Morgunblaðið - 22.09.1968, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 19G8
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltriíi
Fréttastjóri
Auglýsingast j óri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
Askriftargjald kr 120.00
1 lausasölu.
Hf Arvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjöm Guðmundsson.
Bjöm Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
á mánuði innanlands.
Kr. 7.00 eintakið.
ÁRÁSIRNAR
Á DUBCEK
fjinar hatrömmu árásir rúss
** neskra blaða og frétta-
stofa á leiðtoga Tékkósló-
vakíu, sýna svo að ekki verð-
_ur um villzt, að Sovétríkin
ætla sér að láta kné fylgja
kviði í Tékkóslóvakíu. Dag
eftir dag saka málgögn sovét-
stjórnarinnar Tékka um gagn
byltingarstarfsemi og ögran-
ir gegn Sovétríkjunum.
Kvarta málgögn rússneskra
kommúnista undan því hve
seint gangi hjá leiðtogum
Tékkóslóvakíu að koma á
það sem kallað er „eðlilegu
ástandi í landinu.“
En hvað felst í kröfu
Sovétmanna um „eðlilegt
ástand“ í Tékkóslóvakíu?
Um það getur engum bland
azt hugur. Rússar krefjast
þess að allt frelsi sé afnum-
ið í Tékkóslóvakíu. Þeir ætla
sér ekki að þola hvorki rit-
frelsi né fundafrelsi. Slíkt
^frelsi segja þeir að sé and-
stætt sósíalismanum og feli
í sér „gagnbyltingartilraun.”
Ráðgert hafði verið að
nokkrir af helztu leiðtogum
Tékkóslóvakíu færu í heim-
sókn til Moskvu í gær til við-
ræðna við sovétstjórnina. Af
því varð þó ekki og hefur för
inni verið frestað fram í
næstu viku.
Ástæða þessarar frestunar
er vafalaust sú, að málgögn
rússneska kommúnistaflokks
ins hafa síðustu daga haldið
uppi svo ofsalegum árásum á
leiðtoga Tékka, að auðsýnt
.þykir að á fyrirhuguðum
Moskvufundi munu nýjar
kröfur verða bomar fram á
hendur þeim Dubcek og
Svoboda forseta.
Margt bendir nú til þess að
hinar hatrömmu árásir á
Dubcek séu undanfari þess
að Rússar ætli sér að losa
sig við hann úr stjórn tékk-
neska kommúnistaflokksins.
Telja margir að þess muni
ekki langt að bíða að Dubcek
verði neyddur til þess að
segja af sér, eða Sovétmenn
muni jafnvel með einhverj-
um hætti koma honum fyTÍr
kattamef.
Um það þarf ekki að fara
í neinar grafgötur að sovét-
stjórnin ætlar sér að stöðva
alla þróun í frelsisátt í
Tékkóslóvakíu og annars
staðar í leppríkjum sínum.
Til þess að koma því áformi
sínu fram, mun hún einskis
svífast. Fólkið í Sovétríkjun-
um má ekki vita að nokkurs
staðar á áhrifasvæði kommún
ista þrífist frelsi og almenn
mannréttindi með eðlilegum
hætti. Það væri upphafið að
lokaósigri hins kommúniska
skipulags. Þess vegna verður
þrælakistan að verða harð-
læst.
Þessa hörmung verður
hinn frjálsi heimur að horfa
upp á, án þess að geta að gert.
En sá tími mun koma að
harðstjórunum verður steypt
af stóli. Sagan mun endur-
taka sig. Byltingin etur börn-
in sín, og nýr tími frelsis og
mannréttinda mun renna
upp.
JÓN
STEFÁNSSON
að er mikill listaviðburður,
þegar Bandalag ísl. lista-
manna og Félag ísl. mynd-
listarmanna gangast fyrir
sýningu á verkum Jóns Stef-
ánssonar listmálara. Jón
Stefánsson var dásamlegur
maður, bæði sem persónu-
leiki og listamaður. Hann
málaði dýrðleg málverk,
beitti sjálfan sig hörðum
sjálfsaga, en kom alls staðar
fram sem göfugmenni og
sannur heimsborgari. Hann
var einn af brautryðjendun-
um á sviði íslenzkrar mynd-
listar, fór ungur út í heim til
þess að læra, kynntist meist-
urum málaralistarinnar í Ev-
rópu og kom heim með hress-
andi gust frá höfuðborgum
listanna.
Þeir Jón Stefánsson, Kjar-
val og Ásgrímur eru oft
nefndir í sömu andrá. Þessir
þrír meistarar, sem voru um
marga hluti ólíkir, lögðu í
raun og veru grundvöll að ís-
lenzkri málaralist. Þeir höfðu
stórkostleg áhrif á íslenzkt
listalíf. Enda þótt þeir væru
allra manna þjóðlegastir í
list sinni, komu þeir þó með
hina stóni veröld listarinnar
heim til íslands.
Verk Jóns Stefánssonar eru
nú sýnd í úthverfi höfuðborg
arinnar. En enginn, sem ann
góðri list hefur efni á því að
láta undan fallast að sjá
þessa sýningu. Þar eru að
vísu aðeins fá verka hans.
En þessi verk bera ótvíræð-
an vott snilldar þessa ramm-
íslenzka heimsborgara og
meistara.
flPiAl 11' r a ii ii n i
fmj U 1AIM U IK 1 UEI Ml
Tékkar gerð stungið udd u það s á í Jú enn crncl égh avíu afði
uiiiiimu upp — segir Milovan Djilas persónuleg uppreisn fyrir yð- ur að sjá svo margar af hug-
MILOVAN DJILAS, hinn
kunni júgóslavneski rithöf-
undur, mun heimsækja Bret-
land nú í næsta mánuði <>S
siðan fara til Bandaríkjanna.
Þetta verður fyrsta ferðalag
hans til útlanda, frá því að
hann var látinn Iaus úr fang-
elsi „til reynslu" í desember
í fyrra. Þá hafði hann afplán-
að næstum fimm af níu ára
fangelsisvist, sem hann var
dæmdur í, eftir að frjálslynd-
ar skoðanir hans urðu til þess,
að deilur risu upp milli hans
og Tito forseta, sem áður
hafði verið náinn vinur hans.
Djilas, sem var eitt sinn vara-
forseti Júgóslavíu, hefur senni
lega gert meira en nokkur
annar til þess að svipta hul-
unni af sovézkum kommún-
isma og heimsveldisstefnu
með bókum sínum, en þeirra
á meðal eru „Hin nýja stétt“
og „Samtöl við Stalin“. Fyrr-
nefnda bókin hefur komið út
á íslenzku, eins og kunnugt er.
f viðtali fyrir skömmu lýsti
Djilas skoðunum sínum á inn-
rásinni í Tékkóslóvakíu og
þeirri þróun, sem orðið hefur
þar í landi á þessu ári. Þar
komst Djilas m. a. svo að
orði, að Alexander Dubcek og
stuðningsmenn hans hefðu
reynt að koma í framkvæmd
nákvæmlega samskonar hug-
myndum og hann hefði sjálf-
ur barizt fyrir í Júgóslavíu.
Djilas var fyrst spurður að
því, 'hvort ÍTVnrásin í Tékkó-
slóvakíu hefði ekki komið
honum á óvart.
— Nei svaraði hann. — Ég
bjóst ekki við því, að Rússar
myndu leyfa Tékkóslóvökum
að framkvæma endiurbætur
sínaT. En í stuttan tíma, eftir
að fundirnir í Cierna og
Bratislava höfðu farið fram,
hélt ég, að frjólslyndari öfl
í Moskvu hefðu orðið ofan á
og að komið yrði í veg fyrir
það versta. En við, sem vilj-
um vera heiðarlegir, verðum
alltaf blekktir. f síðustu heim-
styrjöld trúði ég því ekki, að
Þjóðverjar myrtu á kerfis-
bundinn 'hátt Gyðinga og
fleira fólk.
En hvað taka Rússar nú til
bragðs?
— Sú spurning veldur mér
miklum áhyggjum, því að ég
tel, að þeir muni reyna að
grafa undan stjórnarvöldun-
um í Rúmeníu. Ef til vill eiga
þeir eftir að gera innrás í það
land, enda þótt það virðist
ekki líklegt eins og sakir
Milovan Djilas
standa. U'ndir öllum kringum-
stæðum eiga þeir eftir að
beita Rúmena miklum þving-
unum. Ég fæ ekki séð, á
hvern hátt Rúmenar geti stað-
izt þvinganir Rússa, ef þeir
beita þeim af öllum mætti.
Og hvað gerist svo?
— Síðan munu þeir ein-
beita sér að því að þvinga
Júgóslavíu. Þeir eru iðnir og
vinna að markmiðum sínum
í áföngum.
Gerið þér ráð fyrir, að
Júgóslavía verði þess megnug,
að standast slíkar þvinganir
af hálfu Sovétrikjanna?
— Það gætu komið upp
mörg vandamál á meðal okk-
ar. Hér er fyrir hendi visst
áhugaleysi á stjórnmálum og
'hér eru öflugir þjóðernislegir
minnihlutar. Rússar munu
vafaiaust reyna að hagnýta
sér þá, og ef það kæmi
til raunverulegrar innrásar,
kynniu þeir að finna nokkra
kvislinga. En það er bjarg-
föst sannfæring mín, að eng-
in júgóslavneskur stjórnmála-
maður, sem einhvers má sín,
muni snúast á band með
Rússum.
SAMMÁLA DUBCEK
Það hlýtur að hafa verið
myndum yðar framkvæmdar
í Tékkóslóvakíu, áður en
Sovétríkin bundu enda á
frjálsræðisþróunina þar.
— Já, Dubcek og félagar
hans hafa reynt að fram-
kvæma nákvæmlega það sama
og ég eitt sinn bar sjálfur
fram tillögur um, að gert yrði
í Júgóslavíu. Hugmyndafræði-
lega séð 'hef ég verið algjör-
lega sammála endurbótasinn-
unum í Tékkóslóvakíu. Það
mikilvægasta var, að þeir
höfðu gert kommúnistaflokk
sinn frjálslyndan og lýðræð-
issinnaðan. í þessu felst hin
raunverulega frávikning frá
rétttrúnaðarkommúnisma.
Kom það yður ekki á óvart,
að Tékkóslóvakar snerust ekki
til varnar gegn innrás Sovét-
ríkjanna?
— Ég varð ekki hissa. Hvað
hefðu Tékkóslóvakar getað
gert? En ég segi samt: ég
myndi hafa barizt, hefði ég
verið í þeirra sporum, ekki
vegna þess að ég hefði fengið
einhverju framgengt á þann
hátt, heldur sökum þess, að
ég er þannig gerður. Þannig
eru flestir Júgóslavar.
Hvaða áhrif mun árás Rússa
hafa á sósíalismann í heirnin-
um?
— Margir tala nú um það
högg gegn sósíalismanum, sem
Rússar eiga að hafa greitt.
Það kann að vera nokkuð til
í því. Það sem hins vegar
yfirskyggir allt annað, er sú
staðreynd, að lítil þjóð hefur
verið kúguð til þess að
lúta stórrússneskri heims-
veldisstefnu. Ný stefna emb-
ættismannakerfis notar eins
og sníkjudýr hugmyndafræði
kommúnismans í því skyni
að fela gamlar rússneskar (
heimsveldistilhneigingar. En
þegar allt kemur til alls er
ekki unnt að brjóta frelsis-
hugmyndir á bak aftur með
skriðdrekum.
Djilas var loks spurður að
hvort leiðtogar Júgóslavíu
hefðu leitað álits hans eftir
að 'hættuástandið skapaðist og
svaraði hann þannig:
— Nei, enginn kemur til
mín. Mér er haldið í fullkom-
inni pólitískri einangrun. Mér
er ekki heimilt að koma með
neinar póltískar yfirlýsingar,
sem skýrt er frá opinberlega
í Júgóslavíu.
FÖLVI
HAUSTSINS
ægum og öruggum skref-
um færist hinn bleiki
fölvi haustsins yfir landið,
þrátt fyrir blíðviðrið undan-
farna daga er sumarið á för-
um. Farfuglarnir eru flestir
farnir. Sumir þeirra hinkra
þó við, eins og þeir vilji
treina sér dvölina norður við
yzta haf. Lyngbrekkan skart-
ar sínu fegursta skrúði og
litadýrð náttúrunnar vefur
Fjallkonunni möttul, sem er
öllum tízkuklæðum fegurri.
Þjóðin kveður sumarið
með trega. Það hefur verið
mikill annatími, sem jafn-
framt hefur borið í skauti sér
margvíslega erfiðleika. Sum-
ir þeirra hafa verið sigraðir,
aðrir ekki.
En haustið hefur einnig
sína sérstæðu töfra. Megin-
máli skiptir að þjóðin gangi
hugrökk fram móti nýjum
árstíma, nýjum viðfangsefn-
um, í staðfastri trú á land
sitt og möguleika þess.
Hjartaþegi
látinn
Madrid, 19. sept. — AP —
JUAN Rodriguez GriUie, fyrsti
hjartaþegi Spánar, lézt skömmu
fyrir hádegi í dag. Grille var 44
ára, og var skipt um hjarta í
honum í gær. Yfirlæknir við
skurðaðgerðina var markgreifinn
af Villaverde, tengdasonur
Francos einvalds, og er sagt að
aðgerðin sjálf hafi tekizt vel.
Hins vegar störfuðu nýrun ekki
rétt eftir aðgerðina, og lézt
Grille af eitrun frá nýrunum.