Morgunblaðið - 09.11.1968, Síða 28
K.Jónss.&Co stöövast
vegna hráefnisskorts
STAHt SEMI Niðursuðuverk-
smiðju K. Jónssonar & Co hf.
á Akureyri liggur nú niðri vegna
hráefnisskorts. Hjá verksmiðj-
nnni unnu alit upp í 129 manns,
þegar mest var
Kristján Jónsson, forstjóri á
Akureyri, tjáði Morgunblaðinu,
að nú væri mánuður liðinn síð-
an verksmiðjan lauk við hrá-
efnisbirgðir sínar, en síðasta
•verkefnið var a ð sjóða niður
kryddsíld á Kússlandsmarkað.
Engin smásíld hefur veiðzt í
Eyjafirði á þessu sumri og stend-
ur verksmiðjan því uppi hráefn-
islaus. í fyrra veiddist talsvert
af smásild í Eyjafirði í desember
og svo í janúarmánuði sl. sagði
Kristján, að menn hefðu orðið
síldar varir í ^rrðinum nú og von
andi yrði einhver veiði síðar. Ef
ekkert veiðis: þá, mun verk-
smiðjuna skorta hráefni fram á
vorið.
Peter Mohr Dam látinn
Aukinn markaður fyrir útflutningsafurðir
Torshavn, Færeyjum, 8. nóv.
PETER Mohr Dam lögmaður í
Faereyjum andaðist í dag í
Dronning Alexandrines sjúkra-
húsinu í Kaupmannahöfn þar
sem hann hafði legið rúmfastur
undanfarnar sex vikur.
Peter Mohr Dam fæddist í
Skopun á Sandoy 11. ágúst 1898,
og var því sjötugur er hann lézt.
Hann lauk prófi við kennaraskól
ann í Færeyjum árið 1920 og
sótti síðar mörg kennaranám-
Peter Mohr Dam lögmaður
skeið bæði í Noregi og Færeyj-
um.
í fyrstu fylgdi Mohr Dam
sjálfstæðisflokki Færeyja að
málum, en síðar stofnaði hann
jafnaðarmannaflokkinn, og var
formaður þess flokfes til dauða-
dags. Hann átti sæti á Lögþingi
Færeyja frá 1928, en á árunum
1947—57 og 1964—67 átti hann
einnig sæti á danska þjóðþing-
inu. Hann var ekki fylgjandi
sambandsslitum Færeyja og
Danmerkur, en á fundi Norður-
landaráðs í Reykjavík 1965
krafðist hann þess að Færeyjar
fengju sjálfstæða aðild að ráð-
inu, og neitaði að mæta á fund-
um þess í mótmælaskyni vegna
þess að fáni Færeyja blakti ekki
við hún með fánum hinna Norð-
urlandanna.
GÖÐSALA
TOGARINN Neptúnus seldi í
Bremerhaven í fyrradag 134,4
tonn fyrir 164.214 mörk, eða
'17,48 krónur að meðaltali fyr-1
1r kílóið. Fimmtíu og fimmi
tonn af aflanum voru ufsi,.
ýsa 40 og þorskur 25 tonn.
Aflann fékk togarinn á átta
dögum suðaustur af landinu.
Siðdegis i dag leggur Om RE 1 upp i ferð sína á síldarmiðin við austurströnd Bandaríkj-
anna. Þessa mynd tók Ól.K.M. í gær, þegar skipverjar vora að setja nótina niður í lest fyrir
siglinguna yfir hafið. Á bls. 13 í blaðinu í dag em viðtöl við skipstjórann og 1. stýrimann
á Erni um þessa nýja tilraun til sóknar á fjarlæg mið.
Hlout
höfuðmeiðsl
UNGUR maður varð fyrir bíl á
móts við Fríkirkjuna seinit í gær
kvöldi. Hlaut han.n höfuðmeiðsli
og var ftuttur í Slysavarðstof-
una, en læknisrannsókn vair enn
ólokið þegar Morguniblaðið fór í
prentun.
Viðræðufundur
verður í dug
BOÐAÐUR 'hefur verið viðræðu-
fundur fulltrúa stjómmálaflokk-
anna kl. 13.30 í dag.
Djúsnið,
sem hvurf
EINHVER gljáfægðasta eir -/
plata sem getur að líta íj
Reykjavík er horfin. Hennif
var stolið í fyrrinótt og aug-
sýnilega hefur einhver glis-
gjarn náung: girnzt hana, þar ]
sem hún hékk á sendiráðs-
'byggingu Sovétríkjanna.
í gærmorgun, er sendiráðs-
starfsmenn vöknuðu til þessi
að fægj-a plötuna, héldu þeirl
sig dreyma — platan vari
horfin, og hún hafði enn ek'ki |
fundizt í gær. Kannski ein-J
hvern langi til þess að hengjal
'hana upp á hús sitt til skrauts ^
'— því að platan er hin feg-
ursta.
Hertágjald
eyrissölu
í G Æ R var hert á reglum um
gjaldeyrissölur bankanna. Þó er
ekki um stöðvun á gj.aldeyris-
sölu að ræða og er öllum bráð-
nauðsynlegum yfirfærslum sinnt
og gjaldföllnum skuldbindingum
gagnvart útlöndum.
Umrœður um EFT A-umsóknina á þingi í gœr:
— og nýr markaður fyrir íslenzkar iðnaðarvörur
— Verðum að kanna, hvort við getum haft sama hag af
EFTA-samstarfi og aðrar þjóðir
ÞINGSÁLYKTUNARTIL-
LAGA ríkisstjórnarinnar um
aðildarumsókn að EFTA kom
til fyrri umræðu í Samein-
uðu Alþingi í gær og lagði
Bjarni Benediktsson, forsæt-
isráðherra, áherzlu á, að þeir
efnahagsörðugleikar, sem
þjóðin stæði nú frammi fyr-
ir og ákvörðun Breta um
19% toll af freðfiski ýtti frem
ur undir að umsóknin yrði
lögð fram.
Gylfi Þ. Gíslason, við-
skiptamálaráðherra, fylgdi
tillögunni úr hlaði í ýtarlegri
ræðu og rakti meginrökin
fyrir því að ríkisstjórnin tel-
ur nú tímabært að leggja
fram slíka umsókn um aðild
að EFTA. Ráðherrann benti
á að um 40% af heildarvið-
skiptum íslendinga eru við
EFTA-Iöndin og í þessum
löndum má búast við mjög
aukinni eftirspurn á næstu
árum og áratugum eftir ýms-
um helztu útflutningsafurð-
um íslendinga. Ennfremur er
í EFTA-Iöndunum markaður,
sem mun vaxa á komandi ár-
um fyrir iðnaðarvörur, sem
unnt er eða væri í framtíð-
inni hægt að framleiða á ís-
landi til útflutnings, bæði
vegna skilyrða íslendinga til
orkuframleiðslu og hagnýt-
ingu fossaafls og jarðhita og
vegna annarra aðstæðna.
Talsmenn stjórnarandstöðu
flokkanna, Ólafur Jóhannes-
son (F) og Lúðvík Jósepsson
(K) töldu ekki tímabært nú
að leggja fram umsókn, en
báðir töldu þeir að nauðsyn-
legt gæti verið fyrir ísland
að tengjast EFTA með ein-
hverjum hætti. Að umræð-
unni lokinni var tillögunni
vísað til annarrar umræðu
og utanríkismálanefndar og
má búast við að tillagan
verði afgreidd á Alþingi
fljótlega eftir helgina.
Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta-
málaráðherra rakti í upphafi
ræðu sinnar aukna efnahagssam
vinnu Evrópuríkjanna frá stríðs
lokum. Upphaf þeirrar samvinnu
var stofnun Efnahagssamvinnu-
Framhald á bls. 11
j Leitin enn
úrongurslnus
LEITIN í gær að Þráni NK
bar engan árangur. Gengnar
voru fjörur austan og vestan
Markarfljóts og leitað bæði
á sjó og úr lofti með suður-
Íströndinni og út af Hafnar-
bergi og norðvestur.
Ætlunin var að ganga aftur
fiörur í dag.
Fnmann Sigurjónsson.
Banoslys
á sjó
'ÁTJÁN ára piltur, Frímann Sig-
urjónsson, úr Hafnanfirði lézt aif
völdum slyss, sem varð um borð
í Ársæli Sigurðssyni GK 320 þeg
ar báturinn var að veiðum fyrir
suðausturströndinni í gærmorg-
un. Lenti Frímann í spilinu og
hlaut bana af. Ársæll Sigurðs-
son var væntanlegur til Hafnar-
fjarðar um þrjúleytið í nótt.
Móðir Frímanns heitins og
fjögur systkini eru á líii.