleik og skrípaleik. Morð
ingjarnir eru mjög taugaóstyrk-
ir, og markvissasta fyndnin er
fólgin í því, hvernig þeir reyna
að fela ótta sinn bak við sam-
ræður um einskisverða hluti, —
hvaða knattspyrnulið leiki
næsta laugardag, hvort réttara
sé að segja „að kveikja undir
katlinum" eða „kveikja á gas-
inu“. En þetta er um leið ógn-
vekjandi í fáránleik sínum.
Fyrsta leikrit Pinters af fullri
lengd nefnist „Afmælisveizlan"
(The Birthday Party). Það er
um margt svipað einþáttungun-
um tveimur. Aðalpersónan er
miðaldra maður, Stanley, sem
hefur fundið hæli í pensjónati
við ströndina hjá gamalli móð-
urlegri konu og manni hennar.
Hann hefur enga gesti fengið ár
um saman, og lítið er vitað um
fortíð hans annað en það að
hann hélt einhverntíma píanó
tónLeika í Lower Edmonton.
Þeir voru omikill listsigur. En
svo: „Það var allt ákveðið, bú-
ið að ganga frá öllu. Næstu
hljómleikunum mínum. Það var
á einhverjum öðrum stað. Um
vetur. Ég fór þangað til að
spila. Svo, þegar ég kom
þangað, var salurinn lokaður,
Harold Pinter.
okkar er eiginlega sú, að við
erum umlukin því óþekkta. Og
„sú staðreynd að við erum á
barmi hins óþekkta, leiðir til
þess sem virðist koma fyrir í
leikritum mínum. Andrúmsloftið
er ógnblandið, og ég held að
þessi ógn og fáránleikinn
eigi saman."
Pinter hefur skrifað talsverð-
an fjölda leikrita fyrir útvarp
og sjónvarp. Þekktasta útvarps
leikrit hans er líklega „Dálítil
óþægindi" (A Slight Ache), sem
fyrst var útvarpað af B.B.C. ár-
ið 1959 og íslenzka Ríkisútvarp
ið flytur nú í kvöld. Gömlum
hjónum, Floru og Edward
stendur ógn af nærveru eld-
spýtnasala, sem staðið hefur
vikum saman fyrir utan bak-
hliðið hjá þeim, án þess að selja
nokkurn stokk. Að síðustu kalla
þau hann inn í húsið til sín. En
hvað sem þau segja við hann,
fæst ekkert orð upp úr honum.
Edward tekur að segja honum
sundurlausa kafla úr ævisögu
sinni, sem gerast æ þokukennd-
ari eftir því sem á líður og hann
leysist eiginlega upp. Beint ligg
ur við að reyna að túlka þetta
sem líkingu, sem draum Ed-
wards, Floru eða jafnvel eld-
spýtnasalans, en eftir yfirlýs-
ingu Pinters um vinnubrögð
sín, er það erfiðara.
Þegar verið er að rýna eftir
æðri merkingu eða líkingum í
verk Pinters verður einnig að
hafa það í huga að eitt höfuð-
viðfangsefni hans er einmitt
það, hve erfitt er að sannreyna
allt í lífinu. í leikskrá sýning-
ar á einþáttungunum tveimur í
Royal Court leikhúsinu í Lond-
on árið 1960 segir Pinter svo um
þetta vandamál:
„Löngunin til að sannreyna
allt er skiljanleg, en getur ekki
alltaf fengið svölun. Það eru
ekki til nein óyggjandi mörk
milli þess raunverulega og ó-
raunverulega, né milli þess sem
er satt og þess sem er logið. Ég
tel það hæpna skoðun að litlum
vandkvæðum sé bundið að sann
reyna, hvað hafi skeð eða hvað
sé að ske. Persóna á svið-
inu, sem getur ekki komið fram
með neina sannfærandi skoðun
eða upplýsingar um fortíð sína,
skýringu á hegðun sinni í augna
blikinu né framtíðardraumum,
né getur skilgreint á skýr-
an hátt forsendur athafna sinma
— er eins rétthá og verð sömu
athygli og sú persóna, sem svo
undarlega vill til að getur gert
þetta allt. Þeim mun sárari sem
reynsla manna er, því óskýrari
er tjáning hennar.“
Erfiðleikarnir við að sann-
reyna allt í Leikhúsi Pinters eru
nátengdir notkun hans á máli.
Undraverð nákvæmni Pinters og
næmi fyrir því fáránlega í dag-
legu tali gerir honum kleift að
byggja texta sinn úr hversdags-
legum samtölum með öllum þeim
endurtekningum, því samhengis-
leysi, og þeim skorti á notk-
un rökfræði eða málfræði, sem í
þeim tíðkast. Þó sker Pinter sig
að því leyti úr hópi • annarra
absúrdista, t.d. Becketts og Ion-
escos, að hann kveðst ekki vera
að sýna það að mönnum sé ó-
mögulegt að tjá sig við með-
bræður sína. „Mér finnst," sagði
hann, „að í stað þess að menn
gieti ekki náð sambandi hver við
annan, þá sneiði þeir viljandi
hjá öllum samgöngum. í sjálfu
sér eru samgöngur milli manna
þeim svo ógnvekjandi tilhugs-
un, að fremur en að eiga þær á
hættu, standa menn í hverskon-
ar þvaðri, tala stöðugt um allt
annað en það sem samskipti
þeirra eru byggð á.“
Annað leikrit Pinters af fullri
lengd, „Húsvörðurinn“ er skrif-
að árið 1960. Það var fært upp í
Þjóðleikhúsinu veturinn 1962,
•undir stjórn Benedikts Áirna-
sonar með Val Gíslasyni í aðal-
hlutverki, og mun ég því ekki
orðlengja um efni þess. „Hús-
vörðurinn" færði höfundi sín-
um alþjóðlega frægð, enda er
það eitt athygliverðasta leik-
rit þessarar aldar.
Undanfarin ár hefur Pinter
skrifað mest fyrir sjónvarp og
auk þess mörg kvikmyndahand-
rit, t.d.. „Þjóninn", sem hérhef
ur verið sýndur bæði í kvik-
myndahúsi og sjónvarpi, og
„Slys“, sem sýnt var í Háskóla
bíói sl. vetur. Eitt nýtt leikrit
af fullri lengd eftir Pinter hefur
einnig verið sýnt víða síðustu
tvö ár og hotið geysilegar vin-
sældir og góða dóma, „Heimkom
an“ (The Homecoming). Vonandi
eigum við eftir að sjá það hér á
sviði áður en langt um líður.
Örnólfur Árnason.
hverja ákveðna hugmynd af
slíku tagi fyrir augum. En Pint-
ers vísar því algerlega á bug
að hann vinni á þann hátt: „Ég
held að það sé ómögulegt —
a.m.k. fyrir mig — að byrja að
skrifa leikrit með einhverskonar
óhlutlæga hugmynd fyrir aug-
um ... Ég byrja að skrifa leik-
rit með því að ímynda mér
nokkrar persónur í einhverju á-
standi eða við einhverjar að-
stæður. Þessar persónur haldast
alltaf raunverulegar fyrir mér.
Ef þær gerðu það ekki, gæti ég
ekki lokið leikritinu."
Afstaða Pinters til efniviðar
síns, þ.e. lífsins, er sú að allt
sé fyndið, þangað til ógn manm-
legs hlutskiptis kemur upp á
yfirborðið: „Það sem gerir harm
leik sorglegan, er að hann er
ekki lengur fyndinn. Hann er
fyndinn til að byrja með, en svo
hættir hann að vera fyndinn."
Lífið er fyndið, af því að það
«r byggt á hroka, hugsýnum og
sjálfsblekkingum, eins og draum
ur Stanleys um að fara í hljóm-
leikaför um allan hnöttinm,
vegna þess að það er byggt á
fölskum forsendum og því fárán
lega ofmati, sem hver einstakl-
ingur leggur á sjálfan sig. En í
lífi okkar í dag er allt afstætt
og óvisst. Eina örugga vitneskja
í sumarbústaði
W.C. fyrir sumarbústaði eru
komin aftur, einnig tilheyr-
andi eyðir.
J. Þorláksson & Norðmann
ATVINNA
Vantar 2 karlmenn til frystihúsavinnu á Vestfjörð-
um nú þegar. — Mikil vinna.
Upplýsingar hjá framleiðnideild S.H.
Jeppakeppni
Ráðgert er að á sunnudaginn 7. júlí, fari fram jeppa-
keppni. Ölllum er heimM þátttaka.
Nánar auglýst á sunnudag.
Bifreiðaklúbbur Reykjavikur.