Morgunblaðið - 23.07.1968, Page 14

Morgunblaðið - 23.07.1968, Page 14
14 MÖRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1968 Jfafgtiitfrfapifr Útgefandi Framkvæmdastjóri RitstjóraT Ritstj órnarf ulltrúi Fréttastjóri Auglýsingast j óri Ritstjóm og afgreiðsla Auglýsingar Askriftargjald kr 120.00 1 lausasölu. Hf Arvakur. Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Sigurður Bjamason frá Vigur Matthías Johannessen. Eyjólfux Konráð Jónsson. Þorbjöm Guðmundsson. Bjöm Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstraeti 6. ,Sími 10-100. Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. á mánuði innanlancls. Kr. 7.00 eintakið. HLUTVERK A THAFNAMANNSINS TVTú þegar erfiðlegar gengur ’ í íslenzkum atvinnumál- um en verið hefur síðari árin, gera menn sér gleggri grein fyrir því, hve þýðingarmikið hlutverk athafnamannsins er og hver nauðsyn það er, að atvinnufyrirtækin séu vel rekin og skili í góðæri nægi- legum tekjuafgangi til að halda uppi öflugum rekstri, þótt eitthvað blási á móti einstök ár. Öfundájúkar sálir láta raun ar skjótt til sín heyra, ef ein- hverjum tekzt að hagnast sæmilega á atvinnurekstri, en sem betur fer skilja þó flest- ir, að atvinnuöryggi verður því aðeins tryggt, að fjár- hagsgrundvöllur fyrirtækj- anna sé traustur. Þetta skilja menn bezt á tímum eins og þeim, sem við nú lifum, þegar þrengist um atvinnu og sumir óttast jafnvel, að til atvinnuleysis komi, er há- annatímanum lýkur. En á slíkum tímum reynir líka mest á þor og dug at- hafnamannsins. Hlutverk hans í lýðræðisþjóðfélagi er hið þýðingarmesta. Honum ber ekki einungis að reka fyr irtæki sín þannig, þegar vel árar, að hann hagnist og færi út kvíjarnar, heldur ber hon- um einnig í slæmu árunum að leggja sig allan fram til að tryggja áframhaldandi rekstur, svo að ekki komi til atvinnuleysis og marghátt- aðra erfiðleika. Ábyrgð hinna ýmsu at- vinnuveitenda, jafnt þeirra smáu sem hinna, sem stærri eru, er þeim mun meiri sem miklir erfiðleikar eru hjá stærstu fyrirtækjasamsteypu landsins, Sambandi íslenzkra samvinnufélaga og kaupfélög unum og því ekki líklegt að samvinnureksturinn aukist, og sumsstaðar meira að segja ekki unnt að halda í horfinu. Erfiðleikar samvinnufélag- anna beina athygli manna að nauðsyn þess, að nýtt og öfl- ugt félagsform nái að festa rætur og geti tekið að sér að koma upp traustum fyrir- tækjum, sem tryggi fólkinu örugga atvinnu. Er þar um að ræða almenningshlutafé- lög, sem því miður hafa ekki náð útbreiðslu hér eins og í nágrannalöndunum. Slík fé- lög eru þó hin mikilvægustu og eiga að starfa við hlið sam vinnufélaganna og einka- fyrirtækjanna. Sumir halda að almennings hlutafélög rísi ekki upp vegna þess að löggjöf sé óhagkvæna slíku félagsformi. Þetta er á misskilningi byggt. Hins veg- ar hefur það háð öllum at- vinnurekstri, að honum hefur ekki verið gert unnt að hagn ast eðlilega í sæmilegu ár- ferði. Þetta hefur leitt til þess, að menn hafa ekki verið ginkeyptir fyrir að verja fjár munum sínum til þátttöku í atvinnulífinu, heldur hafa menn keppzt við að festa fé í öðrum eignum. Þar að auki er þess að geta, að sparifé og vextir af því er skattfrjálst, en hins vegar verða menn að greiða skatta af hlutafjáreign og arði af hlutabréfum. Brýna nauðsyn ber til að koma á samræmi í þessu efni, til þess að fólk fáist til þátttöku í almenn- ingshlutafélögum. Vissulega er atvinnuleysi hið mesta böl, sem yfir verka menn og launþega almennt getur gengið. Og þess vegna verða allir að leggja sig fram um það nú að treysta atvinnu fyrirtækin og hleypa nýjum fyrirtækjum af stokkunum. Þar reynir á áræði, dug og útsjónasemi athafnamann- anna. FERÐAMÖNNUM FJÖLGAR 17ins og getið var um hér í ^ blaðinu sl. sunnudag hef ur aukning á ferðamanna- straumi hingað til landsins orðið meiri en til nokkurs annars Evrópulands. Lúðvík Hjálmtýrsson forstjóri Ferða málaráðs telur aðal orsökina þá, að flugfélögin hafa aug- lýst mjög mikið erlendis og raunar aðrar stofnanir líka. Þjónusta við ferðamenn er orðin þýðingarmikill atvinnu vegur, en þó er talið, að enn væri unnt að auka verulega móttöku ferðamanna yfir sumartímann, ef unnt reynd- ist að haga ráðstefnuhaldi hér þannig, að ráðstefnurnar tækju ekki upp hótelrými á mesta annatímanum, heldur væru þær fremur haldnar að vori til og á haustin. Þá tekjulind, sem móttaka ferðamanna er, þurfum við íslendingar að hagnýta sem allra bezt, enda er gert ráð fyrir, að ferðamannastraum- ur um heim allan muni mjög aukast á næstu árum. ÍSLENDINGAR OG SKÁKIN Fnn hefur það sýnt sig á skákmótum, að íslenzkir ’AM IÍD HFIMI Vr/ 1 nli Ul\ nUIVII Sir Laurence Olivier er enn í fullu f jöri EFTIR GRANVILLE WATTS — AP SIR Laurence Olivier lauk úr bollanum, hristi höfuðið og sagði: — Ég hef held ég aldrei haft gaman af því að leika. Leiklistin hefnr vissu- lega sínar góðu hliðar, en stundum virðist marni að ' hún sé tæplega viðfangsefni fyrir uppkomið fólk. — Ég var um daginn að líta í gamla dagbók frá b3im tíma þegar ég var að leika í verkum Shakespeares ásamt konu rpinni (Vivien Leigh, sem nú er látin). Þar fann ég eftirfarandi setningu: „Það var gaman að leika í kvöld“. Þetta er eina skiptið sem slíkt hefur komið fyrir“. Olivier virðist við beztu heilsu og segist hafa náð sér fullkomlega eftir uppskurð, sem gerður var á honum vegna krabbameins. — Ég trúði því ekki þeg- ar þeir sögðu mér að ég væri með krabbamein og ég trúði því ekki heldur þegar þeir sögðu mér að ég næði fullri heilsu, segir Olivier. Þegar svona kemur fyrir, er líkast þvi að maður fái rothögg. Þótt undarlegt megi virðast varð þetta mér til góðs að vissu leyti. Þessi reynsla kem ur manni til að virða hlutina hærra en áður og taka ekki allt sem sjálfsagðan hlut. Lífsviðhorf mín hafa breytzt mikið. Allt getur gerzt þeg- ar komið er yfir sextugt. En ég er hættur að hafa áhyggj- ur af því. Á þessu ári hefur Olivier þegar unnið við fjórar kvik- myndir .Hann fór til Róma- borgar að gera myndina „Skó fiskimannsins" ásamt Ant- hony Quinn, lék í kvikmynd- unum „Ó, þetta er indælt stríð' ‘og „Orustunni um Bret land“ og vinnur nú að „Dauðadansinum" í Twicken- ham-kviikmyndaverinu, sem er skammt frá Lundúnum. í þessari nýjustu mynd leikur Oiiver ruddalegan /g opinskáan höfuðsmann í sænska hernum um síðustu aldamót. Höfuðsmaðurinn og kona hans eiga í sífelldri til- finningabaráttu milli ástar og haturs. Þeir, sem séð hafa upptök- ur myndarinnar, lýsa leik Oliviers með mikilli aðdáun. Hlutevrkið er mjög erfitt og leikarinn viðurkennir, að Sir Laurence dansinum'*. Olivier í hlutverki höfuðsmannsins í „Dauða- hann háfi stundum orðið að byrgja inni tilfinningar sín- og geyma þær þangað til hann kom heim. — Ég er hræddur um að fjölskylda mín finni fyrir þessii hlút- verki, segir hann brosandi. Síðustu sjö árin hefur Oli- vier búið í Brighton, um 80 km. frá Lundúnum, ásamt þriðju konu sinni, leikkon- unni Joan Plowright, og þremur börnum þeirra. — Ég fer venjulega á milli í járnbrautarlest ,segir Olivier. Það er dásamlegt. Ferðin til Lundúna tekur um klukku- stund — klukkustund sem ég er laus við símann. Og ég get lesið handritin og lært hlutverkin mín á leiðinni. Olivier er forstjóri Enska þjóðleikhússins (England’s National Theatre Company) og óskadraumur hans er að fá að sjá leikarana flytjast úr þröngu Old Vic-leik'húsinu í nýja byggingu á Tempsár- bakka. Hann hefur barizt árang- urslaust í fimm ár ásamt starfsmönnum sínum fyrir því að brezka stjórnin leggi fram nauðsynlegt fjármagn. — Ég er ákveðinn í því að við flytjumst í fínasta leik- hús í heiminum. Þegar ég sé hvað unnt er að gera í öðr- um minni löndum, neita ég að fallast á, að erfitt efna- hagsástand skuli standa í vegi fyrir þessu. Olivier gerði fyrstu mynd sína árið 1929 og vann sér heimsfrægð fyrir leik sinn í verkum Shakespeares, Hin- rik V og Hamlet. Hann ítur út um gluggann og seg’r frægri röddu: — Þetta ;eik- hús er draumur minn. Kannski get ég einhvern tíma leikið á sviði þess. Nýtt hefti of Iceiand Review Nýtt hefti aif Iceland Review er komið í bókabúðir. Er það fjöl- breytt að efni og prýtt mörgum myndum í litum og svart/hvítu. skákmenn eru meðal hinna fremstu í veröldinni og fregn irnar af fra,mmistöðu þeirra eiga ríkan þátt í að kynna land og þjóð. Alltaf er ánægjulegt, þegar frammistaða íslenzkra manna er góð í einhverjum íþrótt- um, en ekki er skákíþróttin þar sízt, og vonandi að áfram verði íslendingar meðal hinna fremstu í skák. Grein er um Ásgeir Ásgeiirsson og 16 ár hgns í forsetcistóli — og grein um Þjóðminjasafnið, sem nýkjörirvn forseti, dr. Krist- ján Eldjárn skrifar. Ennfremur ©r umargar myndir úr safninu, sem Kristján Magnússon og Gísli Gestsson tóku. Þá er grein um nýja þjóðgarð- inn, Skaftafell í Öræfum, sem dr. Sigurður Þórarinsson skrifar — og fylgja henni m. a. lit- myndir eftir Gunnar Hannesson. Fimm menn skriifa hugleiðingar um ísland, tilfinningar sínar gagnvart landinu og viðmót þess. Greinarhöfundar eru Indriði G. Þorsteinsson, rithöfundur, Guð- miundur Daníeisson, rithöfundur, Joseph Haggerty, blaðamaður í New York, Jón Baldvin Hanni- balsson, hagfræðingur, JöfcuU Jakobsson, rithöfundur og Magnús Magnússon, ritstjóri í Bretlandi. f þetta hefti skrifar Benedikt Gröndal, ritstjóri, ennfremur um stefnu íslands í utanríkismáluim. Gísli J. Ástþórsson skrifar hug- leiðingar um vorið á íslandi — greinar eru um starfsemi Söki- miðstöðvarinnar í London, þróun símamiála á íslandi, ferðalög ís- lendinga til útlanda, sölu íslenzks lambakjöts í Bretlandi o. fl. Auk almennra frétta, bólkaþáttur, frétta frá sjávarútvegi og fróð- leiksmola fyrir ferðamenn má nefna nýjan fréttaþátt ritsins um efnahagsmál á íslandi og er hann að þessu sinni skrifaður af Jónasi Kristjánssyni, ritstjóra. Kápumynd er samansett úr lit- myndum frá Krýsuvík, sem teknar voru af Freddy Laustsen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.