Morgunblaðið - 07.09.1968, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.09.1968, Blaðsíða 1
24 SÍÐliR 194. tbl. 55. árg. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins Júgóslavar ákaft gagnrýndir í Kreml Rúmenar beygja sig og munu rœða um ,,gagnkvœman vináttusamning" Moskva, Belgrad og Búkarest, 6. sept. — NTB—AP — SOVÉSK blöð réðust harkalegar að Júgóslavíu í dag en dæmi eru áður til frá því að sam- komulag landanna batnaði fyrir sex árum. Rauða stjarnan, blað sovézka landvarnaráðuneytisins, réðist með offorsi á endurskoð- unarsinna í Júgóslavíu og klofn ingsfylkinguna í Kína, og voru bæði löndin síðan sökuð um að hafa notfært sér ástandið í Tékkó slóvakíu til þess að aðstoða Vest urveldin. Frá Rúmeníu bárust þær frétt ir í dag að Rúmenar hefðu beygt sig fyrir kröfum Sovétmanna um viðræður um endurnýjun „gagn kvæms vináttu- og aðstoðarsátt- mála“. Sáttmáli þessi var gerð- ur milli Sovétríkjanna og Rúm- eníu til 20 ára 1948, en hann rann formlega út í febrúar sl. Tító Júgóslóavíuforseti endurtók enn einu sinni í dag þá skoðun sína, að hemámsliðið í Tékkó- slóvakíu ætti að kveðja þaðar, hið bráðasta. Frá Belgrad fréttist í daig að júgóslavnesk yfirvöld væru stað ráðin í því að landið hljóti ekki sömu örlög og Tékkóslóvakía og í því skyni sé nú unnið að því að veita herþjálfun ungu fólki af báðum kynjum jafnframt því, sem landið treystir nú varnir sínar gegn hugsanlegri árás. í grein þeirri, sem málgagn Sovéthersins, Rauða stjarnan, birti í dag, og fyrr er vitnað til, er því haldið fram að bandarísk v-þýzk og break blöð leggi nú sérstaka áherzlu á að sverta So'v étríkin og Rauða herinn, sem nú hjálpi tékknesku þjóðinni í bar- áttu hennar við andbyltinguna. Framhald á bls. 23 Rdssar gerast óþolinmdð- ir - Kutznetsov til Prag För hans talin boða harkalegri að- gerðir — Rússum þykir seint ganga „breytingin til fyrra horfs" Prag og Moskva 6. sept. NTB-AP. • Vasily Kuznetsov, fyrsti að- stoðarutanríkisráðherra Sovét- ríkjanna kom í dag flugleiðis til Prag til viðræðna við Ludvik Svoboda, forseta, og aðra tékk- neska leiðtoga. Tók Svoboda á móti Kutznetsov síðdegis í dag og í opinberri tilkynningu um viðræður þeirra var sagt að þeir hefðu ræðst við af „hreinskilni“ um samskipti landa sinna. Á máli kommúnista þýðir þetta, að þeir Þessi mynd var tekin af stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna á fundi í Félagsheimili Heimdallar í gær, við að undirbúa aukaþing ungra Sjálfstæðis manna í septemberlok. Frá vinstri Halldór Blöndal, Ólafur B. Thors, formaður Heimdallar, Gunnar Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri samhandsins, Birgir ísl. Gunnarsson, formaður SUS, Jón E. Ragnarsson, ann- ar af varaformönnum sambandsins, Ellert B, Schram, Sigurður Hafstein, Ragnar Kjartans- son og Björgúlfur Guðmundss on, varaformaður Heimdallar. Samband ungra Sjálfstœðismanna boðar fil aukaþings um: hafi ekki verið á eitt sáttir. • Af því, sem sagt hefur verið í Moskvu í dag er ljóst orðið að Sovétmenn gerast nú æ óþolin- móðari gagnvart tékkneskum leiðtogum vegna aðgerða þeirra í þá átt að koma ástandinu í landinu í sitt „fyrra horf“, og má lesa milli línanna í sovézkum blöðum og tékkneskum, að nokk uð er sá skilningur mismunandi sem lagður er í orðin „fyrra horf“. Svo sem kunnugt er á breytingin tii „fyrra horfs“ að vera frumskilyrði þess að her- námsliðið verði á brott úr Tékkó slóvakíu. Vasily Kutznetsov er fyrsti háttsetti, sovézki embættismað- urinn, sem komið hefur til Tékkó ; slóvakíu frá því að landið var hemumið 21. ágúst sl. Er af mörgum talið að för hans til Prag sé undanfari harkalegri að gerða gegn hinum frjálslyndari leiðtogum tékkneska kommún- istaflokksins. í dag var greint frá því í Vín- arborg að Jiri Hajek, utanríkis- ráðherra Tékkóslóvakíu, sem | sætt hefur harðri gagnrýni í I Moskvu undanfama daga, hafi komið flugleiðis frá Sviss í dag, og hafi þegar haldið í bifreið áleiðis til Bratislava. Búizt er við að hann komi til Prag um miðján dag á morgun, laugardag. Framhald á bls. 23 Ný viöhorf í íslenzkum stjórnmálum Þjóðmálaverkefiii næstu áratugi — Stjórnmálaflokkar og starfsh ættir þeirra STJÓRN Sambands ungra Sjálfstæðismanna hefur á- kveðið að boða til aukaþings ungra Sjálfstæðismanna dag- ana 27.—29. september, þar sem f jallað verður um ný við horf í íslenzkum stjórnmál- um. Ákvörðun um þetta var tekin af stjóm sambandsins fyrir skömmu en næsta reglu legt þing samtakanna verður ekki haldið fyrr en haustið 1969. Á þinginu verður fjallað um tvo stóra málaflokka í ljósi nýrra viðhorfa í íslenzkum stjóm málum, annars vegar þjóðmála- verkefni næstu ára og áratuga og hins vegar verður fjallað um stjórnmálaflokkana, störf þeirra og starfshætti. Á næstu vikum mun sambands stjórnin og þeir aðilar innan samtaka ungra Sjálfstæðismanna sem hún kveður til vinnu að undirbúningi aukaþingsins og er gert ráð fyrir að erindrekar sam- bandsstjómarinnar heimsæki fé- lög ungra Sjálfstæðismanna út um land og kynni fyrir þeirn hið fyrirhugaða aukaþing og verkefni þess. Á morgun mun Mbl. birta við- tal við Birgi fsleif Gunnarsson, formann Sambands ungra Sjálf- stæðismanna þar sem hann skýr ir nánar frá tildrögum þess, að boðað er til aukaþings og verk- efnum þess, en þetta mun vera í fyrsta skipti sem ungir Sjálf- stæðismenn hvaðanæva af land- inu eru boðaðir til þings utan hinna reglulegu þinga sambands- ins. Þetta er ekki mynd af yfir- 1 | borði tunglsins, heldur loft- L mynd af þorpinu Kakhk í 1 norðurhluta fran — eða öllu I heldur því, sem eftir er af jþvi eftir jarðskjálftana miklu. j í þorpinu bjuggu um 7,000 ímanns. Upptök jarðskjálftans 7eru talin hafa verið rétt hjá ) Kakhk. Frdvísun synjuð í múli Roy Memphis, Tennessee 6. sept. AP. Preston Battle, dómari synjaði í dag beiðni verjenda James Earl Ray, ákærðs morðingja dr. Martin Luther Kirug’s um að morðákær- unni yrði vísað frá. Lögfræðing- ar Ray’s héldu því fram, að vísa ætti ákærunni frá á þeim igrund- velli að útilokað væri að óvil- höll réttarhöld gætu farið fram í máli Ray’s vegna hinna víð- tæku blaðaskrifa um það. ti , , , Handtökur í Israel Tel Aviv, 6. sept. NTB-AP. • í dag kom hvað eftir annað til vopnaviðskipta ísraelsmanna og Jórdana yfir ána Jórdan. Urðu þau hörðust í Beisan-daln um, suður af Galileu-vatni, og særðust þar fjórir ísraelskir her- menn. Ekki er vitað um meiðsl á Aröbum. • Þá segir í fréttum frá Tel Aviv, að fjórir forystumenn Ar- aba hafi verið reknir frá ísrael, sakaðir um að hafa staðið fyrir áróðursstarfsemi Araba í Jerú- salem og Tel Aviv. Einn þessara manna er Kamal Dajani, fyrrum utanríkisráðherra Jórdaníu. Enn fremur er haldið áfram hand- tökum manna, sem grunaðir eru um aðild að skemmdarstarfsemi Araba, en síðasta verk þeirra var að koma fyrir sprengju í járn- brautarstöðinni í Tel Aviv. Varð sprengingin á mesta annatíman- um og biðu þrír ísraelsmenn bana en 59 særðust, margir mikið. Fjórir Arabar voru handteknir í dag og hafa þá samtals verið teknir átján menn, sem taldir eru starfa með skemmdarverka- mönnum. I>eir hafa gert margar sprengjuárásir í Jerúsalem að undanförnu og orðið samtals níu Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.