Morgunblaðið - 15.08.1968, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.08.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1968 13 - BIAFRA Framli. af bls. 1 inni, að fulltrúar deiluaðila muni koma saman í fyrramálið til þess að leggja síðustu hönd á samkomulagið, en ekki er nánar tilgreint í hverju það er fólgið. Viðræðurnar í Addis Abeba eru haldnar fyrir milligöngu Einingarsamtaka Afríkuríkj anna og sagði framkvæmdastjóri samtakanna, Diallo Telli, í kvöld, að báðir aðilar hefðu á viðræðunum í dag lagt fram raunhæfar tillögur til lausn- ar því mikla vandamáli, sem matvælaskorturinn í Nígeríu hefði skapað. Þá er einnig haft eftir trúverðugum heimildum að Heile Selassie keisari, sem stjórnað hefur viðræðunum í Addis Abeba, hafi boðið lleiðtog um ríkjanma, sem aðild eiga að Nígeríimefnd Einingarsamtak- anna, að koma til fundar í Add- is Abeba um helgina. Keisarinn er formaður nefndarinmiar, hinir meðlimir hennar eru William Tubmam, fonseti Líberíu, Josep Ankrah leiðtogi Ghana, Josep Mobutu í Kongo (fyrrum Belg- ísku Kongo) Hamani Diori, for- steti Níger og Ahmadou Ahidjo, forseti Kamerun. Tilgangur fundarins um helgina er sagður sá, að nefndarmenn kanni í sam einingu skýrslu Haile Selassies um viðræðumar og beri fram þser ti'llögur, er þeir hafa fram að faera í málinu. f skýrslu frá Lagos segir, að um tvær milljónir barna undir fimm ára aldri, hálf önnur mill- jón ungra mæðra og barmshaf- andi kvenna og þrjár milljónir manna og kvenna undir 21 árs aldri þurfi nauðsynlega á að- stoð að halcfk. Þetta fólk eitt þarf á að halda að minnsta kosti 300.000 l'eistum af matvælum á viku en kostnaður þeirra mat- væla er metinn á fjárupphæð er nemur á annað hundrað mill- ónum íslenzkra króna. Einn af yfirmönnum hers La- gosstjórmar, Yakubu Danjuma, hefur sagt, að stjómarher- inn geti sigrað Biafraherinn á tveimur vikum úr því sem nú er komið. Biafraherinn hefur nú í sínum höndum þriðjung þess landsvæðis, sem áður var Austurhluti Nígeríu og nefnd- ur var Biafra, er lýst var yfir sjálfstæði. Stjórnarherinn hefur á sínu valdi alla meiri hátt- ar flugvelli og þess vegna m.a. er miklum vandkvæðum bundið að koma matvælum til Biafra án samþykkis Lagosstjórnarinnar. Hefur verið notazt við tvo leyni lega flugvelli og nú hefur Rauði krossinn vonir um að Biafra- menn tilnefni flugvöll, er sett- uæ verði undir stjóm Rauða krossins og hann einn fái að sjá um matvælaflutningana til Biafra. Svissneski diplómatinn, August Lindt, sem hefur séð um samræmingu matvælaflutning- anna til Biafra skýrði frá því í dag, að hann byggist við svari Lagosstjórnarinnar fljótlega og yrði fljótgert að koma upp á flugvedlinum nauðsynlegum tækj um til flugeftirlibs. Lindt sagði, að bezta lausnin á matvælavandræðunum í Biafra væri að sönnu að opna leið á landi, en meðan ekki væri hægt að koma því í framkvæmd væri hægt að notast við flugið svo framarlega sem Lagosstjómin féllist á að láta af skotárásum á flugvélar, er flyttu matvæli til landsins. Lindt sagði, að um mill jón manna væri á barmi algers hungurmorðs og þúsund tonna matvæla hefðu safnazt saman á ýmsum stöðum. Væri skelfilegt að geta ekki komið þessum vist- um áleiðis til hinna þurfandi. Lindt vísaði á bug þeirri gágn- rýni, sem ýmis samtök og ein- staklingar hafa borið fram gegn Rauða Krossinum vegna frammi stöðu hans í Bia.framálinu. Sagði hann sendingar og flug annarra samtaka ekki hafa náð tilgangi sínum og ekki hafa orðið til mikils gagns. Hann ítrekaði þá skoðun sína, að eina vonin um lausn á mat- vælaástandimu væri að fljúga á ákveðinn flugvöll, sem væri undir eftirliti hlutlauss aðila, er báðir gætu treyist. Hann sagði ennfremur, að Rauði krossinn hefði reynt að fá leigt skip til miatvælaflutning- anna en ekki tekizt. Þá stað' hæfingu gerði Hunt lávarður hinn brezki, að umtalsefni, en hann hefur af hálfu brezku stjórnarinnar kynnt sér ástand ið í Biafra og möguleifca á að koma þangað matvælum. Taldi hann enga annmarka á því að fá skip til flutningamma, sú skoð un væri nú svo rík víðast hvar, að nauðsynlegt væri að bjarga Biafrabúum frá hungurdauða að vafalítið mundu margir aðilar fúsir að láta skip sín til flutn- inga á matvælum þangað. Skuldabréf ríkistryggð og fasteigna- tryggð. Kaupendur og selj- endur, látið skrá ykkur. Hjá okkur er miðstöð skuldabréfa viðskipta. Fyrirgreiðsluskrifstofan, fasteigna- og verðbréfasala, Austurstræti 14, sími 16223. Þorleifur Guðmundsson, heimasími 12469. 77/ sölu Tvær 4ra herb. íbúðir í sam- býlishúsum, önnur í Safamýri hin við Há'aleitisbraut. Félags menn hafa forkaupsrétt til 22. ágúst. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins, Tjarnar- götu 12. Byggimgansamvinmuíélag starfsmanna Reyk j a ví k ur borg ar. - GRIKKLAND Framh. af bls. 1 hefði verið George sem flýði til ísraels. Að isögn lÖgreglunnar eru bræðurnir mjög líkir og auðvelt að villast á þeim. Einnig er upp- lýst af hálfu lögreglunnar, að Áleksandros hafi átt aðild að innbroti árið 1959, svo og, að hanm 'hafi verið virkur þátttak- andi í æskulýðssamtökum flokks Georges Papandreous. Hafi hann tekið þátt í mótmælaaðgerðum, sem æskulýðssamtökin skipu- lögðu á árunum 1965 og 1966. Eftir að hann fór úr hernum hafi hann ferðazt til Kýpur, síð- an til Ítalíu og annarra landa í Vestur-Evrópu og hann hafi ver- ið sendur til Grikklands á ný í leynileguim erindagerðum, m. a. þeirra erinda, að framkvæma ýmsar áætlanir andstæðinga grís'ku stjórnarinn-ar. Af hálfu stjórnarinnar segir, að þessar upplýsingar hafi mjög breytt eðli tilræðisins og bent er á, að Andreas Papandreou, sonur gamla Georges Papandreous 'hafi lýst ánægju sinni vegna morðtilræðisins. Áður hafði verið frá því skýrt í fréttum frá Stokkhólmi, þar sem Andreas Papandreou nú dvelst í útlegð, að hann hefði látið svo ummælt, þegar hann heyrði hvaðg erzt hefði, að morð tilræðið væri hetjudáð. Grikk- land er eldfjall, sem á eftir að gjósa“ sagði hann. Papandreou, sagði, að búast mætti við aukn- um skemmdarverkum á næst- unn-i. Þá er haft eftir Helen Vlach os í London, að hún hafi ekki ýkja miklar áhyggj-ur af manni sínum. Hún sa-gði, að stjórnin -hefði í símum fórum lista yfir fólk sem hún teldi varhuga Vert og það fólk væri fyrst handtekið, þegar eitthvað brygði út af. Himsvegar vissi hún, að maður sinn. væri ekki viðriðinn tilræðið, hann hefði aldrei og mundi aldrei koma nærri slíku og stjórnin mumdi ekki voga að ganga svo langt að gera honum mein. Constantine Loundras var áð- ur foringi í gríska flotanum en, hefur að undan-förnu starfað sem blaðamiaður við d-agblaðið ,Missimvrini“ í Aþenu. - TEKKÓSLÓVAKÍA Framh. af bls. 1 að fylgja á leið þeirri til sósialis- mans, sem hún hefur valið. Greinarhöfundur, I Pomijelov, ræðir um Bratislava-yfirlýsing- una og það ákvæði henmar, að taka verði tillit til aðstæðna í hverju landi, þegar unnið sé að sköpun hins sósialistíska þjóðfé- lags. í greininni tilgreinir hann á- kveðnar reglur, sem allar komm únistískar ríkisstjórnir vedða að taka fullt tilht til jafn-t og sér- einkenna hvers lands. Undantekningarlaust verði að fylgja eftirfarandi höfuðatriðum: 1. Stjórnmálavald verður að vera í höndum verkamanna, það er að segja í höndum kommún- Lstaflokksins. 2. Öll framleiðslutæki verða að vera sameigm. Það hefur í för með sér áætlanagerðir í efna- hagslífinu undir einni mi’ðstjórn. 3. Skapa verður nýja þjóðfélags- skipan sósialistísks fólks — og verkamenn og bændur verða að vera í nánum tengzlum við menntamen-n og listamenn lands ins. 4. Menntamálin skulu einkenn- ast af nýju kerfi menntamála er gefi verkamönnum að-gang að námi. Hin marxisk- lendniska hugmyndafræði skal einkenna baráttuna gegn erlendum sjónar- miðum og smóborgarlegum hugs unarhætti og siðfræði. 5. Alþjóðahreyfingin skal þróazt áfram á grundvelli þess sem áður hefur gerzt. í greininni segir, að um leið og tekið sé tillit til þessara grund vallarreglna muni séreinkenni þjóiðanna koma í ljós, en sá sess sem séreinkennunum sé ætlaður hljóti að ákvarðast í ljósi grund- vallarhugmynda sósialismans. Ekkert miðar í sam- komulagsátt í París París, 14. ágúst. AP-NTB. SAMNINGANEFNDIR N-Víet- nam og Bandaríkjanna komu saman til 17. fundarins í Parfis í dag. — S t j órnmál af réfitaritarar segja að ekke-rt bendi til þess aff friðarfhortfur séu neitt betri nú em fyrir þremux mánuðum, er við-ræðurnjar hóíust. Á fundinum í dag skiptust þeir Harriman og Thay á sömu ásökúnum og uppi hafa verið á öllum fundunum. N-Víetnam krefst þiess jafnfajst að Bandaríkjamenn hætti öllum árásum á N-Víetnam áður en til raunveruiegra friðarviðræðna geti komið, en Bandarikjannenn kflefjast þesis að N-Víietnajn komi eitthvað til móts við þá. Bandarískir forráðamenni höfðu gert sér nokkrar von-ir um að koma Le Ouc tho, til París frá Hanoi ben-ti til þess að eitthvað nýtt væri á döfinni, en svo hefur ekki reynzt enn. Tho sem er sérlegur ráðgjiafi Th-uys, h-efur v-erið í Hanoi undanfarnar sex vikur til viðræðna við þar- lenda leiðt.oga. VITBÐ ÞÉR að bókin „Bættir eru bænda hættir“ er fyrsta bókin, sem út kemur og í skrif- ar núverandi forseti, Kristján Eldjárn? En ekki skrifaði hann bókina einn, heldur skrifa í bókina 27 aðrir menn. Hverjir? Auðvitað færustu menn íslenzks landbúnaðar. Hvers vegna bók um ísl. landbúnað? Vegna þess að alhliða bók um ísl. land- búnað hefur ekki verið fáanleg. Hvar fæst bókin? Á Landbúnaðarsýningunni í Laugardal eða gegn þessum póstkröfuseðli. Frá sýningarbás útgefenda sem er á veitingapalli. BÓKAÚTGÁFAN PÓSTHÓLF 586. Ég undirritaður. Nafn: Heimilisfang: Pósthús: óska hér með eftir að fó sent.............stk. af bókinni BÆTTIR ERU BÆNDAHÆTTIR Verð kr. með söluskatti. □ Bókin sendist mér burðargjaldsfrítt og fylgir greiðslan kr. hér með. Bókin sendist mér gegn póstkröfu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.