Morgunblaðið - 23.07.1968, Síða 20

Morgunblaðið - 23.07.1968, Síða 20
20 MORGUNBLAÐH), ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚUÍ 1968 Háskólakennsla og ferðalög — verða helzfu áhugamál Lyndons Johnsons, torseta, þegar hann lœtur af embœtti FRÉTTAMAÐUR Associated Press, Ben F. Meyer, segrir í grein um Lyndon B. Johnson, forseta Bandaríkjanna, að hann hafi alveg ákveðnar á- ætlanir um það, hvað hann taki sér fyrir hendur, þegar hann lætur af forsetaembætt- inu næsta vetur. Fyrst og fremst hafi hann í hyggju að taka að sér kennslu við há- skóla, en þess á milli muni hann reyna að ferðast, sér- staklega um Mexico, Mið- og Suður-Ameríku. Meyer segir, að búgarður forsetans í námunda við Aust in í Texas verði eflaust hans aðalbækistöð og heimili og hafi hann augastað á kennslu við háskólann í Texas. Ekki svo að skilja, að hann vilji taka að sér venjulega kennslu þar sem honum sé gert að mæta til fyrirlestra og kennslu klukkan átta á morgn ana, heldur hafi hann áhuga á því að halda fyrirlestra um sérstök mál og fá tækifæri til að láta pólitíska þekkingu sína og reynslu koma að gagni í því formi, að hann eigi við- ræðustundir við stúdenta um ýmis mál, sem eru ofarlega á baugi. í því formi muni hann einnig geta hugsað sér að kenna sem gestur við aðra bandaríska háskóla og jafnvel einnig háskóla í þeim lönd- um, sem hann heimsækir. Lyndon B. Johnson hefur1 séTstakan áhuga á mélefnum Mið- Oig Suður-Ameríkuríkja í og gerir sér vonir, um, að stú- 1 dentar frá þessum lönduim sæki í æ meiri mæli til há- skólans í Austin, sem hefur á að skipa eirthverju bezta bókasafni, sem til er um mál, er varða þessi ríki. <- Tékkóslóvakía... Framhald af bls. 1 Vaclav Valas, ráðherra sá í tékkóslóvakísku stjórninni, sem fer með utanríkisverzlun kom til Moskvu í dag. Stjóm málasérfræðingar eru þeirrar skoðunar, að heimsókn hans sé gerð til að leitast við að greiða úr þeim erfiðleikum, sem komið hafa upp í við- skiptamálum landanna tveggja, vegna afstöðu so- vézkra ráðamanna og þeim aðdróttunum að efnahagur Tékkóslóvakíu sé í hættu vegna starfssemi andbylting- arsinna og heimsvaldasinna. í Moskvu var ekki getið um, hvorir hefðu átt frumkvæðið að heimsókninni, en vitað er að Valas hefur þegar byrjað viðræður við starfsbróður sinn í Sovétríkjunum. KURT Kiesinger, kanzlari V- Þýzkalands, hvatti í dag, Ger- hard Shroeder, vamarmála- ráðherra til að íhuga, hvort ekki væri ráðlegt að fresta fyrirhuguðum heræfingum NATO, sem áttu að vera í S- Þýzkalandi, skammt frá landamærum Tékkóslóvakíu í september. Áður höfðu Jafnaðarmenn með Willy Brandt í fararbroddi lýst yfir mikilli andstöðu við að her- æfingarnar færu fram og gagn- ffýndu varnarmálaráðherrann fyr ít ósveigjanilega alstöðu í málin.u. Schroeder sagði á laugardag, að <hann sæi enga ástæðu til að .gera neinar breytingar á heræf- .ingunum. Gagnrýni jafnaðar- imanna á sjónarmið vamarmála- iráðherrans er alvarlegasta mis- iklíð, sem risið hefur upp síðan aamsteypustjórn jafnaðarmanna og kristilegra demókrata var •mynduð fyrir hálfu öðru ári. — •Stjórnmálfréttaritarar telja þó mjög mikilsvert að kanzlarinn skyldi taka svona eindregna af- ^töðu með því, að málið verði endurskoðað í ljósi þeirra at- burða, sem em að gerast í Tékkóslóvakíu. Það voru banda- .rískir, franskir og v-þýzkir hóp- ■ar, um 30 þúsund manns, sem láttu að taka þátt í heræfingum þessum. Bandarískir embættis- menn í Washington hafa sagt að þeir telji engin rök fyrir því að ’breyta þessum áætlunum. Fannst 1 riffill og 11 skammbyss Skömmu áður en tilkynning um fundinn var birt afhenti Sovétstjórnán orðsendingu í Prag, þar sem mótmælt er á- kveðið auknum vestrænum — ekki hvað sízt vestur-þýzkum á- hrifum í Tákkóslóvakíu og kraf- izt skýringar á vopnum, sem sögð eru hafa fundizt í landinu í fyrri vi-ku. Rauða sjaman, mál igagn Sovéthersins, skýrði frá Iþví í dag, að fundizt hefðu nýj- iar vopnabirgðir í Ostrava, iskammt frá pólsku landamærun- um, 1 riffill og 11 skammibyssur. iLögreglan í Prag hefur borið Iþessa frétt til baka. Fyrri vopna- (birgðir fundust í síðustu viku og 'í Prag sögðu opinberar heimild- iir, að starfmenn a-þýzku leyni- Iþjónustunnar hefðu komið þeim tfyrir. — öryggismálaráðherra Tékkóslóvakíu sagði á sunnudag, •að vopnabúr þetta væru hreinar ögranír. Tékkóslóvakía áfram sósíalista- ríki, segir Smrkovsky Forseti tékkóslóvakíska þjóð- -þingsins, Josef Smhkovsky, sagði ií dag, að Tékkóslóvakía mundi •framvegis eins og hingað til tskipa sér á bekk með sósíalísbum ríkjum, en hins ve.gar krefðist hún þess af stillingu og einurð að beztu vinir þjóðarinnar virtu og styddu þetta sjónarmið. Vin- átta við Sovétríkin væri frum- skilyrði fyrir vexti og viðgangi Tékkóslóvakíu, og því mætti ekkert verða til að spilla þeirri vináttu. Reynsla síðustu mánaða hefði sýnt, svo að ekki væri um villzt, að Tékkóslóvakar hefðu staðið við allar skuldbindingar gagnvart bandamönnum sínum í Varsjár bandalaginu og mundu gera það eftirlieiðis. Smirkovsky sagði, að kröfur þær sem settar votu fram í Varsjárbréfinu væru óviðunandi, og kæmi ekki til mála að Tékkósyóvakar gætu fallist á þær. Hann lét í ljós von um að á fundi beggja aðila gæti náðzt samkomulag og hvor aðili sýndi sjónarmiðum hins fullan skilning og virðingu. Vísindamaðurinn Akharov hvet- ur Sovét til að styðja framvindu mála. Sovézki kjarneðlisfræðingur- inn Andrei Akharov hvatti í dag leiðtoga Sovétríkjanna tid að stuðla að áframlhaldandi þróun mála í Tébkóslóvakíu, bæði efna hagslegri og stjórnmálalegri, að því er blaðið New York Times skýrði frá í daig. f blaðinu er birt grein etftir vísindamanninn, þar sem hann segir, að lýðræðis- þróun sú, sem eigi sér stað í Tékkóslóvakíu sé mikilvæg til- raun til að koma á jafnvægi milli sósíalisma og kapitalisma og hann hvetur til að leiðtogun- um í Prag verði sýndur eindreg- inn stuðningur til að koma í fram kvæmd merkum áformum sín- um. Sakharov stingur upp á því að Sovétmenn ög Bandaríkia- menn taki upp nána samvinnu aðeins á þann hátt geti mann- kynið komizt hjá ógnun kjarn- orkustyrjaldar, leysit offjölgunar vandamálið og komið í veg fyr- ir að upp rísi lögregturíki á borð við ríki þaú sem Hitler, Stalín og Mao hafi stjórnað. Sjónvarpsmenn handteknir. Bandarískur sjónvarpstöku- flokkur sem staddur var í grennd við borgina Zilina á laug ardagskvöld. Sovézkur herflokk- ur stöðvaði hópinn meðan hann var að taka myndir af sovézk- um skriðdrekum og öðrum her- gögnum og var hópnum haldið í tvær klukkustundir, þótt þeir krefðust þess að fá að ræða við tékkneska embættismenn. Hóp- urinn var síðan tekinn til yfir- heyrslu og stóðu bæði tékknesk- ir og sovézkir em’bættismenu að henni. Áskorun frá Russel o.fl. Brezki heimspekingurinn Bert rand Russel, lávarður sendi í dag áskorun til Sovétstjórnarinn ar um að beita ekki hervaldi í Tékkóslóvakíu. Áskorunin var send í símskeyti er stílað var á Alexei Kosygin, forsætisráðlhenra og hann og aðrir ráðamenn sov ézkir hvattir til þess að lýsa því opinberiega og óyggjandi yfir, að þeir hafi ekki í hyggju að grípa til heTnaðaríhlutunar í Tékkósióvakíiu. Mundi slík yfir- lýsing draga úr ógnun við heims friðinn og auka sveigjanleika kommúnismans. Verði hins veg- ar gripið til heríhlutunar hljóti það að teljast ögrun við komm- únista og sósíalista í öllum hekns álfum. Lea Mates atkvæðamaður með- al júgóslavneskra kommúnista hefur lýst því yfir að þvinganir Sovétmanna gagnvart Tékkum séu sorglagt glapræði er haft geti ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Er þetta í fyrsta sinn, sem júgóslavn eskur förystumaður beinir ásök- unum beint tM Sovétmanna vegna atburðanna í Tékkóslóvak íu. Pravda hvassyrt. Moskvublaðið PRAVDA hefur enn einu sinni ráðizt harðlega gegn lýðræðisöflum og breyt- ingum í Tékkóslóvakíu og ráða- menn þar vítrir fyrir að hafna ráðleggingum og ábendingum Sovétmanna. „Pravda“ segir, að fjandsamleg öfl herði róðurinn í Tékkóslóvakíu til að bejna landsmönnum af braut kommún- ismans. í grein er birtist í blaðinu í dag, mánudag, segir að v-þýzk- ir endurskoðunarsinnar hafi Iengi egnt til úlfúðar innan Tékkóslóvakíu og Bonnstjórnin rekið sleitulausan áróður gegn Sovétríkjunum og hugsjónum kommúnismans. Gagnrýnir Prav da aukin ferðalög V-Þjóðverja til Tékkóslóvakíu og telur þau grunsamleg — enda hafi þau verið notuð í undirróðursskyni. Þótt Bonn stjórnin hafi neitað þeim áburði að háfa stundað voppasmygl til Tékkóslóvakíu hafi hvergi verið færðar sönn- ur á rök þeirra. f grein Pravda eru síðan endurteknar staðhæf- ingar síðustu daga um að svo geti farið að andbyltingarsinnuð öfl í Tékkóslóvakíu standi að baki og reyni að draga úr áhrif- um kommúnismans í landinu. Stjórnmálasérfræðingar í Moskvu vekja athygli á því að í grein Pravda er hvergi borin .1 baka sá orðrómur að Sovétstjórn in sé þess albúin að grípa til hernaðaríhlutunar í Tékkósló- vakíu. Hins vegar séu flestir þeirrar skoðunar, að það tauga- stríð og þær þvinganir, sem Tékkóslóvakar séu beittir af bálfu Sovétmanna verði til þess að styrkja tékknesk íhaldsöfl. Viðbrögð ýmissa kommúnistafor- ingja. Franskir kommúnistar hafa dregið til baka tillögu sína um fund evrópskra kommúnistafor- ingja vegna þess, að sagt er, að Sovétmenn og Tékkar hafi kom- ið sér saman um að halda fund og sé þá ekki lengur nauðsyn- legt að fulltrúar evrópskra kommúnistaflokka komi sam- an að svo stöddu. Austurþýzkt dagblað segir í dag að íhlut- un komi ekki til greina í Tékkó- slóvakíu en segir jafnframt að í ritstjórnargrein Moskvublaðs ins Pravda þar sem sagði að for- sætisnefnd flokksins hefði van- rækt að láta kanna nákvæmlega hvað væri á seyði, hafi sýnt merki undanlátssemi. Stjórnar- vold í Austur-Þýzkalandi hafa fordæmt Bonnstjórnina'fyrir að blanda sér í innanríkism.ál Tékkóslóvakíu á fölskum for- sendum. Birti A-Þýzka stjórnin yfirlýsingu í dag þar sem sagði að A-Þjóðverjar voni statt og stöðugt að tékkneskir verka- menn berjist gegn þeim öflum í landi sínu sem fjandsamleg séu hugsjónum sósíalismans. Rúmenar halda fast við stuðn- ing sinn við Tékkóslóvaka. f orð sertdingu sem birt var í blað- inu Scinteia sagði að rúmenski kommúnistaflokkurinn vottaði hinum tékkneska algera sam- stöðu svo og leiðtogum hans. Búlgarski kommúnistaflokkurinn þegir hins vegar enn þunnu hljóði um afstöðu sína til þróun- ar mála í Tékkóslóvakíu. Albanskir kommúnistaleiðtog- ar, sem eru lítt vinveittir Sovét- mönnum og öðrum austur evrópu ríkjum — en því ákafari fylgis- menn kínverksra kommúnista — segja það eitt að samskipti end- urskoðana klíkanna í Moskvu, Prag og öðrum höfuðborgum A- Evrópu hafi versnað. Albanska fréttastofan ATA hefur minnzt aðeins lauslega á deilur tékk- neskra og sovézkra ráðamanna og kallar jafnan forystulið Dub ceks „Dubcek klíkuna" og full- trúa þeirra fimm kommúnista- ríkja sem undirrituðu Varsjár- bréfið voru kallaðir „sovézkir og aðrir endurskoðunarsinnar". Tyrkneska blaðið „Miliyet“ segir á sunnudag eftir utanrík- isráðherra Ungverjalands, Janos Peter, að sú þróun málanna sem orðið hafi í Tékkóslóvakíu sé upphaf lýðræðishreyfingar sem ná muni til allra sósíalistaríkja. Þessi lýðræðishreyfing hafi einn ig náð til Ungverjalands og megi ekki skilja þær breytingar sem gerðar hafa verið á stjórn- arháttum í Tékkóslóvakiu sem frávik frá sósíalismanum. Brezkir þingmenn ræðn nm nð bnnnn mótmælnnðgerðir London, 22. júlá AP—NTB • MEÐAL brezkra þingmanna hefur komið til umræðu, hvort æskilegt sé að banna mótmæla- göngur og fjöldafundi í London, ef svo heldur áfram sem verið hefur, að þar komi til blóðugra átaka við lögreglu og skemmda á mannvirkjum. íhaldsþingmað- urinn, Edward Taylor, er fremst ur í flokki þeirra, er telja slíkt bann tímabætt orðið. Það, sem komið hetfur af stað þessum umræðum eru átökin, er urðu í bor.ginni í gær. Þá var haldinn mótmælafundur gegn - BÓLIVIA Framhald af bls. 1 fná 1964 er hann komst að eftir byltingu. Búizt er við, að stjócn Bolivíu reyni að fá Arguedas framseldan með milligöngiu sendiráðs Braz- itíu, en stjórnir Chile og Boliv- íu hafa ekki stjórnmólasamfoand. Á síðustu árum hatfa margir and- stæðingair Boliviustjórnar filúið tiil Chile og í febrúax sl. fengu fimm fyrrverandi fylgismenn Guevaras, sem náðu að flýja frá Bolivíu, að fara um Chile til Kúbu. í frétt frá La Paz í dag segir, að yfirmaður leyniþjónustu Bol- iviiu hafi tekið við embætti Arg- ue-das. - REAGAN Framhald af bls. 1' gerðri benzínsprengju inn í íbúðarhús ríkistjórans í Sacra mento, hafi verið liður í morð áætlun þeirra. Tvímenning- arnir lögðu frá sér sprengj- una og hlupu burt, er þeir urðu þess varir, að leynilög- reglumenn sáu til þeirra. Eng inn hefur verið handtekinn vegna miáls þessa, að því er blaðið segir, enda hatfði þá ekki komizt upp um fyrr- greint samsæri. En með hlið- sjón af því títur lögreglan öðr um augum á málið og hefur ákveðið að gera meiri hátt- ar öryggisráðstafanir til þess að verja ríkisstjórann og fjöl- skyldu hans. Vietnamstyrjöldinni á Trafalgair- torgi og farin mótm’ælagangá um bongina að bandaríska sendiráð- inu við Grosvenortorg. Uln tíu þúsund manns voru í göngunni, en við sendiráðið voru fyrir um 1000 lögreglumenn er beindu göngum'önnum burt þaðan. Fóru þeir í fyrstu í friði í burtu og héldiu út í Hyde Park, en nokkru seinna sneri hlu’ti gön.gumanna atftuir um 400 manns, og gerðist nú herskárn en áður, kastaði grjóti, trjágreinum og brotmum flag.gstöngum að lögreglumönn- um. Þegar göngumenn voru loks hraktir fró sendiráðinu eyðilögðu þeir margar bifreiðar í nærliggj- andi götum. - ÍÞRÓTTIR Framhald af bls. 26 ’að fyrri hluta hlaupsins. HalldóT Guðbjörnsson, KR, varð þó fljót leg að slaka á og vairð að hætta Ihlaupinu. Upp frá því tók sigur- Ivegarinn frá Eiðamótinu, Jón H. ISigurðsson, HSK, að greikka isporið og lengja bilið milli sín 'og Gunnars Snorrasonar, ’UMSK. Útfærði Jón hlaup sitt 'prýðilega g náði allgóðum tíma, 'sem hann á þó að geta bætt með meiri æfingu g keppnisreynslu. 'Tími Jóns var 16:00,4 mín. Gunn ‘ar hljóp á 16:37,3 mín. og þriðji varð Jón Guðlaugsson, HSK, á 18:46,6 mín. '800 metra hlaup Þorsteinn Þorsteinssion, KR, náði ágætum tíma i 800 metra hlaupinu, 1:54,7 mín., miðað við að hann hljóp svo til kappnis- laust. Mikla athygli vakti hinn 15 ára bróðir Þorsteins, Ólafur Þorsteinsson, KR, sem setti 'sveinamet í greininni, hljóp á •2:00,1 mín. Þar er á ferð efni 'í mikinn afreksmann. Þriðji í 'hlaupinu vaTð Þórður Guðmunds son, UMSK, á 2:03,1 mín. Keppnin í kvöld Búast má við skemmtilegri keppni í ýmsum greinum í kvöld en þá verður keppt í 110 metra grinda'hlaupi, stangarstökki •sleggjukasti, kriniglukasti, þrí- stökki, kringlukasti kvenna, 400 metra hlaupi, 80 metra grinda- 'hla.upi kvenna, 100 metra hlaupi og 1500 metra hlaupi. — stjl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.