Morgunblaðið - 14.07.1968, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 14.07.1968, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1968 11 ferðaskrifstofa bankastræti 7 símar 16400 12070 SUNIMU-dagar í sólarlöndum travel Vinsœlar utanlandsferðir með íslenzkum fararstjórum Miðvikudagar eru þotuflugsdagar SUNNU til Miðjarðarhafsins Beint til Majorka á 3% tíma. MAJORKA - L0ND0N Nú komast íslendingar eins og aðrar þjóðir ódýrt til sólskinsparadísarinnar á Majorka, vinsælasta ferðamannastað álfunnar. Majorka er vinsælust allra staða vegna þess að sólskinsparadísin þar bregzt ekki og þar er fjölbreyttasta skemmt- analíf og mestir möguleikar til skoðunar og skemmtiferða um eyjuna sjálfa, sem er stærri en Borgarfjarðar- og Mýrasýslur til samans, og einnig er hægt að komast í ódýrar skemmtiferðir til Afríku, Barcelona og Madrid (dagferðir), Monte Carlo og Nizza. Flogið beint til Spánar með íslenzkri flugvél. Tveir heilir sólar- hringar í London á heimleið. Þægilegar ferðir til eftirsóttra staða. Næstu ferðir: 17. júlí (fá sæti), 31. júlí (full'bókað), 14. ágúst (fullbókað), 21. ágúst (fá sæti), 28. ágúst (fullbókað), 4. sept. (fullbókað), 11. sept. (fullbókað), 18. sept. (fá sæti), 25. sept. (fullbókað), 9. okt. og 23. okt. 17 dogor fra kr. 8.900.— Fyrirhuguð aukaferð 3. september L0ND0N - AMSTERDAM - KAUPMANNAHÖFN 12 daga ferðír — Verð krónur 14.400,oo Stuttar og ódýrar ferðir sem gefa fólki tækifæri til að kynnast þremur vinsælum stórborgum Evrópu, sem þó eru mjög ólíkar. Miljónaborgin London er tilkomu- mikil og sögufræg höfuðborg stórveldis með fjölbreytt menningar- og skemmt- analíf. Amsterdam er heillandi fögur með fljót sín og síki, blómum skrýdd og létt í skapi. Og svo borgin við sundið, Kaupm annahöfn, þar sem íslendingar una sér betur en víðast annars 6taðar á erlendri grund. Fararstjórar: Klemenz Jónsson, Gunnar Eyjólfsson, Jón Sigurbjörnsson. Brottfarardagar: 21. júií — 4. ágúst — 18. ágúst — 1. sept. — 8. sept — 15. sept. ÍTALÍA í SEPTEMBERSÓL Brottför 1. september — 21 dagur. — Verð kr. 27. 600.— Þessi lúxusferð er mun ódýrari en aðrar hliðstæðar ferðir vegna hagstæðra viðskiptasamn- inga SUNNU á ftaliu. — Flogið er til Milanó og ekið þaðan um fegurstu byggðÍT Ítaflíu. Með- al annars komið til Feneyja hinnar „fljótandi borgar“ ævintýra, söngs og sögu. Róm eru helgaðir fimm dagar, því að margt er að sjá. Frá Róm liggur leiðin suður um Napóli, Pompei og Sorrento, siglt með einu glæsilegasta hafskipi heims, risaskipinu Michaelangelo 43 þús. smálestir að stærð, til Cannes á frönsku Rivierunni og etoið ti.l Nizza, þar sem dvaMzt er síðustu daga ferðarinnar. Frá Nizza er flogið heim með viðkomu í London, þar sem hægt er að framlengja ferðina ef óskað er. Fararstjóri: Thor Vilhjálmsson, rithöfundur. PARÍS — RÍNARLÖND — SVISS Brottför 23. ágúst. — 17 daga ferð. — Verð kr. 22.840. Þessi ferð hefur verið farin svo til óbreytt í sjö ár og jafnan við miklar vinsældir, enda fólk komið heim með óbrotgjarnar minningar. Hér gefst fólki tækifæri til að kynnast nokkrum fegurstu stöðum í Evrópu í rólegri ferð. Flogið er til Parísar og dvalizt þar í borg fegurðar og gleði sólríka sumardaga. Frá París er flogið til Sviss, skroppið í skemmtiferð suður yfir fjallaskörðin til ftalíu. Frá Sviss er farið fljúgandi til Rínarlanda og dvalizt í fjóra daga við ána Rín í Rúdesheim, einum frægasta skemmtanabæ Rínarlanda. Þar er haldin vínhátíð og krýnd víndrottning. Farið ex í ökuferðir um Rínarhéruð og siglt á fljótinu með skemmtileg- um farþegaskipum. Fararstjóri: Jón Helgason. EDINBORGARHÁTÍDIN Brottför 24. ágúst — 7 daga ferð. — Verð kr. 8. 900. — Þessi vinsæla ferð hefur verið farin á hverju ári í sex ár og jafnan fullskipuð. Fara all- margir árlega, enda er Edinborgarhátíðin ein mikilfenglegasta listahátið álfunnar. Auk þess er Edinborg mjög fögur borg og ánægjulegt að dveljast þar sólheita síðsumardaga. Farið er í skemmtiferðir upp í hálendi Skotlands og hin fögru vatnahéruð, en jafnan komið heim á hótel í Edinborg að kvöldi. Hægt er að framlengja dvölina og skreppa til London. Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson leikari. Þotuflug í öllum Suxinuferðum í SUIMNUFERÐUIH eru eingöngu notuð góð hótel. Flogið lengstu Ieiðirnar og ekið eingöngu þar sem landslagsfegurð er mest. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu sem reynt hafa SUNNU-ferðir og velja þær aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða — og vandið valið. Biðjið um nákvæmn ferðaáætlun og pantið sncmma, því yfirleitt komast aldrei allir sem vilja í SUNNU-ferðir. Það eru ferðir, sem fólk getur treyst. ÆVINTÝRAFERÐIN TIL AUSTURLANDA Brottför 6. október. — 21 dagur. — Verð kr. 28.900. — Þeir mörgu, sem hafa tekið þátt í þessum ævintýraferðum SUNNU til dularheima Austurlanda, eiga fæstir nógu sterk orð til að lýsa þeim undrum og furðum, sem fyrir augu ber. Flogið til London og þaðan til Aþenu, þar sem dvalizt er í tvo daga. Flogið áfram til Beirut, þar sem skoðaðir eru leynd- ardómar þessarar frægu borgar vegamóta í Austurlöndum nær. Heimsóttir persneskir teppasalar í fríhöfninni. Frá Beirut er flogið til Karió og dvalizt á góðu hóteli á bökkum Nílar. Frá Kairó er flogið til Jerúsalem, dvalizt þar í fimm daga og skoð- aðir allir helztu sögustaðir Biblíunnar. Frá Jerúsalem er flogið til London og hægt að framlengja dvöl þar, ef óskað er. Fararstjóri: Guðni Þórðarson. ferðirnar sem fólkið velur sunna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.