Morgunblaðið - 18.01.1969, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.01.1969, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1969 3 Ellefu manna er enn saknað eftir flugslysið við Los Angeles, þegar SAS-þotan Sverre Viking fórst á dögunum, og engar líkur eru taldar á því að nokkur þessara ellefu hafi komizt lífs af. Myndin sem hér birtist er tekin af flugvélarflakinu úr lofti, nokkru eftir að slysið varð. Aftur- hluti þotunnar sökk fljótlega og er álitið að flestir þessara ellefu hafi ekki komizt út úr vélinni. - 300 MILLJÖNIR Framhald af bls. 1 þær kallaðar til sameiginlegs fundar í Reykjavík, þegar er þær hafa verið skipaðar. 3. Stofnuð skal Atvinnumála- nefnd ríkisins, skipuð 9 mönnum. S'kulu 3 valdir af Vinnuveitenda sambandi íslands, 3 af Alþýðu- sambandi íslands og 3 af ríkis- stjórninni, og skipar hún einn þeirra formann nefndarinnar. 4. Atvinnumálanefnd ríkisins skal hafa með höndum athugun á öllum skýrslum og tillögum, sem henni berast frá atvinnu- málanefndum kjördæmanna, og skal á grundvelli þeirra eða að eigin frumkvæði taka ákvarðanir um úrbætur í atvinnumálum eftir því, sem á hennar valdi er, og gera tillögur til ríkisstjórnar, fjárfestingarsjóða, annarra lána- stofnana og annarra aðila, er hlut kunna að eiga að máli, í þeim tilgangi að útrýma því atvinnu- leysi, sefh nú hefur orðið, og efla heilbrigðan atvinnurekstur svo að atvinna sé betur tryggð í landinu í framtíðinni. Um sinn skal Atvinnumálanefnd ríkisins L. Luvisi. Ragnar Björnsson. 9. tónleikar Sinfoníu- hljómsveitarinnar Bandarískur einleikari með hljómsveitinni 9. tónleikar Sinfóníulhljómsveit ar íslands og hinir síðustu á fyrra misseri verða haldnir í Háskólabíói fimmtudaginn 23. janúar kl. 20.30. Stjórnandi verð ur Ragnar Björnsson, en einleik ari Lee Luvisi frá Bandaríkjun- um. Á efnisskrá er Molda úr „Föðurland mitt“ eftir Smetana, Píanókonsetrtnr.21 í C-dúr K. 467 eftir Mozart og Sinfónía nr. 2 í D-dúr op. 43 eftir Sibelius. Píanöleikarinn Lee Luvisi er fæddur í Bandaríkjunum 1937 og stundaði tónlistarnám við Curtis Institiute í Fíladelfíu, en meðal kennara hans voru Serkin og Horszowski. Hann útskrifaðist (þaðan árið 1957 og sama ár var hann skipaður kennari við þann skóla, þá aðeins 20 ára að aldri. Meðal nemenida hans mæitti nefna Peter Serkin, sem hingað kom nýlega og lék með hljómsveit- inni. Síðan 1962 hefur Luvisi kennt við tónlistarháskólann í Louisville. f samkeppni um píanó leik sem háð var í Brússel 1960 og kennd er við Elísabetu drottn ingu, vann Luvisi til verðlauna. Hann hefur haldið sjálfstæða tón leika í nær öllum helztu borgum Bandaríkjanna og leikið með fremstu hljómsveitum þar í landi. Hingað kemur Luvisi frá Evrópu þar sem-hann hefur haldið sjálf- stæða tónleika, m.a. í London, og leikið með hljómsveitum. Þessir tónleikar eru hinir síðustu á fyrra misseri og er því nauðsynlegt að endurnýja miss- erisskírteini. Er áskrifendum ráð lagt að tilkynna um endurnýjun nú þegar, en síðasti söludagur skírteina er 29. janúar. Fyrstu tónleikar síðara miss- eris verða 6. febrúar og verður þá flutt verkið „Óður jarðar“ eftir Mahler. Stjórnandi verður dr. Róbert A. Ottósson, en ein- söngvarar Ruth Little Magnús- son og John Mitchinson. fyrst og fremst miða tillögur sín ar og ákvarðanir við það, að sem fyllst nýting fáist á þeim at- vinnutækjum, sem fyrir hendi eru í landinu. 5. Ríkisstjórnin beitir sér nú þegar fyrir öflun fjármagns að upphæð 300 millj. kr. til atvinnu aukningar og eflingar atvinnu- lífs í landinu, og skal Atvinnu- jöfnunarsjóður samkvæmt ákvörðunum Atvinnum'álanefnd- ar ríkisins verja þessu fé til lána til atvinnuframkvæmda, er að öðru jöfnu leiða til sem mestrar atvinnuaukningar og eru jafn- framt arðbærar, en geta ekki fengið nægilegt fjármagn frá fjár festingarsjóðum og öðrum lána- stofnunum. Við veitingu lána og styrkja til atvinnufyrirtækja skal einnig hafa í huga hagkvæmni í uppbyggingu hinna einstöku atvinnugreina. Heimilt skal að veita styrki til greiðslu tækni- legra athugana og unldirbúnings og í sérstökum öðrum tilvikum, sem nánar verður kveðið á um í starfsreglum nefndarinnar. Styrk veitingar og lánskjör skulu háð samþykki allra nefndarmanna, þeirra er fund sækja, þegar ákvarðánir eru teknar. Nefndin setur sér hið fyrsta nánari starfs reglur, þar á meðal um veitingu lána og styrkja. 6. Starfstími Atvinnumálanefnd- ar ríkisins skal vera til ársloka 1970 og skulu þá skuldir vegna lána- og styrkjastarfsemi nefnd- arinnar svo og eignir í skulda- bréfum og reiðufé teljast til At- vinnujöfnunarsjóðs. 7. Aðilar þessa samkomulags eru sammála um nauðsyn þess að stuðla að aukningu atvinnu og eflingu atvinnulífsins með því að tryggja atvinnuvegunum nægi- legt rekstrarfé, stuðla að sem beztri hagnýtingu framleiðslu- getu höfuðatvinnuveganna og vinna að nýtingu orkulinda lands ins og þróun nýrra atvinnu- greina. Meðal þeirra aðgerða, sem þýðingarmiklar eru í þessu skyni, telja aðilarnir aukningu rekstrarlána, þar á meðal fram- leiðslu- og samkeppnislána til iðn aðarins, útgerð togara og báta, sem legið hafa í höfnum, fram- 'kvæmd skipaviðgerða og ný- smíði skipa innanlands og aðrar ráðstafanir til að auka hlutdeild iðnaðarins í innlendum markaði og útflutningi. Mun Atvinnu- málanefnd ríkisins fjalla um þessi atriði og eftir atvikum gera um þau tillögur til ríkisstjórnar- innar. 8. Þá eru aðilar þessa samkomu- lags sammála um, að gera þurfi sérstakar ráðstafanir til að afla fjármagns til Byggingarsjóðs rík isins til að flýta fyrir byggingu þeirra íbúða, sem nú eru í smíð- um,og að leita verði Byggingar- sjóði nýrra tekjustofna. Flenso við bæjardyr Dnnn DÖNSKU blöðjn segja þessa dag- ana, að Hong Kong-flensan, eða Maó-flensan, sé nú við bæj'ar- dyrnar, og muni að öllum lík- indum verða sáralítið til af bólu- efni gegn henni. Bóluefnamið- stöð ríkisins hefur í marga mán- uði unnið að því að framleiða bóluefni, en gá igrunnvírus, sem fenginn var frá Alþjóðlegu inflú. ensustofniuninni, hefur reynzt af- ar erfið viðfangs í ræktun, og mun svo vera víðast hvar. — Búizit er við að á næstu vikum muni hálf milljón Dana legigjast í inflúensu. ■ - TÉKKÖSLÓVAKÍA Framhald af hls. 1 sjálfsmorð með þessum hætti, einn í senn til að mótmæla innrásini í landið og „vekja þjóðina, sem sé á barmi örvæntingar." Palach segir, að honum hafi hlotn- azt sá heiður að verða fyrst- ur. Næsti sjálfboðaliði ætlar að fremja sjálfsmorð 21. jan. að því er Palach segir í bréf- inu. jan l’alach Stúdentar sögðu í dag að þær kröfur sem þeir setji fram séu mjög ljós- ar og við þeim megi ver'ða á fáeinum mínútum. Þeir fari fram á að ritskoðun verði afnumin og blöð hernámsliðsins bönnuð. Þeir segjast ekki hafa krafizt brottflutnings hernámsliðsins, þar sem stjórnin hefði þá ugg- laust svarað því til að kröfur þeirra væru óaðgengilegar. Menntamálaráðherra Tékkósló vakíu, Vilibald Bezicek, kvaddi rektora háskólanna í Prag á sinn fund í dag og sagði þar að stjórn in myndi koma saman til að ræða málið. í gærkvöldi ræddi sérlegur sendimaður tékknesku sambandsstjórnarinnar og for- sætisráðherra Tékka, við fór- ystumenn stúdenta um atburð- inn. Jan Palach er 2,1 árs að alldri og nemur sögu og hagfræði við Oharles-háskólann í Prag. AP-fréttastofan saigði í kvöld, að formaður tékkmesku rithöf- undasamtakanna hefði flutt á- hrifamikla sjónvarpsræðu í kvöld, þar sem hamn beindi þeim eindregmu tilmælum til stúdenta og menntamanna að þeir gripu ekki til þess óyndis- úrræðis að svipta sig lifi. Hamn sagði, að memn mættu ekki vera svo svartsýnir, að þeir sæju eniga aðra leið en þessa. Pormaðurinn Jaroslav Seifert klökknaði marg sinnis meðan hann hélt ræðuna. Miðstjóm tékkneska kommún- istaflokksins sat á fundi í dag til að ræða atburðinn. Miklum óhug hefur slegið á borgara Téfckóslóvakiu og ókyrrð og sfoelfinig virtist hafa gripið um sig. 8TAKSTEI!\!AR Nöldur miimihlutans' Fulltrúar minnihluta flokkanna í borgarstjóm Reykjavíkur stunda mjög þá iðju að flytja til- lögur um málefni, sem þegar hef- ur verið unnið að, eru í athugun eða í úrvinnslu. Þegar þeim er bent á, að tillögur þeirra þjóni engum tilgangi, þar sem málin séu þegar komin á rekspöl, bregð ast þeir hinir verstu við og telja, að það sýni mannvonzku borg- arstjómarmeirihlutans að vilja ekki samþykkja tillögur þeirra. 1 augum fulltrúa minnihlutans virð ist það engu máli skipta, þótt slíkar tiliögur hafi þegar komið tii framkvæmda, þeir telja aug- sýnilega, að borgarstjóm eigi þeirra vegna að gera ság að at- hlægi. Þetta stöðuga nöidur minnihlutaflokkanna í borgar- stjórn Reykjavíkur er orðið held ur leiðigjarnt og þess vegpia skal þeim bent á, að til er afar einfalt ráð til þess að fá betri undirtekt- ir á borgarstjómarfundum en þeir yfirleitt fá og það er að flytja svolitið framlegri tillögur en þeirra er vani og undirbúa þær vel. Þá kann vel að vera, að tillögugerð þeirra fái jákvæð- ari undirtektir og þá er kannski von til þess, að eitthvað dragi úr leiðinda nöldri þeirra á hverjum fundi borgarstjómar á fætur öðr- um. B Með og móti Kristján Benediktsson, borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins, vekur jafnan nokkra kátínu á fundum borgarstjómar Reykja- vikur með málflutningi sínum. Á borgarstjómarfundi í fyrradag var m.a. rætt um landanir tog- ara heima og erlendis og fluttu kommúnistar tillögu um, að tog- arar skyldu undantekningarlaust landa hér heima. Talsmenn Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðuflokks- ins vöktu athygli á því, að erfitt væri að setja svo afdráttalausar reglur um þetta atriði. Kristján Benediktsson flutti ræðu um málið og kom greinilega fram í henni, að hann var sömu skoð- unar og talsmenn Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins, að hæpið væri að skylda togarana til að landa jafnan heima, en hins vegar lýsti Kristján yfir því, að hann mundi greiða atkvæði með tillögum kommúnista vegna þess hversu ástatt væri. Hann greiddi siðan atkvæði með tillögu, sem hann hafði áður lýst yfir, að hann væri efnislega á mótL Hdvæi þögn Enn hafa engar fullnægjandi skýringar fengizt á þvi, hvernig tengslunum milli Sósíalistafélags Reykjavikur og Kommúnista- flokksins er varið. Á það hefur verið bent að skv. flokkslögum mega meðlimir Kommúnista- flokksins ekki vera meðlimir í öðrum stjórnmálasamtökum. Nú liggur það fyrir, að Sósíalista- félag Reykjavíkur starfar enn og jafnframt hafa komið fram í kommúnistablaðinu skýrar yfir- lýsingar um það, að ýmsir helztu forustumenn hins endurfædda Kommúnistaflokks hafa ekki séð ástæðu til að segja sig úr Sósíal- istafélagi Reykjavíkur. Þar með eru þeir ólöglegir flokksmenn Kommúnistaflokksins. Samt sem áður hefur ekkert heyrzt frá forustu Kommúnistaflokksins um, að hún geri ráðstafanir til þess að víkja þessum ólöglegu meðlimum úr flokknum. Sú þögn er býsna hávær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.