Morgunblaðið - 15.08.1968, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.08.1968, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1968 19 1 un -niýsnar draga að sér álika mikla athygli barnanna og' ungamir, en þær er að finna í sýningarstúku Tilrauna- stöðvar háskólans í meinafræði. Nýiega var hafin á Ólafsvöllum á Skeiðum starfsemi til að hreinrækta íslenzka hundinn, og em það þau hjónin Sigríður Pétursdóttir og Kjartan Georgsson, sem sjá um ræktun hans. Á iandbúnaðarsýningunni eru þrír íslenzkir hundar frá Ólafsvöllum, Píla, Snotra og Kolur, og ennfremur Skotta, eign Sveins Kjarvals, og Kátur, eign Magnúsar Guðmundsson- ar. Svipmyndir frá Landbúnaðar- sýningunni Landbúnaðarsýningin er nú einn helzti viðburðurinn í borgarlífinu, enda er hún æði umsvifamikil og fer vart framhjá nokkrum manni. — Jafnt ungir sem gamlir hafa streymt á sýnánguna undan- farna daga og sótt þangað bæði fróðleik og skemmtun. Mestur hluti sýningargesta er héðan úr borginni, eins og eðlilegt er, en þó hafa stórir hópar komið úr ýmsum sýsl- um landsins til að skoða það, sem fyrir augu ber. En e.t.v. eru það yngstu borgararnir. sem mesta ánægju hafa af þessari sýningu, því að þarna geta þau séð yfir 300 dýr og fugla, og forstöðumenn sýn- ingarinnar auglýsa: —- Komið með börnin í eina dýragarð- inn á íslandi. Nokkur fyrir- tæki hafa einnig dýr í þjón- ustu sinni til að auglýsa sýn- ingarbása sína, og er þar jafnan mikið af ungu fólki. Við bregðum hér upp nokkr- um svipmyndum frá sýning- unni, bæði innan- og utan- húss. f fordyri sýningarhallarinnar hefur Veiðimálastofnunin sýn- ingarker með lifandi 14 punda laxi í, og hefur hann verið ræktaður í laxeldistöðinni í Kollafirði. Vorið 1966 var lax- inn, sem er hrygna, aðeins 13 cm. gönguseiði, en þegar hann kom upp í kistuna í Kollafirði eftir tveggja ára veru í sjó. liafði hann náð þessari stærð. Bændaskólarnir á Hólum og Hvanneyri og Garðyrkjuskólinn á Reykjum í Ölfusi, hafa sam- eiginlega sýningarstúku á sýningunni, og er Jiún mjög snyrti -ig í frágangi öllum. Á þessu svæði sýnir fiskiræktarstöðin Laxalón lax- og silungaseiði. Skúli Páisscn, forstjóri stöðvarinnar, hóf ræktun á regnbogasilungi árið 1950, en sneri sér síðan að ræktun lax- og silungaseiða, og getur nú árlega Iátið af hendi 150—200 þús'ind sjógönguseiði. « j r * f (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.