Morgunblaðið - 22.09.1968, Page 2

Morgunblaðið - 22.09.1968, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1»©8 Úrvalslið gegn Svíum valið ÚRVALSLIÐ Reykjavíkur í handknattleik, sem leika á við sænsku meistarana á mánudags- kvöld hefur verið valið og er þannig skipað: Markverðir eru Jón Breið- fjörð Val og Guðmundur Gúst- afsson Þrótti og leikmenn Stefán Sandholt Val, Ágúst Ög- mundsson Val, Gunnar Hjalta- lín KR, Ólafur Jónsson Val, Ás- geir Elíasson ÍR, Bergur Guðnason Val, Einar Magnús- son Víking, Jón Hj. Magnússon Víking, Karl Jóhannsson KR, fyrirlfði og Þórarinn Ingi Ólafs- son Víking. Liðið er valið með hliðsjón af því að Eram og FH leika félags- leiki við Svíana. Filippseyjar krefjast svæðis af Malaysíu Sendifulltruar IVIalaysfu Þýzkur teiknari gerði þessa mynd og sendi Mbl. Hún þarfnast varla skýringar við, en þess skal getið að hún er teiknuð áður en leikur Vals og Benfica fór fram. t i i i i i i kallaðir heim frá IVIanila Kuala Lumpur, Manila, Wash- ington, 19. sept. (AP-NTB) Deilur hafa mjög magnazt milli stjórna Malaysíu og Filips- eyja um yfirráð yfir Sabpah-hé raði í Malaysíu, sem Filipseyj- ar gera tilkall til. Sabah- hérað er á Norður- Borneo, og hefur lotið Malaysiu frá því landið fékk sjálfstæði fyrir nokkrum árum. f gær stað- festi svo Ferdinand Marcos, for- seti Filippseyja, ný lög, þar sem því er lýst yfir að Sabah sé hluti af Filipseyjum. Tók forset- inn að vísu fram við undirritun laganna, að ekki væri ætlunin að beita valdi til að innlima hérað- ið. Tunku Adbul Rahman, for- sætisráðherra Malaysíu, boðaði ríkisstjórn sína þegar til fundar er kunnugt var um staðfestingu nýju laganna í Manila, og að stjómarfundi loknum lýsti hann því yfir að með staðfestingu lag anna væri Marcos forseti Filips eyja að ógna Malaysíu. Sagði Rahman, að stjórn Malaysíu væri reiðubúin að láta hart mæta hörðu, ef til átaka kæmi. f morg- un var svo tilkynnt í Kuala Lum pur að starfsmenn sendiráðs Malaysíu í Manila hefðu verið kallaðir heim. Allt frá því ríkjasambandið Malaysía var stofnað 16. sept- ember 1963 hefur ríkt ágreining ur milli stjórnanna í Kuala Lum pur og Manila um yfirráðin yfir Sabah. Hafa deilur þessar vald- ið þungum áhyggjum í bæði Lon don og Washington, því Filips- eyjar eru aðili að SEATO, banda Vöku-iundur um „ný viðhorf í íslenzkum stjórnmdlum" VAKA, félag lýðræðissinn- aðra stúdenta gengst fyTÍr fundi með hringborðssniði n.k. mánudag 23. sept. kl. 20.30 í Tjarnarbúð (uppi), þar sem fjallað verður um lagi ríkja Suðaustur-Asíu, og Malaysía nýtur verndar banda- lagsins, auk þess sem bæði Ástra lía og Nýja Sjáland hafa heitið Malaysíu stuðningi, ef á landið yrði ráðizt. Var sá stuðningur boðinn þegar Indónesar kröfðust landsvæðis af Malaysíu, en til- boðið stendur enn óbreytt. Um þrjú þúsund unglingar fóru hópgöngu í Kuala Lumpur í dag, og héldu til heimilis Rah- mans, forsætisráðherra. Hróp- uðu unglingarnir ýms vígorð gegn Filipseyjum og Marcos forseta, sem þeir nefndu „ný-heimsvalda sinna“. Rahman, forsætisráð- herra, ávarpaði mannfjöldann, og hétu unglingarnir honum því að þeir skydlu verja landið „til síð asta blóðdropa". Eftir að ungl- ingarnir héldu heim, ræddi Tun- ku Rahman við fréttamenn um heimköllun starfsmanna við sendiráðið í Manila. Sagði ráð- herrann, að með þessum aðgerð- um væri hann ekki að rjúfa fyr- ir fullt og allt stjórnmálasam- band við Filipseyjar, heldur að- eins „að gera hlé á samband- inu“, eins og hann orðaði það. „Við vonum að ekki komi til manndrápa", sagði ráðherrann. „Malaysía er viðbúin því versta, en vonar það bezta. Við héldum að óvinir okkar væru fátækt, neyð og stjórn Mao Tse-tungs. Nú erum við að berjast innbyrð is“. Rahman kvaðst harma mjög hvernig komið væri í sambúð Filipseyja og Malaysíu, en vona að Filipseyjar reyndu ekki að beita valdi til að innlima Sabah, því þá neyddist þjóðin til að grípa til vopna og verja sjálf- stæði og fullveldi landsins. Sabah er 75 þúsund ferkíló- metra landsvæði, og var áð ur hluti af brezku nýlendunni Borneo. Keyptu Bretar landsvæði þetta af þáverandi soldáni Sa- bah fyrir um 570 sterlingspund, að sögn, en stjórnin í Manila heldur því fram, að hér hafi ekki verið um sölu að ræða, held ur aðeins landleigu. Héraðið er auðugt af timbri, gúmmí, tóbaki og málmi. Viðbúnaöur í Uruguay vegna vaxandi óeirða Olga vegna efnahagserfiðleika Montevideo, 21. september. NTB-AP. Mikill viðbúnaður var fyrir skipaður í dag í Montevideo, höfuðborg Uruguay, vegna óeirða, sem geisuðu í borginni í nótt, þriðja daginn í röð. Sautj án ára gamall piltur beið bana í óeirðunum, þegar lögregla skaut á hóp stúdenta og verka- manna, sem mótmæltu kaup- bindingarstefnu stjórnarinnar. Óttazt er, að enn komi til óeirða í dag þegar pilturinn verður jarðsettur. Sex aðrir stúdentar og nem- endur særðust í götubardögum í nótt í námunda við háskólann í Montevideo. L ögregla beitti táragasi til að hafa hemil á mannfjöldanum, og 50 voru hand teknir. Einnig kom til óeirða í héraðinu El Cerro, um 16 km frá höfuðborginni, þar sem kjöt pökkunarmenn haf a verið í verk falli í mánaðartíma. stjórnmálum. Málshefjendur verða þeir Baldur Guðlaugsson, stud. jur, Gunnlaugur Claessen, stud. jur, Ólafur G. Guð- mundsson, stud. med, Róbert Á. Hreiðarsson, stud. jur og Þorsteinn Ólafsson, stud. œcon. Að framsöguerindum lokn- um verða frjálsar tunræður. Fundurinn er fyrir stúdenta eina. (Fréttatilkynning frá VÖKU, félagi lýðræðis- sinnaðra stúdenta) Ávarp á kirkjudegi UNDIRRITAÐUR, prestur Óháða safnaðarins í Reykjavík leyfir sér með, að vekja athy-gli á því, að hinn árlegi Kkkjudagur safn- aðarins er í dag, og að Kven- félag Óháða safnaðarins hefur kaffisölu í Kirkjubæ að lokinni hin nýju viðhorf í íslenzkum messu, sean hefst kl. 2. í þetta skipti ætla ég ekki að rekja hið margþætta, ómetanlega starf, sem félagið hefir urrnið til gagns og prýði fyrir kirkjuna, og vinn- ur ennþá af óþreytandi ósér- plægni og áhuga. Ég leyfi mér aðeins fyrir hönd kirkjunnar að þakka það af heiium hug. En eins vil ég minnast, sem KvenféLag Óháða safnaðarins gerði í sumar, hvorki itl gagns né prýði fyrir kiirkjuhúsið sjálft, en þó flestu öðru fremur í anda höfundar kristindómsins. Hér er átt við það, að félagið gaf 20 þúsund krónur í Biafra-söfinun- ina. Sízt af öllu miunu konumar hafa lagt þetta af mörkum, til þess að vekja athygli á sínu starfi, enda mun þess ekiki hafa verið getið opinherlega fyrr en nú. Ástæðulaust er þó að láta þessa ógetið, vegna þess, að oft er gert lítið úr því sem kirkju- leg félög vinna, nema þá fyrir kirkjuhúsin, en sannarlega vinna þau mörg að mannúðar- og iíknarmálum. Ég vil með þessum línum leyfa mér að hvetja öll sóknarbörn min til að muna eftir kirkju- degi safnaðarins í dag, að koma í kirkjuna og Kirkjubæ, en þar munu kvenfélagskonur hafa á boðstólum höfðinglegar veiting- ar að vanda. Með því að þiggja þær gefst öllum kostur á að leggja sitt af mörkum, til að efla kirkjulegt starf og mannúðar- starf kvemnanna. Með þökk fyriir birtinguna. Emil Björnsson. Óeirðasamt hefur verið í Mont evideo undanfarna þrjá mánuði en talið er að ástandið hafi al- drei verið eins alvarlegt og nú. Síðustu óeirðirnar hófuast á mið vikudaginn þegar efnt var til mótmælíaaðgerða vegna fjölda- uppsagna í frystigeymslum, sem ríkið rekur, og hefur ástandið farið dagversnandi. Yfirvöldin hafa tekið skýrt fram, að beitt verði öllum tiltækum ráðum til þess að koma ástandinu í eðli- legt horf, en hefur orðið lítið ágengt til þessa, og eftir óeirð- irnar í nótt þarf lítið út af að bera til þess að allt fari‘ í bál og brand. Jorge Pacheco Areco, forseti, sem hefur reynt að fá þingið til þess að staðfesta tilskipun sína um bindingu kaupgjalds og verðlags, átti í gærkvöld fund með he'lztu ráðunautum sínum. f dag fer Areco forseti til borg arinnarr Salto á landamærum Argentínu þar sem hann ræðir við Juan Carlos Ongania Argen tínuforseta á morgun. Sagt er, að Argentínumenn hafa vaxandi áhyggjur af síauknum efnahags örðugleikum Uruguaymanna og óeirðum í landinu. Sementsverk- smi0)iunalið fyrir sokndóm SAKSÓKNARI ríkisins hefur sent sakadómi Reykjavíkur Sem- entsverksmiðjumálið svonefnda með beiðni um að málið verði rannsakað fyrir dómi. Svo sem menn mlnnast taldi rannsóknardeild ríkisskattstjóra, að undandráttur hefði verið árin 1964, ’65 og ’66 á framtali til hlutaðeigandi skattyfirvalda á ýmiss konar launagreiðslum verksmiðjunnar og af því tilefni ákvarðaði ríkisskattanefnd að nýju tekjuskatt 42 gjaldenda svo og aðra skatta og gjöld á suma þessara aðila. Kirkjuróð Suður Afríku fordæmir upurtheidstefnu Jóhannesarborg, 21. sept. NTB. KIRKJURÁÐIÐ í Suður-Afríku hefur fordæmt apartheid, að- skilnaðarstefnu Suður-Afríku- stjórnar í kynþáttamálum, í einhverju skorinorðasta ákæru- riti sem birt hefur verið í Suður- Afríku. Sérstök guðfræðinefnd, sem kirkjuráðið skipaði í fyrra til að rannsaka áhrif kynþátta- stefnunnar á kirkjuna og sam- tök hennar, segir í skýrslu að apartheid séu ný trúarhrögð, sem ósamrýmanleg sé kristinni trú. Skýrslan, sem kallast „BoS- skapur til suður-afrísku þjóðar- innar“, er send þúsundum presta og kirkjudeilda allra kristinna trúfélaga. Septembermót Taflfélags ins hefst á mánudaginn TAFLFÉLAG Reykjavíkur mun hefja haust- og vetrarstarfsemi sína að þessu sinni með hinu svokallaffa Septembermóti mánu- daginn 23. september n. k. og verður því fram haldið 24. sept., 26. sept, og lýkur mánudaginn 30. sept. Teflt verður í Skákheimil- iniu að Grensásvegi 46 og hefst skráning I mótið kl. 8 e. h., en keppnin byrjar kl. 9. Haustmót Taflfélags Reykjavík ur mun svo hefjast 6. okt., en þann dag eru liðin 68 ár frá stofnun félagsins. Aðalfundur Taflfélags Rvíkur var haldinn 4. sept. sl. og voru á dagskrá fundarins lagabreyting ar og venjuleg aðalfundarstörf. Eftirtaldir menn voru kjörnir í stjórn: Hólmsteinn Steingrímsson, for- maður, Gylfi Magnússon, vara- formaður, Jón Pálsson, gjaldkeri, Björn Theodórsson ritari, Júlíus Friðjónsson, umsjónarm. æsku- lýðsmála, Egili Egilsson, aðstoð- argjaldkeri, Egill Valgeirsson, um sjónarmaður skákmóta, Geir Ól- afsson, umsjónarmaður skákæf- inga, Eimar M. Sigurðsson, um- sjónarmaður eigma, Gunnar Gunnarsson, meðstj., JÓhann Sig- urjónsson, skákritarL 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.