Morgunblaðið - 07.09.1968, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.09.1968, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1968 9 „Húsið í Hvamminum" Þórir Örn Antonsson Skrifar eftirfarandi bréf: „Það er full ástæða til að þakka út- varpinu fyrir hina nýju útvarpssögu, „Hús ið í Hvamminum", eftir Óskar Aðalstein. Sagan er ein af betri skáldsögum, sem við eigum eftir yngri höfunda okkar. Auk þess er hún vel fallin út útvarpsflutnings. Hjört lir Pálsson er góður útvarpsmaður, hefur blæbrigðaríka útvarpsrödd og les söguna af innlifun. Ég hef heyrt fjölmarga hafa orð á því að vel hafi tekizt til með val á útvarpssögu. Margir spyrja líka hvar sé hægt að fá bókina. Eftir því sem ég bezt veit, er hún löngu uppseld, en má vera að hún fáist í einstaka fornsölu ennþá. Þá er ekki annað eftir en að þakka höf- undinum sjálfum fyrir söguna. Og ég er víst ekki einn um það að hlakka til að fá 1 hönd nýja bók eftir Óskar Aðalstein, en sézt hefur hér í blaðinu að von sé á bók eftir hann í haust._ Þórir Örn Antonsson. ^ Hitlersæskan Hér er annað bréf um útvarpsdagSkrána, og kveður við annan tón: „Mér varð á að opna útvarpið, er Bjöm á Hljóðbergi flutti þáttinn um „Hitlers- æskuna" þ. 27. þ.m. (ágúst). Nú vil ég spyrja: Ef tími hljóðvarpsins ekki of dýrmætur til þess að honum sé eytt til flutnings á öðrum eins þvættingi og þar kom fram? HeÆur nökkur sála gaman af þessu, eða var það gert til þess að minna okkur á, að starfsaðferðir nazista og kommúnista em 'næsta líkar? Ef svo er væri tímanum ekki til einskis eytt. Annars finnst mér það vera nógu margt, sem mmnir okkur á það þessa dag- ana. Hlustandi." 0 Rabarbarasulta og þakklæti „Ein sem var að ferðast" skrifar eftir- farandi bréf: „Ég ætla endilega að senda þér uppskrift af rabarbarasultu. Kannski ertu gift eða giftur, nú ef ekki þá vill ef tU viU ein- hver á Morgunblaðinu reyna, en ég mæli alveg með henni. Verst að geta ekki gefið þér að smakka, og þá kannski tek ég það til athugunar við tækifæri. Og í leiðirtni langar mig að biðja þig að koma á framfæri þakklæti tU afgreiðslu- fóiks í Faco við Laugaveg og Herráhús- inu við Aðalstræti fyrir framúrSkarandi skemmtilega afgreiðslu sem ég og sonur minn urðum aðnjótandi. Svo var það í vor, að ég las i Landfara I Tímanum að einhver var að vonzkast útí landsímastúlkur. Þar er ég ekki á sama máli. Þó seint sé að biðja um þákk læti til símastúlkna, sem voru á kvöldvakt (kl. rúmlega 11) 27 nóvember síðastliðinn, þá er betra seiret en aldrei. Þá var ég og fleiri veðurteppt á Hálsi í Kjós (var á leið frá Reykjavík til Akraness). Okkur langaði til að láta vita af okkur, og það stóð ekki á afgreiðslu, bæði í Eyrarkoti, sem lokar kl. 7 að kvöldi og landssíma- stúlkunum, sem vildu aUt fyrir okkur gera. Og ég tala nú ekki um hjónin á Neðra-Hálsi, að taka þama 15 manns í kaffi og gistingu, já, já, eins og hefði verið búizt við okkur í roki og þreiíandi byL Bið svo að heilsa þér að sinnL Ein, sem var að ferðast." 0 Uppskriftin Hér kemur svo uppskriftin að rabarbara sultunni: „2 kg. rabarbari. 3 kg. sykur. 1 tsk. mjör (ekki gleyma því). 1 pk. sultuhleypir (Chenia er beztur). Matarlitur eftir smekk. Takið 600 gr. af sykrinum og rabarbar- ann'útí og látið sjóða í 13 mínútur. Kramið vel með þeytara. Þá er afgangurinn af sykrinum látinn útí, hleypinn, smjörið og matarliturinn. Látið sjóða I 2 mínútur. Lát ið í glös. Látið kólna vel áður en bundið er yfir. Betamon ef til viU. Líka má hakka gráfíkjum og setja saman við efvili." 350 gr. af gráfikjum og setja saman við ef vilL“ Jæja, húsmæður, nú getið þið reynt. Þetta virðist hin ljúffengasta siUta. Notuð húsgögn til sölu —• tækifærisverð: Vandað borðstofusett, stórt borð og 6 stólar, svefnherbergissett úr maghogni, 2 rúm, 2 náttborð og kommóða til sýnis að Skaftablíð 22, önnur bjalla að neðan. Símj 36042. BILALEIGAM - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. Sími 22-0-22 Rauðarárstig 31 Hverfisgötu 103. Simi eftir lokun 31160. BÍLALEIGAN AKBRAIJT SENDUM SIMI 82347 BILA LEIGA MAGMUSAR 4KienoLn21 s»mar21190 ► hirloki,n ■ 40381 LITLA BÍLALEIGAN Bergstaffastræti 11—13. Hagstætt leigugjald. Símí 14970 Eftir lokun 14970 eða «1748. Sigurður Jónsson. BIKARKEPPNIN KEFLAVIKURVOLLUR í dag kl. 4 fer fram leikur í Keflavík milli IRk - IBV Mótanefnd. ORIGINAL PEDDINGHAUS I ~ Klippur og lokkar verkfœri & járnvörur h.f. Skéifan 3B — Sími 84480. Miðstöðvarketill óskast 4ra—5 ferm. ketill með tilheyrandi tækjum óskast. Upplýsingar í síma 84034 laugardag og sunnudag. Auglýsing um lögtök Samkvæmt kröfu borgarstjórans í Reykjavík f.h. borg- arsjóðs og samkvæmt úrskurði borgarfógeta uppkveðn- um í dag verða lögtök látin fara fram fyrir vangoldn- um verzlunar- og iðnaðarlóðargjöldum ásamt dráttar- vöxtum og kostnaði við lögtaksgerð og uppboð, ef til kemur, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði gjöld þessi eigi að fullu greidd innan þess tíma. Reykjavík 21. ágúst 1968. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. ENSKUSKOLI j LEO MUNRO Baldursgötu 39 Sími 19456. KENNSLA FYRIR FULLORÐNA HEFST MÁNUDAGINN 23. SEPT. Talmálskennsla án bóka Aðeins 10 í flokki Innritun í síma 19456 ALLA DAGA MILLI KL. 6—8 Á KVÖLDIN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.