Morgunblaðið - 20.09.1968, Side 31

Morgunblaðið - 20.09.1968, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 196« 31 Börnum í Breiðholti ekið í skóla í borginni — Fyrsti hluti skóla þar tilbúinn næsta haust Kristinn við eina mynd sína. Myndlistarsýning d flkureyri í vetur verður bömum úr Breiðholtshveríi ekið í skóla í horginni, þar sem skóli er ekki risinn í hverfjnu. Bygfing hans var auglýst til útboðs 15. sept. s.l. og verður hann byggður í þremur áföngum. Sá fyrsti verð ur tekinn í notkun næsta haust, annar haustið 1970 og sá þriðji 1971. Getr Hallgrímsson, borgar- stjóri, skýrði frá þessu á borg- arstjórnarfundi í gær, vegna fyrirspurnar Kristjáns Bene diktssonar (F) um skólamál. Ennfremur sagði borgarstjóri, að þrísetið yrði í 15 kennslustof ur í barnaskólunum, en s.l. vet- ur var þrísett í 21 stofu. Sagði borgarstjóri að þrísetning væri vissulega leiðinleg. Oft yrði ekki hjá henni komizt vegna þess, að barnafjöldi í vissum hverfum væri í hámarki. Mætti til dæmis núna koma í veg fyrir þrísetn- ingu með því að dreifa börnun- um á alla skólana, en menn teldu það ekki heppilegt. Um íþróttakennslu sagði borg arstjóri, að hún yrði álíka mikil og s.l. vetur ,þar sem enginn nýr íþróttasalur verður tekinn í notkun í haust. Hann sagði, að allir íþróttasalir og sundstaðir — Jiri Hajek Framhald af bls. 1 og Moskvu hermdu í kvöld, að fyrirhugaðri heimsókn Alexand- ers Dubceks og annarra tékkó- slóvakískra leiðtoga til Moskvu hefðiv erið fresta'ð. Talið var, að Dubcek færi á morgun, en í Moskvu er sagt að heimsókn- inni hafi verið frestað um að minnsta kosti sólarhring og að sennilega geti ekki af henni orð- ið fyrr en í næstu viku. Talið er, að á væntanlegum fundi tékkó- slóvaka um að hernámsliðið verði flutt úr landi og krafa Rússa um að frekari ráðstafanir verði gerð ar til að koma ástandinu í eðli- legt horf. Ýmsir hafa haldið því fram, að Rússar hafi krafizt þess að Dubcek verði vikið úr starfi flokksleiðtoga, en enginn vafi leikur á því að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar styður hann. Samkvæmt skoðanakönn- tm, sem birt var í dag styðja 99% þjóðarinnar Dubcek, og þess vegna er talið ólíklegt a'ð flokk- urinn víki honum frá völdum. ARASIR A JÚGÓSLAVA Pravda, málgagn sovézka kommúnistaflokksins, sagði 1 dag, að júgóslavneskir endurskoðunar sinnar væru fyrirmynd andsósíal istískra afla í Tékkóslóavkíu. I grein eftir N. Lomakin segir, að hægrisinnaðir tækifærissinn- ar og endurskoðunarsinnar í Júgó slavíu séu jafnvirkir andstæðing- ar marxisma og lenínisma og Kínverjar. Lomakin gagnrýndi tvo Tékka, Antonin Liehm sem skrifað hefur í Literarny Listi, og heimspekinginn Ivan Svitak fyrir að hafa stefnt út á hina júgóslavnesku braut. Aðalritstjóri pólska kommún- istabla'ðsins Trybuna Ludu sak- aði í dag tékkóslóvakísk blöð fyr ir að hafa verið verkfæri í hönd um þeirra, sem rægðu sósíalis- mann, áður en innrásin var gerð. Hann sagði, að mikill pólitískur og þj óðfélagslegur skaði gæti hlotizt af því að kommúnista- flokkurinn glataði yfirráðum sín um yfir fjölmiðlunartækjum. Af- leiðingin yrði sú, að þau yrðu verkfæri í höndum endurskoðun arsinna, og þar með væri jarðveg urinn undirbúinn fyrir gagnbylt ingu. borgarinnar væru fullnýttir í þágu skólanna og væri íþrótta- kennsla ekki skert að ráði nema í tveimur skólum, Álftamýr- arskóla og Árbæjarskóla. í Álftamýrarskóla er leikfimi kennd tvo tíma í viku í tveim- ur aldursflokkum, aðrir nemend ur njóta ekki leikfimikennslu. Er reynt að bæta úr þessu með aukinni sundkennslu. Nemend- um er kennt sund daglega í þrjár stundir í viðbót við venjulegt sundnám. íþróttahús skólans er í smíðum og á að verða fullgert næsta haust. Enginn leikfimikennsla er við Árbæjarskóla, en s.l. vetur var nemendum 9 ára og eldri kennt sund og þeim ekið til og frá sundstað. Væntanlega verður slíkur háttur hafður á í vetur. í næsta áfanga skólans, sem nú er í teiknun, er gert ráð fyrir leikfimisal og sundlaug. Borgarstjóri sagði einnig, að nú væri í byggingu íþróttahús við Vogaskóla. Verið væri að ganga frá teikningum að íþrótta húsi Hlíðarskóla og boðin hefur verið út skólabygging í Breið- holtshverfi, þ.á.m. leikfimihús. Öll þessi íþróttahús eru það stór, að hægt verður með skil- vegg að skipta þeim í tvo sali, og kenna þannig tveimur flokk um samtímis. - BREIÐHOLT Framhald af bls. 32 nánari ákvörðun borgarráðs. Taldi borgarstjóri eðlilegra og sennilegra, að þessar 52 íbúðir yrðu leigðar efnalitlum fjöl- skyldum. Meðal annarra ungum hjónum. - ÚTLENDINGAR Framhald af bls. 32 dvelja þar aðeins fastagestir, sem eru að vinna við Mývatn, fyrir Norðurborinn, eða á vegum Kís- ilverksmiðj unnar. Hrafnhildur taldj eina ástæð- una fyrir því, að lítið er um ís- lendinga á hótelunum, stafa af því, að yfir annatímann, er ekki rúm fyrir þá. Þeir panta nær aldrei fyrirfram, en vilja koma beint og fá herbergi. Útlendir gestir aftur á móti skipuleggja sínar ferðir og panta gistirúm löngu fyrirfram. Nú væru ferða- skrifstofur t. d. búnar að gera sínar pantanir fyrir ferðahópa fyrir næsta sumar, en einstakl- ingspantanir kæmu svo á eftir. T. d. hafa ferðaskrifstofúrnar Út- sýn og Geir Zoega þegar pantað fyrir hópa og einnig væri Benn- ett í London búinn að gera sínar pantanir. Væri þar gert ráð fyrir miklum ferðum hingað. Útlitið væri því ágætt fyrir næsta sum- ar, ef ekkert breyttist með það. Guðrún Sigurðardóttir í Hótel Reykjahlíð tjáði Mbl. í símtali, að sumarið hefði verið ágætt fyr- ir hótelið. Hefði verið mjög mik- il umferð í júlímánuð og góð nýt- ing á hótelherbergjum fram í miðjan ágúst, en stopult úr því. I september hefðu gestir verið með færra móti fyrir þann mán- uð, þrátt fyrir ágætis veðráttu. Tíð var yfirleitt ágæt fyrir ferða fólk éftir að fór að hlýna, en það var með seinna móti í vor, sem kunnugt er. í Hótel Reykjahlíð er rúm fyr- ir 30 manns. Sagi Guðrún, að mikill hluti gesta í sumar hefðu verið útlendingar. Erlendir ferða menn gistu 2—4 nætur og notuðu hópferðir Ferðaskrifstofu Akur- eyrar í Öskju, Ásbyrgi, að Detti- fossi og víðar, til að sjá sig um. fslendingar dveldust lítið á hótel- inu. Akureyri, 19. september. KRISTINN G. Jóhannsson, list- málari og skólastjóri í Ólafsfirði, opnaði í dag myndlistarsýningu í Landsbankasalnum á Akureyri. Heiti sýningarinnar er „Myndir um húsin, bátana og snjóinn", en þar eru 24 teikningar um hús og 12 olíumálverk um snjó, hús og Mólverka- og bókauppboð — hjá Sig. Ben. INNAN tíðar hefjasit fynstu list- munauppboð vetrarins hjá Sig- urði Benediktssyni. Sagði hann í samtali við Mbl. í gær, að fyrir- hugað væri bókauppboð í Þjóð- leikhúskjallaranum 1. okt. n.k., og málverkauppboð á Hótel Sögu 9. okt. n.k. Ekki sagðist Sig urður vita með vissu hvað yrði til sölu á uppboðum þessum, en þar verður margt um góða gripi, ef að líkum lætur. Sagði Sigurð- ur, að fólk, sem ætlaði að fá seldar bækur eða málverk þyrfti að hafa samband við sig næstu daga. -7 MANNA NEFND Framhald af bls. 2 Óskar Halldórsson (A) ræddi einnig atvinnuástandið og benti á hættuna af of einhæfum atvinnu vegum og nefndi dæmi frá er- lendum ríkjum sér til stuðnings. Að lokum talaði GuðmundurJ Guðmundsson (K). Hann sagði að nefndarskipunin væri ekki takmark í sjálfu sér, og hann kvaðst vita, að borgin ætti mjög erfitt um vik, enda eðlilegt. Hann sagði, að ef atvinnuleysi yrði, myndi verða þröngt hjá mörgum húseigendum, sérstak lega hjá ungu fólki, sem þyrftu að standa skil á afborgunum af eignum sínum, og mættu ekki við stórminnkuðum tekjum, sem gætu haft gífurlegar afleiðingar í för með sér. Guðmundur sagði, að i þessa nefnd yrði að fá járnkarla, sem legðu sig alla fram. Ef nefndin svikist um, gæti það leitt ótrú- legt böl yfir fjölda fjölskyldna. - BÚR Framhald af bls. 32 Reykjavíkur hefðu landað öllum afla sínum hér í bænum síðan 29. apríl í vor, unz þessir tveir togarar hafa siglt með afla til Þýzkalands, af þeim sérstöku ástæðum sem að framan greinir. Útgerðarráðið síumþykkti síðan samhljóða framkomna tillögu frá Guðmundi Vigfússyni ,þess efnis að togarar bæjarútgerðarinnar leggi afla sinn áfram upp hér heima til vinnslu í frystihúsum og fiskvinnslustöðvum eins og frekast verður við komið. Þá ræddi útgerðarráðið einnig um möguleika á að skipta um vélar í þremur togurum Bæjar- útgerðarinnar, þeim Hallveigu Fróðadóttur, Jónj Þorlákssyni og Þorkeli mána. báta. Sýningin verður opin til sunnudagskvölds, 22. sept., milli klukkan 15.00 og 22.00 daglega. Kristinn hefir áður haldið 5 sýningar á Akureyri og 2 í Reykjavík, auk þess sem hann tók átt í haustsýningu F.Í.M. 1962. — S-. P. - RÉTTIR Framhalfl á bls. 3 illar kvenhylli. En gamanlaust þá er þetta fyrirtaksfólk. f almenningnum rekumst við á mikinn sæmdarmann og sterkan svip í íslenzku þjóð- lífi. Kempan er Loftur á Sandlæk Loftsson, svipmikill maður, hávaxinn, viðmótsþýð ur og segir sína meiningu umyrðalaust án þess þó að særa nokkurn. Loftur er 72 ára gamall og virtist eins eðlilegt að vera að koma af fjalli, eins og íslenzku fljóti í liprum leysingum. Við spurð- um Loft að göngum fyrri táma, en hann fór fyrst í göng ur 1914 og oft síðan bæði haust og vor. Loftur sagði alltaf koma fyrir smá ævintýri í ferðun- um, hvort sem veður væru slæm eða góð. Við spurðum hann hvernig honum líkaði að hafa nú kvenfólk með í göng- um, og hann svaraði því til að stúlkurnar væru ágætar, þær sem dugur væri í á ann- að borð. Loftur sagði okkur af einni svaðilför frá fyrri tíð, en þá lenti hann í hrakningum ekki langt frá Kerlingarfjöll- um í ísveðri. „Við vorum að bjarga kind um undan ís“, segir Loftur, „og þar lánaðist mér að bjarga mörgum skepnum. Ég fór út í straumkvíslina, hún var hemuð og grunnstigull í henni og ég varð að standa í vatnskrapi upp undir bring- spalir. Þarna náði ég að rétta þeim féð, sem voru á hestum, en það fóru 4 lömb undir ís. Mér var fjandi kalt, en var hresstur vel þegar í land var komið. Það vor oft fyrrum bölvað óhræsi, stórviðri og rjgning. Núna höfðum við einmuna blíðu, þurrt og bjart, en alltaf hafa allir gaman af þessu og þetta er eiginlega sumarfrí bændanna, þó að ekki sé um hvíld að ræða. En menn gleyma smákritunum og vafstrinu, það 'eina sem hold- ið og andinn skilur, er að fara bara á fjall“. Guðjón Ólafsson bóndi á Stóra Hofi kom aðvífandi að okkur og var hinn hressasti og þeir félagar ræddu um heima og geima. Einhverra hluta vegna spurði Guðjón Loft að því hvont að hann væri að reyna að vera ríkur. Loftur hélt nú ekki og sagði að góða ráðstöfunin, sem Guð eða náttúran hefði séð fyrir væri sú, að enginn gæti farið með neitt yfirum. Ein- hverjum þótti það skrýtið, að blaðamaður Morgunblaðsins og fréttaritari Tímans í hreppnum, Guðjón á Stóra Hofi, ræddu svona kumpán- lega saman. Þá skaut Loftur inn í: „Annar frá Morgun- blaðinu, hinn frá Tímanum, mér er nú sama hvor skömm- in er“, og síðan sló hann á lær og hló hátt. Jón bóndi í Geldingarholti kom nú aðvífandi og bauð í kaffi. „Kaffi, já, kaffi“, sagði Uoftur. „Áttu ekki brenni- vín líka“? Eina heimsætu tókum við tali, en sú var að koma af fjalli í annað sinn og gekk al- deilis rösklega fram í að draga í dilka. Heimasætan er 17 ára gömul. Helga dóttir Guðmund ar í Ásum. Hún lét vel af fjallaferð- inni og sagði veðrið hafa verið sérstaklega yndislegt. Hún kvað þau eiga um 200 fjár og þegar við furðuð- um okkur á þvi, að hún benti í stóran hóp kinda hvað eftir annað og sagði: „Þessa eigum við“ ,hafði snör handtök og dró í dilkinn, sagðist hún þekkja þær á svipnum og jafn vel hefðu kindurnar sérstakan svip, eftir því frá hvaða bæ þær væru. Við kinkuðum bara kolli og horfðum til fjalls, en það eru til náttúru- börn og við höfum heyrt tal- að um fjárglöggt fólk. f Hrunarétt var um það bil verið að ljúka við að draga í dilka, þegar við komum að réttinni. Á 10. þúsund fjár höfðu verið í réttinni, en menn voru að búa sig undir að reka heim. Við ræddum við fjallkóng Hrunamanna, Helga Jónsson á Sóleyjarbakka, en þetta er 4. haustið, sem hann er fjall- kóngur. „Hvert nær ykkar afrétt- ur?“ „Það er svæðið, Hvítá og Jökulkvísl að vestan og Stóra Laxá og lína úr henni að Hofsjökli að austan. Öll Kerlingarfjöll eru í okkar af- rétti". „Hvað voruð þið margir?“ „Við vorum 28 í suðurleit og 8 í norðurleit. Norðurleit- in smalar fyrir innan Kerling arfjöll, og þá hittum við á 3. degi. Af þessum 36 voru 3 heimasætur og það ér mikið um að ungt fólk fari hér í leitir". „Gekk ekki allt vel?“ „Jú, það gekk vel. Við fengum reyndar einn þoku- dag með blind svarta þoku, en annars var alltaf mjög gott veður". „Hvenær verður farið í aðra leit?“ „Það verður farið í aðra leit í næstu viku, og það er nefnt eftirsafnið. Að siðustu fara síðan 4 í eftirleit.** „Hvað er ykkar afréttur að flatarmáli?" „Hrunamannaafrétturinn er líklega einn istærsti hér á landi. Hann er um T000 fer- kílómetrar og á að þola um 12 þús. fjár. Einnig er-u hér um T50 hross, sem eru rekin til fjalls. Við ræddum við eina af fjallakonum Hrunamanna, að nafni Björk Kristófersdótt- ur, en hún var mjög ánægð með ferðina. „Ég var á fjalli í fyrsta skipti og fannst það mjög gaman. Þetta var alveg stór- kostlegt, bæði smalamennsk- an og kvöldvökurnar", sagði hún. „Á kvöldin safnaðist fólk ið saman í tjöldum og þar var sungið og leikið. Veðrið var .mjög gott, nema einn dag, svarta þoka. Þetta var í einu orði sagt, stórkostlegt". Það var heldur farið að færast í aukana fjörið í rétt- unum, þegar við fórum það- an upp úr hádegi í gær. Þeir sátu á réttarveggnum nokkrir kumpánar og það síð asta, sem við heyrðum áður ien við stigum inn í bílinn var: „Jæja, drengir, nú skjót- um við kátum". á. johnsen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.