Morgunblaðið - 18.01.1969, Blaðsíða 1
24 SÍÐUR
14. tbl. 5fi. árg. LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Samkomulag um aðgerðir í atvinnumálum:
300 milljónir til atvinnuaukningar
Sérstök fjdröilun til íbúðabyggingu. — Alvinnumúlanefnd ríkisins
«ett ú stofn og utvinnumúlunefndir í kjördæmunum
SÍÐDEGIS í gær var undirritað samkomulag milli ríkis-
stjórnarinnar, samtaka vinnuveitenda og miðstjórnar Al-
þýðusambands íslands um aðgerðir í atvinnumálum. Skv.
þessu samkomulagi verða gerðar víðtækar ráðstafanir til
þess að útrýma atvinnuleysi og efla svo heilbrigðan at-
vinnurekstur að atvinna sé betur tryggð í landinu í fram-
tíðinni.
Fyrst í stað verður áherzla lögð á að nýta sem bezt þau
atvinnufyrirtæki, sem fyrir hendi eru í landinu og aðilar
samkomulagsins eru sammála um nauðsyn þess að tryggja
atvinnuvegunum nægilegt rekstrarfé, hagnýta sem bezt
framleiðslugetu höfuðatvinnuveganna og vinna að nýt-
ingu orkulinda landsins og þróun nýrra atvinnugreina.
í þessu sambandi er talið þýðingarmikið að auka rekstr-
arlán, þ.á.m. framleiðslu- og samkeppnislán til iðnaðarins,
útgerð togara og báta, sem legið hafa í höfnum, fram-
kvæmd skipaviðgerða og nýsmíði skipa innanlands og
aðrar ráðstafanir til að auka hlutdeild iðnaðarins í inn-
lendum markaði og útflutningi.
Helztu atriði samkomulagsins eru þessi:
tök vinnuveitenda og miðstjórn
Alþýðusambands íslands lýsa
sameiginlega yfir eftirfarandi:
1. Stofna skal atvinnumálanefnd,
eina í hverju kjördæmi landsins
nema í Norðurlandskjördæmi
vestra og Norðurlanidskjördæmi
eystra, þar sem ein sameiginleg
nefnd skal stofnuð. Skal hver
nefnd skipuð 3 mönnum völdum
af Vinnuveitendasamibandi ís-
lands, 3 völdum af Alþýðusam-
bandi fslands og 2 völdum af
ríkisstjórninni, og er annar þeirra
formaður nefndarinnar.
2. Hlutverk atvinnumálanefnda
skal vera að fylgjast sem bezt
með atvinnuástandi og þróun at-
vinnumála á starfssvæði hverrar
nefndar og gera tillögur til At-
vinnumálanefndar ríkisins um
eflingu altvinnulífsins og aukn-
ingu atvinnu. í þeim tilgangi að
ná sem skjótustum árangri af
starfi atvinnumálanefndanna til
útrýmingar atvinnuleysi, skulu
Framhald á bls. 3
# Ríkisstjómin beitir sér nú
þegar fyrir öflun fjármagns að
upphæð 300 milljónir króna til
atvinnuaukningar og eflingar at-
vinnulífs í landinu.
# Settar verða á stofn atvinnu-
málanefndir, ein í hverju kjör-
dæmi nema í Norðurlandskjör-
dæmi eystra og vestra, þar sem
sameiginleg nefnd verður. Hver
nefnd skal skipuð 3 mönnum frá
Vinnuveitendasambandi íslands,
3 mönnum frá Alþýðusambandi
íslands og 2 völdum af ríkisstjórn
inni og er annar þeirra formaður
nefndarinnar.
# Stofnuð verður Atvinnumála-
nefnd ríkisins, skipuð 9 mönnum
og verða þrír frá hverjum ofan-
greindra aðila en ríkisstjórnin
skipar formann nefndarinnar úr
hópi fulltrúa sinna.
# Atvinnumálanefndirnar skulu
fylgjast með atvinnuástandinu og
þróun atvinnumála og gera til-
lögur til Atvinnumálanefndar
ríkisins um eflingu atvinnulífs
og aukningu atvinnu. Á grund-
velli þeirra tillagna eða að eigin
frumkvæði skal Atvinnumála-
nefnd ríkisins taka ákvarðanir
um úrbætur í atvinnumálum.
# Gerðar verða sérstakar ráðstaf
anir til þess að afla fjármagns
til Byggingarsjóðs ríkisins til að
flýta fyrir byggingu þeirra íbúða,
sem nú eru í smíðum og eru aðil
ar sammála um að leitað verði
nýrra tekjustofna fyrir Bygging-
arsjóð ríkisins.
Samkomulag um aðgerðir í at-
vinnumálum, sem undirritað var
í gær fer hér á eftir í heild:
Ríkisstjórnin, undirrituð sam-
Þessi mynd var tekin við undirritun samkomulagsins í Alþingishúsinu í gær. Við enda borðsins
situr Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, ásamt þremur öðrum ráðherrum. Til hægri eru
m.a. Gunnar Friðriksson formaður FÍI, Björgvin Sigurðsson framkvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins og Benedikt Gröndal, formaður þess en til vinstri má m.a. sjá Óskar Hallgrímsson og
Hannibal Valdimarsson forseta Asl. — Ljósm. Mbl. ÓI. K. M.)
Fyrsti fundur við nýju borðið í dug
Washington, Saigon,
17. jan. AP, NTB.
FYRSTI fundur fulltrúa Banda-
ríkjamanna, S-Vietnam, N-Viet-
nam og Þjóðfrelsishreyfingarinn-
ar, hefst væntanlega í París á
morgun, laugardag. Víða hefur
verið látinn í ljós fögnuður yfir
því að þetta flókna deilumál virð
ist hafa fengið farsælar lyktir.
í Saigon ræddi Bunker am-
bassador Bandaríkjanna þar, við
Thieu forseta í tvær klukku-
stundir í morgun. Viðstaddur var
einnig Abrams, yfirmaður Banda
ríkjahers í Suður-Vietnam. Er
álitið, að þeir hafi m.a. rætt
samkomulagið um lögun samn-
ingaborðsins og væntanlegan
brottflutning lið.s Bandaríkja-
manna frá Vietnam.
Þrír sovézku geimfar-
anna lenfu í gœr
— Lendingin tókst mjög vel
— Volynov einn ettir úti í geimnum
kerfi geimfarsins væru trygg og
örugg, og hefðu fært geimfar-
ana mjúklega til jarðar, þar sem
Framhald á bls. 33
Moskvu, 17. jan. — NTB AP.
SOVÉZKA geimfarið „Soyus
4“ hefur lent á sovézku land-
T ékkóslóvakía:
Fjórtán stúdentar ætla að
brenna sig til bana
Líðan Jans Palachs mjög slœm í gcer
Prag 17. jan. — AP lins Jans Palachs sem reyndi
HÁSKÓLASTÚDENTAR í að brenna sig til bana á
Prag birtu í dag ljósprentað Wencelastorgi í gær. Sam-
eint. af kveðjubréfi students- | kvæmt síðustu AP-fréttum
er líðan Palachs mjög slæm
og læknar telja aðeins litlar
líkur á því að hann lifi af.
Læknar segja, að Palach hafi
hlotið alvarleg brunasár um
nær allan líkamann.
í bréfi stúdentanna segir,
að hópur sjálfboðaliða, 15 að
tölu, hafi ákveðið að fremja
Framhald á bls. 3
svæði og heppnaðist lending-
in vel. Geimfararnir þrír,
Sjatalov, Jelisejev og Krunov
eru sagðir við beztu heilsu.
Moskvuútvarpið sagði, að
lendingin hefði átt sér stað kl.
07:52, og farið að öllu sam-
kvæmt áætlun. Geimfarið
hefði lent þar sem því var
ætlað, um 40 km. NV af
Karanganda í Kazakhstan.
Er geimfararnir þrír bjuggu
sig undir komuna inn í gufu-
hvolfið á ný, settu þeir öll vís-
indatæki í lendingarhluta geim-
farsins, sem leystur var frá eftir
að Sjatalov hafði stýrt „Soyus 4“
inn á lendingarbraut með aðstoð
sjálfvirkra tækja.
„Lengingarfarið nýtti flugeig-
inleika sína við lendinguna“,
sagði í Tass-frétt, sem einnig
sagði að fallhlífa- og lendinga-
Veldur
pillan
óiriósemi?
London 17. janúar. AP.
I ÞEKKTUR brezkur sérfræff-
. ingur í kvensjúkdómum, dr.
Vemon Bailey, prófessor viff
háskólann í Manchester, segir
í grein í málgagni læknafé-
lagsins þar i landi, aff notkun
' Pillunnar kunni aff valda ófrjé
semi hjá konum, sem taka
| hana um langan tíma. Prófess-
orinn segir aff PiIIan geti vald
' iff truflun á starfsemi eggja-
stokkanna þegar hún er tekin
lengi, og þar meff minki lík-
I ur viffkomandi kvenna til aff
verffa barnshafandi.