Morgunblaðið - 22.09.1968, Page 3

Morgunblaðið - 22.09.1968, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 196« Séra Bjarni Sigurðsson: UM AHYGGJUR í texta þessa drottins dags er mikið rætt um áhyggjur, og það er Kristur, sem þar fræðir og leiðbeinir eins og venjulega. Hann varar við áhyggjum. Svo að líkast til hafa menn haft á- hyggjur fyrir tveimur þúsundum ára. Annars höfum við haldið, að áhyggjur væri nýmæli nútímans og heimurinn hafi verið svo fjarska einfaldur og auð vdldur hér fyrr meir. Af mörgu er helzt svo að sjá og heyra sem vandamál heimsins séu öll ný af nálinni og alilir erfiðieikar hafi fyrrum verið svo sem réftt eins og barnaglingur, aðeins til að gjöra tilbreytingarleysi hversdagsins ögn bragðmeira. En svo þegar við af til viljun förum að blaða í þessari gömlu bók, þar sem 2000 ára gömul orð Krists eru varðveitt, þá rekumst við á orð eins og þessi: Verið ekki áhyggjufull- ir um líf yðar. Gat Kristur nokkuð um áhyggjur vit- að? — Enginn betur en hann. Áhyggj- an hefir fylgt fólkinu eins og skuggi frá því það fór að burðast við að ganga upprétt. Hún hefir elt það og þvæizt fyrir því, svo að það hefir einatt ekki komizt úr sporum hvernig sem menn hafa reynt að hlaupa undan henni. Og hún hefir skapað svipaða vanmáttar- og skelfingarkennd og stundum í draumi, þegar við reynum að flýja undan fall- andi skriðu, en fæturnir ski'la okkur ekki áleiðiis, hvernig sem við brjótumst um. Enginn betur en hann. Hvers vegna? — Hann þekkti lífið, bæði þunga þess og gleði, betur en aðrir, og hann þekkti samferðarmenn sína nánar en við. Skyggni hans á fólk var óbrigðul. Þess vegna vissi hann, að áhyggjan er ok og spillir lífshamingju manna. Ti,l eru þeir, sem hafa áhyggjur af aðsteðjandi baráttu. Sumir hafa áhyggj ur af ævintýrinu, aðrir af fórninni, sem lífið krefst af þeim. Margir hafa þá á- hyggju, að þeir muni glata því, sem þeir hafa öðlazt, aðrir hafa áhyggju af ein- hverju, sem þeir vita ekki hvað er. ymsir hafa áhyggjur af heiminum, þó enn þá meiri af tilverunni handan graf- ar. Við, þú og ég, við lifum ekki í sömu veröld nema að vissu marki, þó að hnöttur okkar sé einn og samur. Þú hef- ir áhyggjur af þessu, ég af hinu. Það er hugarástandið, lundernið, hugsana- ——----------------------------------- ----------------------------------- Lj venjur, sem skapa raunverulegt um-| hverfi sálar. ófreskja áhyggjunnasf hleður múra fangelsis um sálina, þav sem hún einangrast í viðjum kvíða o® efasemda. /i í sömu andrá og Kristur talar um á-i hyggjur í Fjallræðunni segir hann viðt áheyrendur sína: Þér lítiltrúaðir. \ j Getur verið, að áhyggja og trúar-J doði eigi samleið? Sannleikurinn er sá,| að þar sem annað fer, er hins von tj sama slagtogi eða í humátt á eftir. Á.Í sama hátt stuðlar trú að áhyggjuleysi —J ekki andvaraleysi — og trúmaðurinn hejfl ir enga tilhneigingu til að reyna að axia áhyggjubyrði þúsund ára. Þar fer ekkii verulegur hluti lífsorkunnar til að glima við áhyggju þeirra atburða, sem aldrei gjörast. i „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu, en eitt er nauðsynlegt. María hefir valið góða hlutann, hann skal ekki verða tekinn frá henni“. — Áhyggjufull. f dag göngum við til stárfa ásamt Mörtu, en með hugarfari Maríu. , ÞAÐ er ekki nóg með að háskólinn sé að springa utan af stúdentunum. Littu þarna niður eftir og sjáðu gæsirnar, þær eru að leggja undir sig lóðina. Það var háskólastúd- ent, sem þetta mælti um gæs- imar, sem hafa tekið sér það bessaleyfi að sitja þama utan- skóla vetrarlangt. Til að fá táðindi af gæsakomunni í haust hittum við að máli Leo Schmidt, sem við vissum fróð an í þeim efnum. — Ekki 'hef ég séð mikið af gæsinni í haust, sagði Leo. Það hefur verið svo 'hlýtt í veðri að hún heldur sig enn upp til 'heiða í berjuinum. En nú fer líklega að kólna úr þessu og þá má reikna með því, að hún fari að korna nið- ur á láglendi. Eins hef ég tek- ið eftir þvi að oft verður meira -um gæs eftir að byrjað er að smala. — Á vorin fer heiðagæsin inn á heiðar til að verpa, en grágæsin verpir niður á lág- lendi, Helsinginn flýgur aftur á móti alla leið til Grænlands. Þegar líður á haustin flýgur heiðagæsin eins og aðrir far- fuglar til Evrópu, einkum Bretlandseyja. — Hvað urn háskólagæsirn- ar? — Ég veit ekki betur, en að þettu séu gæsirnar, sem Akur eyrarbær gaf Reykjavík. Þeim fjölgar ört og fleiri bætast í hópinn. Þetta eru grágæsir sem gera usla þarna í nýrækt inni, þær eru verstu skaðvald- ar hvað það snertir. — Hvar verpa þær? — Líklega leita þær uppi ein'hverja rólega staði í ná- Könnunarleið'angur athugar lendingaraðstæður. leg á stofninum. Ég held líka, að vorveiðarnar hafi minnkað síðan nýja reglugerðin kom Ifl. — Eru bændur ekki hvekkt ir á gæsinni? — Jú, eflaust eru þeh það. Þó eru þeir ennþá hvekktari á veiðimönnum, sem keyra um á bílum skjótandi út um gluggEina á þeim í áttina að bæjunum og stofna þannig mönnum og skepnum í voða. Þetta eru mennimir sem koma slæmu orði á alla þá sem sportveiði stunda og það er illt. grenni borgarinnar. Ég hef frétt af þeim upp við Elliða- vatn og við Eiðisgranda. Sum- ar verptu líka á tímabili nið- ur í mýrinni, en krafckarnir létu 'hreiðrin aldrei í friði. — Á hvaða stöðum 'hér á Suðurlandi er gæsifjöldinn mestur? — Ég hygg á Rangárvöllum en einnig er mikið af henni í Tungunum og Hreppunum. — Hefur gæsaskytterí auk- izt á seinni árum? — Áreiðanlega, fleiri og fleiri hafa komizt yfir byssur. En ekki er nein fækkun sýni- Háskólagæsirnar utan skóla. Ljósm.: Sv. Þorm. Obernkrichen barnakórinn syngur í Þjóðleikhúsinu SÍÐAST í þessum mánuði er væntanlegur til landsins einn frægasti barnakór heimsins, en Bókmennta- verðlaun — NTB — DANSKI rithöfundurinn og skáldið Tom Kristensen hlaut í dag heiðursverðlaun dönsku aka demíunnar, sem nema 50 þús- und dönskum krónum. Var á- kvörðunin um að veita Kristen- sen verðlaunin samþykkt með samhljóða atkvæðum. Kristen- sen er 75 ára að aldri, og hafa komið út eftir hann margar smá sögur, skáldsögur, ritgerðir og ljóðabækur. Hann var um margra ára skeið bókmennta- gagnrýnandi við blaðið Politik- en. Einnig var í dag úthlutað í Kaupmannahöfn bókmennta- verðlaunum, sem kennd eru við Alexander Foss, og nema 10 þús und dönskum krónum. Hlaut þau Svend Thorsen, rithöfundur og ritstjórL það er Obernkirchen barnakór- inn. Þessi kór hisfur hlotið heims- frægð og var stofnaður árið 1949 af Edith Moeller, stjómanda hans og af Erna Pielsticker, nú- verandi framkvæmdastjóra kórs ins. Söngur kórsins vakti strax mikla hrifningu og barst frægð hans 'brátt um allt Þýzkaland og síðan til annarra landa. Árið 195ð tók kórinn þátt í al- þjóðlegu söngmóti og hlaut þar fyrstu verðlaun, en skáldið frá Wales, Dylan Thomas, gaf hon- um nafnið „Angels in Pigtails", sem útleggst „Englar með flétt- ur“, og hefur þetta viðurnefni fylgt kórnum síðan. Einn þeirra söngva, siem átti hvað mestan þátt í sigurför kórs ins víða um heim, var saminn af bróður söngstjórans, Frerich Moeller. Þessi litli og hugljúfi mars hlaut nafnið, Káti vegfar- andinn. (The Happy Wanderer) og hefur þetta lag orðið mikið eftirlæti þeirra, er hlýtt hafa á söng þessa kórs, á söngskemmt- ununum og hljómplötum. Obernkircken barnakórinn hefur farið í margar söngferðir til fjarlægra landa bæði til Evr- ópulanda, til Ameríku og til Austurlanda. Kórinn hélt fyrstu söngskemmtun sína í New York árið 1954 og var ákaflega vel tek ið. Síðan hefur hann haldið fjöl- margar söngskemmtanir í Banda ríkjunum og ætíð við mjög góð- an orðstír og mikla eftirspurn. En mesta frægð hefur Obern- kirchen kórinn hlotið fyrir að koma fram í sjónvarpsþáttum Ed Sullivan, en þar hefur kórinn marg oft komið fram. Auk þess hafa fliast lögii^, sem kórinn hefur sungið, verið gefin út á plötum í Bandaríkjunum, Englandi og í Þýzkalandi. Ágóði af söngskemmtunum kórsins hefur runnið til munað- arlausra barna, og hefur nú ver- ið reist myndarlegt heimili fyrir munaðarlaus börn í Bueckeburg fyrir fé, sem inn hefur komið á söngskemmtunum. Obernkirchen kórinn ier nú að leggja af stað í 10. söngförina til Bandaríkjanna og verður fyrsti viðkomustaðurinn í Reykjavík. Hér syngur kórinn tvisvar sinn- um í Þjóðleikhúsinu, laugardag- Obernkirchen-bamakórinn. inn 2i8. sept. og sunnudaginn 29. september. Söngskráin er mjög fjölbreytt. Þar eru m.a. sungin lög eftir Schubert, Mendelsshon, Smet- ana, Carl Orff, þýzk þjóðlög, niegrasálma og fleira. (Frá ÞjóðleikhúsinuXj

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.