Morgunblaðið - 16.01.1969, Qupperneq 1
28 SÍOUR
12. tbl. 56. árg. FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fjórir sovézkir
geimfarar á braut
umhverfis jórðu
Æfa vœntanlega samtengingar geimskipa
til undirbúnings smíði fastrar geimstöðvar
Moskvu, 15. jan. (AP-NTB)
Q SOVÉZKIR vísinda-
menn skutu í morgun á loft
geimfarinu Soyuz 5, og eru
þrír geimfarar um borð í því.
Var geimfarinu skotið frá
Baikonur-geimferðar mið-
stöðinni í Kazakstan í Mið-
Asíu, réttum sólarhring eftir
að Soyus 4 var skotið þaðan,
en um borð í því er einn geim
fari.
0 Bæði geimförin eru á
svipaðri braut umhverfis
jörðu, og er fastlega gert ráð
Bretnr hlynntir
íjórveldnfundi
Frakkar heita
Líbanon stuðningi
gegn ísraelsmönnum
London og París, 15. janúar.
NTB—AP
Bretar munu sennil-ega taka
þátt í hugsanlegum fundi fjór-
veldanna um deilumál Araba og
tsraelsmanna að því er haft var
eftir áreiðanlegum heimildum í
London í dag. Fyrr í dag í-
trekaði upplýsingamálaráðherra
Frakka, að franska stjórnin væri
hlynnt þeirri hugmynd að fjór-
veldin héldu fund með sér um
ástandið fyrir botni Miðjarðar-
hafs.
Framhald á bls. 2
fyrir að reynt verði að tengja
þau saman úti í geimnum.
Síðdegis í dag voru geimför-
in tvö svo nálægt hvort öðru
um tíma, að geimfararnir sáu
hver til annars.
£ Bandarískir sérfræðing-
ar telja að þessar nýju til-
raunir sovézkra vísinda-
Framhald á bls. 12
iÞetta er ein sjónvarpsmyndanna, sem sendar voru frá Soyuz-5 eftir að geimskipið var komið á
braut umhverfis jörðu. Hægra megin á myndinni er Khrunov geimfari, en neðst vinstra megin
sést fararstjórinn, Volynov ofursiti.
25 fórust og 85 særöust
Miklar skemmdir urðu á ,,Enter-
prise", og 15 Jbofur eyöilögðust
Honolulu, 15. janúar NTB
Leitað var í dag í brenndum
flugvélaflökum og íbúðarklef-
um um borð í flugvélamóður-
skipinu „Enterprise“ að sjö
mönnum, sem saknað hafði
verið síðan eldur kviknaði
eftir miklar sprengingar í skip-
inu í gærkvöld. „Enterprise“
sem er knúið kjarnorku er
86.000 lestir og stærsta herskip
heimsins. Fundust sex mananna
heilir á húfi, en eins er enn
saknað.
Flugvélar og þyriur tóku einn
ig þátt í leiltdnni, þar sem óttazt
var að mennirnir hefðu feykzt
fyrir borð vegna sprenging-
anna. Staðfest hefur verið,- að
að mmnsta kosti 25 menn hafi
beðið bana og um 85 særzt þeg-
ar 10 til 12 sprengingar skóku
skipið. Sprengingarnar hófust
skamrnt frá onrustuþotu af gerð-
inni F—4 Phanitom á flugþiljum.
Fimmtán flugvélar eyðilögðust
og stórt gat hefur myndazt á
fluigþyljunum.
Skipherrann, Kent Lee ræddi
við blaðamenn í morgun er skip-
ið kom aftur til Pearl Harbour,
en það hafði verið að æfingun-
um og var statt um 120 km fyrir
suðvestan Oahu þegar slysið
varð. Hann sagði, að sprenging-
in hjá Phantom-þotunni hefði
valdið því að nokkrir eldar
hefðu kviknað á flugþiljunum.
Fyrsta sprengingin varð um 30
metra frá skutnum.
Lee skipherra sagði, að 14 flug
vélar hefðu verið ókomnar úr æf
ingaflugi þegar sprengingarnar
urðu. Flugvélarnar hefðu ekki
Mynd þessi var tekin þegar flug'vélamóðurskipið Enterprise kom til Pearl Harbour í gær. Á þil-
fari sést í brakið af tveimur orustuþotum, sem eyðilögðust í sprengingunum og eldinum um
borð í fyrradag.
reynt að lenda heldur haldið til
flotastöðvar á Oahu. Um 30 flug
vélar voru á þi'lfarinu þegar
sprengingairmar á'ttu sér stað og
15 þeiirra eyðilögðust. Tjón á öðr
um vélum hefur enn ekki verið
kannað til fullnustu.
Þegar eldur kviknaði stýrði
Lee skipherra „Enterprise" upp
í vindinin í von um að hann
mundi blása eldglæringum og
reyk í burtu frá fiugþiljunum.
Hann bar mikið lof á áhöfnina
fyrir hreystilega framgöngu og
sagði að menn hans hefðu kom-
ið í veg fyrir ennþá meira slys.
Hamn sagðist ekki eiga nógu
sterk orð til að lýsa hetjulund
undirmanna sinna.
Fréttaritari frönsku fréttastof
unnar AFP í Honolulu segir
að þota hafi komið inn til
lendingar, missit sprengju á flug
þilfarið og þarrnig valdið slys-
inu. Þessi frásögn kemur ekki
heim við frásögn Lees skip-
herra á „Enterprise", sem sagði
að flugvélarnar sem ókomnar
voru frá æfingunum, hefðu ekki
Framhald á bls. 12
Afi og
1 heimsókn
Frarikfurt, 15. jan. (AP)
FRIÐRIK Danakonungur kom
í daig til Frankfurt í Vestur-
Þýzkalandi til að hieimsækja
Benediktu prinsessu, dóttur
sína, og son hennar, er fædd-
ist á sunnudag. Tók Ingrid
drottning á móti manni sín-
um á járnbrautarstöðimni í
Frarikfurt ásamt tengdasyni
konungshjónanna, Riohard zu
Sayn-Wittgenstein Berleburg
prins. Héldu konungshjónin
strax til hallar tengdasonar-
ins, Sahloss Wolfsgarten, sem
er rétt utan við Frankfurt.
Riohard zu Sayn-Wittgen-
stein-Berleburg skýrði frá þvi
í dag að prinsinum yrði gef-
in nöfnin Gustav Frederik
Philip Richarð.
Anne Marie Grikklands-
drottning, systir Benediktu
prinsessu, er einnig stödd í
Wolfsgarten-höll, en maður
hennar, Konstantin konung-
ur, er í heimsókn hjá frænd-
fólki sínu skammt frá Milnch
en. Er hann væntanlegur síð-
ar til Wolfsgarten.
Johnson hvetur til
þjóðfélagsumbóta
Siðasta yfirlitsræða hans um ástand
rikisins
Washington, 15. janúar AP.
Johnson forseti hélt í gær-
kvöld síðustu ræðu sína um á-
stand og horfur í málum ríkis-
ins og skoraði á báðar deildir
þingsins að taka jákvæða af-
stöðu til stefnu Nixons forseta,
en lialda um leið áfram setn-
íngu laga er miðuðu að þjóðfé-
lagslegum umbótum.
Forsetinn sagði í ræðu sinni,
sem var nokkurs konar kveðja
til þjóðarinnar í lok embættis-
tíma hans, að friðarhorfur í Vi-
etnam hefðu aldrei verið betri
síðan Hanoi-stjórnin hóf send-
ingu herliðs til Suður-Vietnam.
Hann sagði, að þótt þjóðin hefði
aldrei búið við meiri velmegun
biðu mörg vandamál úrlausnar.
Hann nefndi einkum vandamál
stórborganna, kynþáttamisrétti,
Framhald á bls. 27