Morgunblaðið - 23.07.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1968
13
Blöð í Prag voru rifin út er þau birtu svar tékkóslóvakiska kommúnistaflokksins við bréfi Var
sjárfundarins.
því yfir að kommúnistaflokkur-
inn mundi ekki víkja hársbreidd
frá sókn sinni til sósíalistisks
lýðræðis og mannúðarstefnu en
viðhalda um leið góðum samskipt
um við Sovétríkin og önnur
kommúnistaríki, var ákaft fagn-
að. Vafi sá sem gert hafði vart
við sig fyrir nokkrum vikum ir
gersamlega horfinn vegna hinnar
nýju festu sem Dubcek hefur
sýnt. f fyrstu virtist kommún-
istaflokkurinn hikandi og ráð
viltur, þegar sovézku hersveit-..
irnar neituðu að fara úr landi,
og tilkynningar yfirvalda um
brottflutninginn stönguðust á.
Þetta breyttis þegar birtur
var texti bréfsins sem Varsjár-
ráðsefna Sovétríkjanna og fjög-
urra fylgiríkja þeirra til vald-
hafanna í Prag var birtur á
fimmtudagsmorgun í síðustu
viku. Einkaviðræður virtust þá
útilokaðar, og öllum var ljóst
hvílík vá var fyrir dyrum. Sov-
étríkin og fjögur dyggustu
bandalagsríki þeirra lýstu því
yfir að gagnbyltingarsinnar æðu
uppi í Tékkóslóvakíu, að þessi
hætta ógnaði öllu Varsjárbanda-
laginu og að þau gætu ekki lát-
ið það afskiptalaust. Mikil reiði
greip um sig í Tékkóslóvakíu, og'
víða mátti fólk tuldra „lygi!
lygi!,“ er það hlýddi á reiðilest-
urinn í útvarpinu. Fréttaritari
Observers segir svo frá:
Tékkóslóvakar fylktu sér
samstundis um leiðtoga sína.
Hvarvetna safnaðist fólk saman
til þess að senda þeim skeyti með
yfirlýsingum um stuðning. Á
skrifstofu einni, þar sem aðeins
þrír starfsmenn voru félagar
starfsliðið senda hvatningar-
skeyti. Skrifstofustjórinn var ná
fölur af reiði þegar hann heyrði
þetta og sagði að aðeins kommún
istar gætu sent Dubcek skeyti og
að hann og flokksbræður hans
tveir á skrifstofunni, sem báðir
eru Novotnysinnar, vonuðu að
Rússar bindu enda á hina
hneykslanlegu tilraunastarfsemi
Dubceks. Undirmenn hans sögðu
honum að þegja, læstu hann
inni á skrifstofu sinni og sendu
skeytið. Seinna létu þeir hann
lausan, sýndu honum þá fáguðu
kurteisi sem Tékkar eru rómað-
ir fyrir og sneru aftur að störf-
um sínum.
Hverfandi fylgi Novotnys
Þannig er andrúmsloftið í
Tékkóslóvakíu þessa dagana. í
verksmiðjunum hafa vinnuafköst
minnkað og sums staðar hefur
vinna næstum því lagzt niður.
Hvarvetna í verksmiðjum og á
skrifstofum, hópuðust karlar og
konur kringum ferðaútvarpstæki
til þess að hlýða á rótarskamm-
irnar í bréfi Varsjárfundarins,
hio langa og stillilega svar fram-
kvæmdastjórnar tékkóslóvak-
íska kommúnistaflokksins, sjón-
varpsræðu Dubceks og ræðu-
höldin á aukafundi miðstjórnar-
innar í Prag-kastala, fyrstu
beinu útsendingunni frá slíkum
fundi.
Dubcek og félagar hans hafa
hlotið stuðning jafnvel í gagn-
njósnaþjónustunni og hinum
vopnuðu alþýðusveitum, sem
hafa verið helztu máttarstoðir
Novotny fyrrum forseta og stuðn
ingsmanna hans. Tilraunir hinna
íhaldssömu stuðningsmanna No-
votnys til þess að fá til liðs við
sig flokksleiðtoga, sem enn
höfðu ekki tekið ákveðna af-
stöðu hafa gersamlega farið út
um þúfur. Þar til Rússar þrjózk
uðust við að flytja herlið sitt úr
landi, var um það bil þriðjung-
ur miðstjórnarinnar á bandi No-
votnys og Rússa, en fyrir helg-
ina greiddu rúmlega 90% mið-
stjórnarinnar atkvæði með yfir-
lýsingu um traust á stefnu fram-
kvæmdastjórnarinnar. Ef Rússar
hafa gert sér vonir um að geta
komið af stað byltingu gegn
Dubcek með aðstoð stuðnings-
manna Novotnys, þá hefur drátt
urinn á brottflutningnum gert
þær vonir að engu, því að þótt
Novotny hafi átt stuðningsmenn
í hernum og lögreglunni, þá þora
þeir ekki annað en hafa hægt um
sig vegna hins yfirgnæfandi
stuðnings sem Dubcek nýtur með
al þjóðarinnar. Ef Rússar gera
alvöru úr þvi að hrekja núver-
andi leiðtogum frá völdum
verða þeir að beita til þess skrið
drekum sínum.
Kanossaganga Rússa
Auk þess er ljóst að ef Rúss
ar grípa til hernaðaríhlutunar
mun það valda sundrungu innan
alþjóðahreyfingar kommúnista.
Nær allir kommúnistaflokkar í
Vestur-Evrópu og þar að auki
kommúnistaflokkar Rúmeníu og
Júgóslavíu styðja nýju valdhaf-
ana í Prag. Jafnvel Janos Kadar,
leiðtogi ungverskra kommúnista,
reynir að gæta hlutleysis. Bjart-
sýni Tékkóslóvaka er því ekki
ástæðulaus. Tilkynningin sem
gefin var út í gær þess efnis, að
sovézkir leiðtogar hafi fallizt á
að ræða við tékkóslóvakíska leið
toga í Tékkóslóvakíu, mun vafa-
laust auka bjartsýnina og stað-
festa trú Tékka á því að allt
muni enda vel. Samþykki Rússa
er mikill sigur fyrir Tékkósló-
vaka. Rússar hafa orðið að fall-
ast á að koma til Tékkóslóvakiu
eftir að hafa árangurslaust
reynt Tékkóslóvaka til að koma
til Moskvu, Kiev og Lwov.
Ferð sovézku leiðtoganna til
Tékkóslóvakíu verður nokkurs
konar Kanosarganga. En leið-
togarnir í Prag hafa hagað sér
mjög skynsamlega og af hófsemi,
og því má telja víst að þeir forð-
ist allt sem yrði auðmýkjandi
fyrir Rússa og sigurgleði vegna
eftirgjafar þeirra. Valdhafarnir
í Prag hafa sterk spil á hend-
inni, en það er til marks um hina
raunsæju stefnu þeirra, að þeir
forðast að traysta um of á stuðn
ing Rúmena og Júgóslava,
þótt þeir meti hann mikils.
Tékkóslóvakísku valdhafarnir
vilja eyða öllum grunsemdum um
að þeir hafi í hyggju að endur-
reisa „Litla bandalagið", sem
mjög kom við sögu á árunum
milli heimsstyrjaldanna, eða
koma á fót andsovézku ríkja-
Bandalagi í Austur-Evrópu.
Nýju valdhafarnir í Prag eiga
erfiða daga í vændum. Þeir verða
að stunda erfiða jafnvægislist.
í kommúnistaflokknum, vildi
...n..ww.wmwvwn amv?wwwwx-xíf; »«Ow9S»«9KSv.vNv.X v vffijiXv/X®
Frá uppreisninni í Ungverjalandi 1956: Rússneskur skriðdreki
liggur brunninn á götuhorni eftir að kveikt var í honum með
heimatilbúinni sprengju. Endurtekur sagan sig í Tékkóslóvak-
íu?
Andvígir Dubcek
Leonid Brezhnev (62 ára), leiðtogi
sovézka kommúnistaflokksins, og Alex
ei Kosygin (64 ára), stjórna gífurleg-
um þvingunum til þess að halda aftur
af Tékkum. Sovézkar hersveitir hafa
haldið á brott frá tékkneskri grund,
en brottflutningnum er enn ekki lok-
ið — og skriðdrekasveitir Rússa höfðu
hafið brottflutning frá Ungverjalandi
áður en þær brutu uppreisnina á bak
aftur. Herstyrkur Tékka (175.000
menn og 3.200 skriðdrekar) er smávægi
legur í samanburði við sovézka her-
inn (2 milljónir hermanna). Rússar
ráða yfir tíu sinnum fleiri skriðdrek-
um og 86 vélvæddum herfylkjum.
Wálter Ulbricht (74 ára), þjóðhöfð-
ingi Austur-Þýzkalands, óbilgjarn-
asti og óræðnasti leiðtogi austantjalds
ríkjanna. Gætir þess alltaf að styggja
aldrei Rússa, og er leiðtogi þröngsýn-
ustu stjórnarinnar austan járntjalds-
ins. Hann er einnig andvígur frjáls-
lyndum ráðstöfunum annarra kommún-
istaríkja. Hann gagnrýnir Dubcek
vegna þess að stefna hans stofnar
austur-þýzku stjórninni í hættu og ein
angrar hana. Ulbricht vill stað-
setningu austur-þýzkra eða sovézkra
hersveita í Tékkóslóvakíu og ræður
yfir 85.000 hermönnum, sem Rússar
hafa þjálfað og tveimur skriðdrekaher
fylkjum.
Wladyslaw Gomulka 63 ára, gam-
all verkalýðsleiðtogi og leiðtogi
Kommúnistaflokks Póllands. Heldur
tryggð við Moskvu-stjórnina. Hefur
staðizt stúdentauppreisnir og tilraunir
til að bola honum frá völdum. Pólland
virtist ramba á barmi uppreisnar í
marz, en Gomulka bældi niður alla
mótspyrnu með harðri hendi. 18"5.000
mann her Póllands stendur Rússum til
umráða. Lega landsins milli Rúss-
lands og Þýzkalands hefur áhrif á af-
stöðu hans.
Thodor Zhivkov (57 ára,) hinn smá-
vaxni og gildvaxni leiðtogi búlgarska
kommúnistaflokksins, hefur staðizt
fleiri rilraunir til, að bola honum frá
völdum síðan hann komst til valdá
fyrir 14 árum en nokkur annar núlif-
andi kommúnistaleiðtogi. Hefur komið
í veg fyrir margar tilraunir til að
beina landinu inn á frjálslyndari
brautir. í vetur var á kreiki orðróm-
ur um að tilraun hefði verið gerð til
að ráða hann af dögum. Hugsanlegt
að hann þoki sér nær stefnu Dubceks.
Zhivkov hefur friðmælzt við vestræn
ríki og reynt að laða ferðamenn til
baðstaða á Svartahafsströndinni.
Her: 125.000 menn.
Hlutlausir
Janos Kadar 56 ára), leiðtogi ung-
verskra kommúnista. Fjögurra ára
vist í fangelsi stalínista gerði Kadar
að gætnum manni. Árið 1956 studdi
hann uppreisnina sem gerð var í Ung-
verjalandi, en sneri við blaðinu og að-'
stoðaði Rússa við að brjóta hana á
bak aftur þegar svo virtist sem hún
mundi leiða til þess að kommúnisman-
um yrði kollvarpað. Nú gætir hann
eindregins hlutleysis í von um að Tékk
um verði ekki á sömu mistök og Ung-
verjum, en svo lítið ber á hvetur hann
þá til að sýna pólitíska festu. Her:
95.000 menn.
Með Dubcek
Nicolae Ceausescu (50 ára), forseti
Rúmeníu og aðalritari kommúnista-
flokksins, hefur leitt þjóð sína inn á
braut sjálfstæðari stefnu í utanríkis-
málum, og hefur hvatt Tékka til að
ráða málum sínum sjálfir. Rúmenía
liggur að Sovétríkjunum og landamæri
ríkjanna eru rúmlega 300 mílna löng,
svo að Ceusescu tekur vísvitandi á-
hættu með því að bjóða Rússum byrg-
inn. Vinsældir Ceusescus fara vaxandi.
Her: 150.000 menn.
Josef Tito 76 ára), hinn gamal-
reyndi forseti Júgóslava, hefur að
baki mestu reynsluna í að bjóða Rúss-
um byrginn. Fyrir tuttugu árum snupr
aði hann Stalín og sagði Júgóslavíu
úr Kominform. Hefur hreinsað til í
leynilögreglunni og reynt í tuttugu ár
að sameina lýðræði og kommúnisma.
Hefur endurvakið gömul tengsl við
Rússa en veitir Dubcek eindreginn
stuðning og segir það opinberlega. í
fastaher hans eru 180.000 menn.