Morgunblaðið - 25.02.1969, Side 11

Morgunblaðið - 25.02.1969, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1969. 11 Einar G. E. Sæmundsen — skógarvörður BEZTI vinur minn og sam- starfsmaður um tæpra 40 ára skeið er nú liðinn. Einar G. E. Sæmundsen skógarvörður og framkvæmdastjóri Skógræktar- félags Reykjavíkur lézt í bílalysi laugardaginn 15. febrúar ásamt vini sínum, Tryggva Guðmunds- syni. Orð skortir til að lýsa þeim til- finningum, sem koma í huga manns þegar voveiflegir atburðir gerast. Þegar versta hríðin er af staðin er það huggun 'harmi gegn, að á langri samleið okkar er einskis nema gócfe að minnast. Samjstilltur var hugur hans og hönd við hugsun mína og athöfn og gagnkvæmt etftir því, sem ég mátti. Áihugamálið hið sama, og setti hann það öllu ofar. Við Einar vorum samferða- menn um mörg ár, fyrst á hest- um oig síðar á 'hverskonar farar- tækjum um þvert og endilangt landið, bæði í blíðu og aftökum. Fáir munu þeir vera, sem farið hafa jafn víða um byggðir og öræfi þessa lands og við, lengst- um tveir saman. Á slíkum ferð- um kynnast menn betur en kost- ur er á annan hátt. Eftir kynni allra þessara ára veit ég að leitun er á jafn góðum og heilum dreng sem Einar var. Sama var ávallt á hverju gekk alla lítfsleiðina. Hugrekki og úr- ræði úr hverjum vanda betri en hjá öðrum. Hæverska og ljúf- mennska í hverjum hlut. Kratftur oig áræði hvenær sem þurfti. Traust og stöðuglyndi í hverri raun. Og svo ’hið góða milda skap, létt og fellt í ljóð, þegar gamanmál voru á ferðum. Á meira verður ekki kosið, enda fæstum gefið þetta allt í senn. Ætt og ævi skal ekki rakin hér. Faðir Einars, Einar E. Sæmund- sen, var í hópi hinna fyrstu ís- lenzku skógarvarða. Sonurinn fetaði sömu braut. Hann kom ungur til startfa fyrir íslenzka skógrækt eins og faðirinn. Þó var það síztf af öllu vegur til auðs eða metorða, aðeins hugsjón um bjartari framtíð lands Oig þjóðar, um að bæta skaða fyrri tíma. Enn'fremur og eigi síður ást til hins litfandi gróðurs í landinu og lífsins gangvart auðn og örtröð. Hér var síztf af öllu hugsað um auðfenginn arð á líðandi stund, heldur hyggja fram í tímann, ekki aðeins að láta trvö «trá vaxa í stað eins, heldur skjólviðu á berangrinum. Þetta var ævistarf Einars. Leiðir okkar lágu fyrstf saman við Laugarvatn sumarið 1930 og urðum þá samferða snertispöl, hann 13 en ég 23 ára. Tveim ár- um síðar varð ég kennari hans og margra glaðværra unglinga Gagnfræðaskóla Reykvíkinga. og þaðan útskrifaðist hann vorið H934. Einar hafði bæði gátfur og dugnað til að halda áfram námi en þá var kreppa í landi og hver varð að standa á eigin fótum Réðst hann þá til skógræktar- innar, en þegar svolítið rofaði til hélt hann til Danmerkur og síð an til Noregs til skógarvarðar náms. Kom hann heim að verk- legu námi loknu og hótf þá strax störf á ný hjá Skógrækt ríklsins. Hann var fyrstf skógarvörður á Vöglum í Fnjóskadal og var þar við störf í 10 ár. Hann gat sér svo gott orð meðal Fnjóskdæla, að þeir harma enn brottför hans suður á land, þar sem annað starf beið hans. Þegar breyting var igerð á stfarfssviði skógræktarfélaganna H947, réðst Einar strax til Skóg- ræktarfélags Reykjdví'kur jafn- framtf því sem hann vatrð skóigar- vörður á Suðvesturlandi. Hér tók hann við litlu en skilaði miklu etftir 22 ára starf. Allir, sem koma í gróðrarstöð- ina í Fossvogi og fara um Heið- mlörk sjá 'handaverk hans blasa við allt um kring. Engum einum ber eins mikið að þakka, hve vel hefur miðað áfram. í giftudrjúgu starfi hans áttfi góð eiginkona sinn snara þátt. Og þess ber einn ig að minnast, að hann. laðaði að sér, góða samstarfs- og áhuga- menn, sem létftu honum verkin. Atf þeim má netfna Valtý rit- stjóra Stefánsson, Hermann Jón- asson fyrrum forsætisráðherra, Guðmund Marteinsson verk- fræðing, Gunnar Thoroddsen fyrrum borgarstjóra og ótal fleiri góða drengi. Verk Einars í Fossvogi og á Heiðmörk hlýtur að vaxa og margfaldast með ári hverju eins óg hringurinn Draupnir. Einar var mér hollvinur og ráðgjafi. Hann studdi mig til alls, sem ég vildi vel igera og réði mér frá ýmsu, sem miður hefði farið. Fyrir mörgum árum missti ná- komin frænka mín mann sinn óvænt á unga aldri. Sagði hún þá stillt og rólega í sinni miklu sorg: „Það er aðeins góðs að minnast svo að á betra verðuir ekki kosið. Við skulum ekki tala meira um það, en 'horfum fram“. Þetta segjum við vinir Einars í dag. Hákon Bjarnason. ÞAÐ er með djúpri song, að ég tek mér penna í hönd, til þess að minnast látins vinar míns, Ein- ars G. E. Sæmundsens, sem fórstf í bílslysi laugardaiginn 15. þ.m. og verður jarðsettur í dag. Aldrei heifur fregn um andlát nokkurs manns fengið jafnmikið á mig. Skyndilega er rofið með hörmulegum hætti rúmlega tveggja áratuga náið samstarf að málefnum, sem voru okkur báð- um hjartfólgin. Mikill mann- Segja má, að ræktunanstörfin i Heiðmörk séu þríþætt: land- græðsla, jarðvegsbætur og skóg- rækt. Auk þess hefur verið unn- ið þar að végagerð og aðhlynn- ingu að gestum og gangandi, sem fer fjölgandi ár frá ári. Ytfirum- sjón með öllum þessum stförfum var í höndum Einars Sæmund- ÞAÐ er mikið áfall fámennri þjóð, þegar góðum sonum hennar er kippt burt í blóma lífs síns. Þesru hefur íslenzka þjóðin þó oft orðið að hlíta og nú hetfur hún enn einu sinni orðið fyrir slíku höggi með sviplegu frátfalli Ein- ars G. E. Sæmundsens. Með brott för hans er þungur harmur kveð inn að vandamönnum hans, vin- um og samstarfsmönnum og ís- land hefur misst einn af sínum beztu sonum. Er nú stórt skarð opið og autt, þar sem hann áður stóð og st.arfaði. Margt ber til þess, að svo mik il eftirsjá er að Einari, að vinum hans finnst missir hans næstum óbætanlegur. Bæði gegndi hann mikilvægum störfum sínum með þeim hætti, að með ágætum var, og auk þess var skaphöfn hans öll af þeirri góðu gerð, sem ein- stakt er. Hvar sem hann fór fylgdi honum sá geislandi lífs- kraftur og gleiði sem varpaðj birtu yfir umhverfið. Og alltaf var hann jafh og samur, hvort sem við sóttum hann heim árla morg- uns í starfsstöð hans i Fossvogi eða hittum hann þar að loknum erilsömum starfsdegi í skógrækt arstöðinni með skyradiviðkomu sama dag í Heiðmörk eða öðrum þeim stöðum, þar sem hann fór með yfirstjórn verka og fram- kvæmda. Biðu hans þó oft að kvöldi fundarsetur og fyrir- greiðsla þeirra mörgu, er sóttu til hans ráð og áttu viðskipti við hann. Ætla mætti, að svo mikil önn og dagleg forsjá fjölþættrar starf semi, sem oft krafðist skjótrar úrlausnar, væri ofviða tiltfinninga næmum manni. En örugg dóm- greind Einars hélt fast um stjórnvölinn og meðfætt innsæi og glöggur skilningur hans mönnum og málefnum, samtfara eðlislægri góðvild og drenglyndi, færðu honum einstakt traust allra þeirra, sem höfðu samskipti við hann, og það traust varð hon- um aftur aflgjafi. Þessi skaphöfn hanis gerði hann manna ráðholl- astan, og því fór eigi sjaldan svo, að bæri vanda að höndum eða finna þyrfti úrlausn á máli, sem einhvers var vert, varð þ fyrsta úrraeðið að fara á fund Einars og leita álits hans. Sam- Minning tal við hann gal ætíð þeim, er til hans sóttu ráð, betri yfirsýn og greiðari för til lausnar. Sú er reynsla mín eftir 20 ára sam- skipti, og nána samvinnu nú um 10 ára skeið í stfjórn Skógræktar- félags íslands. Það gefur auga leið, að maður með eðliskostum Einars hlaut að skipa breiðan sess á þeim vett- vangi, er hann haslaði sér. Frá upphafi helgaði hann skóg- ræktarmálunum líf sitt og kratftfa, og þar var hann alltaf í fremstu röð, hvort heldur litið er til sjálfrar ræktunarinnar eða fé- lagsmálastarfseminnar. í full 20 ár veitti hann stöð Skógræktar- félags Reykjavíkur í Fossvogi forstöðu og stýrði framkvæmd- um í Heiðmörk, friðlandi Reyk- víkinga, með þeirri haigsýni og þeim myndarskap, sem verk hans þar sýna. Jafnlengi sat hann í stjórn Skógræktarfélags íslands. Og hvarvetna er hann kom við sögu leiddi gott af ráðum hans og störfum. Það var og í samræmi við aðra mannkosti Einars, að hann lét sér ætíð í léttu rúmi liggja, hrvort frumkvæði hans að gagnlegum hugmyndum og til- lögum væri getið. Það eitt skipti hann máli, að til'löigiur hans mættu koma að gagni. Eru mér í huga skýr dæmi þessarar yfir- lætislausu afstöðu hans. Störf Einars Sæmundsens og þau viðfangsefni er á herðum hans hvíldu voru svo margþætt, að vandifyllt verður það skarð, er varð við fráfall hans. Þar getur enginn einn maður komið í hans stað. En svo verður minning hans bezt í heiðri höifð, að þeir, sem með honum unnu og störtfuðu leggi sig nú þeim ’mun meira fram, sem missir okkar er meiri. Með því móti getum við, sem eftir stöndum bezt goldið þá skuld, er við eigum Einari að gjalda fyrir framlög hans og það mikla starf, er hann leystfi svo farsællega af hendi, og þann kraft, sem hugkvæmni hans og dugnaður gaf þeim, er að verk- um stóðu með honum. Við, sem eftir lifum, megum ekki heldur gleyma því, þrátt fyrir söknuð inn, að aldrei er svo svart yfir sorgarranni, að eigi geti þar birt fyrir þá trú, að góðir menn litfi hér áfram í þjóðhollum verkum sínum, þótt þeir séu, fyrir aldur fram, kvaddir til annarrar ver- aldar. Megi hugljúfar minningar um mætan mann og góðan féla.ga mýkja harm þeirra, er nú sakna vinar í stað. Megi sár söknuður og sorg konu hans, er fylgdi hon um á tæpustu nöf þessa lífs, og allrar fjölskyldu hans, mildast við ljúfar endurminningar um einstæðan öðlingsmann sem hvarvetna sáði fræjum góðvild- ar, atorku og drengskapar í ævi- spor sín. Hákon Guðmunðsson. kostamaður er fallinn í valinn. En mannkostir Einars, dreng- lund, afburða dugnaður oig fjöl- hæfni, lásamt góðvild, glaðværð og ljúfu geði, eru eíginleikar, sem ber að halda á lofti. Það fór ekki hjá því, að þessir góðu eiginleikar hans hefðu álhrif á þá sem hann umgekkst, bæði nána samstarfsmenn og mikinn fjölda annarra mann, sem hann vegna startfa sinna og áhugamiála komst í snertingu við. Einar Guðmuradur Einarsson Sæmundisen fædidist að Þjótanda við Þjórisá 18. september 1017, cg var því rúmlega fimmtíu oig eins árs er hann lézt. Foreldrar hans voru Einar E. Sœmundsson skóg- arvörður, sem látinn er fyrir all- mörgum 'árum og kona hans, Guð rún Sigfríður Guð.mundsdóttur, sem dvelur á heimili dóttur sinn- ar í næsta húsi við hús Einars sonar síns og konu hans. Einar Sæmundsen yngri ólst upp með foreldrum sínum, og segja má að hann hatfi alist upp við skógrækt og hestamennsku undir handleiðslu föður síns, en hann var einn af fjórum fyrstu íslenzkum mönnum, eem skömmu eftir síðustu aldamót, lögðu stund á skógræktarnám og sigldu til Danmerkur til slíks náms. Að loknu námi gerðist hann skógar- vörður á Suðurlandi, en var jafnframt, svo sem kunnugt er, frábær hestamaður og hestavin- ur. Einar yragri fetfaði í fótjpor föður síns, er hann hafði aldur ti’ og stundaði skógræktarnám í Danmörku og Noregi, en gerðist síðan skógarvörður Norðanlands með búsetu að Vöglum í Fnjóska dal. Um störf hans nyrðra er mér ekki vel kunnugt, er hinsvegar veit ég, að hamn eignaðist þar fjölmargra vini, er söknuðu hanis, er hann fluttist suður síðari hluta árs 1947, en um það leyti hófust kynni okkar fyrir alvöru. í stuttri aímæliskveðju er ég sendi Einari á fimmtuigsafmæli hans fyrir tæpu hálfu öðru ári, gat ég þess, hvílíkt lán það var hinu svo til nýstofnaða Skóg- ræktarfélagi Reykjavíkur, er hann réðitf til félagsins sem fram kvæmdastjóri í ársbyrjun 1948, jafnframt því, sem hann gerðist skógarvörður á Suðvesturlandi. Það var næstum sem gróðrar- stöð félagsins £ Fossvogi, sem þá var aðal-starfsvettvangur skóg- ræktarfélagsins, væri snortin töfrasprota. Einar Sæmundsen fylgdist ávallt mjög vel með nýjungum á sviði ræktunar og tækni í sambandi við plöntuuppeldi og skógrækt, og hefur það komið fram á ýmsan hátt í gróðrarstöð- inni í Fossvogi. Aðferðir við und- irbúning og hirðingu græðireita, plöntuuppeldi, geymslu á trjá- plöntum árið um kring, og sitt- hvað fleira varðandi störf í gróð rarstöðinni ber vissulega allt vott um kunnáttusemi og stöðuga ár- vekni stjórnandans. Þar við bætist, að til startfa á vettvaragi Skógræktarfélagsins hafa valizt menn, bæði eldri og yngri, sem auk þess að vera mjög vel etfarfshæfir, hatfa ekki komizt hjá því að smitast af álhuga stjórnandans og laða3t að honum. Andinn sem ríkt hefur meðal starfsfólksins er eins og bezt verður á kosið á stóru heim- ili, þar sem húsbóndinn er bæði elskaður og virtur. Á Heiðmörk gjörþekkti Einar Sæmundsen svo að segja hvern krók og kima. Náin kynni hans af þessu landsvæði, hólust, er hann fyrir rúmum tuttugu árum stjórnaði þar girðingarfram kvæmdum, en þeim framkvæmd- um var lokið fyrir jól 1948. Hann lagði sömu alúðina við ræktunarstörfin þar og í Foss- vogsstöðinni. En þar er við fleiri óviss og óþekkt atriðl að glíma. Þar er ekki um það að ræða að tilreiða vaxtarskilyrði fyrir trjá- plöntfurnar á sama báttf og gert er í sáðbeðum og plöntuíbeðum í gróðrarstöð, helduir verður að láta sér nægja að velja hinum mismunandi plöntutegundum jarðveg 'skilyrði við sitt hæfi og búa að þeim svo sem unnt er. Það 'hefur þurtft að þreiifa sig áfram, en Einar Sæmundsen var j sívökull við að kanna mismun- andi aðferðir, og meira öryggi hefur smátt og smáttf áuninzt við skógræktarstörtfin á Heiðmörk. Margir aðilar hatfa starfað þar að skógræktf, sjálfboðaliðar í fjöl- mörgum félögum („landnemar á Hieiðmörk“), mikill fjöMi ungl- inga í Vinnuskóla Reykjavíkur, svo og starfsmenn Skógræktar- félagsins. En eraginn einn maður á jatfn- mikinn þátt í því sem unnið hef- ur verið á Heiðmörk og Einar Sæmundsen. Framundan eru verkefnih á vettvangi Skógræktfarfélags Reykjavíkur svo að segja óþrjót- andi, þegar brautryðjandinn skyndilega fellur frá. En brautin hetfur verið rudd, og traustur grundvöllur lagður undir framhald á sömu braut. Mér hefur dvalizt við að minn- ast starfa Eiraars Sæmundisens á sviði Skógræktarféalgs Reykja- víkur, þótt aðeins hafi verið drep ið á fátt eitt, en það er einkum á þeim vettvangi sem kynni okk ar og einlæg viraátta hefur mynd azt og orðið æ nánari. Ég tel mér það mikla gæfu að hafa átt vin- áttu hans, og fjölda margar ljúf- ar minningar frá samistarfi okk- ar og samfundum munu endast mér til æviloka. Einar var íráibær heimilisfað- ir, og eftir að systir hans missti mann sinn fyrir allmörgum ár- um frá þremur ungum drengj- um, var hann stoð og stytta tveggja heimila. Kona hans, sem enn liggur slöiuð í sjúkrahúsi, börnum þeirra, aldraðri móður og öðrum nánustu ættfingjum votta ég dýpstu samúð. Blessuð veri minning Einars G. E. Sœmundsens. Guðmundur Marteinsson, Kveðja frá Landssambandi hestamannafélaga. MENN koma og fara. Með lifi sínu og starfi skrá þeir sögu sína, ■“ einn þannig, að hún er ekki auð- lesin almenningi en annar mark- ar hana dýpri dráttum, svo að fjöldinn verður fyrir varanleg- um áhrifum og verður þátttak- aradi í lífssögunni. Formaður Landssambands hestamannafélaga, Einar G. E. Sæmundsen skógarvörður, sem við kveðjum í dag, var einn þeirra manna, sem hagaði för sinni svo um mannheim, að hann markaði spor, sem lengi murau sjást og vísa þeim veg er eftir fara. H-ann vann sér hvarvetna traust og vináttu og lágu til þess margar ástæður. Þess varð strax vart, hvort sem hann var með fleiri mönnum eða*' færri, að hann var miklum mun fróðari en flestir aðrir, enda hafði hann farið víða bæði inn- an lands og utan og numið af bókum margan fróðleik opnum huiga og varðveitt traustu miranL Þá duldist heldur engum hátfcvísi hans og tillitssemi við náungann né heldur hin glaðværa, hlýja skapgerð, sem laðaði samferða- manninn til fylgdar við hann og til átaka fyrir þau áhugamál, sem Framhald á bls. 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.