Morgunblaðið - 20.09.1968, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1966
Af sjónarhóli smásöluverzlunar
Eftir Sigurð Magnússon, framkv.stj. Kaupmannasomtakanna
Ráðstefna matvöru-
og kjötkaupmanna
Fáni samtakanna blakti yfir Bifröst.
Dagana 25. 26. og 27. ágúst
sl. efndu Kaupmannasamtök
Islands í samvinnu við Stjóm-
unarfélag íslands til ráðstefnu
fyrir matvöru- og kjötkaup-
menn að Hótel Bifröst, Borgar-
firði, og sóttu hana 40 matvöru-
kaupmenn víðs vegar að af land
inu.
Megin verkefni ráðstefnunnar
var að brjóta til mergjar ýmis
vandamál er matvörudreifingin í
landinu á við að fást. Jafnframt
gefst mönnum úr sömu starfs-
grein, á ráðstefnfu eins og þeirri
sem hér um ræðir, ákjósanlegt
tækifæri til að skiptast á skoð-
unum og reynslu í starfi sinu,
en ráðstefnuhaldið fór að veru-
legu leyti fram með þeim hætti,
að þátttakendur komust ekki hjá
því að skýra sjónarmið sín og
viðhorf.
Pétur Sigurðsson form. Kaup
mannasamtakanna setti ráðstefnf
una og gat þess í þæðu sinni, að
þetta væri fyrsta ráðstefna sinn
ar tegundar, er samtökin gengj-
ust fyrir. Lýsti hann jafnframt
ánægju sinni með, að mættir
voru til ráðstefnunnar kaup-
menn svo víða að af landinu.
Formaður samtakanna kvað
það kunnugt ö'llum, að máléfni
smásöluverzlunarinnar ættu á
mörgum sviðum mjög erfitt upp
dráttar. Pólitízkar aðstæður og
ýmiskonar samningamakk gerðu
það oft að verkum, að í sjálfu
sér einfaldir og eðlilegir hlutir
væru látnir vikja úr vegi og
næðu ekki fram að ganga. Við
það bættist einnig að um
þessar mundir steðjuðu miklir erf
iðleikar að smásöluverzluninni
eins og öðrum atvinnugreinum.
>eim mun nauðsynlegra væri, að
menn fengju tækifæri til að
bera saman bækur sínar og leita
þeirra úrræða, sem gætu stuðl-
að að því að ná betri árangri
í starfsemi fyrirtækjanna, Og
enda þótt rekstur smásöluverzl
ana væri fyrst og fremst einstakl
ingsbundinn, væru verkefnin
mörg sem æskilegt væri að leysa
með samstarfi og samvinnu.
Nokkrir aðilar utan stéttarinn
ar héldu erindi á ráðstefnunni.
Björgvin Guðmundsson, við
skiptafræðingur flutti erindi um
lokunartíma sö'lubúða. Rakti
hann þróun þeirra mála hér í
Reykjavík undanfarin ár fram
komnar kröfur um lengingu á
afgreiðslutíma, viðbrögð Bo'rgar
stjórnar Reykjavík svo og af-
stöðu kaupmanna og verzlunar-
fólks. Einnig greindi hann frá
hver væri þróun þessara mála á
Norðurlöndum og annars staðar
þar sem hann þekkti til.
Niðurstaða í erindi Björgvins
Guðmundssonar var sú, að ræðu
maður taldi það ekki vafamál
að þörf væri aukinnar kvöld-
sölu. Spurningin væri
fyrst og fremst um það, hvern-
sú þjónusta yrði bezt skipu-
lögð.
Jafnframt taldi hann það vera
augljóst má'l, að ekki væri hægt
að ætlast til að verzlanir létu í
té kvöldþjónustu, öðru vísi en
að fá greitt .sérstaklega fyrir
hana, og því væri sjálfsagt að
heimila hærri álagningu vegna
þeinrar starfsemi og þjónustu
sem látin væri í té á kvöldin og
um helgar. — Hugsanlegt væri
þó e.t.v. að verzlanir yrðu lok-
aðar ákveðinn tíma dagsins í því
skyni að vega upp á móti kostn
aðarauka vegna kvöldsölustarf-
seminnar.
Ráðstefnufulltrúar ræddu
þessi mál mjög rækilega, enda
er hér um að ræða mikið og
vaxandi vandamál. Var það al-
mennt álit þeirra kaupamnna, er
\ sóttu ráðstefnuna,, að núverandi
' f rirkomulag á kvöldsölumálun
væri með öllu óviðunandi. Ring
ulreiðin sem ríkti í þessum efn-
i um, bæði af hálfu kaupmanna
J siá’fra, borgaryfirvalda og lög-
' regluyfirvalda, væri hin háska-
legasta og mundi leiða til sífellt
óhagstæðari verzlunarreksturs
sem að lokum leiddi til hærra
vöruverðs. — það kom greini-
'ega fram hjá ráðstefnufulltrú-
um, að enda þótt þörfin til að
verzla utan hins hefðbundna
V°rziunartíma, þ.e. kl. 9-6. væri
e.t.v. meiri en áður vegna
brevttra aðstæðna, svo sem
vegna aukinnar þátttöku giftra
kv"nna í atvinnúlífinu, mundi
hægt að næta þeirri þörf á ann
an og heilbrigðari hátt en nú
er gert. — Komu fram ýmsar
ábendingar þar um, og verða
þær rædd=r nánar við hlutað-
eigandi aðila.
Ráðstefnan taldi nauðsynlegt
að Kaunmannasamtökin beittu
sér fyrir setningu samræmdrar
löggjafar um lokunartíma sölu-
búða er gilti fvrir landið allt.
Gísli Einarsson framkvæmda-
stjóri hjá Eggert Kristjánsson
og Co flutti erindi um samstarf
kaupmanna og heildverzdana.
f erindinu gerði hann einkum
að umtalsefni innflutning og
dreifingu á matvælum og sýndi
með tölum fram á, að þessum
þætti viðskiptalífsins væri að
ýmsu leiti áfátt. Var það skoð-
un ræðumanns að með betur
skipulögðu samstarfi og nánari
samvinnu þeirra sem fást við inn
flutning og dreifingu matvæla,
mundi hægt að né betri og hag-
kvæmari árangri í rekstri fyrir
tækjanna. Voru ráðstefnufulltrú
ar á einu máli um að athuga
nánar framkomnar ábendingar í
þessum efnum ög stjórn Kaup-
mannasamtakanna falið að hafa
forustu um að koma á fót við-
ræðum þar um milíi innflytjenda
og smásöluverzlana.
Haukur Eggertsson, fram-
kvæmdastjóri í Plastprent h. f.
flutti erindi um samstarf kaup-
manna og Iðnrekenda. Einnig
ræddi hann sérstaklega um fram
leiðslu og gildi umbúða. Sýndi
hann fram á, hversu umbúðir
væru orðnar ríkari þáttur í sölu
hverskonar varnings en áður
var. Komi þar tvennt til. —
Smekklegar og haganlegar um-
búðir gætu ráðið mjög miklu um
vöruval. Þá væri einnig Ijóst,
að réttar umbúðir ættu einna
mestan þátt í að varðveita vör-
una frá framleiðslustigi og þar
til hún væri komin á borð neyt-
andans. —- Af þessu mætii ljóst
vera, að á miklu gæti oltið fyrir
sérhverja vezlun, að hugsað væri
vel fyrir umbúðum og notkun
þeirra — Ræðumaður taldi, að
með stöðluðum umbúðum og
magninnkaupum þar sem reynit
yrði að beina pöntunum margra
verzlana á sama framleiðslutíma,
mundi hægt að framleiða um-
búðir á lægra verði.
f framhaldi af erindi Hauks
Eggertssonar flutti framkvæmda
stjóri Iðnkynningarinnar Mats
Wipe-Lund, erindi um Iðn-
kynninguna 1968, tilgang henn-
air og markmið. Ráðstenfufull-
trúar gagnrýndu ýmislegt í fram
kvæmd Iðnkynningarinnar
og var eftirfarandi ályktun ein
róma samþykkt:
„f tilefni erinda og framkom-
inna ummæla í umræðum um
Iðnkynninguna 1968, vilja ráð-
stefnufulltrúar taka fram, að
þeir telja frammistöðu iðnaðar-
fyrirtækja i að notfæra sér aug-
lýsinga- og kynningaraðstöðu í
verzlunum mjög áfátt.
Ráðstefnufúlltrúum er ekki
kunnugt um, að frá því Iðnkynn
ingin hófst, hafi nokkurt fyrir-
tæki leitað til þeirra með óskir
eða áform um að notfæira sér
auglýsingaaðstöðu t.d. í Verzl-
unargluggum.
Ráðstefnufullitrúar lýsa sig
og aðra kaupmenn reiðubúna til
allrar liðveizlu og fyrirgreiðslu
á þessu sviði, í þeim tilgangi að
efla innlent atvinnulíf, en ítreka
að frumkvæði á þessu viði þarf
að koma frá framleiðendum við-.
komandi iðnaðarvarnings.“.
Sveinn Snorrason, hri. flutti
erindi um verðlagmsál en hann
er einn af fulltrúum verzlunarin
ar í Verðlagsnefnd. Gerði ræðu
maður einkum að umta'lsefni að-
stöðu verzlunarinnar til að hafa
áhrif á sín eigin hagsmunamál
með skipun fulltrúa í Verðlags-
nefnd. Taldi hann að með nú-
verandi fyrirkomulagi á skipan
og starfaemi verðlagsnefnidar,
væri hlutur verzlunarinnar fyr-
ir borð borinn og á engan hátt
sambærilegur við aðstöðu ann-
ara stétta þjóðfélagsíns til að
semja um sín eigin mál.
Sveinn lagði áherzlu á, að það
ætti að vera cHlúm Ijóst, að með
því að einblíná á álSgningarprós
Framhald á bU. 25
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Harðar Einarsisonar hdl., og Sigurðar Haf-
stedn hd'l., verður barborð, loftljós, vegigljós og peninga-
skápur, talið eign Hreiðars Svavarssonar, selt á nauð-
ungaruppboði að Borgartúni 21, þriðjudaginn 24. sept-
ember n.k. k. 16.30.
Greiðsla við hamarshögg.
______________BorgarfógetaembættiS í Reykjavík.
Njótið ferðarínnar
í heillandi andrúmslofti
Nú 15 ferðir í viku til Japan
Tapan Alr Llnes hafa enn á ný fjölgað flugferðum sfnum
hi Evrópu til Japan og geta nú boöið 15 ferðir á viku tíl
Japan eftir 3 mismunandi leiðum:
• Daglega yfir Norðurpólinn tíl Tokyo.*
• 4 sinnum { viku »Silkileiðina« um Indlapd og Hongkong
01 Tokyo.*
• 4 sinnum f viku yflr Atlandsbaf um New York og San
Francisco til Tokyo. Dagleg brottför um sumartimann.
• f sambandi við Afr France, Alitalia og Lufthansa.
pannig er nú um að raeða 15 möguleika á viku hverri til að
komast til Japan og hinna fjarlægari Austurlanda með stórum
E>C-8turbo-fanþotum frá Japan AirLines, en í þeim njótið þér
verrar minútu í andrúmslofti japansks yndisleika og gestrisnl.
Segið Japan Air Lines
við ferðaskrifstofu yðar.
Q
UAPAN AIR LINJES
fkrlfstofur fyrir Skandinavfu: fTaupmannahófn’: Imperial-Huset, 1612 V., Síml (01) 1133 00, Telez 2494
Stokkhólmur: Sveavagen 9-JJ, C., Slmi (08)23 34 30. Telex 10665
Oslo: Tollbugaten 4. Herbergi 512, Sími 42 24 64 - 41 33 03, Telex 66 65