Morgunblaðið - 15.08.1968, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1968
11
50 þús. refir og minkar
veiddust frá 1958-1966
— fróð/eg minka- og refadeild á Landbúnaðarsýningunni
í ÞRÓUNARDEILD á Landbún
aðarsýningarinrvar er m. a. deild
minka og refa. Þar er sýnt kort
frá veiðistjóra yfir veiði refa og
minka frá 1958-1966. í umræddrí
deild er uppsett greni með ref
og tófu og 4 yrðlingum. Grenið
er mjög skemmtilega sett upp og
hefur vakið mikia athygli sýn-
ingargesta. á eru einnig upp- j
stoppaðir minkar í deildinni. '
Kort Veiðistjóra sýnir hvar
minkar og refir hafa veiðzt hér
lendis frá 1958-1966 og sýniir
kortið mjög vel útbreiðslu
þessara dýra.
Refir og minkar hafa veiðzt í
öllum sýslum landsins nema Vest
mannaeyjum. Alls hafa 21435 ref
_ ir verið unnir síðan á umræddu
j tímabili og 25059 minkar. Yfir-
I leitt hefur ref og mink fækkað
nokkuð við strendur landsins á
þessu tímabili, en aftur á móti
virðist hafa fjölgað inni í land-
iinu.
Rcfum hefur fjölgað í Rang-
árvaila- og Arnessýslu, en fækk
að í Skafbafellssýslum og þar
hefur veiddum minkum fjölgað
úr 10 árið 1958, í 90 árið 1966.
I N-Þingeyjarsýslu hefur veidd-
um refum fækkað á tímabilinu,
£ í -ý ' \ y',
Refurinn kemur að greninu með lóu í kjaftinum. Ljósm. Mbl. Ól.K.M.
Uppstoppaður minkur á Landb únaðarsýningunm.
en allt kortið er miðað við veidd
dýr. Á Vestfjörðum var ekki
minikur fyrir 1958, eri 1966 höfðu
150 minkar verið veiddir þar. í
eyðibyggðum á Vestfjörðum virð
Land-
búnaðar
sýningin
ist minkurinn nú lifa góðu lífi
að sögn ferðalanga er þar hafa
farið um.
í þessari deild eru sýndar
myndir af lundabyggð þar aem
minkur hefur farið um í víga-
móð og liggja dauðir og tættir
lundar á víð og dreif.
Þá er sýnt ýmislegt er við-
kemur refaveiðum svo sem byss
ur og gildrur, og þar með guU
fallegt látúnslegið púðurhom
úr kýrharni.
Einnig eru sýndir sútaðir ref-
ir og minkar í mismunandi lit-
um. Á lifandi dýrasýningunni,
sem ier fyrir utan sýningarhöll-
ina eru sýndir yrðlingar og
minkar í húsum.
Hlöður og verkfæra-
geymslur í léttum stil
— stálgrindarhús Vélsmiðjunnar Héðins
á Landbúnaðarsýningunni
VÉLSMIÐJAN Héðinn sýnir
180 fermettra stálgrindarhús á
Laffidbúnaðarsýningunni og er
vegghæð hússins 3 metrar. Vél-
emiðjan framleáðir stálgrindur í
mismunandi stærðum, sem eru
staðlaðar á breidd, en geta ver-
ið eftir óskum á lengd.
Húsin eru alíslenzk fnam-
leiðsla og var byrjað að fram-
ieiða þau fyrir einu ári.
Húsin eru létt og einföld í
uppsetningu og ekki er þörf
neinna lyftitækja riema á
stærstu húsunum. Stálgrindar-
'húsið frá Héðni á Landbúnað-
arsýningunni var reist á einum
degi án lyftitækja af 5 möninum.
Húsin eru venjulega klædd með
bárujámi og t.d. er kostnaðar-
verð sýningarfhússinfl um 170
þús. kr. með bárujárni, en þá er
ekki reiknað með hurð.
Héðinn framleiðir sérstakar
rúlluhurðir og er ein slík sýnd
á sýningarhúflimu í LaugardaJ.
f húsrnu eru einnig sýndar loft-
Myndin sýnir stálgrindarhús Vélsmiðjunnar Héðins á Landbúnaðarsýningunni, en það er 180
fermetrar að stærð. Ljósm. Mbl. Ól.KJML
viftur, sem mikið eru notaðar í
slíkum húsum.
Mikill áhugi virðist vera á
þessum húsum, að sögn Jóns
Oddssonar sölumannfl Héðins og
er mikið spurt um þau og hafa
húsin verið seld víða um land
ýmist fyrir hlöður, verkfæra-
geymslur eða verkstæði.
LAGOMARSINO
Grond Totol
er samlagningarvél með marg-
földun og tveim teljurum. Vél
þessi er tilvalin í launaútreikn-
ing, verðútreikning, vörutaln-
ingu og ótal fleiri verkefni.
NÝ M0DEL
Það er alltaf til ein
LAGOMARSINO
reiknivél, sem hentar yður
LAGOMARSINO
Totolia P2
er rafknúin samlagningarvél.
Hún dregur einnig frá, marg-
faldar og gefur kreditútkomu.