Morgunblaðið - 15.08.1968, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.08.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1968 Rætt við Dag Strömback og Séamus óc. Ó. Duilearga m þjóðfræði og forna hluti þennan hátt, að hann sagði: „Þetta eru einhverjir mestu sérfræðingar í þjóðsögum,' sem nú eru uppi“, sagði Ein- ar Ólafur, þegar hann kynnti mig fyrir þeim Degi Ström- back og Séamus Ó. Duilearga. Dagur er prófessor í Uppsöl- um, veitir þar forstöðu þjóð- fræðastofnuninni og kennir við háskólanni; hann hefur staðið að mikilli göfnun þess ara fræða, og svo er hann gríðarlega magnaður í öllu sem heitir teoría og ekki síð- ur í notkun gamalla heim- ilda. Séamus er það kannski líka, en einkum og sér í lagi var hann, áður en hann fór að sökkva sér ofan í laxveið- a-r, einhver mesti þjóðsagna- safnari í heimi, og ihann kom á fót þjóðfræðastofnuninni í Dyflinni. Þeir eru komnir 'hingað í boði Handritastofn- arinnar til þess að skoða hana og gefa okkur skýrsilu um hana og hvernig þeim finnist hún eigi að vera“. „Það voru nú eiginlega Svíar, sem komu mér af stað“, sagði Séamus. ■ „Carl Wilhelm von Sydow, sem var Svíi, kom til írlands, og það var hans stóri kostur, að hann skildi ensku mjög tak- markað. Við hittumst. Hann kunni írsku og hann sagðist vilja kenna mér sænsku. Við urðum mestu mátar. Þegar hann var að fara, fór hann til rektors og sagði við hann um leið og hann kom inn á skrifstofuna: „DuiLe- arge must come to Sweden". Rektor var svo undrandi þeg ar hann var ávarpaður á þennan hátt, að hann sagði: „Já“. Var það eitt af fáum skiptum, sem hann hafði sagt já á ævi sinni, — viðkvæðið 'hjá honum var, — „það get- ur verið“. Og ég fór til Svíþjóðar. Þar fann ég írland. Ég skildi þar, hvar sága íra er geymd. Þegar ég kom frá Svíþjóð, og hafði séð öll stóru Einar Ólafur Sveinsson og Dag Strömback. þjóðfræðasöfnin þar, kom ég til Englands og fór þaðan með skipi til írlands. Það var morgunn og ég stóð á þilj- um og sá, hvernig hæðir ír- lands risu úr sæ. Ég fann þá, að hin óskrifaða saiga Írla>n4s lá að baki þessum hæðum, hjá þögulu fólki, það hafði aldrei verið spurt. Þá ákvað ég að láta ekkert aftra mér frá því að fá þessa sögu rit- aða. Þið sjáið, að það voru Sví- arnir, sem komu mér af stað“, bætti Séamus við, og svo hélt hann áfram: „Stuttu eftir heimkomuna fór ég á fund de Valera, og ræddi við hann um þetta mál. De Valera tók mér mjög vel, og fór sitrax að segja mér þjóðsögur, sem haran hafði heyrt í bernsku, og ég hlýddi á, því að menn hlusta alltaf á það, sem hann segir. Þannig leið kvöldið. Það var verið að ræða fjárlögin, en de Valera tók ek'ki á móti neinum, ékki einu sinni fjár- málaráðlherranrum, því að hann var að segja mér þjóð- sögur. Það var kort fyrir aftan de Vatera á veggnum. Kort af frlandi. Ég horfði á það og mér fannst eins og það væri fullt af andlitum, fólki, sém Séaumus O. Duilearga vissi sögu íra, en þagði, það hafði aldrei verið spurt. Ég sagði de Valera þetta og bætti við: Þú ert maðurinn sem getur bjargað 'þessu, þú getur látið skrifa þessar sög- ur, sem þú varst að segja mér. Fólkið sjálft getur ekki skrifað og við þurfum að senda menn til að skrifa eftir því. De Valera kvað já við, og þjóðfræðastofnunin vax sett á laggirnar" . Séamus hallaði sé raftur í stólinn og fékk sér sígarettu. Éig spurði Dag, hvernig honum litist á Handritastofn- ina. „Við skoðuðum 'hana í Framhald á bls. 21 i Skrifsfofustúlka óskast hálfan daginn, eftir hádegi, til léttra skrif- stofustarfa. Vélritun þó skilyi-ði. Umsókn með upp- lýsingum um starfsreynslu og kaupkröfu sendist Mbl. fyrir laugardag, merkt: „Eftir hádegi — 8074“. Miðstöðvarketill 12—15 ferm. óskast keyptur. Upplýsingar í síma 83294 eftir kl. 7 á kvöldin. Ojpé', landbúnaðarsýningin 68 HÚSIUÆÐUR Sími 14226 Til sölu raðhús við Látraröst á Seltjarnarnesi. Húsið er endahús og stendur á sjávarlóð. Mikið og víðsýnt útsýni. FASTEIGNA- OG SKIPASALA Kristjáns Eiríkssonar hrl., Laugavegi 27, sími 14226. PAIMILL Stærð 255 x 19 cm. Eik, gullálmur, askur, og oregon pine. Glœsileg vara. Verð mjög hagstœtt. LEIÐIN LIGGUR TIL H. HANNES ÞORSTEINSSON heildverzlun, Hallveigarstíg 10 — Sími: 2-44-55. » k Farið með börnin á sýninguna áður en mesta aðsóknin hefst — Opnum kl. 10 f.h. * Odýr og góður matur á staðnum meðal annars nýja skyrið Sýnikcnnsla í matreiðslu alla daga kl. 14 — 17 — 20. Sjáið fyrst og fáið svo að bragða! HESTALEIGA FYRIR BÖRIM! ÓDÝRT! FRÁ KL. 13 DAGLEGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.