Morgunblaðið - 16.01.1969, Page 24

Morgunblaðið - 16.01.1969, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1969 leyfði enga töf, og hún gæti ekki dokað nieitt við, svo að hún kallaði á móti: — I>að skal ég gera. Þakka yður kærlega fjrrir. Hún gekk inn í búðina í góðu skapi. Rétt innan við dyrnar sá hún allmarga ítalska stráhatta. Hún fór að máta nokkra þeirra. Þama var einn leirgulur með svörtum borða. Hann liktist mest blómpotti á hvolfi, en liturinn átti við við litarhátt hennar og gerði hana eitthvað nýtízkulegri. í>að var orðið langt síðan hún hafði keypt sér nýjan hatt. En nú var tilefni til þess. Hún lét afgreiðslustúlkuna taka af honum verðmiðann, og setti hann síðan upp aftur. Hún ætlaði að vera roeð hann þegar hún færi að hifta systurina, sem rak skólann í Rixmond. í kaffihúsinu þar sem hún fékk sér samloku og ískaffi hrós aði frammistöðustúlkan battin- um. Hún sá vangasvipinn á sjálfri sér í litla spegilnum á veggnum. Kinnamar voru ofur- lítið rjóðar og augun sýndust dökk og dularfull undir niður- bretta hattbarðinu. Roskinn mað ur, sem sat skammt frá henni sendi henni aðdáunarbros. Hún var enn í hátíðaskapi — betra en lengi undanfarið. Hana langaði til að kaupa eitthvað handa Símoni. í bókabúð einni valdi hún nýja útgáfu af „Golu í sefi“, með upphaflegu myndunum í, og svo eina af uppáhalds kattabókunum hans. Meðan hún beið eftir, að gengið væri frá bókunum, leit hún enn í hillumar, svo að lítið bar á, eftir ítalskri orðabók. Hana langaði til að vita hvað „Arrivederci" þýddi. Líklega eitt 'hvað svipað og „Au revair“. En 'hún hafði einhverja barnalega ’löngun til að sjá orðið á prenti. 3. kafli. í ' Litlu lestarljósin slokknuðu smám saman, eitt og eitt í einu og loks var orðið aldimmt í ká- etunni í flugvélinni. Nú var ekki önnur birta þar en hálf- byrgt ljós frá eldhúsinu, en öðru hverju brá fyrir blossum frá útblæstrinum og þeir gerðu hana órólega. Lísa leit eftir miðganginum á sofandi farþegana. Að undan- teknum einum fæti í buxnaskálm sem skagaði út fyrir sætaröðina bakborðsmegin, var aUt eins og það átti að vera, og blessunar- lega þögult. Fóturinn, hugsaði Lísa, Til- heyrði höfðinglega manninum, sem hafði komið í flugbasti eft- ir brautinni á siðustu stundu. Þetta var stjórnarsendiboði, höfðu þjónarnir sagt henni. Þau flugu nú í fimmtán þús- und feta hæð, í tunglsljósi yfir Miðjarðarhafinu, á leið til Dama akus. Eftir fáar mínútur komi einn þjónninn aftur úr stjóm- arklefanum og þá gæti hún sezt niður stundarkorn og jafnvel kannski fengið sér ofurlítinn lúr. Lísa gekk inn í eldhúsið, neri áburði á hendurnar á sér og los- aið sokkaböndin að aftan, því að þetta nýja magabelti, sem hún var í, var farið að verða of þröngt um mjaðmimar. Þegar hún rétt úr sér og lagaði á sér pilsið læddist Benny aftan að henni og sagði: — Jæja, farðu nú, elskan! Reyndu að fá þér dúr meðan tækifæri býðst. Það er laust sæti aftast. Benny átti sér tvær raddir. Onnur var vönduð, næstum eins og hann væri útvarpsþulur. Hún var notuð við farþegana og var erfið í meðförum, en svo var hin, sem kunningjunum og áhöfn inni var ætluð. Þessi rödd var hans eðlilega rödid, full af Cock ney glettni og einhvernveginn létti öllum, þegar hann skipti yf- ir í hana. Benny var einna líkastur Chap lin, lítill og snyrtilegur, snar- greindur, en gat skammiazt, en svo var hann líka viðkvæmur, ef vinir hans áttu í hlut, en við aðra gat hann verið eitil- harður og tiUitslaus. Lísa tók ábreiðu úr grindinni, vafði henni utan um sig og los- aði sig úr skónum, hallaði sér aftur í sætinu og reyndi að sofna. Hún hafði þreytuverki urrí sig alla, en samt fann hún til ein- hverrar ánægju og spennings og vissi strax, að hún myndi ekki geta sofnað. Eins og venjulega í vinnulokin lét hún hugann reika yfir liðinn dag. Þegar hún var komin til vinnu á stöðinni, leit hún eftir því, sem aðgæta þurfti og sannfærði sjálfa sig um, að hún hefði staðið í stöðu sinni, enn sem komið væri. Þegar þessu var lokið lét hún hugann reika heim í kofann sinn, tH þessara breytilegu daga, áður en þetta nýja líf hennar hófst. — Ætlarðu að taka Suki og kettlingana með þér til London? hafði Símon spurt. Þetta hafði líklega verið erf- iðasta stundin. Þá hafði hún far ið undan í flæmingi, en allt hafði farið furðanlega vel. Með aðstoð fasteignasala hafði henni tekizt að leigja út kofann til eins árs, ungum her- foringja og konu hans. Þegar hann sagði henni hve litlu þau hefðu úr að spila, hafði hún lækkað leiguna, ef þau vUdu hafa frú Johns þrjá morgna á viku og gæta Suki. Til allrar hamingju — en Sím oni samt til nokkurra vonbrigða — hafði Suki ekki eignazt nema Verkamannafélagið DAGSBRÚN TILLÖGUR uppstillinganefndar og trúnaðarráðs um stjórn og aðra trúnaðannenn félagsins fyrir árið 1969. liggja frammi í skrifstofu félagsins fr áog með 16. jan. Öðrum til- lögum ber að skila í skrifstofu Dagsbrúnar fyrir kl. 6 e.h. föstudag. 17. þ.m. þar sem stjórnarkjör á að fara fram 25. og 26. þ.m. Kjörstjórn Dagsbrúnar. 1009 Samkeppni í munsturgerð á lopapeysum Álafoss efnir til samkeppni í nýjum munstrum á lopa- peysum gerðum úr hespulopa. — Samkeppnin er þess efnis að fá á markaðinn nýjar gerðir munstra og jafn- vel önnur og nýstárlegri snið á lopapeysum heldur en það sem tíðkazt hefur undanfarin ár. Keppnisreglur eru ekki aðrar en þær, að tekið verður við öllum flíkum, peysum, jökkum, vestum o. fl. prjónuðum úr hespulopa og tekið verður tiUit til frá- gangs, munsturs og litasamsetningar. Hespulopi er framleiddur í 24 litum. Verðlaun verða veitt sem hér segir: 1. verðlaun Kr. 10.000,00 2. verðlaun — 5.000,00 3.—7. verðlaun — 1.000,00 hver Það skilyrði fylgir verðlaunapeysunum, að Álafoss mun endurgjaldslaust nota munstrin á peysupakkn- ingar úr hespulopa. Dómnefnd skipa eftirtaldir: Haukur Gunnarsson, Rammagerðinni, formaður. Elisabet Waage, Baðstof- unni, Sigrún Stefánsdóttir og Gerður Hjörleifsdóttir, íslenzkum heimilisiðnaði. Keppnin stendur til 1. febrúar n.k. og þarf að koma peysum í Álafoss í Þingholtsstræti 2, og skulu þær vel merktar dulmerki á ísaumað léreftsmerki inn á hálsmáli peysunnar. Bréf í lokuðu umslagi sendist formanni dómnefndar, Hauki Gunnarssyni, Ramma- gerðinni, Reykjavík fyrir 1. febrúar n.k., og skulu þar fylgja munstrur, skýringar og nafn höfundar. ÁLAFOSS H/F. tvo kettlinga. Báðir voru algrá- ir, afskaplega fallegir, eins og móðirin, og margir vildu eiga þá. Lang-ley hjónin áttu að fá annan en konan bréfberans hinn en leigjendurnir samþykktu, að þeir skyldu fá að vera hjá móð- urinni þangað til þeir væru orðn ir sex vikna gamlir. Símon lét sér allt þetta vel líka, því að hann vissi, að hann mundi geta fengið að sjá þá aftur, þegar hann kæmi heim í fríinu sínu. Lísa sendi uppsögn sína til verksmiðjunnar og næstu dagar fóru allir í læknisskoðanir mát anir og annan undirbúning. Tvo klukkutíma á hverjum morgni, var hún á flugstöðinni að læra af yfirflugfreyjunni, sem var þögul kona, eitthvað um þrítugt og var þegar tekin að grána á hár. Jan Langley hafði sagt Lísu, að flugfélögin héldu ströng nám skeið fyrir flugfreyjurnar símar. Hún minntist þess að hafa heyrt sagt frá einni stúlku, sem var látin standa á öðrum fæti í mikl um halla, og halda soðnum eggj- uim á bakka. En námskeið Lísu var ekkert þessu líkt. Yfirflugfreyjan sýndi henni vandlega eldhúsið og það, sem þar þurfti að gera, svo og allan útbúnað þar. En svo kom að innkaupunum og matarbirgðunum. Eftir að hafa fengið kennislu í að segja farþegunum fyrir áð- ur, en flug hófst, var henni sagt að reyna nú sjálfri. Lísa lærði utanbókar venjulega þulu og gekk síðan fram með vélinni, feimin og taugaóstyrk. Yfirflugfreyjan stóð yzt í mið ganginum meðan hin gekk fram- eftir og horfði á hana rétta úr sér upp við hurðina að stjórn- klefanum og snúa sér að hugs- uðum farþegum. Lísa fékk verk í kjálkavöðvama og varð hissa, er hún heyrði sína eigin rödd koma skíra og greinilega. Hún hikaði ekki nema einu sinni. Yf- ir, flugfreyjan lét hana endur- taka þetta einu sinni en hrósaði henni svo. Þetta var miklu vandasamára í viðurvist konunmar en það reyndist nokkurntíma seinna. 16. JANÚAR Hrúturinn 21. marz — 19. apríl Þú sinnir einkamálum svo mikið, að vinnan situr á hakanum og þér hættir til að gera einhverjar vitleysur í staðinn. Reyndu að ná betra jafnvægi í vinnu og skemmtun. Nautið 20. apríl — 20. maí Reyndu að snúa þér af alvöru að jákvæðum bjartsýnisaðgerð- um. Þér bjóðast fjölmörg tækifæri í félagslífinu. Vlnnutími þinn er dálítið erfiður, en reyndu einmitt þessvegna að gera ein- hverjar tilraunir. Tvíburamir 21. maí — 20. júní Allir togast á um fjármuni þírna. Láttu spariféð óhreyft. Ein- beittu þér að daglegiun störfum. Krabbinn 21. júní — 22. júlí Þegar vinir þínir ætla af göflunum að ganga, verða sam- verkamenn þínir tortryggnir. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst Ekkert, sem þér er hugfólgið fæst í dag. Þú skalt fasta eða nota einfalda fæðu. Ef þú ert ástfanginn, þá skaltu halda því leyndu, því að ýmsir hafa allar klær úti. Meyjan 23. ágúst — 22. september Engar fjárfestingar í dag. Annars er það góður dagur fyrir uppbyggingu. Vogin 23. september — 22. október Undraztu ekki þótt gengið sé fram hjá þér í dagsins önm. Þér þykir allt of gaman að barma þér. Farðu varlega í um- ferðinni. Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember Reyndu ekki nýjar aðferðir. Fjárfesting getur allt í einu brugð- izt. Leitaðu heilsufarsástæðna 1 fæðunni. Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember Þig langar að hætta við allt og byrja upp á nýtt. Enginn virðist samþykkja neitt slíkt (þeir vilja koma eigin hugmyndum á framfæri). Steingeitin 22. desember — 19. janúar Tilviljanirnar virðast brengla stefnumótum þínum í dag. Þér lætur að snúast eitthvað fyrir ættingjana. Vinimir eru hjálpsaimir en varhugavert er að segja þeiim of mikið í senn. öll þín hjartans mál ganga óvenju vel. Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar Þér gengur vel i vinnunni, en verðlagið hækkar. Illa gengur að halda áætlun. Gættu þess að stökkva ekki upp á nef þér, þótt einhver geri tilraun til þess að hleypa þér upp. Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz Reyndu að vera eins mikið einn og hægt er, en gleymdu ekki að taka konuna þina eða manninn með í boðið 1 kvöld. Vimnu- skilyrði kunna að breytast á annan veg, en þú hafðir búizt við. Haltu samt friðinn í bili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.