Morgunblaðið - 29.09.1968, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. SEPT. 1968
3
Sr. Bjarni Sigurðsson, Mosfelli:
Grunur ævintýrisins
Neðar við götuna hafa verið veik-
indi. Þetta er lítil fjölskylda, en ekkj-
an hefir brotizt áfram með drenginn
sinn ein og óstudd, mesti efnispiltur
og móðirin siðlát og hefir hélgað sig
uppeldi hans, engu öðru. Hann hefir
líka staðið sig vel, bæði í skóla og í
vinnu hjá öðrum. Hann fór að létta
undir með henni mömmu sinni undir eins
og honum óx fiskur um hrygg, mesti
prýðispiltur og samvizkusamur var
hann. Það hafa verið veikindi þar að
undanförnu, basl og veikindastríð. Og
nú er hann dáinn, einkasonur móður
sinnar.
Við höfum svo sem ekki haft neitt
saman við þau að sælda, en það hefir
ekki verið hægt annað- en að fylgjast
með þeim. Þau hafa búið þarna, síðan
við fluttumst í götuna, og okkur þótti
vænt um, að þeim vegnaði vel.
Áreiðanlega hafa nágrannarnir verið
hjálp'legir á meðan hann lá sjúkur. Við
höfum meira að segja orðið vör við, að
þeir hafi heimsótt mæðginin og lagt sig
í líma að færa þeim það, sem helzt
mátti búast við, að pilturinn gæti nærzt
á. Og margs konar hollráð hafa verið
veitt.
En hvað hefir guð gjört fyrir konuna
hérna neðar í götunni annað en senda
henni góða nágranna, nú þegar sonur
hennar er horfinn og sorgin grúfir yfir
heimili hennar? Við gætum reynt að
finna svör við þeirri spurningu í dag,
þegar lífið í náttúrunni fjarar út í blíð-
viðri kyrrlátra haustdægra.
Við skulum skyggnast í texta þessa
drottins dags, sem fjallar um son ekkj-
unnar í Kain, konuna sem missti dreng-
inn sinn í blóma lífsins. Og þegar Krist-
ur sá hana, kenndi hann í brjósti um
hana, „og hann gaf móður hans hann“
aftur. En við erum á varðbergi og segj-
umst ekki láta tvö þúsund ára sögn
glepja okkur sýn.
Það er rétt, að Kristur umgengst okk
ur ekki lengur með sama hætti og fyrr-
um á jarðvistardögunum. En trúar-
brögðin, sem kristin kirkja er sprottin
upp úr, rengir ekki frásagnir ritningar-
innar um máttarverk hans. Og ef þú
hefir fylgzt með ástvinamissi fyrr en
nú, að drengurinn neðar í götunni féll
frá, þá hefirðu líka nokkuð af því lært.
Þú hefir kynnzt því, hvernig þeir, er
sjá ástvinum á bak, risa upp úr smæð
sinni, þegar sorgin kveður dyra. Þú hef-
ir séð, hvernig þeim óx ásmegin, hvern-
ig hversdagslegir hlutir hættu a'ð
skyggja fyrir sjón þeirra, hvernig trú
þeirra hefir lyft þeim þangað, sem þú
treystist ekki sjálfur til að komast af
eiginn rammleik.
Og ef þú hefir hugsað þig um og lagt
fyrir þig spurningar, hlýtur þig að hafa
rennt grun í, hvað hafi gjörzt. Kyrr-
látur strengur harmsins hefir andað til
þín svarinu: Ég finn aftur andans fögru
dyr — og engla þá, sem barn ég þekkti
fyrr. Kristur hefir aftur verið á ferð, og
hann hefir gefið syrgjandanum ástvin
inn aftur, nú með varanlegum og ó-
hverfulum hætti. Hann hefir veitt ó-
dauðleikaþránni skýlaust svar.
Við gröfina opnast einatt útsýn til
margra átta. Við biðjum um hamingju
og óttumst sorgina. Það eru eðlileg við-
brögð lífsins. En sorgin veitir sálunmi
oft meiri gjafir en hamingjan. Og sá,
sem er burtu kallaður, er nokkru fyrr
á ferð en við, innsti veruleikurinn lýkst
fyrr upp fyrir honum en okkur.
Við erum hreykin af þjóðsögunum
okkar. Mörg eru ævintýri þeirra inn-
blásin af sjáendum kynslóðanna í þús-
und ár. Og grunur ævintýrsins er ein-
att að rætast í fullkomnum veruleik með
undursamlegum hætti. Engin þrá mann-
kynsins vex heldur út í tómið fremur
en sannleikur ævintýrsins, heldur er
hún vísbending um undur, sem við höf-
um ekki skilning á að koma orðum að
né hugsa öðru vísi en í táknum. — Og
hann gaf móður hans hann aftur.
BÚNAÐARBANKINN
fr banki fólltslns
ÓTTAR YNGVASON
héraSsdómslögmaSur
M ALFLUTNINGSSKRIFSTOFA
BUÖNDUHþíÐ 1 • SÍMI 21296
Sheaffers
er einstakur
Einstakur að öllu útlit.
og gerð. Til dæmis SHEA-
FFER Imperial VIII penn-
inn með hinum sérkenni-
lega 14K gulloddi og gull-
húðaðri hettu. Er nokkuð
gfæsilegra?
Auk þess veitir SHEA-
FFER Imperial VIII yður
einstaka ritmýkt og er ein-
staklega eigulegur penni.
SHEAFFER Imperial VIII
penninn fæst í næstu rit-
fangaverzlun. Einnig sam-
stæðir kúlupennar og blý-
antar.
SHEAFFER
SHEAFFER’S umboðið
Egill Guttormsson
Vonarstrætj 4. S. 14189.
Sendisveinn ósknst
nú þegar. Þarf að hafa skellinöðru.
Upplýsingar á skrifstofu okkar Ármúla 8.
NATHAN & OLSEN H.F.
Ungur maður
óskar eftir góðri atvinnu, hefur bílpróf.
Tilboð óskast sent Morgunblaðinu merkt: „2215“.
Hið vinsæla
Pingouin-Clussic-Crylor
prjónagarn komið aftur.
VERZLUNIN HOF,
Hafnarstræti 7, Reykjavík.
„Stúdentspróf“
Duglegur einkaritari óskast til fjölbreyttra skrifstofu-
starfa. Stúdentsmenntun og góð málakunnátta áskilin.
Tilboð merk: „Duglegur einkaritari — 2053“ sendist
afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir n.k. miðvikudagskvöld.
Nýjar íbúðir við Vesturborgina
Erum að fá til sölu 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir s em verið er að hefja byggingu á í Lambastaða-
túni, Tjarnarból 2—10. íbúðirnar verða seldar uppsteyptar, fulfrágengnar að utan og með
tvöföldu verksmiðjugleri í gluggum. Til greina kemur að selja íbúðirnar lengra komnar
(t. d. tilb. undir tréverk). íbúðirnar verða afhentar næsta sumar.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu nni.
Skip og fasfeignir
Austurstræti 18
Sími 2-17-35, eftir lokun 3-63-29.
Kennsla hefst aftur fimmtudaginn 3.
október í Tjarnarbúð, Oddfellowhúsinu,
Vonarsfrœti 10. Innritun og upplýsingar
í síma 83082 milli 1 og 7 daglega.
Kennt í byrjenda- og framhaldsflokkum
4