Morgunblaðið - 23.07.1968, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.07.1968, Blaðsíða 28
JllWjgiiti&fafrtfe RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA SÍIVII lO-IDD ÞRIÐJUDAGUK 23. JULÍ 1968 RITSTJORN • PRENTSMIÐJA AFG R EIÐSLA • SKRIFSTO FA SÍMI 10*100 Ungur maður drukknaöi í Hítarvatni ÞRJÁTÍU og níu ára gamall mað ur drukknaði er lítilli bátskel hvolfdi á Hítarvatni á laugar- dag, en félagi hans, sem með honum var, gat svamlað að landi. Hinn látni var Óskar Jakobsson, blikksmiður, til heimilis að Ný- býlavegi 34A í Kópavogi. Óskar og félagi hans voru á- samt nokkrum öðrum mönnum í tjaldi við vatnið. Ákváðu þeir tveir að kanna hvort þeir fyndu Óskar Jakobsson. minnk í hólmunum og til ferðar- innar höfðu þeir litla aluminium bátskel með utanborðsmótor. Á leið í land kulaði dálítið og ætl- uðu þeir að reyna að komast á lygnt. Til þess þurftu þeir að ibeita uppí, en það varð til þess að bátinn fyllti og sökk. Félagi Óskars var ekki synd- ur, en tókst að svamla að landi á uppblásinni gúmmíslöngu. Óskar var syndur, en vöðlur hans fylltust af vatni, og sjálf- blásið flothylki, sem hann hafði nælt í sig, nægði ekki til að halda honum uppi. Félagi Óskars var mjög aðfram kominn er hann kom að landi og hefur Iíklega misst meðvitund, því að slysið varð um þrjúleyt- ið en hann var ekki kominn að tjaldinu fyrr en einhverntíma milli kl. 7 og 8,/Leitað var að- istoðar Slysavarnafélagsins og sendi það froskmenn á staðinn og fundu þeir lík Óskars á sunnudaginn. Lögregluyfirvöld í Borgarfirði eru að rann- saka hverskonar björgunartæki það var,_ sem hann hafði með- ferðis. Óskar lætur eftir sig konu og tvö börn. Mannfjöldi fagnaði því er bæjarstjórinn í Eyjum kipptj tappamum úr leiðsluendanum og vatn undan Eyjafjöllum féll í fallegri bunu á bryggjuna. (Ljósm.: Sigurgeir. 1000 ára vandamál er að leysast með vatnsleiðslunni Eyjamenn fagna langþráðum áfanga — VIÐ ERUM hér vottar þess, að verið er að leysa 1000 ára gam alt vandamál, sagði Magnús H. Magnússon bæjarstjóri i Vest- mannaeyjum, er hann stóð á Nausthamarsbryggju við hlið danska leiðsluskipsins Henry P. Lading. Hundruð manna voru á bryggjunni og margir langt að komnir, þvi Vestmannaeyjakaup- staður hafði boðið til Eyja stór- um hópí gcsta, ráðherrum, em- bættismönnum o.fl. sem lagt hafa vatnsmáli Vestmannaeyinga lið á einhvern hátt. Að visu heyrðu fæstir til bæjarstjórans, sem að- eins sagði örfá orð, áður en hann tók í snúru sem vafin var ísl. fánahorða og við átakið fór tapp inn úr leiðslunni og vatnið frá Syðri-Mörk á Landeyjarsandi bunaði fyrst á þilfar leiðsluskips ins og síðan út yfir Naustham- arsbryggju. Framhald á bls. 27 Síldarbátana skortir vatn Skeyti frá Haferninum kl. 20, 22 Lögðum af stað kl. 14 með 3345 tonn. Aflahæstu skipin hér eru Mb. Gígja og Kristján Val- igeir með 1300 og 1200 tonn. Það hefur komið í ljós að flutninga- skipin anna ekki vatnsþörf bát- Sanna og fimmtíu bátar hafa farið þess á leit við Haförninn að í næstu ferð komi hann með 600 tonnum meira en venjulega. Fimmtíu og fimm íslenzk veiði- skip eru nú á miðunum. Stein- grímur. Varð undir bómu og hryggbrotnaði Akureyri, 22. júlí. ÞAð slys varð á Gleráreyrum um kl. 2 í gær að Sverrir Georgs son, Þórunnarstræti 125, varð undir kranabómu sem hann var að stytta. Hann hryggbrotnaði og var fluttur til Reykjavíkur með flugvél, síðdegis í gær. Sverrir var að vinna við stytt- ingu langrar bómu ásamt syni sínum og bróður, en þeir bræður reka fyrirtækið Vinnuvélar sf. Bóman var í láréttri stöðu um 1 m. frá jörðu. Var Sverrir að slá bolta úr henni til að losa hana sundur og kraup undir henni. Þá seig bóman skyndilega niður og lenti ofan á herðum Sverris. Félagar hans tveir stukku þegar til og gátu lyft bómunni ofan af honum með handafli og segjast Framhald á bls. 2 Harður bardagi um borð þýzkum togara W I — Eftir að drukkinn sjómaður réðst á hjón á Faxagarði ÞÝZKIR togarasjómenn óðu uppi með ofstopa í Reykjavik um helgina og einn þeirra réð- 4st t.d. að hjónum sem voru á gangi niðri við höfn og barði Ætla að flytja ísaða síld til söltunar í landi konuna svo að stórsá á henni. Fyrst létu þeir til sín taka að- fararnótt laugardagsins. Þá voru fjórir íslenzkir nátthrafnar á ferli við höfnina og gáfu sig á tal við þýzka sjómenn. Var þeim allt annað en illindi í huga, en Þjóðverjarnir voru hinir herská- ustu og fyrr en varði höfðu þeir slegið hina niður, alla með tölu. Á sunnudagskvöldið voru svo hjón á gangí á Faxagarði þegar 'rumur mikill réðst að þeim og •barði konuna svo að stórsá á andliti hennar, en stökik svo 'burt. Hópur manna safnaðist iþarna að, en Þjóðverjannir, um borð í skipi sínu hófu þá að ikaeta í þá flsökum og öðru lauslegu. Fjórir lögregluþjónar vonu sendir á vettvang og hraðaði árásarmaðurinn sér þá um borð til félaga sinna. Lögregluþjónarn ir fylgdu á eftir, en Þjóðverjinn' snerist til varnar af mikilli hörku enida heljarmenni að burð um. Tveir félagar hans koanu honum til aðstoðar og varð þarna hörð viðureign sem lauk með því að lögregluþjónarnir drógu Þjóðverjana frá borði í járnum, og fluttu þá í fangelsi. Þýzki togarinn heitir Laboe SK- 120 og er frá Kiel. Togarinn Vikingur fer á veiðar með stærstu nót sem vitað er um á Norður-Atlantshafi TOGARINN Víkingur, frá Akranesi, heldur á síldarmið- in fyrir norðan land um helg- ina og mun þá hafa innan- borðs stærstu nót, sem vitað er um að notuð hafi verið á Norður-Atlantshafi og fullkom in ta ki til að ísverja síldina. Ekki hefur verið endanlega ákveðið hvar hann muni landa, en það verður annað- hvort fyrir norðan eða aust- an. Valdimar Indriðason, fram- kvæmdastjóri hjá Haraldur Böðvarsson & Co., sagði Morg unblaðinu, að unnið væri að því þessa dagana að búa skip- ið út á síldveiðar. — Það var orðið svo erfitt að losna við karfann, að við verðum að gera út 1 á eitt- hvað annað. Við eigum þenn- an fína útbúnað tii veiðanna, og1 svo ætlum við að ísa afl- ann um borð eins og venju- legan bolfisk. Nótin, sem við not.um er sú stærsta sem við vitum um á Norður-Atiants- hafi, hún er 360 faðma löng og 135 faðma djúp. — Við gerðum tilraunir með hana í haust, en þá var erfitt við að eiga vegna þess hve síldin hélt sig djúpt og Framhald á bls. 2 Skip Valtýs á leið inn og flestar tunnur fullar SÍLDARSÖLTUNARSKIP Valtýs Þorsteinssonar er á landleið með flestar tunnur fullar. Morgun- blaðið hafði samband við Valtý á Akureyri í gær, og sagði hann að eftir því sem hann bezt vissi hefði ferðin gengið vel. — Ég veit ekki nákvæmlega hversu mikið magn skipið kem- ur með, en það er með nokkurn- vegin fullfermi. Þegar það kem- ur til Raufarhafnar á fimmtu- dagsmorgun verður síldin ápökk uð til útskipunar og verður mjög fljótlega flutt út til Finnlands. — Skipið fer á miðin aftur fljótlega eftir að það hefur losað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.