Morgunblaðið - 06.07.1968, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.07.1968, Blaðsíða 28
 AUGLYSINGAR SÍMI 2E‘4*8D LAUGARDAGUR 6. JULÍ 1968 RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGR EIÐSLA • SKRIFST O FA SÍMI 10.100 Vitað um 8 ný tilfelli Taugaveikibróður Akureyri, 5. júlí SÝKLARANNSÓKN hefur enn leitt í ljós átta tilfelli tauga- veikibróður til viðbótar þeim, sem áður var kunnugt um. Nýju tilfellin eru öll á sveitabæjum, þrjú á Rútsstöðum, þrjú á Akri (nýbýli frá Rútsstöðum) og tvö á Skáldstöðum. Þannig að nú er vitað um alls 14 tilfelli tauga- veikibróður. Mjög sterkar líkur eru á tveimur tilfellum enn, þó að nokkur vafi leiki á. Allir þess ir sjúklingar eru nú á batavegi. Mörg sýnishorn eru nú til at- hugunar, m.a. allmörg frá elli- heimilinu í Skjaldarvík, þar sem svæsin magaveiki hefur geisað. Unnið er af kappi að rannsókn á upptökum og smitunarleiðum sjúkdómsins, og er læknir úr Reykjavík væntanlegur til Akur eyrar í kvöld til aðstoðar héraðs lækninum, Jóhanni Þorkelssyni. Ekki er nein ástæða til að ótt- ast smitunarhættu af neyzlu- mjólk eða mjólkurvörum, þar sem öll mjólk berst til Mjólkur- samlags KEA er gerilsneydd, en sú meðferð veitir fullkomna vörn gegn mengun. Allar kýr á Skáldstöðum eru alheilbrigðar. — Sv. P. Flotamálaráðherra Banda ríkjanna í heimsókn PAUL R. Ignatius, flotamálaráð- herra Bandaríkjanna, kom í stutta heimsókn til íslands í gær. Ráðherrann, sem var á leið frá Bandaríkjunum til Bretlands og þaðan til meginlands Evrópu, kannaði flotabækistöðvar Banda ríkjanna á Keflavíkurflugvelli og ræddi við bandariska ráða- menn hér. Ráðherrann hélt för sinni áfram kl. 03.30 í nótt, en hann mun á næstu dögum kanna helztu flotabækistöðvar Banda- ríkjanna í Evrópu. Tilkynningarskylda allra íslenzkra skipa — skipulogð samkvœmt merkja- kerfi Norðmanna og Rússa Laxveiði hafin í Soginu SAMKVÆMT bráðabirgðalög- um frá 17. maí 1968, hefur ver- ið gefin út reglugerð um tilkynn ingarskyldu íslenzkra skipa og hefur sjávarútvegsmálaráðherra falið Slysavarnafélagi Islands framkvæmd málsins. Að þessu tilefni áttu fulltrúar Slysavarna Elzti íslending- urinn lntinn ELZTI borgari landsins, Vigdís Magnúsdóttir, frá Stokkseyri, lézt í Landsspítalanum fyrr í vik unni. Vigdís hefði orðið 103 ára hinft 1. september n.k. Vigdís lærbrotnaði er hún datt fyrir nokkrum dögum. Kenndi hún sér ekki meins að öðru leyti, og var vel ern fram í andlátið. félagsins í gær fund með sild- veiðiskipstjórum, þar sem þeim voru afhent gögn, er varða þessa framkvæmd og þau skýrð út fyrir þeim. Reglugerð þessi kveður á um þáð, að öll fiskiskip skuli kalla upp einhverja strandstöð Lands síma íslands einu sinni á sólar- hring á tímabilinu frá kl. 13 til 16, eða eftirlitsskip náist ekki samband í land. Stöðvar þessar eða eftirlitsskip senda síðan all- ar tilkynningar um fjarrita til eftirlitsmiðstöðvar, sem stað- sett verður í húsi SVFÍ á Granda garði. Umsjón með eftirlitsstöð- inni hefur Þorvaldur Ingibergs- son, kennari í Stýrimannaskól- anum. Skipin skulu tilkynna sig við brottför úr höfn og ennfremur við fjarðarmynni, er þau köma að landi. Nota'ður er sérstakur „codi“ við skeytasendingarnar, sá hinn sami og Norðmenn og Rússar nota. Lögð er rík áherzla á að skip, sem byrjað er á til- kynningum, tilkynnti sig ávallt Sjúkrabílor gabboðir TVEIR sjúkrabílar voru gabbað- ir út úr bænum á fimmtudags- kvöld. Hringt var til lögreglunn- ar og tilkynnnt að mikið slys hefði orðið fyrir ofan Selja- brekku í Mosfellssveit. Þar hefði jeppi oltið og minnsta kosti fimm manns stórslasast. Tveir sjúkra- bílar voru þegar sendir uppeftir, en þegar þeir komu að jeppanum var þar engan að finna. Lögregl a hefur málið til athugunar. án undantekninga, því að komi ekkert skeyti frá því, verður samstundis hafizt handa um eft- irgrennslan. Getur því gleymska eða trassaskapur, orðið dýrkeypt fyrirhöfn. í reglugerðinni um tilkynningarskylduna er þess getið að vanræksla varði sekt- um. Á fundinum í gær var útbýtt Framhald á bls. 27. BÚLGARSKI flóttamaðurinn, sem neitað var um landvistarleyfi í Bandaríkjunum eins og greint var frá í blaðinu í gær, kom til Keflav.flugvallar kl. 00.10 í fyrri nótt með Loftleiðavél frá New York. Þar tók á móti honum Kristján Pétursson, fulltrúi út- lendingaeftirlitsins á Keflavíkur- flugvelli, og með honum var júgó slavnesk kona til að túlka, þvi að Búlgarinn talar ekki ensku. Búlgarinn bað ekki um landvistar leyfi hér sem pólitískur flótta- maður, heldur hélt áfram með flugvélinni til Luxemburgar eftir stutta viðdvöl hér. í gærmorgun kom svo kona sú, sem reynt hafði að koma honum inn í Bandarík- in, til Keflavíkur með annarri Loftleiðavél en hélt strax áfram til Luxemburgar á eftir mannin- um með vélinni. Fréttamenn ræddu við kon- una við komuna til Luxemburg- ar, en þess má geta að lögregl- an þar telur hana eiginkonu Búlgarans, enda þótt það komi ekki heim við álit manna í Bandaríkjunum. Konan sagði við fréttamenn í Luxemburg, að þau hefði verið að flýja áþján kommúnismans, og sagffi síðan orðrétt: „Ég reyndi að gróður- setja tré við beztu aðstæður." LAXVEIÐI í Sogi hófst í gær, en ekki tókst af afla upplýsinga um, hve rnikið kom á land fyrsta dag inn. Venjulega byrjar þar ekki að veiðast verulega fyrr en um miðjan mánuðinn, þvi að laxinn virðist ganga þar síðar en ann- ars staðar á vatnasvæðinu, að þvi er Valdimar Valdimarsson veiðivörður tjáði okkur i gær. Ekki liggja fyrir endanlegar tölur um veiðina á vatnasvæði AP. Luxembourg 5. júlí 1968 Ekki hleypt inn í Luxemborg Búlgarski flóttamaðurinn, sem neitað var um landvist í Bandaríkjunum á fimmtudag, kom aftur til Luxemborgar í kvöld. Frú Milan Bliznakow sem lögreglan telur eiginkonu manns VART hefur orðið við talsverðan rottugang í nánd við Tjörnina að undanförnu. Fólk hefur séð eina og fleiri rottur i einu víða á tjarnarbakkanum, og sendill hjá Morgunblaðinu sá fyrir tveim ur dögum heila fjölskyldu á ferli í nánd við Iðnó, þar sem stærra raesið er. Morgunblaðið sneri sér til Leós Schmidt, meindýraeyðis hjá borg inni, og kvað hann þennan rottu- gang ekki óeðliilegan. Þegar hlýna tæki í veðri, færu rotturn- ar jafnan á kreik, sérstaklega eftir harðan vetur, en ákaflega mismunand: væri hvar þær skytu uipp kollinum hverju sinni. Starfs Ölfusár og Hvítár á sl. sumri, en hún mun hafa verið í kring- um 14 þúsund laxar. Er það al- gjört veiðimet, að sögn Þórs Guð jónssonar, veiðimálastjóra. Ekki er heldur ljóst, hvernig veiðin skiptist á milli einstakra veiðisvæða í fyrrasumar, en neynsla undanfarinna ára hefur sýnt, að u.þ.b. 60% veiðarinnar fæst úr Ölfusá, 30% úr Hvítá og um 10% úr bergvatnsánum. ins sagði fréttamönnum: „Við höfðum svo mikla löngun til þess að lifa við frelsi og flýja undan áþján kommúnismans.' og hún bætti við: „Ég reyndi að grófðursetja tré við beztu aðstæð ur“, en gaf engar frekari skýr- ingar. Tollgæzluyfirmenn sögðu að Fram'hald á bls. 27. menn borgarinnar hefðu sitrax 1 vor eitrað fyrir rotturnar í flest- um skolpræsum borgarinnar, þar sem tíðast verður vart við þær, og væri því minna uim þær núna en oft áður. Leó sagði, að strax og frétzt hefði um rottugang við Tjömina hefðu starfsmienn bongarinnar brugðið við og ætlað að eitra fyrir þetan. í ljós kom að slíkt var ekki hægt nema að nætur- laigi sakir þess hve mikið var uan mannaferðir. Var því loks eitrað í ræsi við Tjörnina á fimmtu- dagsnótt og kvaðst Leó ætla að brátt hyrfi rottugangurinn þarna með öllu. Kusu frelsið: Fluttur út úr Búlgaríu í svefnpoka Óvíst um landvist búlgarska flóttamannsins Rottur við Tjörnina Eitrað í skolprœsi á fimmtudagsnótt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.