Morgunblaðið - 09.11.1968, Side 14

Morgunblaðið - 09.11.1968, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1968 JNrtgiiitMftfrffr Útgeíandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstj ómarfu'lltrúi Fréttastjóri Auglýstnggstjóri Ritstjórn og afgréi'ðslg Auglýsingar Askriftargjald kr. 130.00 í lausasölu Hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Sigurður Bjamason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjöm Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Ámi Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Sími 10-100. Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. á mánuði innanlands. Kr. 8.00 eintakið. BLÓMLEGT ATVINNU- LÍF ER BEZTA TR YGGINGIN egar vel áraði, verðlag út- flutningsafurða fór hækk- andi og afli var góður, fannst flestum réttlætanlegt að gera miklar kröfur til bættra lífs- kjara. Auðlegð þeirri, sem at- vinnuvegirnir sköpuðu, var dreift um allt þjóðlífið og landsmenn bjuggu við betri kjör en nokkru sinni áður í sögunni. En því miður var grundvöllur sá, sem þessi góðu lífskjör voru byggð á, of veikur. Þegar hvert áfallið af öðru dundi yfir íslenzkt efnahags- og atvinnulíf kom brátt í ljós, að svo nærri hefði verið gengið atvinnufyrir- tækjunum, að þau gátu ekki staðið undir nýjum byrðum af eigin rammleik. Meginvandinn, sem við fs- lendingar nú stöndum frammi fyrir, er sá, að atvinnurekst- urinn til lands og sjávar er rekinn með miklum halla. Ef ekki verður að gert, hlýtur þetta að leiða til samdráttar, minnkandi framleiðslu og atvinnuleysis. Þess vegna er brýnasta verkefnið nú að treysta atvinnulífið um land allt. Menn verða að gera sér grein fyrir því, að góð lífs- kjör til frambúðar geta að- eins byggst á-því, að atvinnu- vegirnir séu reknir með full- um þrótti; þar verði stöðug- ar framfarir, rekstur eldri fyrirtækja sé bættur og ný stofnuð. Raunar er það svo augljóst mál, að auðlegð þjóðarinnar kemur einungs frá íslenzkum atvinnuvegum, að ekki ætti að þurfa að hafa um þetta mörg orð. Þó er það svo, að til eru þau öfl í þjóðfélaginu, sem reyna að rugla um fyrir mönnum, telja þeim trú um að hægt sé að skella skolla- eyrunum við öllum upplýsing um um slæman hag fyrir- tækja og krefjast tekna, sem hvergi hafa verið myndaðar. Öll þjóðholl öfl þurfa nú að snúa bökum saman til að treysta íslenzka atvinnuvegi. Ef það verður gert, þarf ekki að kvíða framtíðinni. Fram- leiðslan mun þá aukast hröð- um skrefum og á framleiðslu aukningu munu batnandi íífskjör allra byggjast. Ef hins vegar er látið irndir höfuð leggjast að styrkja atvinnu- vegina eða gerðar kröfur á hendur þeim, sem þeir ekki fá undir staðið, hljóta lífs- kjörin að versna. Slíkt gæfu- leysi má ekki henda okkur íslendinga. Það skilja menn raunar betur nú en oftast áð- ur, og þess vegna á heldur ekki að þurfa að óttast, að ís- lenzk alþýða taki ekki með skilningi nauðsynlegum ráð- stöfunum til þess að tryggja grundvallarhagsmuni hennar, atvinnuöryggið og aukna framleiðslu. FJÁRMAGN TIL FYRIRTÆKJA L sama tíma sem íslenzkur ^ almenningur hefur haft meira fé undir höndum en nokkurn tíma áður, hefur gengið mjög erfiðlega að fá áhættufjármagn til íslenzkra atvinnufyrirtækja. Fólk hef- ur fremur viljað verja fé sínu til íbúðakaupa, bifreiða- kaupa og jafnvel beinnar eyðslu en að taka þátt í at- vinnurekstri. Þetta hefur byggzt annars vegar á því, að forustu hefur skort á sviði aJt- vinnulífsins, og hins vegar hafa menn gert sér grein fyr- ir því, að atvinnufyrirtæki skiluðu ekki þeim hagnaði, sem þau eiga að gera. Þvi væri arðvænlegra að verja peningunum til dæmis til fasteignakaupa. Einn meginþröskuldurinn á veginum til uppbyggingar al- menningshlutafélaga er sá, að hér hefur ekki verið starf- rækt kauphöll, en nú mun vera í undirbúningi að korna henni á fót. Um stofnun fyrir- tækja með þátttöku almenn- ings, ræðir Gunnar J. Frið- riksson, formaður Félags ís- lenzkra iðnrekenda í viðtali við Vísi, og segir hann m.a.: „Meðan atvinnufyrirtæki þurfa að byggjast upp á fjár- munum einstaklinga og fjöl- skyldna er lítil von til þess að þau geti náð þeirri stærð sem æskilegt er talið í nútíma þjóðfélagi“. Og síðar segir: „Það má segja, að vanda- mál fjölmargra íslenzkra iðn- fyrirtækja hafi stafað af fjár- magnsskorti fremur en nokkru öðru. Vegna þess hve lítið fjármagn hefur verið til í þjóðfélaginu til uppbygg- ingar atvinnuveganna, hefur féð, sem til er, dreifzt á milli allra og útkoman hefur verið að engir eða fáir hafa fengið nóg. Þetta hefur leitt til þess að fyrirtækin hafa orðið van- fjármögnuð og hafa ekki get- II’ r !i ií n n ri aí i U ÍAN UR HEIMI Myndin er frá Kreml. KREML ER 0RÐIN FERÐAMANNASTAÐUR Stjómmálasaga Rússlands hefur gert það að verkum að nafnið Kremi vekur óhug í brjóstum manna á vesturlönd- um. Hinir miklu þykku múr- veggir hafa falið marga furðu legustu og óhugnanlegustu at- burði sögunnar, þar sem höf- uðpersónumar hafa verið allt frá keisurum miðaldanna til einræðisríki Stalins. Mestu af því sem þar fer fram í dag er einnig haldið leyndu, en þó er búið að opna hluta af þessu gríðarstóra, 15 húsa hverfi, fyrir almenning og ferða- menn. Miklar endurbætur hafa ver ið gerðar á hinum gömlu bygg ingum, sem líklega hafa nú endurheimt sína upphaflegu fegurð. Ferðamenn eru hvatt- ir til að koma í heimsókn og flestir Rússarma, sem búa úti á landsbyggðinni, koma þar við ef þeir heimsækja Maskvu. Gullin hvolfþök Boðunar- dómkirkjunnar og klukkuturn Ivans mikla kasta enn ofbirtu í augu ferðamanna, eins og Napoleons árið 1912. Ef maður reikar um steinlagðar stéttarn ar og slitin þrep hallanna er eins og sögurík fortíð Rúss- lands blasi við. Ómetanlegir minjagripir eru hvarvetna. Rússar, sem heimsækja þennan áður helga stað, reyna oft ekkert til þess áð dylja óttablandna virðingu fyrir gömlu kirkjunum, sem enn standa í hinu nýja Rúss- landi trúleysisins. Á köldu haustkvöldi gengu tvær gaml- ar konur með sjöl yfir höfð- um sér þöglar inn í kirkju erkiengilsins og eins og ósjálf rátt gerðu þær krossmark fyrir sér. „Þetta er bara safn núna“ sagði ung kona, sem var að sýna ferðamannahóp kirkjuna. „Það eru bara örfá gamal- menni sem nú koma hingað af trúarlegum ástæðum". Svo til á hverjum degi má sjá hópa af rússneskum bænd um og verkamönnum heim- sækja þessi söfn, þegar þeir koma í stutta heimsókn til höfuðborgarinnar. Margir gömlu mannanna, skeggjaðir og með óheflaða göngustafi og klæddir einföldum kuflum, ganga þögulir fram og aftur og horfa með forvitni á minja gripi frá byltingu bolsjevikka. Þar er einnig til sýnis stór- kostlegt safn af hestvögnum, fötum og húsbúnaði, sem voru í eigu keisarafjölskyldunnar á 18. og 19. öld. Gamla fólkið vidðist hafa sérstakan áhuga á þessum h'utum. Munurinn á geysilegum auð æfum og glingri gömlu aðals- ættanna og gráum hversdags- leika fólksins í dag sézt vel í þessum gömlu söfnum. Sovézku leiðtogarnir sem hafa skrifstofur í Kreml, eru algerlega aðskildir frá þess- um hópum verkamanna og ferðamanna, sem daglega hrúgast inn í byggingarnar. Öryggisþjónustan er svo ströng að jafnvel leiðsögu- mennirnir fást ekki til að segja í hvaða átt skrifstofur þeirra eru. Það er vitað að skrifstofa Kosygins, forsætis- ráðherra, er aðeins nokkur hundruð metra frá kirkjunum sex innan veggja Kreml. Hann tekur á móti erlendum fyrir- mönnum í viðarklæddri skrif- stofu, þar sem grfðarlegt fund arborð er á miðju gólfi og fjöidinn a'Iur af kortum á veggjunum. Kortin eru að sjálfsögðu hulin sjónum. Sex símar, enginn þeirra eins lit- ur, gera honum kleift að kom- ast strax í samband við undir menn sína og að öllum líkind- uan Leonid Brezhnev, fram- kvæmdastjóra kommúnista- flokksins. Einn gestanna spurði hann nýlega hver væri við hinn endann á rauða sím- anum, en eina svarið sem hann fékk var dauft bros. að fjárfest í tækjabúnaði nema að ganga á eigið rekstr- arfé. Þetta hefur valdið því í fyrsta lagi, að lengri tíma hef ur tekið að fullgera fjárfest- inguna og í öðru lagi, að legri tíma hefur tekið að nýta hana. Peningarnir ,sem fjárfestir eru, eru lengur að skila sér, en ef nægilegt fjármagn hefði verið fyrir hendi. Þessi skortur á fjármagni hefur leitt til þeirrar öfug- þróunar, að hið opinbera er alltaf í síauknum mæli að koma upp atvinnufyrirtækj- um. Ég er þeirrar skoðunar að mjög auðvelt hefði verið að safna fé meðal almennings til að reisa t.d. Sementsverk- smiðjuna". Æ fleiri gera sér nú grein fyrir nauðsyn þess, að átak sé gert til þess að beina fjár- magni almennings inn í at- vinnureksturinn. Erfiðleik- arnir, sem nú er við að etja, eiga að leiða til þess, að leng- ur verði ekki dregið að hrinda þessu mikla hagsmunamáli landsmanna allra í fram- kvæmd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.