Morgunblaðið - 22.09.1968, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNU'DAGUR 22. SEPTEMBER 1968
7
„Ég er Úlsari, eins og þú veizt,“
segir Helgi Berg-
mann, sem opnar
málverkasýningu
í Kópavogi í dag
VIÐTAt, Vlð HELGA BERGM
„Já, lagsmaður, þessi sýning
mín I Kópavoginum núna er
einskonar afmælissýning, 40 ára
afmælissýning og eins og þú
munt sjá, er allt fertugum fært,
og ég er ekkert banginn að
bjóða vinum minum að skoða
myndirnar mínar að þessu sinni
því að ég er í afmælisskapi, og
myndirnar flestar nýjar" sagði
Helgi Bergmann Iistmálari við
okkur á dögunum, þegar við
heimsóttum hann á Grundar-
stíginn tii að „taka út forskot
á sæluna“ hjá honum og fá
nokkurs konar einkasýningu fyr
irfram I tilefni afmælisins.
Þegar við rennum í hlað, stóð
Helgi Bermann úti við í „sólar-
króknum" fræga og hafði stillt
upp á steinvegginn vetrarmynd
frá Þingvöllum, okkur til heið-
urs og Sveini Þormóðssyni til
þénustu, svo að hann gæti smellt
af henni mynd í skyndingi, því
að hann var á harðahlaupum til
að mynda milljónaþjófnaðinn í
Hallarmúla og þennan Eusebio
knattspyrnumanninn, sem kom
degi of seint, svo að Sveinn
mátti engan tíma missa.
„Sjáðu, þetta er vetrar-
stemmning frá Þingvöllum. Það
er kuldi í Nikulásargjá það lá
við, að ég yrði loppinn, þegar
ég var að mála hana“.
„Það er vel skilajnlegt, en þú
hefðir nú getað notað við hana
vettlingatök — en er það sem
mér sýnist, Helgi, ertu að bæta
við fjöllum við Hengilinn?"
Nei, biddu guð að hjálpa þér
maður það var ekkert veður
til að skapa þennan dag, en
komdu nú „inn úr kuldanum"
og fáðu þér kaffisopa, meðan
ég sýni þér málverkin mín“.
Þetta með „kuldann" var nú
einhver skáldalygi hjá Helga,
því að þennan dag var 17 stiga
hiti á Celsius, svo að honum
hefði verið nær að bjóða mér
upp á EmmEss-ís frekar en
kaffi.
Og svo settumst við inn í
stofu hjá Helga og meðan hann
hitaði kaffið, blaðaði ég í gam-
alli gesta- og úrklippubók, og
þar rekst ég á forsíðu Fálk
ans frá laugardeginum 27. októ-
ber 1928, með mynd af Helga
á sokkabandsárunum, einni
mynd af málverki hans úr
Grundarfirði, og klausu, sem
byrjaði svo:
„Nítján ára unglingur, Helgi
B.M. Sigurðsson ættaður úr Ól-
afsvík, hefur haft sýningu á
nokkrum myndum eftir sig í
KFUM. Hefur hann engrar til-
sagnar notið ennþá, og þegar
tillit er tekið til þessa, verður
eigi annað sagt, en að myndirn
ar beri vott um listhneigð".
Og nú í dag, sunnudag, þegar
þetta viðtal birtist, opnar þessi
„efnilegi ungi maður“ aímælis-
sýningu í Félagsheimili Kópa-
vogs lærdómi og 40 ára reynsl-
unni ríkari.
„Gjörðu svo vel, hér kemur
kaffið." Og Helgi setur á borð-
ið fyrir okkur togarakönnur full
ar af lútsterku kaffi og sérbök-
uð vínarbrauð ber rann fram
með því. „Og nú skaltu bara
horfa á málverkin. Ég stilli
þeim hérna upp í sófann“.
Og hvert málverkið kom upp
á sófann, litskrúðug og geisluðu
í sólskininu, sem smaug inn um
gluggann.
„Síðustu 10 árin hef ég ekki
gert neitt annað en að m£la,
það er lífsstarf mitt. Þetta
hérna er Vor á ÞingvöUu'm. Ég
elska að mála á Þingvöllum.
Ýg er alltaf að finna ný og ný
„motiv“ . Hérna kemur svo
„mystisk" mynd úr gjánni, hún
er nokkuð dimm og drungaleg.
Sjáðu þessa. Hún er í háklass-
ískum stíl epli og kanna og borð
dúkur með, en þessi er af blóm
um í garðinum".
„Garðinum þínum?“
„Nei, garðurinn minn er ekki
svona fallegur hann er mestan
part malbik. Gæti frekar minnt
á þessa sem ég kalla Kletta-
borgir. Hún er svolítið „mo-
derne“ máluð, en samt ekki ab-
strakt. Og þessa nefni ég ein-
faldlega Haust. Hún er svolítið
grá og guggin, en það er haust-
stemning í henni. Sérðu gamla
húsið myndskerans, hans Agústs
Sigurmundssonar. Ég mátti til
með að mála það. Annars datt
mér í hug að sneiða örlítið af
myndinni vinstra megin, taka
svolítið meira af guðspekinni,
ég meina þessu gula húsi Guð-
spekifélagsins. Ég held hún
verði betri svoleiðis.
Og líttu nú bara á. Þessi er
frá Frambúðum á Snæfellsnesi,
sérðu foksandinn gula, og hvít-
fext hafið á bak við Mér þyk-
ir vænt um þessa mynd. Og hér
er ein úr Búðahrauni, mikil nátt
úra í henni, og þetta er ein
anzi erfið mynd úr Þórsmörk,
en aurarnir eru nú svona. Lit-
irnir eru frísklegri í Esjumynd
inni þarna. Það er vetrarkvöld
í Reykjavík, víst eitthvað frost.
En það gerir ekkert, við höf-
um hitaveituna, eins og þú
veizt. Og rérna eru nokkr-
ar úr Berserkjahrauni. Ég get
aldrei slitið mig alveg frá Nes-
inu mínu. Eins og þú veist þá
er ég Ólsari að uppruna. Og ég
get ekki málað Berserkjahraun
öðruvísi. Þar er mjúkur mosi,
grár. Mér finnst þetta vera
svona.
En maður líttu þér nær Hér
kemur tröllsleg mynd úr Þórs-
mörk. Hún er búin að velgja
mér undir uggum þessi. Ég
varð að gæta mín, að hún yrði
ekki alltof „eyfellsk", þú skil-
ur. En nú ætla ég að bjóða þér
niður í kjallarann, ,studióið“
mitt þar eru stærri myndirnar".
Og við bregðum okkur niður
í kjallarann, enda er kaffið
þrotið á könnunni. Vinnusfofan
er lág til loftsins, en það bag-
ar ekki Helga, því að þessi „ís-
lands Picassó", eins og sumir
nefna hann einkanlega, þegar
hann hefur sett upp alpahúf-
una frægu, er ekki hár í loft-
inu, frekar en Napóleon og aðr
ir frægir menn og þar niðri gef
ur nú á að líta.
„Sjáðu, þessi stóra hérna er
úr Strákagili, sem gengur inn-
af Þórsmörk, það er anzi fjör-
ugt gil mikið af grjóti, mest
móbergi, en raunar allskon-
ar grjót í bland. Og þarna sérðu
kvöldstemmningu frá Land-
mannalaugum, þarna er hraun-
jaðarinn og þarna er Bláfell-
ið. Ég fór upp á það. Það var
svakalegt erfiði, við fórum
hérna upp þessa skriðu, en það
var bót í máli að við gátum
rennt okkur á rasisnum niður
snjóskaflinn þarna til hægri.“
Og svona hélt Helgi áfram að
sýna mér myndirnar drjúga
stund enn. Að lokum sýndum
við á okkur fararsnið, og Helgi
sagði:
„Þú mátt ekki gleyma að
allir vinir mínir eru velkomn-
ir á sýninguna mína, sem byrj-
ar kl. 2 á sunnudag f salnum
næst við bíósalinn, f Félagsheim-
ili Kópavogs. Ég held að far-
ið kosti 9 krónur með strætis-
vögnunum upp á hálsinn, og það
an er ókeypis útsýni f allar átt
ir. Ég hef opið frá kl. 2-10, og
verð í afmælisskapi í heila viku
a.m.k.“.
Og með það kvöddum við
Helga og skiidum hann eftir
með öllum listaverkunum sín-
um, og honum er svo sannar-
lega ekki í kot vísað, og ekki
er að efa, að fjölmennt verð-
ur á þessa afmælissýningu hans
í Kópavoginum — Fr. S.
Til sölu Dodge Weapon í góðu lagi, með húsi einn- ig trésmíðavélar á sama stað. Uppl. í síma 203, Seyðisfirði. Þýzkukennsla Létt aðferð, fljót talkunn- átta. Edith Daudistel, Laugav. 55, uppi. Uppl. virka daga milli kl. 6—8.
Módel-kjólar Saumtun kjóla eftir máli úr tillögðum efnum. Saumastofan Dunhaga 23 Gróa Guðnadóttir, kjóla- meistari. Sími 10116. Áreiðanleg stúlka, vön vélritun, óskast 1- okt. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. Fjölritunarstofa Daniels Halldórssonar, Ránargötu 19.
Keflvíkingár Lúðrasveit Keflavíkur ósk- ar eftir áhugamönnum. Lærið hljóðfæraleik í frí- stundum. Uppl. í símum 1120, 1891, 2290. Ung stúlka óskar eftir vinnu við símavörzlu eða sem aðstoðarst. hjá tannl. frá 1. okt. Meðm. ef óskað er. Tilb. sendist Mbl. f. 28. þ.m. merkt „Atvinna 6968“.
Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. Hemlastilling hf, Súðavogi 14. - Sírni 30135. Kona um fimmtugt óskar að fá leigt 1—2 herb. og eldhús. Til greina kemur einhv. heimilishj. síðari hl. dags. Tilb. sendist Mbl. f. 30 þ. m. merkt „2273“.
Nokkrir reiðhestar til sölu. Uppl. í síma 34751. Stúlka eða unglingur óskast á sveitaheimili í vet ur. Uppl. í síma 81646.
Strauvél til sölu Morphy Richards. Uppl. í síma 52206. Ung reglusöm hjón óska eftir íbúð. Uppl. í síma 41780.
Stúdent óskast til að kenna þýzkum manni í Mosfellssveit ís- lenzku. Tilboð sendist Mbl. merkt „2274“. Duglegur, ungur og reglusamur maður ósk- ar eftár atvinnu nú þegar eða bráðlega. Hefur bílpróf Uppl. í síma 3570'6.
Læknastúdent giftur með barn á 1. ári óskar eftir lítilli íbúð. — Reglusemi og góðri umg. heitið. Uppl. í síma 83196. Tapaði gleraugnahulstri svart rúskinn, gullhúð á læsingu. Vinsaml. skilist að Litlu-Völlum, Garðahreppi eða hringið í síma 51147.
Til sölu Steinberg trésmíðavél, — minni gerð. Uppl. í síma 93—1433. íbúð óskast Ung, reglusöm hjón óska eftir 2ja—3ja herb. íbúð. Uppl. í síma 32516 e. h.
26 ÁRA STÚLA óskar eftir skrifstofustarfi fram að áramótum. Tilboð merkt „Flugfreyja 6967“ sendist Mbl. fyrir 26. þ. m. Notaður, góður 17 feta stálpallur með sterkum sturtum til sölu. Uppl. í síma 50210.
11 ”
ARABIA-hreinlætistæki
Hljóðlaus W.C. — kassi.
Nýkomið: W.C. Bidet
FRETTIR
Háteigskirkja
Daglegar kvöldbænir eru í kirkj-
unni kl. 6.30 síðdegis. Séra Arn-
grímur Jónsson.
Kvenfélag Neskirkju
Aldrað fólk í sókninni getur feng
ið fótaaðgerð í félagsheimilinu á
miðvikudögum frá kl. 9-12 Tíma-
pantanir í síma 14755 á mánudög-
um og þriðjudögum kl. 11-12.
Hvítasunnusöfnuðurinn, Selfossi.
Almenn samkoma verður föstu-
dagskvöld kl. 8.30 að Austurvegi
40. b. Jóhann Pálsson frá Akur-
eyri talar. Allir velkomnir.
Hvítasunnusöfnuðurinn Selfossi.
Almenn samkoma verður sunnu-
dag kl. 4.30 að Austurvegi 40 B.
Jóhann Pálsson frá Akureyri talar.
Allir velkomnir.
sá HÆSJ bezti
Á Afcranesi vildi svo til fyrir nokfcrum árum, að maður nokfcur
var að koma út úr skrifstofu Þórhalls bsejarstjóra, en mætti þá
kunningja sínum, götusópara, sem var á leið inn í skrifstofuna.
„Hvað ert þú að gera hingað?“ segir maðurinn, hér er ekkert
rusl.
„Nú“, segir hinn, „er hann Þórhallur ekki inni?“
Handlaugar Baðker
Fætur f. do. W.C. skálar & setur.
Fullkomin varahlutaþjónusta.
Glœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Einkaumhoð fyrir ísland:
HANNES ÞORSTEINSSON
lieildv., Hallveigarstíg 10, sími 2-44-55.
BEZT að auglýsa í MORGUNBLAÐINU