Morgunblaðið - 04.02.1969, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.02.1969, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1960. Landbúnaðar- málin erfiðust —- Frá fundi forsœtisráðherranna Stokkhólmi, laugairdag. AP. FÁNAR Norðurlanda blöktu í sólskini úti fyrir Karlsbergböll á laugardaginn, þar aem fjöl- mennar sendisveitir frá öllum Norðurlöndum voru samankomn ar til að ræða urn aukna sam- vinnu á viðskiptasviðinu. I>að eru forsætisráðherrar Norður- landa, sem eru á tveggja daga fundi áisamt forsetum 'Norður- landaráðs og efnahagsnefnd ráðsins. Frá Danmörku mæta Hilmar Baunsgárd, forsætisráð- herra, Poul Hartling, utanxíkis- ráðherra, P. Byb0 Andersen, efnahagsmálaráðherra, og Knud Thomsen, viðskiptamálaráð- herra. Frá Finnlandi Mauno Koivisto, forsætisráðlherra, Martti Mietunen, landbúnaðar- ráðherra, Grels Teir, viðskipta- málaráðherra. Frá fslandi mætti Bjarni Benediktsson, forsætis- ráðherra og frá Noregi Per Bort- en, forsætisráðherra, Ole Myr- voll, fjámálaráðherra, og Kaare Willoeh, viðskiptamálaráðherra. Af hálfu Svíþjóðar tóku þátt í ráðstefnunni Tage Erlander, for- sætisráðherra, Gunnar Lange, viðskiptamálaráðherra, Krister Wickman, efnaíhagsmálaráð- herra, og Eric Holmqvist, innan- ríkisráðiherra. Fulltrúi íslands í forsæti Norðurlandaráðs er Sig- uður Bjarnason, alþingisforseti. Umzæðufundui ú Selfossi LAUGARDAGINN 8. febrúar verður haldinn fundur á vegum F.U.S. í Árnessýslu, þar sem um- ræðuefni verður: „Getur íslenzk ur landbúnaður notið góðs af reynslu og dreifingarkerfi sjávar útvegsins á erlendum mörkuð- um?“ Frummælendur verða Guð jón Ólafsson frkvstj. sjávarút- vegsdeildar SÍS og Guðmundur H. Garðarsson fulltrúi hjá S.H. Rétt er að geta þess, að Ingólfur Jónsson landbúnaðarráðherra mun mæta á fundinum. Fundar- fftaður er að Austurvegi 1, Sel- fossi og hefst fundurinn kl. 15.00. Er Tage Erlander, forsætisráð- herra, hafði boðið gesti vel- komna í ríkissal hallarinnar, var þegar tekið að fjalla um mál ráð stefnunnar. Ekki var gert ráð fyrir neinum ákvörðunum í ein- stökum málum á laugardag eða sunnudág, en fundur þessi er tal inn mikilvægur fyrir þá sök, að á miklu veltur að gera sér grein fyrir afstöðu einstakra aðila til mála, og einnig að gera sér grein fyrir þvi, hver eru viðkvæm- ustu innanríkismálin í einstök- um löndum. Um raunverulega samninga milli Norðurlanda á stjórnmálasviðinu verður vænt- anlega ekki að ræða fyrr en Norðurlandaráð hefur haldið að- alfund sinn í marz, en hugsanlegt er, að nýr forsætisráðherrafund- ur verði haldinn í marz, annað hvort í Osló eða Kaupmanna- höfn. Efnahagsmálanefndin kom sam an á föstudag og var ákveðið, Framhald á bls. 17 Dönsku blöðin um Sonningverðlaunin: Alþjóðleg frægð og listhæfileikar Laxness ástœðan fyrir úthlufun þeirra J Kaupmannahöfn, 3. febrúar. Einkaskeyti til Mbl. HALLDÖRI Laxness verða af- hent Sonningverðlaunin í ár við hátíðlega athöfn við Kaup mannahafnarháskóla 19. apríl n.k. Mun rektor háskólans, prófessor dr. med. Mogens Fog afhenda verðlaunin, en hann er formaður þeirrar nefndar, sem velur verðlauna- hafann Ekki hefur verið greint ná- kvæmléga frá ástæðunum fyrir verðlaunaúthlutuninni enn, en alþjóðleg frægð og list hæfileikar Laxness eru taldar fullkomlega eðlilegar ástæður af dönsku blöðunum í dag. Politiken hefur átt símaviðtal við Laxness, þar sem hann kvaðst ekki þekkja til Sonn- ings, er stofnáði til þessara verðlauna og „hvemig hann hefði eignazt sína miklu pen- inga“, en svo mikið get ég reiknað út, heldur Laxness áfram, að það er mikill heið- ur, sem mér hefur verið auð- sýndur, og hvatning. Laxness sagði ennfremur, að sig vant- aði ekki peninga, en heiður- inn væri sér mikils virði. Þá skýrði Laxness frá því, áð hann hefði hitt frú Leonie Sonning, eiginkonu stofnanda sjóðsins, hjá belgiska prest- inum Dominique Pire, sem er nýlátinn, en Pire hefur einnig hlotið Sonningverðlaunin. Laxness skýrði að lokum Poltiken frá því, að hanh myndi koma til Danmerkur 14. apríl og því verða viðstadd ur verðlaunaafhendinguna. í Berlingske Tidenda skrif- ar bókmenntagagnrýnandinn Emil Frederiksen, að það sé fsland, sem sé heiðrað í per- sónu Laxness. „Það er okkur Eigendur sambýlishúss mótmæla auglýsingu um nauðungaruppboð — Umsagnir gjaldheimtustjóra og yfirborgarfógeta Kristján Jóhannesson, Dal- braut 1 hefur snúið sér til Mhl. og óskað að koma á framfæri athugasemd frá eig- endum íbúða við Dalbraut 1, vegna auglýsingar um nauð- ungaruppboð á þessari hús- eign, sem birtist í Mhl. hinn 31. janúar sl. Kristján Jóhannesson kvað eig- endur þessarar húseignar vera tíu. f sambandi við greiðslu fast- eignagjalda hefði reglan verið sú, að Gjaldheimtan hefði tekið við greiðslu frá hverjum einstökum íbúðareiganda í sambýlishúsum. í húseigninni við Dalbraut 1, eru verzlanir á 1. hæ'ð og sagði Kristján, að eigendur þeirra hefðu ekki viljað hafa samstöðu með íbúðareigendunum um greiðsiu á opinberum gjöldum, en eigendur íbúðanna hefðu hins vegar haft þá reglu að greiða gjöld af húseigninni sameigin- lega. Kristján Jóhannesson sagði, að einn af eigendum verzlunarihús- næðisins hetfði ekki greitt fast- eignagjald það, sem í hans hlut kom og hefði nauðungaruppboð verið auglýst í Mbl. sem koma ætti til framkvæmda í dag skv. auglýsingunm. Augiýsing þessi var orðuð á þann veg, að húseignin var talin eign „Gunn- ars Skagfjörðs Sæmundsson- ar o. fl.“, en Gunnar væri einn af íbúðareigendum og hefði greitit sín fasteignagjöld. Kvaðst Kristján hafa hringt í yfirborgarfógeta og spurt hvern- ig á því stæði, að eignin öll væri auglýst á uppboði. Yfir- borgarfógeti hefði upplýst, að eignin væri auglýst til uppboðs í samræmi við þá beiðni, sem frá Gjaldheimitunni hefði komi'ð og væri embætti sínu ókunnugt um hverjir hefðu greitt gjöld sín í slíkum tilvikum og hverjir ekki. Þá kvaðst Kristján hafa hringt í Gjaldheimtustjóra og hann hefði upplýst að lögum samkvæmt ætti að auglýsa alla eignina til sölu. Kristján sagði, að hann drægi ekki í efa, að lögin mæltu fjrrir um þetta en lágmarkskrafa væri að í slíkum tilfellum væri upp- boð auglýst á nafni þess manns, sem skuldaði. Sagði hann, að þeir Gunnar Skagfjörð Sæmunds son hefðu bá’ðir atvinnu af við- skiptum og væri þeim því nauð- synlegt að njóta fyilsita trausts, en atvik sem þessi væru til þess fallin að rýra það traust. Hann kvaðst að lokum líta á þetta mál, sem dómadags ranglæti. Umsögn Gjaldheimtustjóra Mbl. sneri sér til Guðmundar Vignis Jósefssonar, gjaldheimfu- stjóra og óskaði umsagnar hans um þessa athugasemd Kristjáns Halldór Laxness ánægja, að fáni íslands verð- ur dreginn að hún yfir Kaup- mannahafnarháskóla við af- hendingu Sonning-verðlaun- Framhald á bls. 17 Jóhannessonar. Gjaldheimtustjóri sagði: „Fyrir fasteignagjöldum er lög- veð í fasteigninni all.ri og frá upphafi hefur það verið regla, að öll eignin er auglýst á upp- boði, þar sem eigendur eru allir samábyrgir fyrir slíkum gjöld- um. Einn gjaldseðill yfir fast- eignagjöld er sendur í hverja hús einingu. Skv. lögum um sam- eign fjölbýlishúsa er skylt a'ð hafa húsfélag og strangt tekið á að greiða öll fast- eignagjöld í einu. Við höfum hins vegar viljað taka af fólki ómak og höfum leyft hverjum íbúðar- eiganda fyrir sig að greiða þann hluta gjaldsins, sem þeir telja sig eiga að greiða skv. sameignar samning. Menn koma í Gjald- heimtuna og segjast eiga að greiða ákveðið hlutfall af fast- eignagjaldi fy.rir tiltekna hús- eign. Stundum greiða þeir einung is inn á reikning þessarar hús- eignar án þess að nafn þeirra sé sérstaklega skrá'ð, en stundum eru nöfn greiðenda skráð. Þegar að því kemur að beðið er um nauðungaruppboð á húseign Framhald á bls. 17 Borís Koiloff lótinn London 3. febr. AP-NTB. KVIKMYNDALEIKARINN Boris Karloff, sem einna mesta frægð gat sér sem Frankenstein-ófreskjan í fjöl- mörgum kvikmyndum, lézt á sj úkrahúsi í London á sunnu- dag. Hann varð 81 árs. Hann lék í síðustu hryllingsmynd ,sinni í Bretlandi á sfðasta ári. Karloff hafði fengizt við kvikmyndaleik í rösk 58 ár og alls mun hann hafa leikið í um 130 myndum. Fjölmennui hnppiæðufundui Heimdullui og FUF — Annar fundur í marx A sunnudaginn fór fram kappræðufundur um utan- ríkismál milli Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðis- manna í Reykjavík og Félags ungra Framsóknar- manna í Reykjavík. Hús- fyllir var á fundinum og fór hann hið bezta fram. Af hálfu Heimdallar voru frummælendur, þeir Hörður Einarsson og Jón E. Ragnars- son en auk þess tóku þátt í umræffum af hálfu Heimdall- ar, Friðrik Sophusson, Halldór Blöndal, Haraldur Sumarliða- son og Jón Steinar Gunnlaugs son. Af hálfu FUF voru frum mæiendur Þorsteinn Ólafsson og Eiríkur Tómasson en auk þess tóku þátt i umræffum Friffgeir Björnsson, Már Pét- ursson, Ólafur Þórðarson og Ólafur R. Grímsson. Fundarstjórar voru Pétur Sveinbjarnarson af hálfu Heimdallar og Einar Njálsson af hálfu FUF. Þetta var fyrri kappræðu- fundurinn af tveimur, sem ákveffinn hefur verið milli Heimdallar og FUF. Hinn síðari mun fara fram í byrjun marzmánaðar n.k., um efna- hagsmál. Tito og Ceausescu hittust um helgina Vínarborg, Belgrad, 3. febr. — AP. — TITO Júgóslavíuforseti dvaldi um helgina í heimsókn í Rúmen- íu og ræddi við Nicolae Ceauses- cu, flokksleiðtoga. Heimsókn Títós kom mjög á óvart og sumir fréttaritarar vilja hafa það fyrir satt, að Sovétríkin hafi áhuga á að koma nánari tengslum við Júgóslavíu og hafi fengið Ceau- sescu til að vera milligöngu- maffur. 1 yfirlýsingu, sem var send út um viðræður þeirra leiðtoganna segir, a?ð þeir hafi skipzt á skoð- unum um mál, sem snerti lönd þeirra svo og alþjóðamál al- mennt. Þeir Titó og Ceausescu haifa ekki hitzt að máli síðan í ágúsit síðast liðnum, en þá for- dæmdu báðir harðlega innrás Varsjárbandalagsríkjanna í Tékkóslóvakíu. Titó hélt síðan heimleiðis á sunnudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.