Morgunblaðið - 07.09.1968, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.09.1968, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 196« 11 LISTSÝIMIIMGAR Hafsteinn Austmann Eftir væntanlegt niðurrif Lista mannaskálans við Kirkjustræti verða Unuhús við Veghúsastíg og Bogasalurinn helzta athvarf myndlistarmanna þar til nýi skál inn við Miklatún verður tekinn í notkun — auk nokkurra smærri sýningarsala, sem opnaðir hafa verið undanfarið eða eru í þann vegin að opna. Sl. föstudag opn- aði Hafsteinn Austmann sýningu á 36 málverkum í Unuhúsi, flest um nýjum, hið elsta fullgert 1966. Hafsteinn, sem er velþekkt ur í röðum atvinnumálara, hef- ur haldið sýningar nokkuð reglu lega frá því hann kom fyrst fram fyrir ca. 12 árum. Hann er ekki málari stökkbreytinga og óstýrilátra umsvifa heldur hægr ar markvissrar þróunar og henn ar sér greindlega gæta á hverri nýrri sýningu hans. Það er jafn an þekkilegur svipur yfir mynd um Hafsteins, þau hafa góð áhrif á áhorfendur við fyrsitu sýn, en hafa á stundum ekki gripið nægilega stertk til lang- frama, svo var einnig að sjá sem hann væri að afmarka sér of þröngan bás á tímabili, hefði þrengt sér út í horn í list sinni eins og það er skilgreint meðal listamanna, en í þá gryfju falla raunar flestir á einhverju tíma- bili 'listar sinnar. Síðasta sýn- ing Hafsteins, sem einnig var haldin á þessum gtað, bar vott um nokkrar breytingar, myndir hans voru þó enn, sumar hverj- ar, full grunnfærðar í lit, þ.e.a.s. litirnir sannfærðu ekki til lang- frama Þótt leyfanna af áður- nefndu gæti enn í einni og einni mynd á þessari sýningu hans þá er það varla umtalsvert því að sýningin í heild er að mínum dómi mun fremri hinum fyrri, sem ég hefi átt kost á að sjá. Þessi sýning er mjög gott dæmi um áhrifamátt litarins frá hendi málara, sem leitar að tjaningar- formi með aðstoð litasambanda frekar en að fóma litnum fyrir tjáninguna. Þær hughræringar sem litir þeir framkalla, er hann notar hverju sinni, verða hon- um aflgjafi til útrásar. Sterkir litir krefja í þessu tilviki öfl- ugri burðargrinda formanna. í nýjustu myndum Hafsteins eru litirnir nú dýpri og upprunalegri, hið þokukenda hefir vikið fyrir einfaldri og tærari útfærslu. Lit irnir eru oft færri en áður og þó verður útkoman ríkari og nefni ég sem dæmi myndirnar nr. 9, 15, 16, 17, 23 og 35. — Þær eru allar mettaðar í lit og sann- færandi byggingu. Nr 9 leitar þétt á, þrátt^ fyrir einfaldleika og látleysi. Áhrifamáttur litar- ins er mikill ef rétt er farið með hann og það eru ekki sterkustu litirnir, sem endilega skilja eftir varanlegustu áhrifin, heldur sér kennileg litasambönd, og litir upprunaleika og innlifunar. Haf- steinn grípur stundum til þess aS nota ýmiskonar línuspiil, sem burðargrind fyrir og yfir lita- formin og tekst það að mínum dómi vel í myndunum nr. 2, 7, og 17, en í öðrum tilvikum geta þau veikt velheppnaða og sterka litabyggingu, sem ég sá ekki bet ur en að stæði alveg fyrir sínu. Á þessari sýningu ber mun meira á myndum er ég álít að vinni á við nánari kynni en á fyrri sýn- ingum Hafsteins og ekki ólík- legt að hún boði enn róttækari þróun listar hans í náinni fram- tíð. Hafsteinn Austmann kemur sterkari málari frá þessari sýn- ingu og í sýningaflóði líðandi stundar fer þeim fækkandi, sem þjóna málverkinu sem slíku, en þessi sýning er þó ein þeirra og því ættu sem flestir er iáta sig myndlist várða, leggja leið sína í Unuhús þessa dagana. Sveinn Björnsson HLIðSKJÁLF nefnist nýr sýn ingarsalur sem opnaður var ný- lega á Laugavegi 31 á efstu hæð með sýningu á verkum eftir Svein. Björnsson úr Hafnarfirði. Húsnæðið er lítið en mjög vina legt og í anda hliðstæðra sýn- ingarsala erlendis, en þeir eru margir og njóta sumir þeirra mik ils á'lits. Innileiki salarins held- ur vel í við hinar hrjúfu og óstýrilátu æfintýramyndir Sveins sem njóta sín þarna mun betur en annarsstaðar þar, sem ég hefi séð þær. Mér virðast tvær and- stæður togast á í myndum Sveins — annarsvegar hin hrjúfa en yf irvegaða litameðferð, en hinsveg ar óstýrilát skapgerð listamanns ins, sem kemur fram í líttyfir- veguðum hugdettum, sem honum er gj-arnt að skreyta myndir sín ar með, en sem tengjast ekki öðrum eðlisþáttum málverksins og nefni ég, til áréttingar þeirri skoðun minni, rauða hálfmánan í mynd nr. 23, og einnig smáfiska eða fugla, etr hann teiknar inin í annars stórgert form, en sem virka utaná fletinum. Sveinn þarf að beizla frumkraft sinn betur og hann ætti að geta það með nægum vilja sé miðað við framför hans á undanförnum ár- um — og án 'þess að tapa nein- um af eðlisþáttum sínum. Við þurfum ekki annað en virða fyr ir okkur myndirnar nr.. 7 „Blómakarfa", nr. 4 Blá kona og gul sól og nr 12 Prestur og bók — til að sjá að Sveinn get- ur sameinað hið besta í list sinni. (Nöfnin fann ég upp til útskýringar þar sem nafnalisti var enginn) Einnig sýnir hann góð tilþrif í ýmsum örðum mynd um, en svo koma áðurnefnd fyr- irbæri í spilið og minnka veru lega áhrifamátt heildarinnar. Teikningu i myndum hans er einnig nokkuð ábótavant, en með dugnaði og framsækni ætti Sveinn einnig að geta bætt við sig í því efni. E.t.v. væri betra að flýta sér hægt En fróðlegt verður að fylgjast með Sveini Björnssyni á næstu árum og glímu hans við að þroska ævin- týraheim sinn— Bragi Ásgeirsson Leiðréttingar f myndlistarsyrpu mína 31, ág. hafa slæðst leiðar prentvill- ur, sem ég vil hér með leiðrétta. í inngangi var rætt um skóla, sem menn hefðu jafnvel litið inn í. — Hér átti að standa „Jafm- vel aðeins litið inn í“ í þætti mínum um sýningu Steingríms Sigurðssonar stóð: einkum voru hinar stærri myndir sannfær- andi“, í stað ósannfærandi". Þá vantaði línu í þátt um Jón Jóns- son og skyld lína sett inn í í staðinn — rétt er setningin þannig „Auðsæ er sú nautn og ánægja sem Jón hefir af því að fást við viðfangsefnin“. Þá stóð: nota húsgögn í stað „móta hús- gögn“ í þætti um sýningu arki- tekta. — Þetta eru velviljaðir 'lesendur beðnir að athuga. Verkomenn éskost strox Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 38999 í dag f. h. eða mánudag. AKRANES Til söliu er við Breiðargötu á Akranesi f iskverkunarhús, þar sem aðstaða er til söltunar, þurrkunar, reykingar og frystingar á fiski. Fiskþurrkunartækin, reykklefar og frystitæki, er allt nýlegt. Hagstætt verð, og mjög góðir greiðsluskilmálar ef samið er strax. Vörubifreið getur fylgt með í kaupunum. Upplýsingar gefur Hermann G. Jónsson hdl., Vestur- götu 113, Akranesi. Sími 1890. Skrifstofustúlka óskast á lögfræðiskrifstofu. Umsóknir sendist á afgreiðslu Morgunblaðsins merktar: „2324“. íbúð til sölu milliliðalnust Vil selja vandaða 5 herb. íbúð í Hlíðunum. íbúðin er laus nú þegar. Upplýsingar í síma 84375 laugardag og sunnudag frá kl. 2—6. Chevrolet árgerð '55 Höfum til sölu eina Chevrolet fólksbifreið smíðaár 1955 í góðu standi. Bifreiðin verður til sýnis á bifreiðaverk- stæði okkar, Sólvallagötu 79 næstu daga. Bifreiðastöð Steindórs s.f. Sími 11588. AUGLÝSING Athygli innflytjenda, er höfðu afhent tollskjö.1 til toll- meðferðar fyrir 3. september 1968, er vakin á því, að hinn 9. september 1968 er síðasti dagur, sem unnt er að afgreiða vörur án greiðslu innflutningsgjalds sam- kvæmt lögum nr. 68/1968. Fjármólaráðuneytið 5. sept. 1968. Höaberg-3|eímökrmgla VESTUR-ÍSLENZKT VIKUBLAÐ Gerist áskrifendur að þessu merka Vestur-fslenzka tímariti. — Áskriftagjald kr. 450 á ári. SÖLUSKRIFSTOFA ÞJÓÐSÖGU Laugavegi 31 — Sími 17779. BlÁÐBÍÍRÐARFOLK A í eftirtalin hverfi: LYNGHAGI NESVEGUR ÆGISSÍÐA Talið v/ð afgreiðsluna i sima 10100 ODYRIR NIDURSODNIR ÁVEXTIR 1/1 ds. ananas 35.00 og 39.75. — 1/1 ds. ferskjur 41.70. — 1/1 ds. bl. ávextir 55.70. 1/1 ds. perur 47.30. — % ds. jarðarber 32.55. -r Vz ds. ananas 22.75. — Vz ds. bl. ávextir 34.75. Vn ds. perur 29.75. — Vi ds. ferskjur 29.75. — Vi ds. aprikósur 24.95. Mikið úrval af ódýru kexi, sultum og marmeðalaði. Opið ollo doga til hl. 8 síðdegis — Einnig laugardago og sunnudaga. Verzlunin opin (ekki söluop) kl. 8.30—20 s.d. Söluturninn opinn frá kl. 20—23.30 Verzlunin Herjólfur Skipholti 70 — Sími 31275.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.