Morgunblaðið - 20.09.1968, Side 21

Morgunblaðið - 20.09.1968, Side 21
MORGUNBÍLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 196« 21 — Ríkarður Jónsson Framhald af bls. 15 gripi og myndir eftir mig og þar á meðal er styttan af Jón- asi Jónssyni frá Hriflu.“ „Menn velta því 'oft fyrir sér hvert listamenn sæki hugmynd- ir sínar og yrkisefni, sem þeir svo kannski styðjast við í list- sköpuninni. Ríkarður svaraði þessari spurningu með eftirfar- andi „Það er nú eins og ein mæt kona sagði eitt sinn: „Maður á ekki að leita að hlutunum, þeir koma“, og mér hefur reynzt þetta ótrúlegur sannleikur. Annars er hugmyndafþrgið misjafnt en ekki sízt fær maður hugmyndir að næturlagi, þegar maður hefur andvökur. Mikið af verkum mínum hefur orðið til þannig að ég hef orðið hrifinn að einhverskonar fegurð fólki og landi, og notað það sem fyrirmyndir án þess þó að stæla það nokkuð. te hef alltaf verið ákaflega vandlátur við sjálfan mig og í mótuninni hefur þetta verið þann ig að ég byrja á verkinu og held áfram með það þangað til mér finnst það vera búið. Þegar ég móta andlit af manni veit ég ekki hvernig ég geri það bein- línis, nema að það mótast eins og það er. Hvert andlit hefur sinn sérstaka margþætta svip og hann þarf allur að koma fram eins og hann er til þess að verk ið sé fullkomið." „Það eru mjög margir þekktir og merkir menn, sem hafa setið fyrir hjá Ríkarði og það eru til margar sögur úr vinnustofu lista mannsins. Eina sagði hann mér af séra Árna Þórarinssyni, sem hljóðar svo: „Séra Árni Þórar- insson var eitt sinn að skoða höggmyndir af mönnum í vinnustofu Ríkarðs og þar var m.a. höggmynd af séra Árna sjálfum og fleiri prestum. á seg ir hann allt í einu, „Á ég að segja þér nokkuð“ Já, blessaður gerðu það svaraði ég það er alltaf skemmtilegt sem þú segir, og séra Árni hélt áfram: „Það er ég viss um að prest- ar eru langsamlega syndugustu menn á jörðu. Það er ekki þar fyrir að allir menn ljúga meira og minna, en prestar ljúga í Jesú nafni, amen og hallelúja og taka fé fyrir. að er svo mikil synd að það er ekki til nokkur guðdómur hvorki á himni né jörðu að hann geti fyr irgefið það og ef hann fyrirgef- ur það samt, þá er það glæpur." Ríkarður veit ekki með vissu hvað mikið liggur eftir hann, en það 'ar í bígerð að reyna að telja það og gera skrá yfir það upp LOFTUR H.F. LJÓSMYNDASTOFA Ingólfsstræti 6. Pantið tima í síma 14772. Húsgagna smiðir Höfum fyrirliggjandi: SLÍPIMASSA fl. grófl. SLÍPIOLÍU STÁLULL fl. grófl. SANDPAPPÍR, fl. grófl. SANDPAPPÍRSBELTI GRIP — LÍM CASCOL — LÍM WELDWOOD — LÍM, vatnsþ. PLAST — LÍM AN-TEAK LAKK TEAK — OLlU BÆS, marga liti TRÉFYLLI, marga liti STORR, Laugavegi 15, aóm 1-33-33. úr vinnubókum. Það hafa varið gefnar út tvær bækur með mynd um af verkum Ríkarðar, út- skurði og mannamyndum.“ . „Ég veit“, segir Ríkarður, „að mannamyndir, sem ég hef gert í leir, gips og kopar, eru talsvert á 6. hundrað, en ég veit ekki hvað ég hef gert marga hluti út skorna í tré og bein, þeir eru gríðarlega margir.“. „Að síðustu Ríkarður, Hvað hefur þér þótt skemmtilegast að vinna við“? „Ég hef langmesta skemmtun og ánægju af að gera það sem er mikill vandi að gera og það er mestur vandi að fást við andlit- in. Ná hverju andliti, hverjum svip, eins og hann er. Hvert and lit hefur sitt sérstæða listmót og við það hefur verið skemmti- legast að fást. Það sem er auð- velt að gera, hefur verið eins og hver önnur vinna, en það vandasama og erfiða hefur allt af heillað mig mest.“ á. johnsen. BUNAÐARBANKINN er hanki flílksins Nauðungaruppboð — annað og síðasta — sem auglýst var í 28., 31. og 33. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1968, á jarðhæð í Auð- brekku 36, þinglýstri eign Jakobs Sigurðar Árnasonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 30. septeanber 1968 kl. 11. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Húsnœði óskast fyrir bókaforlag, til geymslu og afgreiðslu á bókiun. Upplýsingar í síma 38740. TIL SÖLU Volvo vörubíll frambyggður með palli og sturtu 3ja tonna, árg. 1960. Bíllinn er til sýnis hjá Rafveitu Selfoss Eyrarvegi 8. Tilboð er miðist við staðgreiðslu sendist Rafveitunni fyrir laugardaginn 5. október ’68. RAFVEITA SELFOSS. Viceroy Filter. I fararbroddi. 9.00“Mætt á skrifstofuna”. 10.15“Lokið við módel af nýju hóteli. Slappað af með Viceroy”. 12.00“Byggingaráætlun rædd á leið til næsta stefnumóts”. ‘5 “Við brúna með yfirverk- fræðingi og eftirlitsmanni. Viceroy fyrir alla”. Ekki of sterk, ekki of létt, Viceroy gefur bragðið rétt... rétt hvaða tíma dagsins sem er! “Áríðandi fundur um nýja byggingaráætlun”. Notiö skemmtilegs sjónleikí eftir erilsaman dag—og ennþá bragðast Viceroy vel”.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.