Morgunblaðið - 04.02.1969, Side 3

Morgunblaðið - 04.02.1969, Side 3
MORGUN'BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1969. 3 Isafirði, 3. janúar. í DAG fóru fram sjópróf hjá bæjarfógetaembættinu á ísa- firði út af sjóslysinu, sem varð s.l. miðvikudag er mb. Svanur frá Súðavík fórst út af Vestfjörðum. Björgvin Bjarnason bæjarfógeti þing- aði í málinu og honum til að- stoðar voru Guðmundur Guð mundsson skipstjóri og Símon Helgason skipaeftirlitsmaður. Það kom fram í sjóprófi, að Ömólfur Grétar Hálfdánar- son skipastjóri sýndi fádæma snarræði, þegar honum tókst að ná gúmbjörgunarbátnum frammi á skipinu, eftir að hinn báturinn sem var uppi á stýrishúsinu hafði rifnað iila og skemmzt, en skipverjar urðu fyrst að fara um borð í rifna björgunarbátinn. 5 skipbrotsmanna komu fyr ir í réttinn, en sá sjötti; Þórð- ur Sigurðsson matsveinn, er í sjúkráhúsi, því að í ljós kom Þessi mynd var tekin af skipbrotsmönnunum af Svani ÍS skömmu eftir að varðskipið kom mcð þá til ísafjarðar. Frá vinstri: Örnólfur Grétar Hálfdánarson skipstjóri, Brynjólfur Bjarna- son stýrimaður, Þórður Sigurðsson matsveinn, Jón Ragnarsson vélstjóri, Jóhann Alexands- son annar vélstjóri og Kjartan Ragnarsson háseti. Jón og Ragnar em bræður. Ljósm. MJbl. Leó. Skipstjórinn á Svani brást við hœttunni gf fádœma karlmennsku: Kastaði sér í sjóinn í brunagaddi á eftir björgunarbátnum að hann hafði farið úr axlar- liðnum þegar báturinn fórst. Skipstjórinn lagði fram skýrslu um slysið, sem skip- verjar staðfestu síðan með framburði sínum. í skýrslunni kom fram að báturinn hafði fengið á sig harðan brotsjó framan til og voru þá 9—10 vindstiig. Skall báturinn þegar á stjórnborðs- sáðuna þannig að bæði möstr- in voru í sjó og þegar skip- stjórinn gerði tilraun til þess að keyra bátinn upp stöðvað- ist vélin strax og halda skip- verjar að sjór hafi farið inn um ventil, sem liggur með pústgreininni beint uppi yfir forþjöppu, og tekið sjó inn með loftinu. - PRAVDA Framhald af bls 1 istaflokksins lét frá sér fara eftir inngangsræðu Pessis. Blaðið Izvestija, málgagn sovézku stjórnarinnar, ræðir í dag um forsætisráðherrafund- inn í Stokkhólmi. Lýsir blað- Lestarlúgur voru lokaðar og segl yfir og allt lokað þannig að sjór hefur hvergi komizt í bátinn nema þarna. Fjórir skipverja komust fljótlega upp á stýrishúsið bakborðsmegin og gátu losað út björgunarbát, sem var/ í kistu þar, og blásið hann upp, en þeim gekk mjög illa að koma honum frá því að radar, radarljósið o.fl. þvældust fyr- ir. Rifnaði þakið af bátnum og annar flothringurinn og var þá aðeins einn flothring- ur eftir. Örnólfur Grétar skipstjóri gerði tilraun til þess að kalia upp í talstöðinni, en ek'ki kviknaði á henni og tók hann þá neyðartalstöðina og rétti ið Nordek sem „norrænu af- brigði af EBE“. Þessi frétt er skrifuð af fréttaritara Izvestija í Skandinavíu, Dejnitsjenko. Kveðst hann hafa verið fyrir skemmstu í Noregi og Dan- mörk og komizt að þeirri nið- urstöðu, að bæði norskir og upp á stýrishúsið. Fór hann síðan inn aftur og n'áði í ullar fatnað og gat rétt upp á stýris húsið einnig. Kjartan Ragnarsson háseti var í koju í káetunni, þegar báturinn skall á síðuna og lá hann þar illa á sig kominn úti í stjórnborðssíðunni og gekk illa að komast upp og ætlaði ekki að finna dyrnar, en þá kallaði skipstjórinn niður til hans og gat aðstoðað hann við að komast upp. Eftir nokkra enfiðleika tókst þeim félögum að losa skemmda bátinn fná stýris- húsinu og gátú rennt 'honum á sjóinn fram á móts við lestarlúguna og þar kastaði skipstjórinn sér í sjóinn og gat náð í hinn gúmbátinn, sem var bundinn við skæl- egtið á milli borðstokks og masturs. Gátu þeir félagar tekið bát- inn með sér óútblásinn, en þeim gekk illa að losna frá skipinu, sem rak á þá. iÞegar þeir losnuðu frá blésu þeir upp þann bátinn sem heill var og færu sig og dótið yfir í hann, en við þær til’flæringar brotnaði 3 metra bútur af loftneti neyðartalstiöðivarinn- ar og var ekki nema um metri eftir. Skipstjórinn telur að bát- urinn hafi ekkert brotnað og t.d. losnuðu upp lóðabalar, sem bundnir voru á þilfarinu og segl var breitt yfir. Töldu skipverjar að báturinn hefði sokkið vegna þess hve mikill sjór fór inn um ventlana. — H. T. danskir atvinnurekendur líti neikvæðum augum á Nordek- áætlunina og sama gerir bún- aðarsambönd í Skandinavíu. Samkvæmt frásögn Dejnits- jenkos verða áhyggjur á sviði utanríkismála stöðugt meira áberandi. — Þessar áhyggjur eru heilbrigðar með tilliti til þess, að Danmörk, Noregur og ísland eru í NATO, en Sví- þjóð og Finnland eru hlut- iaus. t stuttu máli sagt, það verður stöðugt Ijósara, að það verður ekki auðvelt að fram- kvæma áætlunina. <@> KARNABÆR TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS — TÝSGÖTU I — SÍMI 12330. Vetrarsalan í fullum gangi Ótrúlegt verð — 40%,50%,60% nislúttur DOMUDEILD • PEYSUR frá 250.— . o KJÓLAR frá 400— • PILS frá 400— " • DRAGTIR frá 800— • SÍÐBUXUR frá 350— • REGNKÁPUR frá 1.200— ’ • KÁPUR frá 1.200— • SOKKAR þunnir frá 25— • SOKKAR þykkir frá 35— • MITTISJAKKAR þykkir — ull frá 900— *»* • SKOKKAR frá 800— :*v. • VESTI — ull frá 500— • SLÁ frá 600— NYJAR YORUR ÁVETRARSÖL- UNA TEKNAR UPP í DAG. t. d. DRENGJA- SKYRTUR — MINI PEYSUR HERRAPEYSUR HERRASKYRT- UR o. m. fl. HERRADEILD • SPARIFÖT frá 2.800.— • JAKKAR frá 1.500.— • DRENGJAJAKKAR frlá 1.000.— O SÍÐBUXUR terylene frá • SPORT-síðbuxur frá • ULLAR- — • SKYRTUR • PEYSUR • FRAKKAR ull • IIÁLSKLÚTAR • BELTI — leður • SPORTPEYSU- SKYRTUR frá frá frá frá frá frá 600,- 350- 400- 350- 350- 1.800- 90- 90- frá 280.— STAKSTEIEVAR Framsókn og verðbólgan Af skrifum Tímans sð. sunnn- dag mætti ætla, að Framsóknar- flokkurinn hefði barizt rösklega gegn verðbólgunni, en hins veg- ar telur blaðið, að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi ekki séð sér- 'staka ástæðu til slíkrar bar- áttu og ekki talið verðbolguna ýkja hættulega. Þessar fullyrð- ingar eru fjarri öllu sanni. Það hefur jafnan reynzt mjög erfitt að hamla gegn verðbólgunni hér, og er Það raunar ekkert eins- dæmi. Reynsla annarra þjóða er mjöjg svipuð og um þessar mund- ir er það t. d. eitt helzta áhyggjuefni stjórnmálamanna i Bandaríkjunum, hvernig draga megi úr verðbólgunni þar, sem farið hefur sívaxandi m. a. vegna styrjaldarinnar í Víetnam og áhrifa hennar á efnahagslíf Bandaríkjanna. Þegar litið er yf- ir stjórnarferil núverandi ríkis- stjórnar kemur í ljós, að ríkis- Stjórnin og stuðningsflokkar hennar hafa sí og æ lagt áherzlu á að halda yrði verðbólgunni í skefjum og beitt öllum hugsan- legum ráðum til þess. En' fleiri aðilar í landinu geta haft áhrif á það, hvort verðbólga verður mikil eða lítil. Framan af stjórn- artímabili núverandi ríkisstjóm- ar voru launahækkanir mjölg tíðar og í engu samræmi við framleiðniaukninguna í landinu. Afleiðingin varð auðvitað sú, að verðlag hækkaði að sama skapi. Þá sem nú beitti Framsóknar- flokkurinn öllum áróðursmætti sínum að því að hvetja samtök launþega til aukinnar kröfu- gerðar og til þess að halda fast við óraunhæfar kaupkröfur. í þesisari baráttu sinni fyrir vax- andi verðbólgu sveifst Fram- sóknarflokkurinn einskis og mis- notaði m. a. hina öflugu sam- vinnuihreyfingu til þess að gera kjarasamninga. sem augljóslega sköpuðu stórfellda verðbólgu- hættu sem og varð raunin á, þar sem þá var ekki lengur hægt að standa jgegn því, að aðrir fylgdu á eftir. Þóttaskil i júni 1964 urðu þáttaskil í gerð kjarasamninga. Þá fór að gæta vaxandi skilnings forustu- manna verkalýðssamtakanna á því, að meðlimum þeirra væri enginn greiði gerður með stór- felldum kauphækkunum, sem þegar í stað voru að engu gerð- ar vegna verðlagshækkana, sem fylgdu í kjölfarið. Jafnan siðan hefur tekizt að koma á skikkan- legum kjarasamningum. En Framsóknarflokkurinn hefur bar izt eins og Ijón og af fullkomnu ábyrgðarleysi Jgegn þessari stefnu verkal ýðssamtakanna. — Þessi flokkur hefur jafnan beitt öllu afli sínu til þess að ýta und- ir óraunhæfa kröfugerð og aldrei getað leynt gremju sinni yfir því að forustumenn launþegasam- takanna hafa ekki farið að þeirra ráðum. Þannig hefur Framsókn- arflokkurinn unnið að þvi sl. 10 ár að verðbólgan færi vaxandi, en ekki beitt sér gegn henni. Síðari hluta árs 1966 fór að gæta neikvæðrar verðlagsþróun- ar á erlendum mörkuðum. Ríkis stjórnin greip þá til þess ráðs að koma á verðstöðvun um eins árs skeið, sem stóð fram á haust 1967. Framsóknarflokkurinn barðist á móti þessari verð- stöðvun. — Haustið 1967 og á árinu 1938 var öllum orðið ljóst, að kjaraskerðing vegna áfalla á erlendum mörkuð- um og vegna aflabrests var orðin staðreynd. Gengisbreyting arnar 1967 og 1968 voru viður- kenning á þessari óhagganlegu staðreynd. Framsóknarflokkur- inn neitaði að horfast í augu við þessar staðreyndir. Hann hefur jafnan verið sannkallaður verð- bólguflokkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.