Morgunblaðið - 29.09.1968, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. SEPT. 1968
skildi ég við hana þar. Flug-
freyjan var einmitt að telja far-
þegana um borð. Hún hugsaði
sig um, andartak. — Kannski
hún hafi tekið það í sig á síð-
ustu atundu, að fara heldur til
Parísar eða eitthvað annað.
Kannski til Majorku. Hún var
þar í fríinu sínu í fyrra og var
álltaf að tala um það.
— Hún flaug hvorki eitt né
annað í dag. Hún fór að eins og
þú: Náði sér í bíl og hvarf svo
í honum.
— Guð minn góður! Ég get
bara ekki hugsað mér, hvert
Ekki er ráö
nema i tima
sé tehið
Mamma, tengdamamma
og amma hekla hespu-
lopateppi í jólapakkann.
Þér sparið tíma og pen-
inga með því að hekla
sjálf hin sérstæðu ullar-
teppi úr íslenzkum lopa.
Höfum fyrirliggjandibækl-
inga með miklu úrvali af
mynsturuppskriftum.
Uppskriftir nr. 201 og 202
UMBOÐ UM ALLT LAND
ÁLAFOSS
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2 • SÍMI 12804 • REYKJAVÍK
hún hefur getað ætlað. Varla
hefur hún getað farið í Ramudd
in aftur.
— Nei, það gerði hún ekki.
Ég er búinn að spyrjast fyrir
þar. Mér var sagt, heldur en
ekki kuldalega, að þar væri eng
in ungfrú James.
Jill stóð kyrr í sömu sporum
og nú var allt annað horfið úr
huga hennar. Hún var að velta
því fyrir sér, hvert þessi óvar-
kára Sandra hefði hugsanlega ek
ið.
— Jæja, sagði Oliver, — Dett
ur þér nokkurt ráð í hug? Þú
ert vinstúlka hennar, og ættir
að þekkja hana, ef þá nokkur
gerir það.
Kúldinn í rödd hans kom illa
við Jill. — Ef veslings Sandra
hefur lent í einhverjum vand-
ræðum, þá er það allt þér að
kenna, sagði hún. — Þetta hefði
aldrei orðið hefðirðu hagað þér
almennilega í gærkvöld.
— Nú kom að Oliver að glápa
— Hvað áttu við með því, Jill.
Ég veit ekki annað en ég hafi
komið ful'lkomlega prúðmann-
lega fram við stúlkuna.
— Nei, það gerðirðu bara ekki
andmælti hún. —Þú fórst skamm
arlega með hana. Og það var
ekki rétt, af því að hún er
engin ósiðleg stúlka. En eins og
hún leit út þegar hún kom heim
— óhrein, úfin og rifin. Þú ætt-
ir að skammast þín, Og ef eitt-
hvað hræðlegt kemur fyrir hana
nú, þá. . . .
— Góða Jill! tók hann fram í
Ég fór með Söndru heim í hótel
ið, klukkan stundvíslega korter
yfir tólf. Að vísu eftir miðnætti,
en það var nú aldrei nema stund
arfjórðungur, sem um var að
ræða, og gat ekki gert til eða
frá. Og þá var hún hrein og
snyrtileg og kjóllinn hennar var
svo sannarlega ekki rifinn.
— En hún kom nú bara ekki
heim fyrr en klukkan undir tvö.
Ég vakti eftir henni og stóð
niðri í forsalnum þegar hún kom
og opnaði dyrnar og var bæði
óhrein og full í þokkabót. Ég
er hrædd um, að hún hafi feng-
ið óþarflega mikið kampavín í
spilabankanum.
— Við fengum eitt glas, hvort
okkar. Það var allt og sumt.
Hún var að vísu kát, skal ég
játa, en algjörlega eins og hún
átti að sér þegar við skildum.
— En hvað hefur þá komið
fyrir hana í millitíðinni? Ég
hefði nú átt að spyrja hana um
það, en svo kom hún ungfrú
Gilmore ... Síðan sagði hún hon
um alla söguna. Þegar Jill hafði
lokið máli sínu, kinkaði Oliver
kolli, eins og hann skildi nú allt.
Verzlunin
Lampinn,
Laugavegi 87 auglýsir úrval af alls
konar heimilislömpum bæði í nýtízku,
hefðbundnum og gamaldags stíl s. s.
Ijósakrónur, veggl,, loftljós, borð og
gólflampa.
Úrval af heimilis-raftaékjum hentugt
til tækifærisgjafa: íslenzkir keramik-
lampar (óbreytt verð), G.E. sjálfv.
pönnur, grillofnar, brauðristar, SUN-
BEAM hrærivélar, PHILIPS þeytarar,
rafm.-rakvélar, straujám, RONSON
hárþurrkur, — svo eitthvað sé nefnt.
OSRAM ljósperur, allar gerðir og
stærðir, ýmist óbreytt eða lækkað verð.
Margs konar lampabúnaður.
Vegna hagkvæmra innkaupa fást nú
GENERAL ELECTRIC grillofnar,
pönnur, hárþurrkur, við lækkuðu verði,
— þrátt fyrir síðustu álögur.
LÍTIÐ í LAMPANN.
— Nei, sérðu, þarna hjólar forstjórinn okkar.
— Mig grunaði eitthvað í þá
átt, þegar ég sá þig hérna. Gra-
ham hefur auðvitað ekki spurt
þig neitt nánar, þegar hann réð
þig. Til þess var hann of óþol-
inmóður eftir að útvega okkur
matselju. Ertu viss um, að Sandra
eigi ekki neina kunningja í Líb-
anon, sem hún hefur getað farið
til?
— Já, alveg viss. Hún hefði
sagt mér það, ef svo hefði verið.
En hvað í ósköpunum hefur orð
ið af henni?
— Það veit ég ekki, en ég
ætla mér að komast að því, svar
aði Oliver. — Nú ferðu gegnum
dyrnar þarna fyrir handan, snýrð
svo til vinstri og við endann
á ganginum er matsalurinn, þar
t sem fólk er að koma saman til
I kvöldverðar. Ég sé þig seinna
j Jill.
Hann var farinn áður en Jill
gæti nokkru svarað. Hún fór eft
ir bendingum hans og slóst í hóp
! inn, sem var að setjast að þrem
tannduftið
sem gerir
tóbaks-
litaðar
tennur
HVÍTAR
KRISTJAN JÓHANNESSON. heíldverzlun, Lokastíg
29. SEPTEMBER.
Hrúturinn 20. marz — 19. apríl.
Kirkjufélagið krefst þáttöku þinnar. Áhrif gagngerðra breyt-
inga halda áfram í stærri og minni dráttum. Finndu þér ein-
hverja dærgastyttingu seinna í dag.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Nú verða breytingar hjá þér varðandi vinnu, heHbrigði og
ábyrgð. Vertu viðbúinn, þú kynnir að fá heimsókn langt að.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
Vertu heima í dag. Eyddu deginum rólega. Hugsaðu mikið,
reyndu að finna einhverja lausn til úrbótar á högum þínum.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
f dag skaltu gera upp gamlan misskilning. Brátt verður breyt-
inga á högum þínum, og þú verður að vera búinn að gera
gott úr öllu fyrir þann tíma. Gerðu þér síðan einhvem dagamun.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Þetta getur orðið upplyfting fyrir þig, því að fátt glepur.
Notfærðu þér það.
Meyjan 23. ágúst — 22. september.
í dag skaltu leggja vandamálin á hilluna. Tímamót eru í lífi
þínu, og von nýrra strauma. Margs verður þér til fjár, svo
að þú skalt nota hæfni þína.
Vogin 23. september — 22. október.
Þú ert með hugann við heimilið. Líttu þá í kringum þig, og
gleymdu ekki, hvernig hlutimir eru fengnir. Njóttu þeirra.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember.
Gerðu það sem þú getur fyrir samfélagið í dag. Þú flnnur
fólk, og um leið vandamál, sem þarf að ráða framúr, athyglis-
verðar hugmyndir, og sömuleiðis tómstundagaman.
Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
Þetta er ekkert venjulegur sunnudagur. Þú freistast til að eyða
meiri peningum, en nauðsyn krefur, ef þú gætir þln ekki. Iðk-
aðu íþróttir og bjóddu síðan vinum þínum heim.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
í dag skalt þú fara í reimsókn. Hvað aðrir álíta um þig,
skaltu láta gilda einu að sinni. En rýmilegar áætlanir þínar
bera góðan árangur.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar.
Ofreyndu þig ekki I dag. Þú skalt sinna einhverri góðgerðar-
starfsemi. Þér gefst tækifæri til að gera framtíðarskipulag. Ein-
hvert eirðarleysi verður í þér, sem hrindir þér út í íerðalög.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Prýðilegur dagur til gamaldags skemmtana og þæginda. Not-
færðu þér það. Haltu jafnvægi i eyðsluseminni, þótt erfitt sé.