Morgunblaðið - 20.09.1968, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1908
■%
BÍLALEIGAN
AKBRAIJT
SENDUM
SÍMI 82347
BILALEIGAN
- VAKUR -
Snndlan;ave(t 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Sími 22-0-22
Rauðarárstig 31
SÍM'1-44-44
Hverfistötu 103.
Simi eftir Iokun 3116«.
MAGIMÚSAR
skiphoui21 s*mar21190
.Hirlokun ' 40JS1
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaffastraeti 11—13.
Hagstætt leigutjatd.
Sffni 14970
Eftir lokun 14970 eSa 81748.
Sigurður Jónsson.
40LDA
Snorrabr.
22 simi 2 3118
TERYLENE
buxnapils
Hringskorin
TERYLENE
pils
VESTI
£ Vepjur hafa verpt hér
áður
Jakob Björnsson skrifar:
f Morgunblaðinu 7. ágúst síðast
liðinn er grein með yfirskriftinni
„Vepjan — nýr varpfugl á fs-
landi“, — tekin upp úr Náttúru-
fræðingnum.
Bjami Sæmundsson segir í bók
sinni um íslenzka fugla, semkom
út árið 1935, að vepjan sé
flsekingsfugl hér á landi og muni
drepast hér af harðrétti, og ekki
sé vitað, að hún hafi orpið hér á
landi.
Eitthvert árið á milli 1912 og
1919, en ég átti þá heima í Austur
haga i Aðaldal í Suður-Þingeyjar
sýslu, kom ég út um morgun,
mun það hafa verið seint i apríl
eða snemma í maimánuði. Veður
var frekar leiðinlegt, gekk á með
éljum, sá ég þá tvo fugla, sem
sátu á kúaheyinu, en slika fugla
hafði ég ekki séð áður og þekkti
þá ekki. Ég hefi alltaf haft mik-
inn áhuga á fuglum og fuglalífi,
átti enda heima í mesta fuglaríki
landsins. Fór ég að leita í bókum
að fugli þessum og fann mynd
af honum, ég held í Náttúrufræði
Bjarna Sæmundssonar, og sá, að
þetta voru vepjur.
Þær voru svo að flækjast þama
um vorið og verptu svo í svoköll-
uðum Króki, og fundu drengir
frá Haga (næsta bæ) hreiðrið.
Á þessu sést, að hún hefur orp-
ið hér áður, og getur verið oftar,
þótt sagnir séu ekki um það. Ég
vildi láta þetta koma fram.
Jakob Bjömsson".
0 Fáum við ekki útlend
dagblöð lengur?
„Menntaskólanemandi" skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Allt er nú eins. Fáum við nú
ekki að kaupa erlend dagblöð
lengur? Bóksalar kenna um
stirfni tollyfirvalda, og má það
vel vera rétt. Auðvitað er fárán-
legt að fara að tolla frekar
erlend blöð og bækur. Er það
ekki brot á UNESCO-sáttmálan-
um? En það má líka skamma
bókabúðir og Innkaupasamband
bóksala fyrir lélega þjónustu
Hvað á það að þýða að vera að
koma með dönsk sunnudagsblöð
fram í búðirnar upp úr miðri
viku, þegar flogið er tvisvar á
dag frá Kaupmannahöfn? Og er-
lendar bækur, sem maður pant-
ar, koma ekki fyrr en eftir dúk
og disk, stundum aldrei. Sama er,
þó að maður panti heimsfrægar
bækur, sem öll heimspressan er
að tala um, þær koma seint eða
Knnritun allan daginn
Síðasti innritunardagur
MALASKOLI
HALLDORS
S
Simi 3-7908
Erlendur sendikennari
viö Háskóla íslands óskar að taka á leigu 2ja—4ra
herb. íbúð með eða án húsgagna.
Tilboð merkt: „Sendikennari — 2268 sendist Mbl. fyrir
25. október.
BÓKHALD
Ungur maður með Samvinnuskólapróf, góða starfs-
reynslu og enskukunnáttu óskar eftir starfi nú þegar.
Tilboð vinsamlegast leggist inn til afgr. Mbl. fyrir
nk. þriðjudagskvöld merkt: „6812“.
aldrei, og það einkennilega skil-
yrði er sett, að pantandi til-
greini útgefanda! Sé það ekki
tekið fram, virðast bóksalar
gugna á fyrirtækinu og segja svo
eftir fjóra, fimm mánuði, að þeir
hafi ekki getað haft upp á skrudd
unni!
Ég held, að öll þessi mál þurfi
að taka til gagngerrar endurskoð
unar, eða sennilega vantar bara
ungan og duglegan mann, sem
nennir að standa í þessu. Hann
yrði orðinn milli um fertugt, það
skal ég garantera.
Menntaskólanemandi".
• Öryggi gangandi
vegfarenda
„Akandi borgari" sendir við-
bótarhugleiðingar við fyrra bréf
sitt:
„Nú, þegar daginn tekur óðum
að stytta og skólar almennt að
hefjast, er vert að benda nem-
endum á að notfæra sér merkt-
ar gangbrautir — og gangbraut-
arréttinn.
Á þetta einkum við í Hlíða- og
Hagaskóla- (Melaskóla-) hverf-
um, en ætti auðvitað að vera al-
gild regla.
Það, að nemendur séu næsta
seinir fyrir að koma sér rétt-
stundis í skóiann, er alþekkt í
áraraðir.
Freistast nemendur þá oft til
að „skjótast" (yfir götur) stytztu
leiðina. Á Miklubrautinni er þetta
t.d. mjög algengt, svo og á
Reykjanesbraut (Hafnarfjarðar
vegi), þegar komið er úr strætis-
vagni, og á Meiunum (í Högun-
um) má oft sjá eitthvað álíka,
enda eru á hvoru nefndra bæjar-
svæða (hverfa) 3 stórir skólar.
Þá hefði mátt halda áfram á
þeirri braut, að litlum kastljós-
um yrði komið fyrir, þannig að
þau lýstu upp brautina, ogbresti
pera, verður vitanlega að hafa
hug á að skipta um!
Margt í þessa átt mætti hug-
leiða til meira öryggis og betri
„umferðarmenningar".
Akandi borgari“.
0 Reynt í þriðja sinn
í fyrradag kvartaði „Þakklát-
ur útvarpshiustandi" undan því,
að landvættirnar hefðu verið karl
kenndar í Ríkisútvarpinu. Sagði
hann í bréfi sínu, að segja ætti
„landvættirnar".
Ekki tókst nú betur til en svo
við prentun bréfsins, að orð
þetta var prentað „landsvættirn-
ir“, þ.e. bæði karlkenndar, (en
bréfið fjallaði einmitt um það, að
slíkt ætti ekki að gera), og ein-
hverju aðskota-essi bætt inn í orð
ið upp á mislukkað punt.
Þetta var reynt að leiðrétta 1
þessum dálkum í gær, en tókst
auðvitað ekki. Hér stóð, að í stað
„landsvættirnir" hefði átt að
standa „landvættirnir". Hvort
tveggja er vitanlega rangt. Því
skal það enn einu sinni endur-
tekið í veikri von um rétta birt-
ingu, að orðið landvættur er
kvenkyns, og að þarna átti að
standa „landvættirnar". Þykir
mér það ekki með öllu andskota
laust, ef þetta kemur ekki nægi-
iega skýrt fram núna, en þríreynt
er þrautreynt.
BUÐBURÐARFOLK
OSKAST
r eftirtalin hverfi:
LAUGARÁSVEGUR
ð v/ð afgreiðsluna i sima 10100
fNffyMit&Iflftifr
••«••••••••••••••••«
UTAVER
Vinyl veggfóðrið
komið.
Mikið úrval
Styrktarfélug lomaðro
og fatlaðra tilkynnir:
Æfingastöðin að Sjafnargötu 14, lokar þriðjudaginn
1. október vegna flutnings að Háaleitisbraut 13, í hina
nýju æfingarstöð félagsins.
Starfsemin hefst að nýju í byrjun nóvember og verður
auglýst nánar síðar.