Morgunblaðið - 16.01.1969, Síða 5

Morgunblaðið - 16.01.1969, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIM-MTUDAGUR 16. JANÚAR 1969 5 r Aríðandi að hver flík sé fullkomin og mark- aðurinn unninn hægt og markvisst Viðtal við Tomas Holton, sem selur mikið magn af ullarvörum í Bandaríkjunum Ungur Bandaríkjamaður hefur í nokkur ár unnið upp markað í Bandaríkjunum fyrir íslenzk- ar ullarvörur, og nú er svo kom ið að hann seldi á sl. ári fyrir 200 þúsund dollara og hefur hug á að tvöfalda söluna á næsta ári, eða meira þar eð hann telur sig vera búinn að koma við- skiptunum á traustan grundvöll. Ekki hefur þetta þó komið af j sjálfu sér. Með ótrúlegri elju : hefur hann unnið markvisst að því að byggja upp þessi við- skipti, hægt og bítandi. Nú tel- ur hann sig kominn vel inn á góðan markað og vera búinn að koma vörunum á íslandi nokk- urn veginn í það form, sem hann getur sætt sig við fyrir sína við- skiptavini. I fjölmörgum stórblöð um vestra sér maður nú texta- auglýsingar um íslenzkar prjóna vörur og gærur, runnar undan hans rifjum, eins og t.d. í Glam our Magasin, Ski Magasin, Ski- ing, New York Times og í þess- um mánuði í Look. Það er því fróðlegt að heyra um reynslu hans og skoðanir á þvi hvern- ig vinna beri upp slíkan markað. Tomas Holton hefur líka fl-eira á prjónunum, sem hann vill lítið ræða um á þessu stigi, eins og að vinna að því að gera ísland að ferðamannastað fyr- ir lúxussportmenn o.fl. En hvern ig fékk hann þá svona mikinn áhuga á því sem íslenzkt er? — Það byrjaði eiginlega fyr- ir 12 árum í Kaliforníu, segir Tomas Holton og hlær við. Það gerðist þannig, að ég hitti í skíðabrautinni inndæla stúlku sem reyndist vera frá Islandi. Þá var ég ldðsforingi í flotan- um. Við komum ti'l íslands 1960 og ég varð ástfanginn af ÍSlandi líka. Og þar sem Tomas Albert Holton er orðinn hálfgerður fs- lendingur, þá er rétt að gera grein fyrir ætt hans og uppruna | eins og títt er hér hjé okkur. i Hann er elzti sonurinn í Holt- onfjölskyldunni, sem hefur ver- ið í Bandaríkjunum síðan 1634. Hún kom frá Englandi og nafn- ið Holton er dregið af nafninu I holt, sá sem býr á holti. Kannski i hafa Víkingamir á sínum tíma skýrt þetta umrædda holt. Ætt- in var fyrst í Massachusetts, en langafi Tomasar flutti til Cali- forníu og varð þekktur skip- stjóri þar. Sjá'lfur á hann blaða úrklippur um gamla manninn, sem bjargaði fjölda manns í sjó- slysi. Við berum öll nöfn, sem gætu verið íslenzk, jafnvel stjúpfaðir minn, sem heitir Ró- j bert Hagan, segir Tomas Albert og hlær. Hann gekk í skóla í Californiu og lauk prófi í j viðskiptafræðum, en vann við ýmis störf með skóla. Þess- I vegna kvaðst hann hafa verið mest hissa á því, er hann gekk í flotann, þar sem hann varð liðsforingi, að hann var settur í verkfræðideildina, og veitti for ! stöðu tö'lvufyrirtæki. — En ég var ekki ánægður með að gera störfin í flotanum að æfistarfi, segir Tomas. Ég sá, að hversu vel sem ég leysti mín störf af hendi þar, þá væri ekki hægt að sjá að þau leiddu til neins góðs á endanum eða væru til gagns fyrir neinn. Þess- vegna var það, er við hjónin komum hér, að ég var að fara úr flotanum og gera upp við mig hvort ég tæki stöðu hjá IBM eða stóru ráðgjafafyrirtæki. Þetta var í marzmánuði 1962. í vestan. Ég var alltaf á ferðinni fram og aftur milli fslands og Bandaríkjanna og milJi staða þar. Við töldum ferðirnar sam- an að gamni okkar í fyrra, og ég veit, að ég er búinn að vera í yfir 100 flugferðum vegna þess ara íslenzku viðskipta undan- farin ár og ferðast yfir millj- ón mílur innan Bandaríkjanna í sömu erindum. Ég álleit áð bezt væri að byggja viðskiptin upp Hvert ríki eða hérað er sér- stakt markaðssvæði, sem lýtur sínum lögmálum. Maður tekur fyrst svæðið til athugunar, þjóð félags'lega og efnahagslega, svo og uppbyggingu þess, og ákveð ur að því loknu hvar og hvern- ig þessar ákveðnu vörur seljist bezt. Ekki er skynsamlegt að selja hverjum sem er, heldur að velja búðir. Ef t.d. er selt til stóru verzlunarhúsanna sem hafa ódýrari vörur, þá er maður að skera sjálfan sig á háls. Þau taka yfirleitt mikið magn af vör unni um skamman tíma, til þess að auglýsa hana og sýna, að i þau hafi hana og draga þannig ára, Róbert 9. ára, Jóhann 5 ára fólk að búðum sínum með ein- hverju nýju. Þau vilja sýnafram á, að fólk geti líka fengið vand aða og sjaldgæfa vöru fyrir gótt verð hjá þeim. En síðan sleppa þau þessari vörutegund aftur fyrir einhverja aðra. En þá snerta dýrari búðirnar ekki lengur við slíkri vöru og við- skiptavinir þeirra ekki heldur, svo verðið er lækkað og salan búin að vera. Maður verður að vinna markaðinn þannig upp frá upphafi, að hann verði eftirsótt gæðavara, en fylgi ekki annar- legum sveiflum. Þessvegna er í okkar tilfelli bezt að selja til toppverzHananna og til sérverzl- ana fyrir þessa tegund af fatn- aði og velja verzlanir ve'l á hverjum stað. Þessar búðir halda svo áfram að verzla við mann, af því þær viita að þær geta treyst manni og þurfa ekki að óttast að opna blað og sjá vör- una niðurboðna í vöruhúsi eða í glugganum á næstu verzlunlíka. Þannig höfum við leitazt við að vinna íslenzku ullarvörunar upp sem fína gæðavöru. Og nú voraum við, að markaður- inn sé orðinn tryggur og við komin með góða samvinnu hér um framleiðsluna, til að geta tryggt það að hafa á boðstólum gallalausa og góða vöru. Það var ekki fyrr en 1966, að ég sá að ö'll þessi vinna, sem í þetta hafði veerið lögð, var farin að bera ávöxt. Að viðskiptin voru að komast á fastan grundvöll og okkur óhætt að treysta á hann og víkka út sviðið. — Sé markaður byggður upp á þennan hátt, felst í honum mikið öryggi. Maður er þá ekki háður einum viðskiptavini og ekki einu sinni 10. Á hverju ári verður óhjákvæmilega eitt- hvert tap, af því einn fer á haus inn, annar ákveður að sleppa Framhald á bls. 17 Tómas Holton, Hanna kona hans og bömin fjögur, Katrín 11 og Tómas 4ra ára. áætlunarbílnum á leiðnni frá Keflavík sá ég kindur á beit og seinna sá ég í minjagripa- búðum ýmsa hluti úr ullinni. Á augabragði varð mér ljóst að þarna lá viðfangsefni, sem mian- aði til átaka. Það spilaði þarna inn í, að við vildum gjarnan geta búið á ís'landi, að ein- hverju leyti að minnsta kosti, fannst það góður staður fyrir börn okkar, sem þá voru tvö. Þannig byrjaði það. — En þetta var bara upphaf- ið eða kveikjan. Og nú hófst margra ára barátta, því bæði verður að vinna markað frá rót- um og eins að fá nógu góða vöru fyrir þann markað, sem maður miðar við. Það mál hefuf margar hliðar og ég veit ekki hvar á að byrja, sagði Tomas Holton. í fyrstu einbeitti ég mér sjálfur að því að vinna markað í Bandaríkjunum. En efltir fyrstu reynsluna sáum við, að mikilvæg ast væri að aðstoða þá, sem framleiddu vöruna til að ná full komnum gæðum og réttum stærð um fyrir Bandaríkjamarkað. Það sem gildir,v er að hver einasti hlutur, sem kemur frá íslandi, sé að öllu leyti fullkom- inn, að á honum finnist enginn ga'lli. Við verðum að ábyrgjast viðskiptavinunum hverja flík, sem þeir fá, og bera á henni ábyrgð. Og eina leiðin til að gera það, er að skoða hvern hluit og láta máta hverja flík, til að vera viss um að enginn galli sé á hluitföllum. Reynslan hefur sýnit, að þegar innflytj- andi með slæma vöru kemur inn á markað á einhverjum stað, þá er markaðurinn fyrir þessa vöru ónýtur í mörg ár. — Við hjónin fiuttum semsagt hiragað 1963, til að byrja á byrj- Þessar myndir birtust í blaði lúxus sportmanna. Eddie Bau- uninni og þróa framleiðsluna er, í Bandaríkjunum, þar sem sagt var frá sportfatnaði úr ís hér, en.á sama tíma varð ég að lenzkri ull. reyna að vinna markaðinn fyrir frá grunni, byrja ekki á því að þjóta í banka og fá lán, áður en öryggi væri fengið fyrir því að rétt væri að farið. Þannig er kannski hægt að rjúka upp með eitthvað skamman tíma, en svo er hætta á að maður koll- sigli sig. Og hvarvetna eru vandamál og erfiðleikar. — Gætirðu ekki sagt okkur hvernig slíkur markaður er imn inn upp? — Já, markaður, hvað er það? Ekki eins og sumir halda, að stór kaupandi kemur og gerir pöntun og svo standa viðskipte- vinirnir í biðröð til að fá að kaupa vöruna. Nei, maður verð- ur að leita eftir viðskiptunum, heimsækja 100 borgir og 1000 viðskiptavini, taka þátt í sýn- ingum og auglýsa. Við erum að- ilar að samtökum, sem skipu- leggja sýniragarþátittöku. T. d. voru íslenzkar deildir frá okkur á fjórum sýningum sl. ár í New York og í ár höfum við ráðgert aðrar fjórar. Auk þess eina í Houston, eina í Chicago, eina í Los Angeles, eina í San Fran- cisco, eina í Denver og eina í Seattle. Þann hátt höfum við mikið á , að taka þátt í aug- lýsingum viðskiptavina okkar, er þeir bjóða íslenzkar vörur. Þá er mikilvægt að komast inn í réttu blöðin með auglýsingar. T.d. er í undirbúningi fyrir okk ur í stórblaðinu Look textaaug- 'lýsing á vörum, sem gerðar eru úr gærum. Við látum búa þær til í New York. Það eru maxipils, minipils, stígvél, lágskór og margt fleira — allt úr gærum. Þetta eru frumleg og skemmti- leg sýnishom, sem Look hefur áhuga á. — Hvernig byrjuðuð þið á því að vinna markaði fyrir þessar vörur? — í Bandaríkjunum er ekki einn markaður fyrir vöruna. v: m 9* m *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.