Morgunblaðið - 27.10.1968, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1968
TÉKKÓSLOVAKIA:
laust, að minnsta kosti fram
til 7. nóvember, en þann dag
hefur verið ákveðið að halda
heimsráðstefnu komúnista-
flokkanna. Þegar þeim áfanga
er náð, og búið að reyta blöð-
in af ætijurtiimi, er komið að
kjarna málsins — Dubcek —
Dubcek á að verða „HJARTAÐ" — en ekki alveg strax hoíum0Pinhanldruna og hruida
BLODÆTIJURTARINNAR
„VIÐ LIFUM nú í angist. Sov-
ézkir hermenn hafa nú í 3
daga hatft auga með J. og L.,
vinum okkar, heima hjá þeim.
Þau geta ekki farið út. Við
tölum um brottflutning, enda
hafa sumir vina okkar horfið,
án þess að við höfum getað
rakið slóð þeirra. Við erum
umkringdir, króaðir. Við get-
um ekkert gert, ekki einu
sinni hugsað. Aðeins reynt,
þótt það verði erfiðara og erf-
iðara að þola.“
Þetta er bréf frá Prag. Eins
og allar aðrar upplýsingar ber
það vott um hið kæfandi and-
rúmsloft, vaxandi skelfingu og
spennu. Sérstaklega eru
menntamennirnir irndir smá-
sjánmi. í síðustu viku sendi
yfirmaður sovéthersins til
dæmis blaðamannasamband-
inu bréf, þar sem svo var kom
ist að orði: „Eftir að herseta
bandalagsherjanna hófst, hafa
fundizt vopn í skrifstofu sam-
bandsins". Því næst kom ná-
fcvæmur listi: svona margir
rifflar, svona margar vélbyss-
ur, svona margar handsprengj
ur. Enn var þjarmað að síð-
asta hópi tékkneskra rithöf-
unda og blaðamanna, sem eft-
ir var í Prag. Á síðasta fundi
voru aðeins 4 samankomnir.
„Okkur sýndist baráttuað-
ferð Sovétríkjanna augljós,“
segja tékkneskir stjórnmála-
menn í laumi.“ Þeir hafa
ákveðið að „éta“ Tékkóslóv-
akíu eins og ætijurt, blað eftir
blað. Og Dubcek á að vera
bezti bitinn, „hjartað“, en
ekki alveg strax.“
GILDRAN
Samt er framvinda mála
hröð, miklu hraðari en menn
höfðu vænzt. Frá því 5. októ-
ber hafa tvær mikilsverðar
íviinanir dregið markalínu,
þar skilst „rotnunin“ frá und-
irokuninni, að minnsta kosti í
orðn kveðnu:
í tilkynningu þeirri er birt
var eftir Moskvuviðræðurnar,
hefur verið látið undan í
tveimu mikilvægum atriðum.
Þar er samþykkit að „sam-
vinnumenn“ komist aftur til
valda. („Flokkur og ríki eiga
að taka upp harðari stefnu,
undir forustu manna, sem
skilyrðislaust aðhyllast grund
vallarreglur Marx-Leninism-
ans og kenninguna um sam-
stöðu öreiga allra landa“) og í
fyrsta skipti er minnzt á „bar
áttuna gegn andsósíalistiskum
öflum“ og hún nánar skýrð,
tveim línum neðar, í kafla,
sem fjallar um blöð og upp-
lýsingaþjónustu. Þessi tilkynn
ing vekur einnig óhug vegna
þess sem ekki er minnzt á í
henni: Það er hvort haldið
verði áfram þeirri pólitísku
umbótastefnu er mörkuð var
í janúar síðastliðnum af tékk-
neska kommúnistaflokknum.
2. Tébkneska hernaðarsendi
nefndin, sem fór til Moskvu,
til að ræða herbúðir og fyrir-
komulag fjölmargra sovézkra
herdeilda við hersetuna í
Tékkóslóvakíu hefur eigin-
lega á vissan hátt með því að
eiga þessar viðræður gert her
setuna löglega. En einmitt
þessu hefur Dzr, hershöfðingi,
varnarmálaráðherra, eindreg-
ið viljað mótmæla, þegar hann
samkvæmt eigin ósk, lét
leggja sig inn á sjúkrahús í
Prag, kvöldið áður en hann
átti að fara til Moskvu.
Enginn vafi leikur á því að
Sovétmenn herða tökin í Prag,
þjarma að Tékkum fastar, en
þó með nokkurri gætni. Vand
inn er að fara sér engu óðs-
lega, spenna bogann til hins
ýtrasta, án þess hann bresti.
Halda áfram að koma á „eðli-
legu ástandi", helzt sársauka-
Eins og nú er komið málum
gera Tékkar sér ekki neinar
tálvonir. Jafnvel þeir, sem
telja að smáatriði skiptf ein-
hverju máli (álíta t. d. að
„andsósíalisti“ sé ekki eins al-
varleg ásökun og „gagnbylt-
ingarsinni" og „að brottflutn-
ingur sé ákjósanlegri en hand
taka fyrir einhverjar sakir“),
vita um hvað átökin í raun
og veru standa. Og menn
velta fyrir sér til hverra ráða
skuli grípa. Margir eru á móti
þessari leynd um saminga.
Það eina, sem opinberlega
hefur verið ræbt um breyting-
ar, og sem áreiðanlega
verður lagt fyrir næsta mið-
stjórnarfund, er breyting,
ekki á stjóninni, en á verka-
skiptingu innan stjórnarinn-
ar, á þann veg að Dubcek
verða gerður að flokksfor-
manni, en Husak taki við emb
Rússar berða stöðugt á skrúflyklinum.
ætti aðalritara kommúnistar
flokksins. Sagt er, að Moskvu
menm vilji þessa breytingu, en
skyldi almenningur í Prag
vilja hana? Og myndu þessi
stöðuskipti, sem væru sýni-
leg tilslökun, vera næg til
þess að sannfæra Moskvu-
menn um að stjórnin hefði
breytzt
VERÐIÐ
Um það eru margir eðlimir
tékkneska kommúnistaflokks-
ins í vafa. Hægt og sígandi
leysist úr læðingi- „hörð“
stefna, sem nýtur stuðnings
unga fólksins, fram.farasinn-
anna og bölsýnismannanna
(„en tékkneskur bölsýnismað-
ur, hvað er nú það? Það er
bjartsýnismaður sem veit
mikið,“ segja þeir). Þessir
menn vilja ekkert hik lengur.
Allt er ákjósanlegra en nú-
verandi ástand. Þessir menn
vilja rjúfa tengslin við Sovét-
ríkin, áður en tékkneskir
leiðtogar stíga örlagasporin í
samningagerð, og sannreyna
hvort Sovétrikin muni beyta
valdi til að koma fram áform-
um sírnum.
Heppilegt tækifæri til þess-
arar tilraunar gæfist þann 28.
október næs'komadi, en það er
fimmtugasti afmælisdagur
tékkneska lýðveldisins ( en
það er án efa ástæðan til þess
að öllum opinberum hátíða-
höldum þann dag hefur verið
aflýst). Þessir menn vilja fá
allan flokkinn með sér í þetta
ævintýri, án þess að skeyta
hót um hvort andúð á Sovét-
rikjunum gæti þróast í and-
úð á kommúnismanum, en það
yrði reiðarslag fyrir Sovétrík-
in. Þessir menn hafa einnig
önnur rök, sem hér fara á
eftir. Þeir segja: ..Sovéska
kvörnin hefur þegar unnið
verk sitt. Afturhaldsöflunum
er smalað og þau endurskipu-
lögð, í sumum héruðum hafa
flokkar verið endurskipulagð-
ir svo og cellur á sumum stöð-
inn. Þess vegna verður nú að
bregða við skjótt og sameina
þjóðina í blóði. Verðið mun
verða hátt, því miður. En það
sem við kaupum því verði er
frelsi okkar."
Josette Alia.
J
Sjónvarpstæki keypt
fyrir frímerki
20 nýjar hjúkrunarkonur
FRtMERKJANEFND Geðvemd-
arfélagsins hefur unnið óeigin-
gjamt starf við söfnun innlendra
sem erlendra frímerkja. Hefur
frímerkjanefndin látið vinna
merkin — með aðstoð öryrkja
og annarxa góðviljaðra aðila —
pakkað merkjunum og síðan selt
þau, og hefur þetta orðið Geð-
vemdarfélaginu allnokkur tekju
stofn.
Fyrir skömmu fær’ði frímerkja
nefndin framkvæmdastjóra fé-
lagsins þrjú sjónvarpstæki af
vönduðustu gerð, og er ætlazt
til, að sjónvarpstækin verði not-
uð í vistmannahúsum þeim, sem
Geðvemdarfélagið er nú að láta
reisa að Reykjalundi, samkvæmt
bygginga- og rekstrarsamningi
við SÍBS.
Þá er enn nokkurt fé, sem safn
azt hefur fyrir ofangreind frí-
merki, á bankabók til ráðstöfun-
ar vegna framkvæmda félagsins.
öllum þeim, sem gefið hafa
Geðvemdarfélaginu notuð frí-
merki, ber að þakka, og má sjá,
að verðmæti merkjanna hefur
vel ráðstafazt.
Þess skal einnig getið, að frí-
merkjasöfnuninni heldur áfram,
og má senda öll notuð frímerki,
íslenzk sem erlend, til félagsins í
pósthólf 1308, ef menn vildu
styrkja þetta framtak.
Geðverndarfélag íslands er
eina félagið innan öryrkjabanda
lags íslands, sem ekki nýtux
neins ákveðins tekjustofns, en
margir hafa hugsað vel til þessa
málefnis — langstærsta öryrkja-
hópinum til heilla.
Menn munu þó væntanlega
minnast þess, að mun betur má
gera, ef duga skal.
(Frá Geðverndarfélagi Islands).
MBL. hefur borizt eftirfarandi
fréttatilkynning frá Sjómanna-
sambandi íslands:
Á síðasta þingi Sjómannasam-
bandsins var gamþykkt að fela
stjórn sambandsins, að boða til
ráðstefnu um hagnýtingu fisk-
veiðilandhelginnar, bætta með-
ferð fiskaflans o.fl.
Ráðstefna þessi var haldin í
Iðnó mánudaginn 21. okt.
Á ráðstefnuna hafði mörgum
aðilum verið boðið að senda full-
trúa og var hún vel sótt. Auk
margra fulltrúa frá hinum al-
mennu sjómannafélgum víðsveg-
FYRIR skömmu voru braut-
skráðar 20 nýjar hjúkrunarkonur
frá Hjúkrunarskóla íslands og
fara nöfn þeirra hér á eftir:
Anna Sigurlaug Stefánsdóttir,
frá Dalvík.
Álfheiður Ölafsdóttir, frá
Reykjavík.
Ásta Bryndís Þorsteinsdóttir,
frá Reykjavík.
Ástríður Karlsdóttir Tynes,
frá Þorlákshöfn.
Systir Bente, frá Hafnarfiiði.
Brynja Guðjónsdóttir, frá
Reykjavík.
Elísabet Erla Kristjánsdóttir,
frá Reykjavík.
Elsa Bjarney Georgsdóttir,
frá Reykjavík.
ar um land voru einnig mættir
fulltrúar frá Farmanna- og fiski-
mannasambandi íslands, Alþýðu
sambandi íslands, Landssam-
bandi ísl. útvegsmanna, Fél. ísl.
botnvörpuskipaeigenda, Sölumið
stöð hraðfrystihúsanna og sjávar
afurðadeildar SÍS. Einnig voru
mættir á ráðstefnunni Jón Jóns-
son fiskifræðingur, forstöðumað-
ur Hafrannsóknarstofnunarinnar,
Már Elisson fiskimálastjóri og
fulltrúi frá Landhelgisgæzlunni.
í byrjun ráðstefnunnar hélt
Jón Jónsson fiskifræðingur fróð-
legt erindi varðandi þessi mál og
urðu miklar umræður að erindi
Gunnþórunn Jónasdóttir, frá
Reykjavík.
Hafdis Adolfsdóttir, frá Hafn-
arfirði.
Helga Þóra Kjartansdóttir, frá
Patreksfirði.
Hrönn Þórðardóttir, frá Vest-
mannaeyjum.
Jóhanna Jóhannesdóttir, frá
Heiðabæ.
Jónína Lilja Guðmundsdóttir,
frá AkranesL
Linda Nína Page Guðmunds-
son, Keflavíkurflugvelli.
Magnea Kristmundsdóttir, frá
Reykjavík. Margrét Ingvarsdóttir, frá
Reykjavík. Sigrún Ingib j artsdóttir, frá
hans loknu. Fundurinn stóð í 5
klst. og að umræðum loknum var
einróma samþykkt það sem hér
fer á eftir:
„Ráðstefna Sjómannasambands
íslands haldin 21. okt. 1968, um
betri hagnýtingu fiskveiðiland-
helginnar samþykkir, að óska eft
ir því við viðkomandi aðila, að
skipuð verði nefnd með þátt-
töku flestra þeirra er hagsmuna
hafa að gæta, varðandi fiskveiðar
og fiskverkun.
Nefndin vinni að því, að
semja reglur varðandi hagnýt-
ingu fiskveiðilandhelginnar og
skiptingu hennar í veiðisvæði
miðað við árstíma og veiðitækni.
Þegar nefndin hefur náð sam-
komulagi um hugmyndir að regl
um í þessu efni, verði kölluð
Akureyri.
Sigrún Jóna Jónsdóttir, frá
Reykjavík.
Þorbjörg Skarphéðinsdóttir,
frá Reykjavík.
Charleston, Illinois, 24. okt.
(AP).
NÍTJÁN ára piltur, Thomaa
Charles Fuller, viðurkenndi fyr
ir rétti í dag að hafa myrt fimm
systkini stúlkunnar, sem neitaði
að giftast honum. Kom játning-
in dómara og kviðdómi algerlega
á óvart.
Fuller var handtekinn 29.
apríl síðastliðinn, tæpum sólar-
hring eftir að komið var að
fimm börnum hjónanna Lydiu
og Williams Cox látnum skammt
frá búgarði fjölskyldunnar.
saman ráðstefna að nýju með
öllum þessum aðilum er málið
varðar sérstaklega og náist þá
samkomulag um ákveðnar sam-
þykktir, verði þær sendar ríkis-
stjórn og Alþingi til frekait at-
hugunar og ákvörðunar“.
Ákveðið var að eftirtaldir að-
ilar tilnefni í nefndina:
Sjómannasamband íslands,
Farmanna- og fiskimannasam-
band íslands, Landssamband ísl.
útvegsmanna, Fél. ísl. botnvörpu
skipaeigenda, Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, Sjávarafurðadeild
SÍS og Sölusamband ísl. fiskfram
leiðenda.
Auk þess var ákveðið að óska
eftir því að fiskimálastjóri og
forstjóri Hafrannsóknarstofnun-
arinnar verði einnig í nefndinni.
NEFND UM BETRI HAGNÝTINGU
FISKVEIÐILANDHELGINNAR -