Morgunblaðið - 15.08.1968, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.08.1968, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 196« 27 Fulltrúar deiluaðila í Nígeríu á samningafundinum í Addis Abeba, Anthony Enahoro, full- trúi stjórnarinnar í Lagos og prófessor Eni Njoke, fulltrúi Biafra. Myndin var tekin á mánud. Hjartaflutningur í Japan Hjartaþegi til starfa í Houston Sapporo, Japain, 14. ágúst. AP-NTB. FYRSTI hjartaflutningurinn, sem gerður er í Japan fór fram við sjúkrahús í Sapporo og virð- ist hafa tekizt að óskum að þvi er fréttir herma. Sjúklingurinn, 18 ára gamall pUtur, Miyazaki, kom tU fullrar meðvitundar skömmu eftir aðgerðina og er líðan hans mjög eftir atvikum. Miyazaki, sem þjáðst hefur af hjartaisjúkdómi síðan hann var 10 ára gamall, fékk hjarta úr 21 árs gömlum manni er drukknaði við baðströnd í gær. Þetta er þrí- tugasti hjartaflutningurinn í heiminum. í Houston í Texas fór John Ferrto til vinnu í gær og sag.ði að sér hefði aldrei liðið betur. Ferrto fékk nýtt hjarta 22. maí sl. Hann starfar sem sölumaður selur gamla bíla. Ferrto sagði við fréttamenn að áður en hann Æékk nýja hjartað hefði hann efkki getað gengið tvö skref án þess að hvíla sig. Ferrto er ann- ar hjartaþeginn frá St. Luke sjúkráhúsinu, sem hverfur aft- ur til vinnu sinnar. Everett C. Thomias, sem fékk nýtt hjarta 3. maí sl. hóf vinnu sem fjár- málaráðunautur við banka í Houston 2. ágúst sl. Kaunda bannar annan helzta stjórnarandstööuflokk Zambiu Lusaka, Zambíu, 14. áigúst — NTB — • Kenneth Kaunda, forseti Zambíu, skýrði frá því í dag, að hann hefði ákveðið að banna starfsemi annars helzta stjórn- arandstöðuflokks landsins, Sam- einingarflokksins, á þeirri for- sendu, að hann væri ógnun við frið og viðhald laga og réttar í landinu. Jafnframt bárust um það fregnir, að lögregla Iands- ins hefði handtekið leiðtoga flokksins, Nalumino Mundia, en hann átti áður sæti í ríkisstjórn — og tvo forystumenn aðra. Voru þeir fluttir á ótilgreindan stað. Haft er eftir góðum heimild- um, að stjómin hafi gripið til þessara ráðstafana eftir að tveir fulltrúar stjóm.arflokksms, Sam einaða þjóðlega sjálfstæðis- fHokksins, biðu bana, er þeir ásamt nokkrum flokksmöninum öðrum urðu fyrir árás 40—50 manna, sem taldir voru á snær- Þriggja ára barn fyrir bíl ÞRIGGJA ára drtengur var flutt- ur á Slyisavarðlstofuna eftir að hann varð fyrir bíl í gær. Bíll- ínn var að bakka út úr stæði í Gnoðarvogi og ökumaður varð ekki var við barnið fyrr en slys- ið varð. Ekki er vitað um heiðsli dnengsinsL ► ----------• -------- Litlu sjónvorps- tæki stolið LITLU sjónvappstæiki að verð- mæti 10.000 krómtr var stolið úr verzluminni Vélar og viðtæki að Laugarvegi 147 í fyrradag um fimmleytið. Tækið, sem er af Standard-gerð er hið mimwsta á markaðnum og ena aðleins 4 slík í notkun. Sjónarvottar sáu lítinn dreng 6 að gizka 10 til 12 ára fara inn um Sameiniingarflokksins. Stjórnarflokksmeininimir voru að koma frá jarðarför eins starfsma'n,na flokksins, sem myrtur var um síðustu helgi. Mundia var fyrr á árinu sak- aður um að hafa brotið ge,gn lögum landsins um leymdiar- skýrslur, en han var látirnn laus gegn tryggingu. Samemingarflokkurinn var stofmaður árið 1966. Áður hafði Mundia verið félags- og verka- lýðsmálaráðherra Zambíu. Eini stjórnara.ndstöðuflokkuriinn, sem nú starfar í Zambíu, er Afríski þ j óðar f lokkurinn. Kaunda, forseti, sagði í til- kynningu sinni, að ihann hefði um langt skeið femgið í hendur skýrslur, þar sem greint væri frá þátttöku forystumanna Sam einingarflokksins í ýmsum að- gerðum, sem fælu í sér beina ógnun við frið og öryggi lands- ins. Skoraði hann á alla þá, sem orðið hefðu fyrir árásum af í verzlunina á umræddum tíma og koma út aftur og virtist þeim hann bera eitthvað undir skyrtu sini. Litlu síðar kom harnn aftur — Mkleg.ast til þess að sækja straumbreyti, svo að unnt sé að hafla tækið í bifreið. Þeir sem vita af slíku tæki í umferð — eða hafa séð dreng- hnokka með það undir höndum eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við ranmsóknarlögregl- uma í síma 21107. Lokosenna d ensku Nýútkomið hefti af banda- ríska tímaritimu „The Guest“ helgar norrænum bókmenntum verulegan hluta ritsims. Birt er þýðing þeirra W. H. Auden og Poul Taylor á Lokasennu, ljóð eftir Nínu Björku Árnadóttur og kaflar úr verkum Strindbergs og Gunnars Ekelöf. hálfu Samiemingiarflokksmanna að vísa málum sínum ti£L yfir- valdanna ella myndi þjóðlíf Zambíu fara í ringulreið, en það hefði einmitt verið helzta mark- mið Sameiningarflokksins, sagði Kaunda, forseti. —NIÐURSUÐUVERK- SMIÐJUR Franihald af bls. 28 Fiskiðjunni Arctic h.f. á Akra- nesi. Sagði hann að þessar verk- smiðjur framleiddu vörur til út- flutnings að verðmæti 70—80 millj. kr., en með samræmdum aðgerðum og góðum sambönd- um á erlendum mörkuðiun mundu þær án mikillar breyt- inga geta framleitt fyrir um 200 millj. kr. á ári. Hinga’ð til hefði hver einstök verksmiðja selt og annazt útflutning framleiðslunn- ar sjálf, en á þeim grundvelli væri þeim fjárhagslega ofviða hverri einstakri að reka nokkurt raunhæft sölustarf, en þróun þessa iðnaðar yrði að byggja á útflutningi. Vöntun á skipulagðri sölustarfsemi hefði skapað al- menna erfiðleika í iðnaðinum, varðandi framleiðslu hans, um- bú'ða- og hráefnaöflun og fleira. Björgvin sagði ennfremur: „Fyrir rúmu ári var stofnað til sambands við Alþjóðalánastofn- unina hjá Alþjóðabankanum í Washington með milligöngu Vil- hjálms Þórs, bankastjóra og hefur hann síðan fylgt málinu eftir. Voru kannaðir möguleikar á því hvort IFC vildi gerast þátttak- andi með hlutafjárframlagi og lánum í nýjum samtökum ís- lenzkra niðursuðuverksmiðja til þess að freista þess að koma iðn- aðinum á nýjan grundvöll. Enn- fremur var haft sftmrá'ð við sjáv arútvegs- og viðskiptamálaráðu- neytið og Efnahagsstofnunina.“ „IFC lýsti áhuga á málinu og hingað kom í gær N. Paterson ar ásamt aðstoðarmanni sínum, Israel mun ekki semja við Alsírstjórn — um afhendingu þotunnar Tel Aviv, Algeirsiborg, París 14. ágúst — AP-NTB ÍSRAELSSTJÓRN mun ekki gera neina samninga við Alsír- stjórn til þéss að fá aftur Boeing 707 farþegaþotuna, en reyna all- ar hugsanlegar diplómatískar leiðir til að knýja Alsírstjórn til að sleppa úr haldi þotunni, áhöfn hennar og nokkrum far- þegum, sem enn eru í Algeirs- borg, að þvi er áreiðanlegar stjórnarheimildir í Tel Aviv herma. Heimildimar segja, að hvaða kröfur sem Alsírstjórn kunni að setja fram, smáar eða stórar, séu fjárkúgun og slíkt geti ísraelsstjóm aldrei sætt sig við. Fl'Ugmenin sýhlenzku omstu- þotnanna, sem lentu fyrir mis- tök á ísraelsku landsvæði í fyrradag, eru í haldi sem stríðs fangar í ísrael. ísraelsk yfirvöld segja, að þar sem Sýrland telji sig enn vera í styrjöld við fsra- el hljóti að vera farið með sýr- lenzka hermenn sem stríðsfanga í fsrael. Eftir því sem bezt er vitað eru engir aðrir sýrlenzkii hermenn í haldi í landinu, þar sem ísraelsmenn hafa látið alla fanga úr sex daga stríðinu lausa. Franska flu.gmannas.amibandið skýrði frá því í dag, að flu'g- m'en.n þess myndiu ekki stjóma flugvélum á leið til Alsír frá og með mánudeginum nk. Ákvörð- un frönsku flugmannanna er í samræmi við tilkynningu al- þjóða flugmannasambandsiins, að flugmenn samtaka er til al- þjóðasambandsins teljast, fljúgi ekki til Alsír fyrr en ísraelsku flugmennirnir og þotan hafi snúið heim til ísrael. Talsmaður flugfélagsins Air Algeria sagði að Alsírstjórn hefði enn ekki lokið rannsókn í sambandi við flugvélarránið og gæti því enn ekki sleppt flugmönnunum úr haldi. Abba Eban, utanTÍ'kisráðherra fsraels, sagði í dag, að ákvörðun flugmannasamtakanna væri eðli leg og í fullu sambandi við grundvallarreglur þessara sam- taka. Æskulýðsmót við Vestmannsvatn UM næstu helgi, dagana 17. og 18. ágúst verður hið árlega æsku lýðsmót á vegum Æ.S.K. í Hóla- stifti við Vestmannsvatn í Aðal- dal. — Þátttakendur eru ungling ar af Norðurlandi og prestar og ennfremur sá flokkur elztu sum arbúðabamanna, sem nú dvelja að Vestmannsvatni. Tjaldað verður við vatnið og þurfa þátttakendur að koma með nauðsynlegian útbúnað annan en mat, þar sem borðað ver'ður sam eiginlega í skálanum, —• kostnað arverð er kr. 225,00, á mann, og m.a. til frekari viðræðna um málið.“ „En ein af forsendum þess að samstarf takist og árangur náist er, að fram fari ýtarleg markaðs könnun ásamt ýmsum öðrum at- hugunum. Slíkt kostar mikið fé og naúðsyn er sérfræðilegrar að- stoðar. Að höfðu samráði við við skiptamálaráðuneytið og fyrir milligöngu utanríkisráðherra var haft samband við Iðnþróunarráð Sameinuðu þjóðanna (UNITO), sem aðsetur hefur í Vínarborg, með þeim árangri, a'ð stofmmin hefur boðizt til þess að veita að- stoð, sem yrði ekki greidd nema að litlu leyti. Er gert ráð fyrir að framleiðslusérfræðingur UNITO starfi á vegum samtak- anna í 6 mánuði og markaðssér- fræðingur í 1 ár.“ Að lokum sagði Björgvin a'ð gagnslítið yrði að stofna fjár- vana sölusamtök. Flestir væru sammála um að oft hefði verið þörf á verulegum aðgerðum fyr- ir skipulagt sölustarf erlendis fyrir íslenzkan niðursuðuiðnað, en nú væri það nauðsyn. Sam- ræmdar a’ðgerðir þessara verk- smiðja í framleiðslu og sölustarfi gætu skapað ný viðhorf í þessari útflutningsgrein og reynt mundi að stefna að því að íslenzki nið- ursuðuiðnaðurinn fengi ítök í dreifingarkerfi erlendis þannig að verksmiðjurnar sem hlut eiga að máli gætu gert framleiðslu- áætlanir lengra fram í tímann en hægt hefur verið til þessa og afkastageta þeirra nýttist a'ð fullu. Ótæmandi möguleikar væru til framleiðslu niðursuðu- vöru hér, meira öryggi á erlend- um markaði skapaði möguleika til að nýta þá betur en gert hefði verið. eiga mótsgestir að sjá sér fyrir fari til og frá Vestmannsvatni. Mótið verður sett kl. 6 á laug- ardaginn, og eiga þá allir að hafa reist tjöld sín og komið sér fyrir á sumarbúðasvæðinu. Um kvöldið verður kviödvaka, varð eldur og flugeldasýning. — Fyr- ir hádegi á sunnudag fara fram íþróttir og biblíulestur, og eru þátttakendur beðnir um að koma méð Nýja-Eestamentið og sálma- bók. — Mótinu lýkur í Grenj- aðarstaðakirkju með guðsþjón- ustu. — Mótsstjórar verða séra Sigurður Guðmundssdn prófast- ur og Gylfi Jónsson sumarbúða- stjóri. — Unglingamir eru beðn- ir um að tilkynna prestum sín- um þátttöku eigi síðar en á fimmtudagskvöld. Munið að vera útbúin með skjólgóð föt og fjölmennið á mótfð. Aðalfundur Æ.S.K. í Hólastifti verður haldinn í Ólafsfirði dag- ana 7. og 8. september. — Um- ræðuefni fundarins verður þátt- taka æskunnar í starfi kirkjunn ar. — (Fréttatilkynning frá Æ.S.K. í Hólastifti.) i — ♦ ♦ ♦ Heysknpui í Kjósinni Valdastöðum, 13. ágúst. Sláttur hófst með seinna móti, allt að 3 vikum séinna en nokkur undanfarin ár. Þá voru tún ekki fullsprottin, en hey þurrkur sæmilegur, svo þeir sem fyrstir hófu slátt náð-u nokkru af túmum. Þegar frá leið kom votviðrakafli svo að hey hrökt- ust nokkuð, en þá spratt svo ört, að gras fór að fúna í rótina. Nú er búinn að vera ágætur þurrkur í þrjá daga, og hefur tekizt að þurrka mikið af heyi og sumir hafa n/áð inn töluverðu af heyi. Útlitið er nú allt annað en var fyrir fáum dögum. Þess eru dæmi úr sveitinni að nokkr- ir bændur eru við það að Ijúka að fullu fyrri slætti á túnium sín- um og þegar byrjaðir engjaslátt. Nokkur hluti heyfengsinis er verkað sem vot’hey. Er allgott útliit um seinni slátt á þeim bæji- um sem fyrstir hófu slátt. — St. G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.