Morgunblaðið - 04.02.1969, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1969.
11
Leifur Sveinsson, lögfrœðingur:
Miðilsstörf Guðrúnar Guðmunds-
dóttur frá Berjanesi og Páll Kolka
í LESBÓK Morgunblaðsins 26.
jan. sl. birtist myndskreytt grein
eítir P. V. G. Kolka, er hann
nefnir: „Huldulækningar í Vest-
mannaeyjum 1925“. Er þar ráð-
izt með fádæma rætnum rógi að
látinni mannkostakonu, miðlin-
um Guðrúnu Guðmundsdóttur
frá Berjanesi, og reynt að sánna
þar á tveim blaðsíðum, það sem
Theodóri Líndal, þáverandi
hæstaréttarlögmanni, tókst ekki
að sanna fyrir hönd ákæruvalds-
ins í málinu nr. 52/1936, en í því
var kveðinn upp dómur í Hæsta-
rétti þann 14. maí 1937. Segir
svo orðrétt í Hrd. VIII bindi,
bls. 337:
„Dómur Hæstaréttar. Verknað
ur sá, sem hin ákærðu Sesselíus
Sæmundsson og Guðrún Guð-
mundsdóttir eru sökuð um í
máli þessu, er sama eðli® og fólg
in í því, að þau hafa ýmist með
fyrirbænum, meinlausum híis-
ráðum eða með andlegum kraf‘i,
er þau nefna svo, gert tilraun til
að ráða bót á meinum manna,
sem leitað hafa til þeirra í því
skyni. Halda þau því fram, að
þessa andlega kraftar verði þeir,
sem til þeirra leita .aðnjótandi
fyrir milligöngu þeirra og at-
beina framliðinna manna, sem
þau komist í samband við. Hins
vegar er ekki upplýst, að þau
hafi gert nokkuð, beint eða
óbeint til þess að aftra því
eða afstýra, að þessir sömu
menn leituðu sér lækninga
hjá læknum, og sjálf skýra þau
svo frá, og styðst þáð við fram-
burð vitna, sem leidd hafa verið
í málinu, að þau hafi oft hvatt
menn til að snúa sér ti.1 lækna
með veikindi sín.
Þessar athafnir þeirra eru
ekki þannig lagaðar, að þær
verði taldar til lækningastarf-
semi í þeirri merkingu, sem ætla
verður að leggja beri í hugtakið
lækningar i lögum um lækninga-
leyfi o.f 1. nr. 47/1932. Hin
ákærða Guðrún hefir stundum
þegið smávegis þóknun fyrir
nefndar aðgerðir sínar, en
ekki er upplýst, að ákærður
Sesselíus hafi sjálfur tekið
við þóknun, en hann kveð-
ur börnum sínum stundum
hafa verið vikið lítilræði af
þeim, sem hans hafa leitað, og
þar sem ekki er ástæða til ann-
ars en að ætla, að þau hafi sjálf
álitið, að aðgerðir þeirra gætu
orðið að liði, þá verður ekki tal-
ið, að þær hafi verið fram-
kvæmdar í blekkingarskyni til
þess að hafa af mönnum fé. Hafa
þau því ekki heldur með þessum
aðgerðum gerzt sek um brot á
neinum ákvæðum 26. kapitula
hinna almennu hegningárlaga
frá 25. júní 1869. Framangreind-
ur verknaður þeirra varðar því
ekki við lög, og ber þá að sýkna
Guðrún Guðmundsdóttir
frá Berjanesi.
þau af ákæru réttvisinnar og
valdstjórnarinnar í máli þessu“.
Lögmaður Guðrúnar var Jón
Ásbjörnsson hrl., sem nú er lát-
inn.
Guðrún Guðmundsdóttir fædd
ist 17. maí árið 1900 og andaðist
13. nóv. 1967. Um tvítugt fór
verulega að bera á miðilshæfi-
leikium hennar, sem þroskuðust
jafnt og þétt og urðu fjölþættir,
bæði skyggnihæfileikar og lækn-
ingamáttur. Leitaði fólk til henn
ar svo hundruðum skipti með
heimsóknum, bréfum og sím-
tölum jafnt innan lands sem ut-
an. Var heimili hennar seinni
hluta ævinnar 'helgað þessu líkn-
arstarfi og átti ég því láni að
fagna að kynnast því Og sitja
nokkra fundi hjá Guðrúnu. Heim
ilið var einetakt að allri snyrti-
mennsku og alúðarviðmóti, þann
ig að það hafði sérstakt aðdrá*t-
arafl fyrir þá gesti, sem þangað
höfðu einu sinni komið. Allir
voru svo samtaka um það, að
styrkja húsmóðurina til þess að
láta hæfileika hennar nýtast sem
bezt í þágu þeirra mörgu, sem á
dyr hennar knúðu og hjálpar
voru þurfi. Meðal annars veitti
Guðrún fjölskyldiU minni ómet-
anlegan styrk og læknisaðstoð
á örlagatímum og verður því
aldrei gleymt né það þakkað að
fullu.
Guðrún fékk lömunarveiki
snemma á ævinni og gekk þvi
eigi heil til skógar, en lét það
samt ekki aftra sér við störfin,
því hún taldi mikla ábyrgð
fylgja slíkum hæfileikum og sér
skylt að nota þá öðrum til bless-
unar. f þessum anda starfaði
Guðrún allt til vistaskiptanna,
sem urðú eins og fyrr segir í
nóvember 1967.
Guðrún ritaði sjálf bók um
ævi sina og störf og kom hún út
hjá Bókaútgáfunni Frón árið
1948 og nefndist: Tveir heimar.
Geta menn þar kynnzt betur mið
ilshæfileikum hennar en unnt er
að gera grein fyrir hér.
Páll Kolka læfur að því liggja
í Lesbókargreininni, að Einar H.
Kvaran hafi ekki staðið sér snún
ing hvorki á ritvelli né í ræðu-
stóli og varð mörgum á að brosa,
er þeir lásu þetta.
Ást manna og virðing á Einari
H. Kvaran og verkum hans hef-
ur aukizt með hverri nýrri bók,
sem út hefur komið eftir knapa
Silfurhestanna og sýnir það, að
þjóðin er á réttri leið þrátt fyrir
allt.
Ég greip niðuir í smássögur
Kvarans nú nýverið og tel rétt,
að skáldið svari sjáltfur Kolka
með þessum kafla úr: „Á Vega-
mótum": „Af öllu því, sem okk-
ur mönnunum er á hendur fal-
ið, finnst mér sannleiksbanáttan
vera flóknast og vandasamast
viðfangsefni.
Vafalaust er það veikleika
mínum að kenna, að hún miklast
mér svo í augum. En satt er
þet*a samt. Mennirnir fjandskap-
ast ekki jafnákaft gegn neinu
eins og sannleika, sem birtist
þeim í nýrri mynd. Og allur
fjandskapur gefur illum öflum
byr undir báða vængi. Fyrir all-
an fjandskap, við menn eða hug-
sjónir, verða einhverjir verri
menn en þeir hefðu annars orð-
ið ......“
Með þessi orð skáldsins í huga
verður að telja mjög vafasamt
fyrir metin að mata hin nei-
kvæðu öfl tilverunnar á slíkum
sera í máli og myndum, sem
birtist í margnefndri Lesbókar-
grein, heldur taka undir með
einum samherja Kvarans, sem
taldi, að hreinleikinn og góð-
vildin til allra manna væri hið
mikla takmark okkar. Sælutil-
finningin væri þeim samfara.
Hennar þyrfti ekki að leita sér-
staklega.
Reykjavík, 31. janúar 1969
Leifur Sveinsson.
FRÍMERKI
Norsk frímerki í skiptum
fyrir íslenzk. Skrifið til
T. Petersen, Stölsveien 14,
Oslo 5.
Bcnmnai
Farfuglar
Kvöldvaka í félagsheimil-
inu Laufásveg 41, miðviku-
dagskvöld kl. 9. Myndasýning
og fl. til skemmtunar.
Stúlka óskast
til starfa í prentsmiðju, þarf að vera vön slíkum störf-
Um. — Upplýsingar í prentsmiðjunni (ekki í síma).
GUÐJÓN Ó.,
Hallveigarstíg 6.
DALE CARNEGIE -
NÁMSKEIÐIÐ
Nýtt námskeið er að hefjast — mánudagskvöld.
Örfá pláss laus.
★ Öðlast .hugrekki og sjálfstraust.
ýr Tala af öryggi á fundum.
ýir Auka tekjur þínar, með hæfileikum þínum að um-
gangast fólk. 85% af velgengni þinni, eru komin und-
ir því, hvernig þér tekst að umigangast aðra.
★ Afla þér vinsælda og áhrifa.
in Verða betri sölumaður, hiugimynda þinna, þjónustu
eöa vöru.
★ Baeta minni þitt á nöfn og andlit og staðreyndir.
★ Verða betri stjórnandi vegna þeikkingar þinnar á fólki
Á Uppgötva ný áhugamál, ný markmið að stefna að.
★ Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíða.
NámSkeiðið hófst í Bandaríkj'unum árið 1912 og hafa
yfir 1.000.006 karla og kvenna tekið þátt í því um allan
heim. — Innrifcun og upplýsingar í síma 82930 og eftir
kL 5 í síma 30216.
KONRÁÐ ADOLPHSSON, viðskiptafræðingur.
STANLEY
Frá 1. nóvember 1968 höfum við tekið við
umboði á íslandi fyrir STANLEY WORKS,
NEW HEAVEN, CONN., U.S.A. og
STANLEY WORKS (GREAT BRITAIN)
Ltd., Sheffield.
Umhoð þetta nær yfir allar vörur sem þessar
verksmiðjur framleiða, þó eru, að svo stöddu,
undanskilin rafmagnshandverkfæri og bíl-
skúrsjám.
Vörur frá STANLEYT munum við framvegis
hafa á lager eftir því sem frekast er unnt,
en verzlanir sem óska eftir að kaupa beint
frá verksmiðjunum geta fengið mynda- og
verðlista frá okkur og alla fyrirgreiðslu
með pantanir.
K. ÞORSTEINSSON & CO.
Umboðs- og heildverzlun Tryggvagötu 10, sími 19340.