Morgunblaðið - 22.09.1968, Blaðsíða 32
HSKUR.
Suðurlandsbraut 14 — Sími 3S550
SUNNUDAGUR 22. SEPTEMEBER 1968
U> fiH!
17700
Eitt simtal og þér
eruð tryggður
ALMENNAR
TRYGGINGAR “
Kaupa sild en líta
sviðin hornauga
FERÐASKRIFSTOFA ríkisins
hóf um sl. áramót aS selja ís-
lenzkan mat í verzlun sinni á
Keflavíkurflugvelli. Hefur salan
gengið nokkuð vel, aS því er Þor-
leifur Þórðarson, forstjóri Ferða
skrifstofu ríkisins, tjáði Morgun
, blaðinu í gaer, en aðallega er
hér um kynningarstarfsemi að
ræða. Mest kaupa útlendingarn-
ir af síld, en sviðin vekja litla
hrifningu þeirra.
Sem stendur býður verzlunin
eingöngu upp á niðursoðinn mat
svið, rækjur, kavíar, kæfu og
síld alls konar, en einnig var
hafin sala á harðfiski og ostum,
sem lagðist svo niður. Þá hefur
verzlunin íslenzkt sælgæti einn-
ig á borðstólum og hefur tals-
verð sala verið í því.
í undirbúningi er nú bækling-
ur um íslenzkan mat, sem Ferða
skrifstofa ríkisins hyggst láta
liggja frammi í verzlun sinni á
Keflavíkurflugvelli. Þorleifur
sagði, að í athugun væri að auka
vöruúrvalið í matardeild verzl-
unarinnar og nefndi sem dæmi,
að aftur yrði hafin sala á ost-
um og sú hugmynd hefur komið
fram, að selja þarna skyr í ein-
hverjum hentugum umbúðum.
Maturinn er seldur við sama
verði og í verzlunum í Reykja-
vík.
10 skip með afla
1 SÍLDARFRÉTTUM LÍÚ í gær
segir: Hagstætt veður var á síld-
armiðunum sl. sólarhring og
voru skipin að veiðum á 71° og
10 mín n.br. og milli 1° og 20
m. vestur lengdar.
grun-
aðir - hand-
teknir
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
handtók þrjá menn í fyrrinótt.
Tveir þeirra eru grunaðir um að
hafa farið í bát í höfninni í fyrra
kvöld, en þaðan var stolið út-
varpstæki, rakvél og matvælum,
og sá þriðji liggur undir grun
vegna áfengisþjófnaðarins í Sig-
túni aðfaranótt föstudags. f gær
morgun fann rannsóknarlögregl-
an 24 flöskur af áfengi og er nú
verið að kanna, hvort þar geti
verið um vínið úr Sigtúni að
ræða.
Yfirheyrslur yfir mönnunum
stóðu enn yfir, þegar blaðið fór
í prentun í gær.
Kunnugt var um afla 10 skipa,
samtals 835 lestir.
lestir
Amfirðingur RE 40
ísleifur IV VE 20
Sóley ÍS 20
Öm RE 240
Brettingur NS 15
Helga RE 60
Sigurbjörg ÓF 190
Vörður ÞH 50
FífíII GK 100
Guðbjörg ÍS 100
Sýningu d verkum Jóns Stefdnssonur lýkur í kvöld
YFIRLITSSÝNINGUNNI á verk
um Jóns Stefánssonar í sýning-
arsal Húsgagnaverzl. Reykjavík-
ur, Brautarholti 2, lýkur kl.
22:00 í kvöld. Aðsókn að sýn-
ingunni hefur verið góð, en hún
er haldin í tilefni 40 ára afmæl-
is Bandalags ísl. listamanna.
Málverkin á sýninguhni eru
32 talsins, frá ýmsum tímum á
ferli listamannsins og voru feng-
in að láni hjá Listasafni íslands,
Listasafni Alþýðusambands fs-
lands, Ragnari Jónssyni í Smára
og Bryndísi Jónsdóttur, dóttux
listamannsins.
Þetta er fyrsta sýningin í nýj-
um sal Húsgagnaverzl'unar
Reykjavíkur og tjáði Óskar Guð
mundsson, eigandi verzlunar-
innar, Mbl. í gær, að ætlunin
væri að halda þarna málverka-
sýningar ööru hverju í framtíð-
inni.
Búrfellsvirkjun veröur nú nær samfelld
Siiisíum vinnsla í smáum stíl í fyrstu
— Viðtal við Eirík Briem, fram
kvœmdastjóra Landsvirkjunar
ÁFORMAÐ er nú að flýta
seinni áfanga álverksmiðjunnar
í Straumsvík og þarf þá jafn-
framt að flýta seinni áfanga
Búrfellsvirkjunar, en í honum
er áætluð niðursetning þriggja
nýrra véla og miðlunarvirkjun
við Þórisvatn. Eiríkur Briem,
framkvæmdastjóri Landsvirkjun
ar, er nýkominn heim frá Sviss.
Fengum við hjá honum skýring-
ar á hvað þetta táknar varðandi
Islendingar með á heims-
sýningunni í Japan 1970
Þegar byrjað að byggja þar IMorðurlandaskála
ÍSLENDINGAR munu taka þátt
í hinni miklu heimssýningu, sem
nú er í undirbúningi í Osaka í
Japan árið 1970. Buðu Norður-
löndin, scm fyrir löngu ákváðu
þátttöku sameiginlega, íslend-
ingum að slást í hópinn með ein-
staklega góðum kjörum. Er þeim
ætlað að greiða aðeins 50 þúsund
sænskar krónur eða ríflega 600
þúsund kr. En ætlunin er að
ýmis fyrirtæki beri hluta af
þeim kostnaði. Er það aðeins
hluti af kostnaði við Norður-
landaþátttökuna.
Norðurlönd komu í fyrsta
skipti fram sameiginlega og í
einum sýningarskála á heims-
sýningunni í Montreal á sl. ári.
Varð Norðurlandaskálinn einn
af mest sóttu skálunum þar með
7% millj. gesta og hlaut góða
dóma vestanhafs. Töldu þeir, sem
að sýningunum stóðu á Norður-
löndum, að svo mikið hagræði
og sparnaður væri því samfara
fyrir þjóðirnar að koma þannig
fram saman, að strax ákváðu
Danmörk, Noregur og Svíþjóð
að vera saman í Osaka og seinna
bættist Finnland í hópinn. Og nú
hefur verið ákveðið að fsland
verðj einnig með.
Fr ákveðið að draga eins mik-
io úr kostnaði við sýningarskál-
ann í Osaka og fært þykir. Og
verður þar einn framkvæmda-
stjóri fyrir alla, en það er Svíi.
Munu allar þjóðirnar sýna sam-
eiginlega í einum sal og stór
hluti hússins verður notaður fyr-
ir norrænt veitingahús, þar sem
kynnt verða matvæli frá öllum
löndunum fimm. Mun veitinga-
stofnunin SAS Oatering reka
veitingahúsið eins og í Montreal.
Norðurlandaskálinn hefur þeg-
ar verið teiknaður og byrjað að
byggja hann. En Norðurlanda-
þjóðirnar spöruðu éinmitt mikið
fé í Montreal á því að byggja
skálann svo snemma, að eftir-
spurnar eftir vinnukrafti og
hækkaðs kostnaðar gætti ekki.
Heimssýningin 1 Osaka 1970
hefst um vorið og stendur í sex
mánuði, eins og gert er ráð fyrir
í lögum alþjóðasamtaka heims-
sýninga, sem veita leyfi til „1.
flokks sýninga".
Búrfellsvirkjun, en seinni áfang-
an kvað hann miklu minna verk-
efni en núverandj mannvirkja-
framkvæmdir.
Einnig hefur Eiríkur rætt í
Japan við fyrirtækið Showa
Denko um hugsanlega sölu raf-
magns til orkufreks iðnaðar, er
það fyrirtæki hefur með höndum.
Kvað hann mál það alveg á
frumstigi, en hinir japönsku að-
ilar virtust þó hafa mestan hug á
frekar lítilli byrjun á silisíum-
vinnslu, sem t. d. Laxárvirkjun
gæti annað, með hugsanlegu
framhaldi í Dettifossi síðar.
Fyrst spurðum við Eirík hvaða
framkvæmdir það væru við Búr-
fellsvirkjun sem nú væri flýtt og
hvernig: — Fyrrj áætlanir mið-
uðu við að þrjár viðbótarvélax
yrðu settar niður í virkjunina
smám saman til að fullgera 'hana
á árunum 1971—75. Nú er ráð-
gert, að þær verði allar settar
niður í einu árin 1971—1972,
sagði Eiríkur. Og nú verður
vatnsmiðlun úr Þörisvatni fram-
kvæmd á árunum 1971—1972 í
stað 1972—1973. Meðalrennsli
Þjórsár við Búrfell er 340 kúbik-
metrar á sekúndu. En þar sem
fyrsti áfangi tekur aðeins 110
kúbikmetra, er reiknað með að
hann geti starfað án miðlunar.
Þegar nú virkjuinin verður tvö-
földuð og notar þar með 220
kúbikmetra á sekúndu, þá er
nauðsynlegt að fá miðlun, því
rennsli fer alloft undir þessa 220
kúbikmetra. Miðlun er þannig
hugsuð, að tekinn er skurður eða
jarðgöng úr suðurenda Þóris-
vatns hjá Vatnsfelli og vatninu
þannig veitt niður í Tungnaá
austan við Sigöldiu hjá Tungna-
árkróki. Áætlað er að þessi veita
kosti um 100 millj. kr.
— Hvaða áhrif hefur þetta á
vinnu við Búrfell?
— Vinna við Búrfell verður
nú því sem næst samhangandi þó
að miðlun, niðursetning viðbótar-
Framhald & bls. 31
Góð aðsókn að hót-
elinu í Hornafirði
„Aðsókn að hótelinu hefur ver
ið góð í sumar.“ sagði Árni Stef
ánsson, hótelstjóri í Höfn í
Hornafirði, þegar Morgunblaðið
spurði hann frétta. „í júlímán-
uði var herbergjanýtingin rúm
78prs. og 69prs. í ágúst. Er þetta
nokkur aukning frá því í fjrrra.
Flestir gestimir í sumar hafa
verið útlendingar, en nú er ferða
tími þeirra á enda og 'liggja eng
ar pantanir á herbergjum hér fyr
ir. Við getum hýst alls 38 gesti
í 20 herbergjum."
1 sumar voru haldnar tvær
ráðstefnur í húsakynnum hótels
ins í Höfn. Ferðamálaráðstefna
og fundur
bankastjóra.
norrænna Seðla-