Morgunblaðið - 20.09.1968, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1968
5
|§ ^ *
Basilica heilags Jóhannesar á Laterano.
Hugrún skrifar:
Svipmyndir frá Rðm
Róm 4. sept.
Það er skemmtileg tilviljun
að hitta landa sinn óvörum í
milljóna borg. Þegar ég kom
niður til morgunverðar á
hótelinu Ivanhoe í dag, var
þar staddur í borðstofunni
Björn Sigurbjörnsson Þor-
kellssonar fyrverandi kaup-
manns í Vísi, doktor í búvís-
indum. Björn býr í Vín þar
sem hann vinnur mestan
hluta ársins við kjarnorku-
stofnun Sameinuðu þjóðanna,
að undanteknum nokkrum
vikum, sem hann verður að
dveljast í Róm, vegna starfa
sinna við alþjóða matvæla og
landbúnaðarstofnunina, sem
hefir aðsetur sitt þar í borg.
Það má með sanni segja að
doktorinn er ekki iðjulaus,
enda á hann til atorkufólks
að teljast. Nú var hann ný-
kominn úr sumarfríi, sem
hann notaði til þess að heim-
sækja föðurland sitt og ætt-
fólk. Síðan brá hann sér í
ferð kring um hnöttinn. Hann
bað mig að skila kærum
kveðjum til foreldra sinna og
annarra vandamanna, vona ég
að þeir lesi þessar línur og
meðtaki kveðjuna.
í fyrri grein minni minntist
ég lítillega á Vatíkanið hér í
Róm. Að koma þar innfyrir
dyr er því líkast að koma inn
í nýja veröld. Þar er stærsta
listasafn Evrópu. Og getur
þar að líta marga forvitni-
lega og furðulega hluti, fyrir
utan allt veggskrautið, saum-
uð teppi frá gólfi til lofts í
fleiri herbergjum. Þó eru loft
in ekki síður eftirtektarverð.
Ekki vildi ég þurfa að
reikna saman þó upphæð sem
liggur þar í fjármunum. Af
mínu litla hyggjuviti tel ég
öruggt að enginn þyrfti að
svelta í heiminum, ef nokkuð
af þessu yrði breytt í gjald-
miðil fyrir fæðu. Þar þarf
víst enginn að vænta þess,
enda varla von. Svo dýrmætt
er safnið að flestra dómi.
Óásjálegir hlutir geta líka
haft sitt aðdráttarafl, ekki
sízt ef þeir eru nógu gamlir.
Þarna fékk ég að sjá elztu
prentvél Rómaborgar, og
minnti hún mig við fyrstu
sín, á gamla taðkvörn sem ég
ótti í brösum við á æskuárum
mínum. Ekki veit ég hvernig
gripur þessi hefir getað fram-
leitt letur, en nota flest í
nauðum skal. Allt bókasafn
Vatíkansins er geymt þarna í
lokuðum skápum. Þar er vafa
laust marga perluna að finna,
sem hvergi er til annarstaðar,
enda varðveittar vel, svo
enginn óviðkomandi fær að sjá
þær, hvað þá að hafa hönd á
þeim. Þó voru tvær bækur í
sjónmáli, undir gleri. Mér var
sagt að þær væru stærsta og
minnsta bókin, sem til væru.
Og sú minni hefði að geyma
spurningar Adams til Evu, en
hin stóra,svör Evu við spurn-
ingum hans. Skyldi einhver
Vörugeymsla
v/Shellveg 244-59.
Harðtex
WISAPAN
af kynsystnum Evu þiggja
sneiðina? Við skulum bara slá
pví föstu að .viskubrunnur
hennar hafi verið svona djúp
ur. Sannleikurinn er sá að
stóra bókin er helgibók gyð-
inga. Einn dagpartur nægir
ekki til þess að fullnægja for-
vitninni í þessum heimi lista
og dýrgripa.
Næst er staðnæmst á torgi
framan við fornfræga bygg-
ingu (Kapitol). Þar -trónar
Markus Árelius á rennilegum
hesti. Er stytta sú talin elzt í
heimi úr bronsi og gulli. Nú
er hún græn á lit af elli. Sagt
er að hún hafi varðveitzt svo
vel, vegna þess að lengi vel
var haldið að hún væri af
Konstantín keisara, og þess
hafa kynslóðirnar notið öld
fram af öld. Munnmæli herma
að ef styttan verði öll gyllt,
megi búast við heimsendi.
Kirkjubyggingin Bantheon
er næsti áfangastaður. Upp-
haflega var hún ekki byggð
til þess að þjóna hlutverki
kristinna kirkna, heldur heið
ið blóthof reist af Agrippa
konungi, en hann var sem
kunnugt er heiðinn. Hann er
sá hinn sami er sagði við Pál
Postula. „Með litlu hyggur
þú að þú munir gjöra mig
kristin". Seinna skemdist
byggingin af eldi, en 200 ár-
um eftir Krist endurreisti
Hadrían konungur hana, og
stendur sú kirkja enn í dag.
Efst í hvelfingunni er vítt
op, þess vegna er alltaf bjart
og loftgott þar inni. í einum
Franihald á bls. 18
frá Oy Wilh.
Schauman A^B
Vér eigum jafnan fyrir-
Mggjandi hniar vel þekktu
finnsku spónaplötur í öll-
um stærðum og þykktum.
Caboon-plötur
Krossviður
alls konar.
OKALBOARD
(spónlagt).
VIALABOARD
Útvegum einnig allar ofangreindar plötur með stutt-
um fyrirvara.
Einkaumboðið
Spónaplötur
Wolszy -sokkabuxur
og nælon-sokkar
viðurkennd gæðavara framleidd úr bezta
nælongarni „TENDRELLE“ nælon.
Fara vel á fæti.
Falleg áferð — Tízkulitir.
WOLSEY - sokkabuxur framleiddar
í 20 og 30 denier.
WOLSEY-sokkar í 15—20 og 30 denier.
WOLSEY hefir áratuga reynslu
í sokka-framleiðslu.
WOLSEY eru seldir í Reykjavík:
Parísarbúðin, Austurstræti 8. London dömu-
deild, Austurstræti. Verzl. Tíbrá, Laugavegi 19.
llolts Apóteki, Langholtsvegi 84.
í HAFNARFIRÐI:
Geir Jóelssyni skóverzlun og Hafnar-
fjarðar Apóteki.
ALLT MEÐ
EIMSKIP
JÓLA- OG NÝÁRSFERÐ
Af.S. GULLFOSS
1968—69.
gj Viffkomuhafnir: Amster-
dam, Hamborg, Kaup-
mannahöfn og Thors-
havn.
Frá Reykjavik 23. des-
ember 1966. Komið aftur
8. janúar 1969.
Á næstunni ferma skip voi
til íslands, sem hór segir
ANTWERPEN
Selfoss 2. október *
Skógafoss 10. okt.
Reykjafoss 23. október.
ROTTERDAM
Skógafoss 27. sept.
Reykjafoss 3. okt. * ®
Skógafoss 12. okt.
Reykjafoss 25. október.
HAMBORG
Skógafos's 25. sept.
Selfoss 30. sept.
Reykjafoss 7. Okt. *
Skógafoss 15. okt.
Vessel 22. október.
LONDON
Mánafoss 20. sept.
Askja 1. október *
Mánafoss 14. okt.
Askja 24. október.
HULL
. Askja 4. október *
Mánafoss 11. okt.
Askja 21. október.
LEITH
Gullfoss 23. sept.
Askja 7, okt.
Mánafoss 17. október.
Askja 26. október.
NORFOLK
Brúarfoss 20. sept.
Fjallfoss 12. okt.
Brúarfoss 2. nóv.
NEW YORK
Lagarfoss 24. september.
Brúarfoss 26. sept.
Fjallfoss 16. okt.
Brúarfoss 6. nóv.
GAUTABORG
Fjallfoss 20. september *
Tungufoss 9. október *
Bakkafoss 21. október.
KAUPMANNAHÖFN
Gullfoss 21. sept.
Bakkafoss 26. sept. *
Gullfoss 5. okt.
Tungufoss 14. október *
Gullfoss 19- október.
Bakkafoss 23. október.
KRISTIANSAND
Fjallfoss 21. sept. *
Gullfoss 6. okt.
Bakkafoss 25. október.
GDYNIA
Tungufoss 25. sept.
Bakkafoss 19. október.
VENTSPILS
Tungufoss 23. sept.
Dettifoss 16. október.
KOTKA
Tungufoss 21. sept. *
Dettifoss um 15. október.
* Skipið losar í Reykja
vík, fsafirði, Akureyri
og Húsavík.
Skip, sem ekki eru merkl
með stjörnu, losa aðeins í
Rvík.
ALLT MEÐ
EIMSKIP