Morgunblaðið - 20.09.1968, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
205. tbl. 55. árg. FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Rusk vill fund meö
NATO-ráðherrum
Umrœðuefnið: Ástandið vegna hernáms
Tékkóslóvakíu — Rússar ítreka
rétt til íhlutunar í V-Þýzkalandi
t Frá flóðunum í Englandi.
? Þannig var umhorfs í bænum J
1 Molesey skammt frá London, J
»þegar áin Mole flæddi yfir (
t bakka sína fyrir nokkrum dög |
l um.
Tunglfloug
Rússu snýr
til jurðui
Jodrell Bank, Englandi,
19. september — AP —
SOVÉZKA geimskipið, sem skot
ið var á sunnudaginn, er á leið
aftur til jarðar, að því er Sir
Bernard Lovell, forstöðumaður
rannsóknarstöðvarinnar í Jodrell
Bank, sagði í dag. Rússar neit-
uðu í gær staðhæfingum Lovells
um að geimflaugin hefði farið
fram hjá tunglinu, en hann sat
við sinn keip.
Washington og Moskvu,
19. september AP—NTB
Búizt er við að Dean Rusk, ut-
anríkisráðherra, haldi fund með
utanríkisráðherrum aðildarlanda
NATO í New York í lok sept-
ember eða októberbyrjun til
þess að ræða ástand það sem
skapazt hefur í Mið-Evrópu
vegna innrásar Rússa í Tékkó-
slóvakíu. Þessi fundur verður
haldinn í sambandi við setningu
Allsherjarþingsins.
Enn er ekki vitað hve marg-
ir utanríkisráðherrar NATO-
Jiri Hajek segir af sér
embætti utanríkisráðherra
— Þriðji tékkóslóvakíski ráðherrann sem segir af sér
samkvœmt kröfu Rússa
Prag, 19. sept. AP-NTB.
Utanríkisráðherra Tékkó-
slóvakíu, Jiri Hajek, sagði af
sér í dag, og Oldrich Cernik,
forsætisráðherra, var falið að
taka við störfum hans. Ekki
er ljóst, hvort Cernik á að
gegna embættinu til bráða-
birgða eða langframa.
Hajek var einn þriggja ráð-
Rússar undirbúa
heimsráðstefnu
— Ráðgjafaþing í Budapest
Mosikvu, 19. sept. AP-NTB.
ÁREIÐANLEGAR heimildir í
Moskvu hermdu í dag, að ráð-
gjafaþing kommúnistaflokka yrði
haldið í Búdapest 30. október, og
yrði þar rætt um áformin um
heimsráðstefnu kommúnista-
flokka, sem fyrirhugað hefur ver
ið að halda í Moskvu í nóvem-
ber. Þessi frétt hefur ekki feng-
izt opinberlega staðfest.
Vafi hefur leikið á því, hvort
af Moskvu-ráðstefnunni gæti orð
ið vegna vanþóknunar margra
kommúnistaflokka á íhlutun
Rússa og fylgirikja þeirra í
Tékkóslóvakíu. ftalski kommún-
istaflokkurinn hefur beitt sér ein
dregnast fyrir því, að ráðstefn-
unni verði frestað, og vafasamt
er ’hvort hann og rúmenski flokk
urinn sæki fundinn í Búdapest.
Samkvæmt áreiðanlegum heim
ildum var hin fyrirhugaða heims
ráðstefna eitt helzta málið á dag-
skrá fundar, sem valdamennirn-
ir í Kreml áttu í dag með búlg-
arska kommúnistaleiðtoganum
Todor Zhivkov. Upphaflega átti
heimsráðstefnan að móta nýja
stefnu í alþjóðamálum með hlið
sjón af deilunum við Kínverja,
en síðan innrásin var gerð í
Tékkóslóvakíu hafa margir ev-
róskir kommúnistaflokkar, eink-
um flokkarnir í Ítalíu, Frakk-
landi og Bretlandi, einnig bar-
izt ákaft gegn stefnu Rússa.
Jafnvel áður en innrásin var
gerð voru Kúba, Rúmenía og
Júgóslavía mótfallin því að heims
ráðstefnan yrði haldin og var
ástæðan tortryggni um, að Rúss-
ar mundu reyna að reka Kína úr
kommúndstahreyfingunni.
Samkvæmt áreiðanlegum heim
ildum er næstum talið víst, að
fyrirhuguð ráðstefna evrópskra
kommúnistaflokka, sem ítalski
og rúmenski kommúnistaflokkur
in-n hafa beitt sér fyrir, verði
ekki haldin.
I frétt frá Búdapest segir, að
ýmsir kommúnistaflokkar muni
senda þangað fámennar nefndir,
sem haldi fundi með sér með
vissu millibili. Sagt er að nokkr-
ar aðrar nefndir komi einnig til
Búdapest til að taka þátt í við-
ræðun-um, og er tekið fram að
þeir sem taki átt í þeim séu
lágt settir.
herra, sem leiðtogar Sovétríkj-
anna kröfðust að vikið yrði frá,
þegar þeir ræddu við tékkóslóv-
akíska leíðtoga í Moskvu fyrir
þremur vikum. Hinir ráðherr-
arnir voru Ota Sik, aðstoðarfor-
sætisráðherra, sem talið er að
skipaður hafi verið verzlunar-
málafulltrúi í tékkóslóvakíska
Síðustu iréttir
í KVÖLD hermdu áreiðanleg-
ar heimildir í Prag, að
Moskvu-heimsókn Dubceks
hefði verið frestað vegna þess,
að Rússar hefðu borið fram
nýjar kröfur. Stjórnmála-
menn í Prag eru svartsýnir,
og sagði einn þeirra að ástand
ið væri alvarlegra en það var
fyrir einum mánuði. Rússar
eiga að hafa sagt, að Dubcek
verði að bera fram jákvæðar
tillögur ef hann vilji koma til
Moskvu, og ekki hefur verið
ákveðið hvenær heimsóknin
fari fram. Rússar hafa meðal
annars krafizt þess að Dubcek
komi með lista yfir menn, sem
skuli víkja frá störfum, en á
það hefur hann hvað eftir
annað neitað að fallast. Heim-
ildirnar herma, að ef Dubeek
verði neyddur til að segja af
sér muni allir samstarfsmenn
hans, þeirra á meðal Svoboda
forseti, neita að gegna störf-
um sínum áfram.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum hefur sendimaður
sovétstjórnarinnar, Vasily
Kuznetsov borið fram afsak-
anir stjómar sinnar vegna
þeirra ásakana að Jiri Hajek
hefði unnið með nazistum í
heimsstyrjöldinni. Kuznetsov
mun hafa sagt, að ásakanirnar
hafi byggzt á röngum upplýs-
ingum. Gestapo handtók Haj-
ek 1940 og var hann dæmdur
í 12 ára fengelsi.
sendiráðinu í Belgrad, og Josef
Pavel, innanríkisráðherra. sem
er setztur í helgan stein. Talið er
að Hajek sæki um prófessors-
stöðu við Karlíjiáskóla í Prag.
1 ræðu sem Hajek hélt á fundi
Öryggisrá’ðsins eftir innrásina í
Tékkóslóvakíu krafðist hann
þess, að hernámslið Sovétríkj-
anna og fylgiríkja þeirra yrði
flutt úr landi. Seinna fór hann
þess á leit, að ráðið hætti um-
ræðum sínum um Tékkóslóvák-
íu. Hajek hefur hvað eftir an-nað
sætt harðri gagnrýni í Moskvu
vegna framgöngu sipnar í Ör-
yggisráðinu, og sakaði stjórnar-
málgagnið Izvestia hann um að
hafa starfáð með nazistum á
heimsstyrjaldarárunum og geng-
ið í lið með „afturhalds- og gagn
byltingaröflum“.
MOSKVUHEIMSÓKN
FRESTAÐ
Áreiðanlegar heimildir í Prag
Framhald á bls. 31
ríkjanna verða viðstaddir setn-
ingu Allsherjarþingsins. Vestur-
Þýzkaland, sem brýnustu hags-
muna á að gæta, á ekki aðild
að Sameinuðu þjóðunum og ekki
er vitað hvort Willy Brandt, ut-
anríkisráðherra haldi til New
York til að sækja slíkan fund,
ef af honum verður.
Vestur-þýzka stjórnin hefur
hvað eftir annað hvatt til þess að
NATO-ríkin beri saman ráð sín
vegna innrásarinnar í Tékkósló-
vakíu og athugi hvað gera skuli
vegna þeirrar röskunar sem orð-
ið hefur á hernaðarjafnvæginu í
Evrópu.
Sömu heimildir vöruðu við nýj
um orðrómi um nýja liðsflutn-
inga Rússa á landamærum sín-
um. Embættismenn segja, að
Bandaríkjastjórn hafi borizt
þessi orðrómur til eyrna, en al-
mennt virðist vera álitið að þess
ír meintu liðsflutningar feli ekki
í sér yfirvofandi hættu á inn-
rás í Rúmeníu.
„íhlutunarréttur" ítrekaður.
í Moskvu lagði stjórnarmál-
gagnið Izvestia enn á það á-
Framhalð á bls. 12
Sænskir
fjórburar
I FJÓRBURAR fæddust í Kar-
olinska sjúkrahúsinu í Stokk-
' hólmi í gær, og er vonazt til
' að litlu stúlkurnar f jórar kom
ist allar á legg, þótt þær hafi
I fæðst sex vikum fyrir tímann.
Móðirin, Margareta Samuels-
1 son, er 25 ára. Henni líður
I vel að sögn lækna, en er
i þreytt.
Minnsta stúlkubarnið var
1 aðeins 35 sentimetra langt og
I vó 990 grömm. Sú stærsta var
i 39 sentimetrar og 1.260 gr.
Líðan Salazars
„ekki vonlaus"
Lissabon, 19. sept. AP-NTB.
LÍÐAN Antonio de Oliveira Sala-
zars, forsætisráðherra, var enn
alvarleg í dag, en læknar hans
telja ekki útilokað að hann fái
bata. Lítii breyting hefur orðið
á líðan hans síðan í gær, en hann
á auðveldara með andardrátt. —
Hann á auðveldara með að
hreyfa hendur og fætur, en sótt-
hiti hans hefur aukizt.
Þótt ekki sé talið útilokað að
Salazar lifi af sjúkdóm sinn er
ljóst að hann getur ekki tekið
við fyrri störfum. Americo Rod-
rigues Tomas forseti hélt í dag
áfram viðræðum sínum við ráða
menn um val eftirmanns, og sá
sem enn er talinn koma helzt til
greina er dr. Marcelo Caetano,
fyrrverandi ráðherra og prófess-
or í stjórnarfarsrétti.
Herinn og lögreglan eru enn
við öllu búin, og vopnaðir lög-
reglumenn eru á verði við sjúkra
húsið, þar sem Salazar liggur.
Portúgalskir útlagar hafa útvarp
að áskorunum til þjóðarinnar að
steypa stjórninni af stóli, en enn
hefur ekki orðið vart við ólgu í
landinu.
Brezkt blað hermir, að portú-
gölsk yfirvöld hafi farið þess á
leit við bandarísku stjórnina, að
hún veiti aðstoð ef vandræða-
ástand skapast, en áreiðanlegar
heimildir í bandaríska utanríkis-
ráðuneytinu herma að enginn fót
ur sé fyrir þessari frétt. Einnig
er vísað á bug frétt sama blaðs
þess efnis, að bandarískar her-
flugvélar hafi á þriðjudag komið
til Ota-flugvallar í Portúgal með
100—200 borgaralega klædda
Bandarík j amenn.
*