Morgunblaðið - 15.08.1968, Page 21

Morgunblaðið - 15.08.1968, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1968 21 Trúboð Þorvaldar EFTIR að hafa hlustað á. erindi sem Þorvaldur nokkur Steina- son flutti í ríkisútvarpinu 26. apríl í vor, skrifaði ég allýtar- legar leiðréttingar við nokkur atriði í málflutningi Þorvaldar, sem víða var með endemum. Biirtist grein mín í Mongunblað inu 12. júní. Nú tekur Þorvaldur þessi aft- ur til við „trúboð“ sitt, í Morg- unblaðinu 2. ágúst og ber mig og fleiri búnaðarmenn þungum sökum. Tilgangslítið mun að elt- ast við ósannindi Þorvaldar og dylgjur í garð manna bæði lif- andi og dauðra, enda ekki hægt um vik að leiðrétta, svo að fullu gagni verði, er svo iilla tekst til, að menn sleppa að hljóðneman- um með slíkan málflutning. En ég veit að dagskrármenn út- varpsins harma það hvernig hér tókst til, er Þorvaldur brást til- trú þeirra. Aðalverkefni Þorvaldar í grein iimi í Morguniblaðinu er að reyna að gera mig að margföld- um ósannindamanni, en þannig tekst til hjá honum, að hann verður tvísaga og meira en það og kemst í mótsögn við sjálfan sig. Hann skákar í því skjólinu, að lesendur greinarinnar hafa ekki útvarpserindið frá 26. apríl í höndum og geta þvi ékki áttað sig að fullu á málflutningi Þor- valdar, hvernig hann vefur sam an ósannindum, miss'kilningi og mótsögnum. Þorvaldur diktar upp heila sögu um „viðskipti" Þórðar Ás- mundssonar útgerðarmanns og bónda á Akranesi við mig 1941- 42, í sambandi við kaup á skurð- gröfu. Ekki er heil brú í frásögn inni. Svo vel vill tiL, að fyrir 'hendi eru samtímaskrif og bréf um þetta mál, sem ekki 'hafa verið né verða véfenigd, þarf ég því ekki að treysta minni mínu einu, um skipti ökkar Þ. Á. varð andi skurðgröfukaupin, hvernig þau bar að og hvað þá gerðist. 'Hið leiðinlegasta við uppdikt- anir Þorvaldar og trúboð er þó, að með því liggur við, svo ekki sé meira sagt, að hann geri hina látnu menn: Björn Lárusson á Ósi og Þórð Ásmundsson, að úr- ræðalausum aumingjum og mið- ur áreiðanlegum í þokkabót. Ég rek ekki þá vitleysu alla, en mót mæli Slíkum mannskemmandi málflutningi, þótt öðrum standi auðvitað nær en mér að gera upp þær sakir við Þorvald þenn- an. Ég hefi margsinnis rakið til- komu skurðgrafanna 1941-42 og þarf þar engu við að bæta, engu að leyna og ekkert að „lagfæra" mér til hags, eins og Þorvaldur dylgjar óspart um, og á engan hefi ég hailað í frásögnum mín- um um þessa hluti, er auðvelt fyrir þá er vilja, að sjá það og sannreyna. — Vil aðeins endur- taka þetta: 'Eftir að Búnaðarþing 1941 hafði ós'kað eftir því að keyptar yrðu tvær skurðgröfur, mælti fjárveitinganefnd Alþingis með því við landbúnaðarxáðherra, „að reynt yrði til þrautar að festa kaup á eimni skurðgröfu til land þuirrkunar“. Ráðherran fól mér „að útvega---------ti'lboð í slíka gröfu“, og síðar að velja hana og útvega. Frá þessu var sagt í októberblaði Freys 1941. skömmu síðar hringdi Bjöm á Ósi til mín og bað mig að panta aðra gröfu fyrir sig. Kvað hann Þórð Ásmundsson standa að baki sér fjárhagslega um kaup- in. Þetta staðfesti Þórður við mig, einmig í símtali. Þórð þekkti ég þá ekki nema af afispurn. Gröfuna pantaði ég 11. nóvem- ber. Hún kom til iandsins 8. apríl 1942. Þeir Bjöm og Þórður leystu gröfuna aldrei út né tóku hana, svo sem þeir áttu fullan aðgamg að. Þetta stafaði eimfaldlega af þvi, að um þessar mundir gjör- breyttust öll viðhorf varðandi væntanlega framræslu með skurðgröfum. Hér var alls ekki um neinar vanefndir né vanskil að ræða, frá hendi þekra Björns og Þórðar, það má emginn halda. Þeir höguðu sér aðeins skynsam lega, í samræmi við nýmæli í jarðræktarlögunum, sem þá voru komin fram og önnur meiri í uppsiglingu. Bréf landbúnaðar- ráðherra, Hermanns Jónassonar, til mín dagsett 11. maí 1942 skar úr um þetta. Það byggir antnars vegar á tillögum Búnaðarfél. ís- lands og hins vegar á málaleit- un Akraneskaupstaðar um að grafam, sem ég hafði pamitað fyr- ir þá Björn og Þórð, verði greidd úr ríkissjóði og Leigð Akranes- kaupstað samkvæmt ákvæðum hinna nýju jarðræktarlaga. Allt gerðist þetta árekstralaust, með eðlilegum hætti og án allra „svika“ frá minni hendi, Verk- færanefndar og landbúnaðarráð- herra, þótt Þorvaldur ætli mér allt illt í því sambandi, geti ekki ‘hugsað sér annað. Aldrei heyrði ég neitt óánægju orð frá þeim Bimi og Þórði út af þessum málalokum, er graf- an varð eign Vélasjóðs (ríkis- ins) og leigð Akraneskaupstað, enda má hiklaust segja að þau væru þeim mest til þægðar. Er Þorvaldur gerir Birni á Ósi upp óvildarorð í minn garð og sam- starfsmanna minna í Verkfæra- nefnd, legg ég engan trúnað á slíkt, þar eð það stangast gjör- samlega við bréf firá Birni til mín, þar sem hann þakfcar mér sérstaklega fyrir það blað af Frey þar sem sagt er firá skurð- gröfukaupunum og hvemig þau réðust. Allt skiptir trúboð Þorvaldar um sviksemi mína, ósamnindi og afglöp litlu máli ef ekki væri lamgtum meira og stærra í efni. í útvarpserindi sínu talar Þor- valdur um „Formælendur rækt- unarmála“, sem sögðu að það væru „engar vélar til sem geta grafið skurði sem henta ís- lemzkum jarðvegi, enda engin þörf á þeim“. Einnig segir hann: „að hinir vísu feður ræktunar- mála“ — — hafi — — „þumb- azt við í lengstu lög og hamlað á móti því að véltæknin yrði not- uð til landþurrkunar“. í Morgunblaðinu 2. ágúst seg- ir hann enn: „®n formælendur ræktunar- mála með Árna G. Eylands í far- arbroddi sváfu svefni sinnuleys- is“, — í 12 ár — skilst lesand- anum. Ekki þarf ég að kvarta að 'hlutur minn sé gerður lítill, ég er í fararbroddi, ekki bara í svefni heldur einnig í vöku, að minnsta kosti vakna ég fyrstur, samkvæmt trúboðskenningu Þorvaldar. En hverjir voru svo þessir „formælendur ræktunarmála", sem eru orpnir þannig aiuri í áheyrn alþjóðar, í rí'kisútvarp- inu? Ég skal nefna nokfcra þótt um fleiri geti verið að ræða: Sigurður búnaðarmálasitjóri, Magnús á Blikastöðum, Halldór á Hvanneyri, Tryggvi Þórhalls- son, Valtýr Stefánssom, Pétur Ottesen, Steingrímur Steinþórs- son, Runólfur Sveinsson, Pálmi Ei'narsson,_ Ásgeir L. Jónsson, Bjarni Ásgeirsson, (Hermann Jónasson. — Þetta eru mennirn- ir sem sváfu „svefni sinnuleys- is“ í ræktunarmálum, sem sögðu að það væri „engin þörf á“ vél- um til að grafa skurði, og sem þumbuðusi við í lengstu — „á móti því að véltæknin yrði notuð til landþurrkun- ar“. — Hvað segja bændur við þessum dómum og trú- boði? Það er ekki að umdrast þótt búfræðingurimn Þorvaldur Steinason, sem telur sig þess um kominn að boða slíka trú og „sannindi“, haldi sig muna lítið um að hnésetja einm gamlan mann — Árna G. Eylamds. Stórhugur Þorvaldar og mat á sannleikanum kemur fram, er hann tekur sér svona rétt um leið, fyrir hendur að leiðrétta höfund Njálu, málfar hans og frásagnir um brennuna á Berg- þórshvoli og veizluna í Hrossey er Kári vó Gunnar Lambason. — Það verður rýrt fyrir honum Þorvaldi smámennið. Brattahlíð 5. ágúst 1968 Árni G. Eylands. ATH. Mál þetta er útrætt hér í blaðinu. ÞAÐ VAR CATERPILLAR Arni G. Eylands, sem er höf- undur greinarinnar „Dagur jarð ýtunnar", sem birtist í blaðinu í gær (nafn hans féll því miður niður), biður þess getið, að það sé missögn hjá honum að jarð- ýtan, sem Almenna byggingarfé- lagið flutti inn 1943 og tók í notkun, hafi verið Allis Chalm- ers. Vél þessi var af Caterpillar D4-gerð. Þannig var þetta fyrsta Caterpillar-jarðýtan, sem til lamdsins var flutt. * - ■ ♦ ♦ ♦ - AÐ LIFA Á............... Framhald af bls. 5 gær“, svaraði Dagur, „þar er allt vel skipulagt — þar er örnefnadeild og þjóðfræða- deild og margt annað. Það er mjög 'gaman að eiga slíka norræna miðstöð á fslandi. Hingað 'geta komið prófessor- orar og stúdentar frá Sví- þjóð, Noregi og Danmörku til rannsókna. Það er svo margt að rannsaka hér á íslandi, svo margt af nýjum ævintýr- um, sem ekki voru þekkt áð- ur og þarf að skrá og rann- saka“. 'Hann lygndi aftur augun- um og hélt áfram: „Ég kom himgað fyrst 1926 til þess að læra islenzku og benna sænsfcu. Ég var fyrsti sendikennarinn í sænsku við Háskólann" . Hann þagnaði, lék við fing ur sér og hélt svo áfram: „Mér leið afskaplega vel. Var un'gur og kátur og kynntist mörgu góðu fólki“. „Þá vildu allar stelpur í Reykjavík dansa við banm“, skaut Einar Ólafur inn í. „Það skiptir nú efcki máli“, sagði Dagur og hló. — „En svo liðu 27 ár, þamgað til ég 'kom himgað aftur, þá var ég boðinn til að balda hér fyrir- lestur á íslenzku. Og nú er ég, eins og Einar Ólafur sagði, boðinn til þess að at- huga, hvað þeir eru að gera í Handritastofnuminmi og gefa þeim leiðbeiningar. Séa- mus er í sömu erindagjörð- um“. „Það er margt ógert hér“, sagði Séamus. „Veiztu, að ís- lamd var, þangað til Handrita stofnunin var sett á laggirn- ar, eina landið í allri Norður- álfu, sem ekki átti sér þjóð- fræðastofnun. Þetta var ekki rétt stefna. Hér á íslandi hefur, eins og heima á Írlandi, þróazt tvenns konar bókmenntaarf- leifð, sú aristókratíska, sem var skráð, og sú demófcrat- iska, sem var óskrifuð og geymdist í huga fólksins. Á báðum stöðum gegndi sagan sama hlutverki. Sagna- skáldin heyrðu raddir margra alda og námu þær. Sumt er nú skráð, en margt er enn óritað. Þessar sögur voru um for- tíðina og þær geymdu í sér fyrirheit og vonir. Eftir hall- ærið mifcla 1847 liifðu frar á slíkum vonum — og kart- öflum. Þetta hélt 'lífinu í okk- ur eins og sögurnar ykkar 'héldu lífinu í ykkur. Það voru ekki hetjurnar, þær skipta engu máli. Það er fólk ið sjálft, hinar þöglu hetjur sem skipta máli. Fól'kið, sem var aðeins ákveðið í einu, að l'ifa og halda áfram að lifa. Þetta fólk skildi, að án for- tíðar er engin framtíð. Það verður að bera virð- ingu fyrir fortíðinni og við verðum að læra að þekkja hana. Ég kynntist einu sinni manni. Hann var snillingur, en kUnni ekki ensku og hvorki að lesa né skrifa. Og þó var hann meiri rithöfund- ur en aðrir menn. Ég byrjaði að skrá bækur úr huga hans og ég skráði margar bækur. Það er mikið til enn af slíku fólki, bæði á írlandi og hérna, og þið eigið að senda menn út um landið til að spyrja það og láta það segja sögurnar um þjóðina, hvernig hún sigraðist á öllum erfið- leikum“. Nú þagnaði Séamus og horfði á mig og mælti: „Menn .fara oft ósköp vit- laust að. Ég fór til Færeyja í fyrra til að skoða Fróðskapar setrið í Þórshöfn. Þeir buðu mér út í Sandey til að vera við uppgröft bænhúss. Þetta var yndislegur dagur, og mjög fallegt á eynni. Bónd- inn á bænum, þar sem bæn- hússrústirnar voru, var gam- all og með langt hvítt skegg. Hann sat og horfði á upp- gröftinn svona“, Séamus hall aði sér fram, studdi hendinni á hnéð og lét sem hann væri að reykja pípu. „Ég horfði á hann stundar- korn, og sagði síðan við þann, sem stjómaði uppgreftrinum: Þið eruð að grafa á vitlaus- um stað. „Nú“, spurði hann, „af hverju segirðu það?“ „Jú“, svaraði ég. „Þið eigið að grafa þama og benti á höfuð gamla mannsins. Þið eigið að grafa í minni hans. Þar finnið þið mifclu merki- legri hluti en í þessum rúst- um“. Har. BI. Kjötiðnaðarmaður óskar eftir atvinnu, helzt í verzlun. — Upplýsingar í síma 82849, eftir kl. 7 á kvöldin. Verzlun Óskum að kaupa vel staðsetta og arðbæra verzlun. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 21. ágúst, merkt: „Ör- uggir aðilar — 6429“. Herbergi og fæði ósknst frá miðjum sept. fyrir verzlunarskólastúlku utan af landi. Æskilegt sem næst miðbænum. — Algjörri reglu semi og góðri umgengni heitið. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „Reglusemi — 8076“ fyrir 18. ágúst. Iðnaðarhúsnæði Til leigu 250 ferm. iðnaðarhúsnæði á góðum stað í borg inni. Upplýsingar í síma 31433. Reiðhjól Eigum fyrirliggjandi drengja- og telpnareið- hjól frá Hollandi. Ýmsir aukahlutir fylgja. Tvær_stærðir af drengja hjólum, ein stærð af telpnahjólum. Verð aðeins kr. 2990.- .HHtimniiimnmimmiiiMimnimmmtiiiiiimmiii, .......................................ummiMif. ÍIIIIIIIIIIIM, ^"'wiSSí ......JMHMtmmmmimMil......... iMiiimimmmmmmtmmMiiimmmiiittiHMi1' Miklatorgi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.