Morgunblaðið - 23.07.1968, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.07.1968, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1968 En það var frú Richards,sem kastaði næstu sprengjunni, og með þeim árangri, að frú Hard- ing viðurkenndi, að þrátt fyrir allt, væri líkiega beat, að Pam færi að heiman, um stundarsakir. Ein sameiginleg • vinikona frúnna tveggja, var að halda tesamkvæmi. Pam hafði ekki vilj- að fara þangað, en móðir hennar heimtaði það. — Því meir sem þú sýnir þig á aimannafæri, því fljótar hjaðn- ar allt umtal niður, sagði hún. Pam og móðir hennar sátu að teborðinu með nokkrum fleirri konum, þegar frú Richards kom skeiðandi og var mikið niðri fyrir. - Ég er búin að fá miklar fréttir í morgun, suðaði hún. Hvað getið þið hugsað ykkur? Hugh er bara búinn að gifta sig! Já, ég fékk skeyti um það. Snögg legt, finnst ykkur ekki? Hann hefur gengið að eiga systur hans félaga síns, hans Jeff Maitland. Hún heitir Kay. Það virðist svo svo sem hún hafi farið að finna hann bróður sinn fyrir svo sem tveimur mánuðum. Hún tifaði fingri framan í Pam, með upp- gerðar gamansemi, og bætti við glettnislega: — Hún hlýtur að hafa gripið hann á lofti þegar þú kastaði honum, Pam! Pam langaði snögglega til að löðrunga frú Richards á feita. brosandi andlitið. Hún hataði hana af öllu hjarta á þessari stundu. Frú Richards vissi eins vel og hún, að það var Hugh sem hafði neytt hana til að sleppa honum. Svo áð þarna var þá ástæðan, hugsaði hún gremju- lcga. Systir Jeffs hafði komið til þeirra og Hugh orðið skotinn í henni. Og gleymt henni - Pam! Það sannaðist á þeim, að svo fyrnast ástir sem fundir! Pam fór til London daginn eft-ir, og til Gwen, systur sinn- ar. Gwen tók vel á móti henni og var nógu nærgætin til þess að minnast alls ekki á trúlofunina, sem farin var út um þúfur. Gwen og maður hennar áttu heima í stóru, skemmtilegu húsi í Hampstead. Fyrsta kvöldið, þegar Pam var að hátta, kom Gwen inn til hennar, til að rabba við hana. Pam lagði frá sér greiðuna, sem hún hafði verið að greiða dökkrauða hárið með. — Það er fallega gert af ykkuir Jack að lofa mér að vera hérna, Gwen, sagði hún, - og 10 t auðvitað fer vel um mig hérna, en mér gæti samt ekki komið til hugar að verða hér til eilífðar nóns. Ég vil fá mér einhverja atvinnu og vinna fyrir mér sjálf. — Þú veizt, að þér er velkom- ið að vera hérna eins lengi og þú vilt sagði systir hennar, - en kannski verðurðu ánægðari með að hafa sjálf atvinnu. Hefurðu nokkuð sérstakt í huga? Pam hristi höfuðið og brosti vandræðalega. — Nei, ekkert, sagði hún gremjulega. Svo bætti hún við, með nokkurri beizkju. — Það er nú höfuðgallinn á því að vera alin upp fyrir hjónabandsmark- aðinn. Þegar hann bregzt, kann maður ekkert fyrir sér. 10 ÁRA ÁBYRGÐ TVÖFALTI EINANGRUNAR nsla hérlendij SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON &CO HF f 10 ÁRA ÁBYRGÐ Útsala — Útsala KVEN- og TELPNA-BUXNADRAGTIR KVENSÍÐBUXUR KVENPEYSUR og BLÚSSUR BR.JÓSTAHÖLD og LÍFSTYKKI. SÍMI 10095. — Þú talar eins og bjáni, sagði Gwen. — Þú verður skot- in í einhverjum öðrum og líklega verður það fyrr en þér dettur í hug. Ég var sjálf skotin þrisvar, áður en ég hitti hann Jack. Ég skal tala við vinkonur mínar og komast að því, hvort þær hafa einhverjar gagnlegar tillögur að gera, viðvíkjandi atvinnu handa þér. Og heppnin var með Pam. Kona eins viðskiptavinar Jack, rík og áhrifamikil kona af heldra taginu, sem þau þekktu eitthvað ofurlítið, minntist á það einn daginn, að hún væri í megr- unarkúr, í einhverri nuddstofu fyrir gildvaxnar konur. Hún sagðist halda, að þar væri laus staða. Hún skyldi að minnsta kosti spyrja um það. Það gerði hún svo og fáum dögum síðar kom símhringing til Pam, þar sem hún var beðin að tala við forstöðukonu stofnun- arinnar, að nafni frú Saunders. Frú Saunders var miðaldra kona, viðkunnanleg og dugnað- arleg, og Pam kunni strax vel við hana. Hún fann, að hún mundi vera heiðarleg og réttlát kona, sem gott væri að vinna hjá, að hún mundi heimta það bezta af sínu fólki en þó ekki ætla því ofmikið. Árangurinn af þessu samtali þeirra var sá, að Pam skyldi koma til reynslu í tvo mánuði,og læra handverkið á þeim tíma. Ef hún svo reyndist vel, kæmi hún á kaup - og það ríflegt kaup. Pam var afskaplega fegin að fá þessa atvinnu. Auk þess fannst henni vinnan skemmtileg og vekja til umhugsunar. Þarna komu allra handa konur í nudd su.mar feitar, sumar í"meðallagi á allan vöxt, en sumar voru svo grannar, að það virtist ekki nema tímaeyðsla að gera þær ennþá grennri. —Það virðist alveg sama, hvemig konur eru í vaxtarlagi, þá eru þær samt aldrei ánægðar með það, sagði Pam við Gwen. Og því ríkari sem þær eru, því óánægðari eru þær. Pam reyndist dugleg við þetta starf og eftir tvo mánuði fékk hún fasta ráðningu þarna. Þrátt fyrir andmæli frá Gwen, flutti hún strax að heiman frá systur sinni og leigði sér eins herbergis íbúð í Kensington. Þetta var skemmtilegur staður, gluggarnir stórir og veggirnir ljósir, og svo var þarna ofurlítið eldihús og baðherbergi. Stundum bauð hún einhverj- um samverkakonum heim með sér í kvöldmat. Þetta voru góðar stúlkur og skemmtilegar. Stund- um fór hún út með einhverjum karlmönnum í kvöldverð og dans, eða í leikhús. En enginn þeirra karlmanna, sem hún kynntist um * AUÐVITAÐ VEITÉG. að kaffi er svo viðkvamur drykkur að það verður að laga það með umhyggju. Einkum verðurað VARAST, að: nota staðið vatn í kaffilögun, að láta kaffið sjóða, að hita upp kaffi sem hefur kólnað. 1P; að laga kaffi í of stórri könnu. Það borgar sigað laga kaffið með umhyggju. 0.J0HNS0N & KAABEB V£UUM (SLENZKT d=D fSLENZKAN IONAO « — Gakktu í bæinn þinn vinur — og á borðinu býður kavi- arinn og kampavínið. þessar mundir vakti neinn sér- legan áhuga hjá henni. Hún vissi ekki sjálf, hvort hún væri raunverulega ástfang- in af Hugh ennþá. Vissulega var auðmýkingarkenndin tekin að minnka, en samt gramdist henni í hvert sinn, sem hún hugsaði um meðferðina hans á henni. Svikin! Þetta var andstyggðar orð, og hana sveið enn undan því. Frú Saunders var mjög ánægð með verk hennar og lét þess oft getið — Ýmsir viðskiptavinir oik'kar hafa beðið sérstaklega um þig, sagði hún Pam. — Þær segja, að þú hafir svo viðkunnanlega framkomu. Vitanlega stóð hús systur hennar henni alltaf opið, og venjulega var hún þar á sunnu- dögum. Stundum komu foreldrar hennar til London, eftir að hún var farin að vinna hjá frú Saunders. En enda þótt hún hefði gaman af að sjá þau, gat ekkert fengið hana til að fara aftur til Croxford — ekki einu- sinni yfir eina helgi. — Líklega er ég voða heigull, sagði hún við Gwen, — og það er nú ekki eins og ég sé ást- fangin af Hugh lengur. En það er nú svona, samt, að ég vil ekki fara þangað, og það er ákveðið. Þegar Pam hafði unnið um það bil eitt ár hjá frú Saunders, kall aði' húsmóðir hennar hana einn daginn inn í skrifstofuna sína. — Ég hef gert samning við skipafélag um að senda tvær stúlkur frá mér í skemmtiferð á einu skeihmtiskipinu þess, sagði hún við Pam. — Mér finnst þetta býsna frumleg hugdetta. Fólk hefur lítið fyrir stafni á svona ferðalagi — einkum þó konurnar. Og þær verða sjálf- sagt fegnar að geta fengið nudd. Stúlkurnar vinna ekki nema á daginn, en á kvöldin eiga þær með sig sjálfar, og geta skemmt sér að vild. Heldurðu, að þú kærðir þig um að fara? — Já, ég er viss um, að ég hefði gaman af þvi, frú Saund- ers, sagði Pam hrifin. — Það er ágætt, sagði eldri konan. — Ég skal vera hrein- skilin við þig. Þú ert ein sú bezta, sem vinnur hérna. Annars gæfi ég þér ekki þetta tækifæri. Og þar sem þetta verður eins- konar frí, hefurðu ekki nema gott af því. Þú hefur verið held ur fölleit uppá síðkastið. — Hvert verður þessi ferð far in? spurði Pam. —'■ Til Brasilíu og Argentínu. Pam varð eitthvað skrítin við að heyra þetta. Vafalaust yrði Rio einn viðkomustaðurinn. En hvað varðaði hana um það? Það voru engin líkindi til þess, að hún færi að rekast á Hugh. Auk þess var allt búið að vera þeirra í milli. Betty Taylor, sem hafði lent í hræðilega misheppnuðu hjóna- bandi átti að verða hin stúlkan. Maðurinn hennar hafði reynzt henni illa og yfirgefið hana, eft- ir að eina barnið þeirra fædd- ist. Hún hafði fengið skilnað frá honum og barnið var nú hjá for- eldrum hennar. Þær Pam höfðu oft rætt karlmenn, sín í milli. Og 23. JÚLÍ. Hrúturinn 21. marz — 19. apríl. Gakktu vel frá öllum hnútum í fjármálum, vertu heima í kvöld. Nautið 20. april — 20. maí. Fréttir langt að reka smiðshöggið á áform þín. Ný sambönd geta borgað sig vel. Tvíburarnir 21. maí — 20. júní. Nú er tími til að ganga vel frá. Krabbinn 21. júní — 22. júlí. Þú fréttir eitthvað gagnlegt í dag. Bjóddu einihverjum heim í kvöld. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst. Farðu yfir skjölin til að vera viss um að ekkert hafi farið for- görðum. Nú er bezt að vera orðvar, og treysta eigin dómgrelnd. Meyjan 23. ágúst — 22. sept. Byrjaðu snemma, reyndu að koma miklu í verk, og bjóddu vinum þínum heim í kvöld. Vogin 23. sept. — 22. okt. Þetta getur orðið góður dagur. Fáðu þér góða hvíld. Sporðdrekinn 23 okt. — 21. nóv. Lestu þér til á nýju sviði, og reyndu að ferðast eitthvað, Bogmaðurinn22. nóv. — 21. des. Góður tími til viðræðna, og lagasamninga, hafðu tryggingarnar í lagi. Ferðaztu ekki of mikið. Steingeitin 22. des. — 19. jan. Þér verður meira ágengt með vini og ættingja Fylgztu fremur með gerðum þeirra en orðum. Vatnsberinn 20. jan. — 18. febr. Þú verður margs vísari, einhverjar kerfisbreytingar birtar. Fiskamir 19. febrúar — 20. marz Ljúktu verki þfnu, þannig að ekki sé hægt að áfellast þig á neinn hátt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.