Morgunblaðið - 15.08.1968, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 15.08.1968, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1968 Smalað í Laugardal „NÁIÐ í kindurnar", hrópaði Jóhannes bóndi frá Kleifum, á skozku fjárhundana sína, landbúnaðarsýningunni í gærdag. Hundarnir virtust dálítið ruglaðir í fyrstu enda ekki vanir því að hafa hundr uð áhorfenda þegar þeir eru að störfum heima í Gils- firði. Jóhannes endurtók því skipun sína og kindurnar hlupu rakleiðis upp í brekk una. Þar voru fyrir 3 ær og 6 lömb þeirra og voru heldur ófús til að hreyfa sig úr stað. Þær komust þó ekki upp með neitt múður því hundarnir, Bakkus og Gári voru ákveðnir í að sýna borg- arbúum hvernig smala ætti fé. í fyrstu atrennu komst þó hópurin undan ’hundunum vegna mannfjöldans, sem þrengdi svo að þeim, að kind- urnar komust undan. Þá greip Agnar Guðnason fram kvæmdastjóri sýningarinnar í taumana og fólkið færði sig aftar. Nú gekk allt eins og í sögu. Hundarnir ráku hóp- inn í áttina til Jóhannesar og hann skipaði þeim ákveðinni röddu: „Inn í hús“, og hund- arnir ráku kindahópinn um- svifalaust inn í skemmuna. 700 útlendingar sækja Norræna byggingardaginn er haldinn verður í Reykjavík dagana 26.-28. ágúst n.k. Dagana 2G.-28. ágúst n.k. verð- nr Norræni byggingardagurinn haldinn í Reykjavík. Er það í tíunda skiptið sem hann er hald- inn, en í fyrsta skipti hérlend- is. Um 700 manns frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi Danmörku og Færeyjum munu sækja bygg- ingardaginn en þátttökurétt í honum eiga allir þeir sem starfa að byggingariðnaði á Norður- löndum og einnig fulltrúar þeirra stjórnvalda, er með bygg- ingarmál fara í hverju landi. Meðal þeirra er sækja Bygg- ingardaginn að þessu sinni verða borgarstjórar Kaupmanna hafnar, Stokkhólms og Helsing fors. Mbl. hafði í gær tal af þeim Sveimi Björnssyni verkfræðingi, Hirti Hjartarsyni fonstjóra, Skarphéðni Jóhannssyni arki- tekt, Ólafi Jónssyni fulltrúa og Herði Bjarnasyni húsameistara, en þeir skipa framkvæmda- nefnd Byggingardagsins. Þeir gáfu þær upplýsingar að fyrsti norræni byggingardagur- inm hafi verið haldinn í Sví- þjóð 1927 og að íslendingar hefðu gerzt þátttakendur í sam- tökunum árið 1938. Byggingar- dagurinn væri haldinm í ^öndun um til skiptis, en það værifyrst nú sem tök þættu á að halda svo fjölmenna ráðstefnu hér- lemdis. Til hennar koma um 300 Svíar, 170 Danir, 100 Norðmenn, 100 Finnar og 15 Færeyimgar, þar iaf um 200 með skipi sem sérstaklega er leigt vegna ráð- stefnujmnar og munu þeir einn- ig búa um borð í því á meðan dvöl þ:irra stendur hérlendis. Um 100 íslendingar hafa boðað þátttöku sína í ráðstefmunni, og sögðust forráðamennirnir bú- ast við því að sú tala hækkaði, en síðustu forvöð væri nú að tilkynna þáttöku. Sem fyrr segir eiga allir þeir er við byggingarmál fást rétt til fundartsetu og er ekki að efa að m-argir muni nota sér þetta tæki færi. Aí&lefni ráðstefnunnar verð- ur að þessu sinni „Húsakostur". Fyrsta daginn mun Hörður Ág- ústsson listmálari flytja erindi um isl'ínzkan húsakost að fornu og nýju, en ella verður fjallað almennt um byggingarmál, bæði frá tækni- og fjárhiagslegu sjón- armiði. Setning Byggingardagsins og fyrirlestrar verða í Háskólabíói, en skrifstofa samtakanna verð- ur í Hagaskólanum. Dagana sem ráðstefnan stendur verður farið með erlendu fulltrúana m.a. til Frá N.B.D. í Kaupmannahöfn 1961. Búrfellsvirkjunar, Gullfoss og Geysits, Akuheyrar og í Borgar- fjörð. Ráðstefnunni mun svo ljúka með lokahófi í Laugar- dalshöllinni, miðvikudaginin 28. ágúst. - LÍDÖ Framhald af bls. 28 að einhver hluti þess húss yrði nýttur fyrir æskulýðsstarf að svo miklu leyti sem það samrýmdist annarri notkun hússins og einnig teldi Æskulýðsráð nauðsynlegt að byggja æskulýðsmiðstöð í hinu nýja Breiðholtshverfi, sem sinnti þörfum Breiðholts-, Ár- bæjar- og Selásshverfis. Borgar- stjóri sagði að hugmyndin væri áð þessar hverfamiðstöðvar fyrir æskuiýðsstarf yrðu nýttar ásamt skólum borgarinnar, safnaðar- heimilum, skátaheimilum og ann arri aðstöðu fyrir æskulýðsstarf, sem fyrir hendi væri. Borgar- stjóri sagði ennfremur, að hinar fyrirhuguðu æskulýðsmiðstöðvar mundu standa til boða frjálsum æskulýðssamtökum í borginni til afnota. Þess má geta að aðalstarfsemi Æskulýðsráðs er nú til húsa að Fríkirkjuvegi 11, þar sem starf- rækt hefur verið svokallað „ Opið hús,“ svo og unglingadansleikir ásamt fjölbreyttu tómstunda- starfi. Undanfarna mánuði hefur Æskulýðsráð unnið að tillögum um framtíðarskipulag æskulýðs- starfs í borginni og verða þær tillögur væntanlega lagðar fyrir borgarstjórn í haust, en kjarni þeirra mun vera hverfamiðstöðv ar þær sem borgarstjóri skýrði frá. í hinum nýju húsakynnum, þar sem Lídó hefur verið starfrækt, mun ætlunin áð starfrækja bæði unglingadansleiki, en verulegur skortur hefur lengi verið talinn á hentugri aðstöðu til þeirra í borginni, sem og „opins húss“ og margvíslegrar tómstundaiðju og ennfremur verður væntanlega sköpuð þar starfsaðstaða fyrir frjáls æskulýðsfélög í borginni. STAKSniAIAR Nixon-Agnew Danska blaðið „Berlingsk* Tidende" birti fyrir skömmu for- ustugrein um frambjóðendur re- públikana í forsetakosningunum og segir þar m.a.: Það þurfti engum að koma óvart (þótt Nixon yrði valinnJ frambjóðandi repúblikana) en það er ástæða til þess að harma þgð, að ekki reyndist unnt að finna hugsjónaríkari frambjóð-i anda... En þegar Nixon til; nefndi Spiro Agnew, ríkisstjórai i í Maryland sem varaforsetaefnii sitt, brást dómsgreind hans og- lagni, sem að öðru leyti hefuiéi sett svip sinn á kosningabaráttou hans. j Með tilliti til þeirrar ábyrgð- ar, sem Bandaríkin hafa tekizfi á hendur eftir síðari heimsstyrj-, öldina, á alþjóðavettvangi, hef-i ur jafnan verið litið svo á, a®5 varaforsetinn þyrfti að vera. hæfileikum búinn til þess að taka við forsetaembætti hvenæc! sem er. Slíkir hæfileikar þróasti og þroskast með mönnum eni þótt góður vilji sé fyrir hendlí er ekki með nokkru móti hægt' að segja að 18 mánaða ferill sem ríkisstjóri í Marylandríki i sé nægilegur skóli fyrir mann til þess að takast forsetaembætt-j ið á hendur. Innan Bandaríkjanna og ai alþjóðavettvangi er Spiro Agnew óþekktur og óskrifaðt blað og það hefði eins verið hægt að bera hann undir furðu lostið flokksþingið undir hinu raunverulega eftirnafni hans sem er Anagnostopolos.“ „Gamli“ Nixon Og „Berlingske Tidende" heldur áfram og segir: í „Þetta val á varaforsetaefni var pólitísk hrossakaup og stuðl ar einungis að því að vekja upp minningar um að Richard Nixon ávann sér einu sinni viðurnefnið „Tricky Dick“ á viðburðarrík- um og stundum lítt glæsilegum stjórnmálaferli. Hann leitaðl jafnvægis milli norðurríkjanna og suðurríkjanna og fann tví- burabróður sinn í skoðunum sem liggja á milli skilnings á vandamálum blökkumanna og kröfunnar um að haldið verði uppi lögum og reglu. Það var veikleiki „gamla“ Nixons, að menn vissu aldrei hvar þeir höfðu hann. Hann var í senn þekktasti og óþekktasti persónuleiki í amerískum stjórnmálum“. Agnew ríkisstjóri Loks segir „Berlingske Tid- ende“: „Agnew ríkisstjóri er jafn óá- kveðinn í skoðunum (og Nixon). Hann var kjörinn í Maryland sem frjálslyndur repúblikani i kosningabaráttu sem hann háðl við afturhaldssaman demókrata og hann hafði forustu um að banna mismunun í húsnæðismál- um eftir hörundslit sunnan Ma- son-Dixon linunnar. Þessi af- staða gerði hann að bandamannl Rockefellers ríkisstjóra en hann reiddist óákveðni Rockefellers og varð ekki aðeins fylgismaður Nixons, heldur beinlínis mælti með honum á flokksþinginu. Það er erfitt að bægja þeirri hugsun frá sér, að Agnew ríkisstjóri hafi ekki mælt af heilum hug, þegar hann lýsti undrun sinni á valdi Nixons“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.