Morgunblaðið - 18.01.1969, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1969
Flugvélaránin:
í gærkvöldi frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur „Orfeus og Evrý-
dis eftir franska leikritaskáldið Jean Anouith. Þetta verk sem
stundum hefur verið nefnt Rómeó og Júlía nútímans er eitt af
þekktustu verkum höfundarins og hefur verið leikið í flestum
borgum Evrópu. Myndin er af ungu elskendunum, sem leikin
eru af Valgerði Dan og Guðmundi Magnússyni. Leikstjóri er
Helga Bachmann.
IST I LEIKINN
Biður flugfélög innan samtakanna að
rœða málið við ríkisstjórnir sínar
t FRÉTTABRÉFI, sem Mbl. hef-
ur borizt frá Alþjóðasamtökum
flugfélaga (IATA), segir að sam-
tökin hvetji einstök flugfélög
innan vébanda sinna til þess að
fara þess á leit við ríkisstjórnir
sínar að þær fái því framgengt,
að Sameinuðu þjóðimar grípi til
sérstakra ráðstafana verðandi
rán á farþegaflugvélum í áætl-
unarflugi, en þau hafa verið tíð
að undanförnu.
í tilkynningu til þeirra 103
flugfélaga, sem eru meðlimir í
IATA (Fluigfélag íslands er eitt
þeirra), segir Knut Hammar-
skjöld, aðalframkvæmdastjóri
samtakanna, að aíla verði stuðn-
ings ríkisstjórna í sambandi við
að fá því framgengt að fá vopn-
uð flugvélarrán og aðrar athafn-
ir, þar sem vopnum er beitt eða
notuð til ógnunar í farþegaflug-
vélum, lýst sem alþjóðlegum
glæp á borð við sjórán og þjóð-
armorð. Hann fer þess einnig á
leit, að meðlimaríki SÞ höfði
sakamál gegn þeim, sem gerast
brotlegir í þessum efnum.
IATA hefur einnig lagt til, að
,Útlendingarnir
fundu ekki síldina'
- segir Devold og á við Islendinga og
Rússa — Síldin var dreifð um allan
sjó, segir Jakob Jakobsson
Kristjánsandi 17. jan. NTB.
„SÍLDARTORFURNAR standa
nú þéttar en áður, og ástandið
er nú líkara því, sem við þekkt-
um það áður en Rússar og ts-
lendingar fóru að elta síldina frá
því snemma á haustin", segir
Finn Devold fiskifræðingur, sem
var um borð í hafrannsóknarskip
lnu Johan Hjort, er kom í höfn
i dag.
„Síldin hefur í þetta sinn leik
ið á útlendingana því að torfurn
ar hafa verið um 150 mílum aust-
ar og um 100 mílum norðar en á
síðari árum“, segir Devold. Hann
segir einnig, að allt bendi til þess
að síldin verði um 4. febrúar
komin til Grip og norðar, þar
Bem sjórinn við strandlengju
Noregs hafi hagstætt hitastig
fyrir hana.
Samtals fundust í Norgshafi
100 síldartorfur. Tvær torfur
fundust á 30—80 m dýpi en hinar
voru á milli 125—200 metra dýpi.
Síldartorfurnar eru nú við hita
skil í sjónum og þegar hún er
komin í hlýrri sjóinn mun hún
hraða sér að landi. Devold telur,
að sú staðreynd, hve síldin er
norðarlega, sé í samhengi við
sjávarhitann, sem var er síldin
kom frá Svalbarða. Þá hélt síld-
in sig í austurjaðri kalda sjávar-
ins, og þess vegna fundu útlendu
skipin hana ekki, segir Devold.
Sú spá, að vefrarsíldveiðar
Norðmanna nemi 2 millj. hektó-
lítrum, er óbreytt eftir þessa
síðustu athugunarferð, en að
sjálfsögðu fer allt eftir veður-
skilyrðum. Devold segir að hann
telji það merkilegt, að ekkert
hefur bætzt í síldarárgangana
frá 1963 og 1964.
------0-------
Mbl. sneri sér til Jakobs Jakobs
sonar, fiskifræðings í gær, og
spurði hann álits á ummælum
Devolds. Jakob sagði, að það
svæði, sem Devold vitnaði til,
og segði að síidin hafi haldið
sig án þess að finnast, hafi verið
margleitað í haust. „Yið teljum
öruggt að síldin var ekki á þeim
islóðum þá, sem Devold fann
hana nú í janúar, heldur hafði
hún verið dreifð um allan sjó,
en síðan þétzt upp úr áramótun
um. Reknetaveiði Rússa sanna
þetta raunar, en hún var allgóð
hjá þeim á stóru svæði í nóvem-
ber sl.“, sagði Jakob.
Fiskverðið til
óramóto ókveðið
Á FUNDI yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins í gær var
ákveðið, að lágmarfcsverð á bol-
fiski og flatifiski frá og með 15.
nóvember til og með 31. des-
ember 1968, skuli vera 8% hærra
en það var til þess tima sbr. til-
kynningar ráðsins nr. 3 og 9,
1968.
Verðákvörðun þessi vax gerð
með þrem samhljóða atfcvæðum.
Fulltrúar útgerðarmanna og sjó-
manna í nefndinni greiddu ekki
aitkvæði.
Jafnframt ákvað yfirnefndin
að fresta ákvörðun fiskverðs frá
1. janúar 1969, með tilliti til þess
að slík ákvörðun nú myndi geta
tcxrveldað lausn þeirra kjara-
samninga, sem nú standa yfir.
Fulltrúar fiskkaupenda stóðu
ekki að þessari áikvörðun.
Frá Verðlagsráði
sjávarútvegsins.
hin sérstaka stofnun SÞ, sem
fjallar um alþjóðlegt farþega-
flug, verði látin vita af slíkum
sakamálum og að komið verði á
fót aþjóðlegum rannsóknarnefnd
um með hlutlausum formönnum
er rannsakí hvert einstakt mál,
þar sem vopnum er beitt í far-
þegaflugi.
Að auki hvatti Hammarskjöld
til þess að hraðað verði undir-
ritun og staðfestingu ríkisstjórna
á 'hinum svonefnda Tókíósamn-
ingi, sem fjallar um ólöglegt at-
hæfi um borð í flugvélum. Hann
lagði sérstaka áherzlu á 11. grein
samningsins, sem kveður svo á
um að rændum flugvélum skuli
tafarlaust skilað aftur, ásamt far
þegum og áhöfn.
í því skyni að fyrirbyggja að
því marki, sem hægt er, að
vopnuð rán séu framkvæmd á
flugvélum, hvetur IATA til þess
að sérstök löggjöf verðj sett í
hverju landi um nefsingu þeim
til handa, sem stofna lífi og lim-
um hins almenna borgara á flug-
ferðalagi í hættu.
Fjölþætt starf á dag-
skrá Norræna hússins
Bókavörður ráðinn fil Norrœna hússins
— Dönsk skemmtikvöld í nœstu viku
— Margvíslegir fyrirlestrar í vetur
ÞAÐ kom fram á blaðamanna-
fundi í gær með ívari Eskeland
Else Mia Sigurðsson bókavörður
Norræna hússins.
forstöðumanni Norræna hiíssins,
að liðlega 50 þúsund gestir hafa
Skákmótið í Hollandi:
Biðskák hjá Friðrik
Úlafssyni og Geller
Botvinnik hefur tekið forystu
Isafoldarprentsmiðja
stöðvast vegna elds
ELDUR kom upp í ísafoldar-
prentsmiðju um hádegið í gær og
var slökkviliðið þegar kvaft á
Staðinn. Vax þá allmikill reykur
f kjallara hússins, og fcom hann
frá rafmagnstöflu, sem kviknað
hafði í. Varð straumur strax tek-
inn af húsinu og slökkt með
kolsýrutækjum. Skemmdir urðu
litlar, en starfsemi prentsmiðj-
unnar stöðvaðist vegna raf-
magnsleysis. Verður reynt að
Ijúika viðgerð um helgina.
Nokkru síðar var slöfckviliðið
kvatt að bílskúr við Sogaveg, en
þar hafði kviknað í út frá ölíú-
kyndingu. Engar skemmdir urðu.
Beverwijk 17/1 (Einkaskeyti
til Morgunblaðsins frá AP).
ÚRSLIT í fjórðu umferð á al-
þjóðaskákmótinu hér í dag
urðu þau að Keres, Sovétríkj-
unum vann Lombardy, Banda
ríkjunum, Botvinnik, Sovét-
ríkjunum vann van Schelt-
inga, Hollandi, Portisch, Ung-
verjalandi vann Ree, Hol-
landi, Benkö, Bandaríkjunum
vann Ostojic, Júgóslavíu og
Langeweg, HoIIandi v. Med-
ina, Spáni. Þá gerðu þeir
Doda, Póllandi og Ciric, Júgó-
slavíu jafntefli, en skák þeirra
Friðriks Ólafssonar og Rúss-
ans Geller fór í bið eftir 40
leiki.
Staðan á mótinu eftir fjórar
umferðir er þessi: Botvinnik
hefur 3V2 vinning, Ciric,
Langeweg og Keres 3 vinn-
inga hver, Friðrik ólafsson er
með 214 vinning og eina bið-
skák, Benkö og Donner 214
vinning hvor, Gcller 2 vinn-
inga og eina biðskák, Portisch
og Doda 2 hvor, Lombardy
114, Kavalek, Ostojic og Med-
ina 1 vinning hver, Ree 14
vinning og van Scheltinga
engan.
f fimmtu umferð teflir
Friðrik gegn Pólverjanum
Doda og stýrir Friðrik hvítu
mönnunum.
heimsótt húsið síðan það var
formlega opnað í ágúst sl. ár. Þá
gat fvar um nokkur mál, sem eru
á dagskrá Norræna hússins þetta
ár, en starfsemin í húsinu verður
mjög fjölbreytt ogi yfirgripsmik-
il. Nýlega var ráðinn bókavörður
fyrir bókasafn Norræna hússins
og hefur frú Else Mia Sigurðsson
það starf með höndum.
Það sem er næst á dagskrá
Norræna hússins eru tvö dönsk
skemmtikvöld, sem verða baldin
miðvikudaginn 22. janúar ©g
fimmtudaginn 23. janúar. Verður
þar um að ræða bókmennta-
kynningar, upplestur og fleira
með fjórum dönskum skáldum,
sem koma til íslands í þessu til-
efni.
Þá verða í vetur m. a. fyrir-
lestrar ýmissa fræðimanna og
sérfræðinga frá Norðurlöndun-
um um ýmis mái bæði um at-
vinnumál og rannsóknir og svo
bókmenntalegs eðlis. M. a. mun
sænsk-amerískj matvælasérfræð-
ingurinn Georg Borgström flytja
í vetur erindi um sjávarútveg,
nýtingu fisks ogi fiskimiða og
fleira því viðvíkjandi.
Kaffistofa Norræna hússins.
sem er opin daglega frá 10—1*
er vel sótt.
Frá því að Norræna húsið var
opnað í ágúst sl. ár hafa liðlega
50 þúsund gestii komið í húsið.
í Norræna húsinu er nú daglega
opin norræn bókasýnintg með
tæplega 2000 bókatitlum og jafn-
framt er kaffistofa hússins opin
daglega frá kl. 10—10 daglega.
Æði margt er á dagskrá Nor-
ræna hússin® í vetur, en næst á
dagskrá eru tvö dönsk skemmti-
kvöld. Á þessum skemmtikvöld-
um mun fara fram upplestur,
bókmenntakynning og fleira.
Framhald á bls. 23
Akroborgin lask
aðist í drekstri
AKRABORGIN var um kyrrt á
Akranesi í gær og fyrradag, með
an verið var að gera við skemmd
ir, sem urðu á skipinu er vél-
báturinn Viðey RE rakst á það
skamrnt frá Reykjavík. Brotnuðu
gluggar á yfirbyggingu og dæld-
aðist skipið nokkuð. Atti að
reyna að ljúka viðgerð í gær-
kvöld, svo að skipið gæti bafið
áætlunarferðir á ný í morgun.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl. fékk í gærkvöldi var
þá enn ekfci búið að áfcveða hve-
nær sjópróf verða, þar sem Við-
ey var á sjó.
IATA VILL AÐ S.Þ. SKER-