Morgunblaðið - 07.09.1968, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1968
Valdabaráttunni
í Kína lokið?
Stuðningsblöð Maos fagna allsherjar-
sigri menningarbYltingar öreiganna
og Mao Tze Tungs
Tokíó, 6. sept. AP.
# Pekingútvarpið skýrir
frá því í dag, að stuðnings
menn Mao Tze-tungs, Ieið-
toga kinverska kommún-
istaflokksins hafi nú tögl
og hagldir í öllum 29 sjálf-
stjómarhéruðum ríkisins.
Só þetta rétt hefur þar
með lokið með sigri Mao-
sinna valdabaráttu þeirra
og stuðningsmanna Liu
Schao chis, forseta, sem
staðið hefur yfir í mörg
ár.
# Ekki hefur verið birt um
þetta opinber fréttatilkynning
af hálfu Maosinna, en útvarp-
ið segir, að stuðningsblöð
þeirra hafi í dag birt sam-
hljóða ritstjórnargrein, þar
sem fagnað sé þessum úrslit-
um málanna.
# Af helztu blöðum Maosinna
tilgreinir Pekingútvarpið
„Dagblað AlþýðunnaP' og
„Dagblað Freisishersins" og
segir, að fyrirsögn ritstjórnar
greina þeirra hljóði svo:
„Lengi lifi allsherjarsigur
menningarbyltingar öreig-
anna“.
Menningarbyltingin hefur
staðið yfir í mörg ár, en um
tvö ár eru liðin frá því opin-
bert varð, að hún hafði snú-
izt í heiftarlega valdabaráttu.
Hófst þá opinberlega herferð
Mao Tze-tungs og hans manna
gegn Liu Schao-chi, forseta
og stuðningsmönnum hans.
Tilraunir til að bola þeim úr
embættum leiddu til átaka
um land allt og hafa kostað
þúsundir manna lifið. Ekkert
er vita’ð með vissu um afdrif
Liu Schao-chis, en talið, að
hann sé í stofufangelsi í Pek-
ing. Ekki hefur enn verið
skipaður annar maður 1 for-
setaembættið.
1 í mörgum héruðum lands-
t ins hafa orðið hörð átök, sem
kostað hafa bæði manntjón
og eigna og valdið geysilegu
öngþveiti í efnahagslífi og
öllu daglegu lífi fólksins.
Fram kemur í umræddri rit-
stjómangrein, að þau lands-
svæði, sem nú seinast hafa
verið lögð undir vald Mao-
sinna eru Sinkiang — Uigur
og Tibet, því að þar segir, að
valdataka stuðningsmanna
Maos á þessum svæðum og
stofnun byltingamefnda til
að fara þar með völd sé „fagn
aðarefni í stjómmálalífi hinna
sjö hundruð milljóna íbúa
Kína“. Þar segir og, að flett
hafi verið ofan af útsendux-
um Bandaríkjanna, Chiang
Kai cheks og sovézkra endur-
skoðunarsinna og gagnbylting
artilraunir þeirra og tilraufiir
til að endurvekja kapitalism-
ann í Kína hafi gersamlega
verið badldar nfður. Þessi tvö
landsvæði séu útverðir Kína
í norðvestri og suðvestri gegn
ágengni heimsvaldasinna og
endurskoðunarsinna. Loks
segir í ritstjómargreinunum,
að nú hafi allt Kína — að
Formósu undanskilinni —ver
ið málað rautt. S^gur menn-
ingarbyltingarinnar tákni al-
igeran ósigur „hins kínverska
Krúsjeffs“ og útsendara hans,
sem hafi reynt að skipta um
lit á Kina með því að sveigja
þjóðfélagsstefnuna frá leið
einræðis öreiganna til borg-
aralegrar endursko'ðunar-
stefnu.
Með hinum kínverska Krú-
sjeff mun átt við Liu Schao-
chi, forseta.
Nú velta stjómmálamenn
því fyrir sér, hvort Mao muni
kalla saman flokksþing eða
þjóðþingið til þess að binda
endahnútinn á fall Liu Schao-
chis og láta þar kjósa nýjan
forseta. Flokksþing hefur ekki
verið haldið í Kína frá því
árið 1958 og þjóðþingið ekki
kallað saman frá því árið
1965.
Sinfóníuhljómsveitin á æfingu í gær i Háskólabíói.
Simfóníuhljómsveitin í Eyjum
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
land hefur starfsár sitt með tón-
leikum í Vestmannaeyjum í dag
undir stjóm Martins Hungers,
tónlistarfrömuðar Eyjamanna í
dag.
Sinfóníúhljómsveitin fer flug-
leiðis til Eyja í dag og mun leika
í Samkomuhúsinu í Eyjum fcl. 5.
Á efnisskrá eru: Forleikur eft-
ir Mozart, Sinfónía í H-moll eft-
ir Schubert, en hún er stundum
kölluð „ófullgerða sinfónían“,
og einnig er á efnisskránni fiðlu
konsert eftir Ludvig van Beet-
hoven. I fiðlukonsertinum leikur
Björn Ólafsson konsertmeistari
einleik. Stjórnandi Sinfóníunnar
er Martin Hunger.
Gekk örnu sinnn í réttursulnum
Síðhærður „Maóisti“ vekur,, pólitíska
samvizku íólksins“
Martin Hunger
Berlín, 6. sept. — NTB —
SÍÐHÆRÐUR „Maóisti'* var
í dag fangelsaður í V-Berlín
eftir að hann hafði gengið
örna sinna á gólfinu fýrir
framan dómara, sem hann
stóð frammi fyrir vegna ann-
arra mála.
„Ég gerði þetta til þess að
vekja pólitíska samvizku
fólksins og ég er stoltur _af
því að það hefur tekizt. Ég
hefi æft mig á þessu lengi
með því að nota pilltur",
sagði hann í réttinum.
„Maóistinn", sem er 24 ára
og heitir Karl-Heinz Plawa,
kveðst vera stúdent enda þótt
ekki sé vitað til þess að hann
sé innritaður í neinn háskóía.
Hann var dæmdur í 10 món-
aða fangelsi fyrir að hafa not
að gólf réttarsalarins sem sal
erni.
Rétturinn, en hann skipuðu
dómari og tveir meðdómend
urí lýsti þeirri skoðun sinini
að Plawa hefði óvirt hann og
hagað sér sem svín.
Er ákærandinn hafði kraf-
izt eins árs fangelsis, kastaði
Plawa öðrum ilskó sínum í
hann, ag fékk þrjá daga til
viðbótar. — Fyrsta málið
gegn Plawa var að hann hefði
dreift miðum með klámi, en
urðu sem sagt fleiri áður en
lauk.
Helga Guðmundsdóttir
aftur á Grænlandsmið
PATREKSFJARÐARBÁTUR-
INN Helga Guðmundsdóttir er
nú á leið á miðin við Vestur-
Grænland. Skipið hefur stundað
veiðar á Grænlandsmiðum í sum
ar og aflað vel.
Báturinn kom fyrir sfkömmu
tii Patreksfjarðar með um 100
tonn af söituðum þorski, ein veiði
tímabilið var um 6 vikur. Sl.
mánudag hélt s'kipið aftur á veið
ar, en kom við í Keflavík, þar
sem salt var lestað. Á þriðjudag
Tor Myklebost
lætur uf störfum
TOR Myklebost, sendiherra Nor-
egs á íslandi ,hefur n>ú látið form
lega af störfum. Tor Myklebost
varð sendiherra Noregs hérlendis
I apríl 1965. Haustið 1967 fór
hann utan til þess að taka við
kennslustörfum í varnarmála-
skóla Noregs. Síðan hetfur Helge
Akre ambassador veitt sendiráð-
inu forstöðu.
hélt Helga aftiu- á miðin við Vest
ur-Grænland og er reiknað með
úthaldj í 2 mánuði.
Það hefur verið mjög mikil
veiði af og til á þessum miðum
í sumar. Fiskurimn hefur verið
stór, langmest þorskur, en bát-
urinn var með þorsíkanet. Skip-
stjóri á Helgu Guðmundsdóttur
er Snæbjöm Ámason. Ekki
munu fleiri islenzk skip vera á
Vestur-Grænlandsmiðum.
Fisknr skemmist
í Brúorfossi
SJÓPRÓF fóru fram í gærkvöldi
í borgardómi vegna þess að nokk
urt magn af fiski hafði orðið fyr-
ir skemmdum í lest Brúarfoss.
Var hér um að ræða 1200 kassa,
eða um 30-40 tonn. Stóðu sjó-
próf enn er Morgunblaðið hafði
síðast fregnir.
Falsaði seðillinn. — Ljósm. Mbl. Kr. Ben.)
Falsaður seðill
tekln úr umferð
RANN SÓKNARLÖGREGLAN í
Hafnarfirði handtók í fyrradag
mann fyrir að setja falsaðan þús
und krónuseðil í nmferð. Við yf
irheyrslu viðurkenndi maðurinn
að hafa vitað af því, að seðillinn
væri falsaður, en neitaði hins
vegar að hafa falsað hann sjálf-
ur. Kvaðst hann hafa fenglð seð
ilinn í Þórsmörk um síðustu
verzlunarmannahelgi.
Það var afgreiðslumaður í bíla
stöð í Hafnarfirði, sem veitti því
eftirtekt, að seðillirvn var falsað-
ur. Einn bílstjóranna hafði feng
ið seðilinn sem greiðslu, en ekki
tekið eftir neinu óvenjulegu við
hann.
Málið var þeigar kært til rann
sóknarlögreglunnar og hafði hún
fljótlega upp á manninum, sem
greiddi bílstjóranum með falsaða
seðlinum. Ekki gat sá munað
nákvæmlega með hverjum hætti
seðillinn komst í hans hendur í
Þórsmörkinni og er málið enn
í rannsókn.
Falsarinn hefur ljósprentað
báðar hliðar þúsund króna seð-
ils, límt þær saman, farið ofan
í nokkurn hluta seðilsins með
bláum penna og síðan látið seð-
ilinn liggja í vatni. Er seðill-
inn nokkru þykkari en ófalsaður
seðill og við lauslega athugun
má vel merkja litamismun, einik
um þar sem falsarinn hefur ekki
farið ofan í allan seðilinn með
pennanum.
Brúarsmíöi á Vestfj.
í HAUST verður endurbyggð
brúin á Mórillu við Kaldalón á
Vestfjörðum. Brúin skemmdist
sl. vetur í snjó- og vatnaþyngsl-
um, en stöplarnir stóðu eftir
óskemmdir. Brúin verður 50 m
löng.
Á Vestfjarðarveginum neðain
við Þinigmannaheiði, sem er ný
ötouleið, bafa tvær brýr verið
í byggimigu í sumar. önnur brúin,
sem er á Mjóafjarðará var tilbú-
in fyrir nokbru, en hún er 14
metra löng og lýkur smíði við
brýmar væntanlega í næsóu
viku. Báðar brýmar eru stein-
steyptair bitahrýr, en leiðin að
þeim er ékki fær ennþá.