Morgunblaðið - 25.02.1969, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.02.1969, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999. Úitgiefia!ndi H.f. Árvafcuit1, Reykjavóik. Fxamfcv.sem,dasitj óri Haraldur Sveinsaon. 'Ritstjórai* SiigurSur Bjarrcason Ærá Yiguir. Matfchías Joihannesdea. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjómarfullteúi Þorbjöm Guðroundsson. Fréttaísitjóri Bjöim Jóhannssora, Auglýsingtastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími 10-1Ö01. Auglýsdngaa? Aðalistræti @. Síml 22-4-00. Aisifcríiftargjald kr. Iöð.0'0 á miánuði iimanlands, 1 lausasjölu kr. 10.00 eintakið. LÆRUM RF REYNSL UNNI W Vs rJr UTAN ÚR HEIMI Alþjóðleg ráðstefna um hagnýtingu sjávar — Cífurleg auÖœfi á hafsbotni nœr ónýtt. — Litið til siávarins. sem matvœlaforðabúrs oa málmaauðlindir Hér sést ein af „stáleyjum“ Shell olíufélagsins undan Afríku strönd. Þarna er olíulind á hafsbotni. l/'iðræður vinnuveitenda og " verkalýðssamtaka um kjaramálin eru nú hafnar. Oft hefur lítið svigrúm ver- ið til þess að veita kjarabæt- ur í slíkum samningaviðræð - um en aldrei þó sem nú. I skýrslu þeirri, sem forsætis- ráðherra flutti Alþingi fyrir nokkrum dögum um ástand og horfur í efnahagsmálum kom fram, að framleiðslu- magn sjávarútvegsins minnk aði um 15% á árinu 1968 og verðrríæti þess um nær 20%. Þjóðarframleiðslan á árinu 1968 minnkaði um 5%' og þjóðartekjurnar lækkuðu um 7%. Af þessu má ljóst vera, að viðræður vinnu- veitenda og verkalýðssam- taka hljóta fyrst og fremst að snúast um það, hvernig eigi að jafna tapinu niður. Allir þeir aðilar, sem um þessi mál fjalla, ríkisstjórn, stjórnarandstaða, samtök verkalýðs og vinnuveitenda hafa lýst því sem höfuðmark miði, að atvinnuvegir lands- manna verði efldir svo að þeir geti tryggt öllum vinnu fúsum höndum næga atvinnu. Þegar hafa verið gerðar margháttaðar ráðstafanir til þess að ná þessu marki. Rík- isstjórnin hjó á hnútinn og leysti sjómannadeiluna, sem valdið hafði víðtæku atvinnu leysi ílandinu.Eftirtektarvert er, að aðeins nokkrum dög- um eftir að bátarnir hófu veiðar er atvinnuleysi úr sög unni í Vestmannaeyjum. Svo skjótvirk eru áhrif þess, er . vertíðin hefst . Um þessar mundir er einnig unnið að úthlutun 100 milljóna króna til íbúðabygginga og Atvinnu málanefnd ríkisins vinnur nú úr þeim gögnum, sem verða grundvöllur úthlutun- ar 300 milljóna króna til efl- ingar atvinnulífinu í landinu. Öllum hlýtur að vera Ijóst, að nú ríður á öðru meir en íþyngja atvinnuvegunum með auknum útgjöldum, sem óhjákvæmilega mundi leiða af almennum verðlagsuppbót um á laun. Atvinnufyrirtæk- in hafa einfaldlega ekki bol- magn til þess að taka á sig þær kostnaðarhækkanir, sem leiðá mundi af slíku og enn- fremur liggur í augum uppi, að almennar verðlagsuppbæt ur á laun mundu þegar í stað verða þess valdandi, að verð bólguhjólið kæmist í fullan gang á ný. Við eigum að hafa lært það af reynslunni, að þegar til lengdar lætur er slíkt engum til hags. En með sama hætti og mönnum er væntanlega ljóst, að almenn- ar verðlagsuppbætur á laun koma ekki til greina eins og nú er ástatt, verður einnig að horfast í augu við þá stað- reynd, að hinir lægstlaunuðu í þjóðfélaginu búa nú við erfið kjör, ekki sízt þar sem mjög hefur dregið út atvinnu og yfirvinna gefur ekki tæki- færi til að auka tekjurnar nema að takmörkuðu leyti. Það hlýtur að verða megin- verkefni vinnuveitenda og verkalýðssamtaka í þeim kjarasamningum, sem nú eru að hefjast, að finna leiðir til úrbóta fyrir þetta fólk, án þess að það hafi almenn verðbólguáhrif í þjóðfélag- inu og án þess að aðrar og launahærri stéttir fylgi í kjölfarið. ÚTFLUTNINGUR ULLARVARA L árinu 1968 voru gærur, ull, prjónavörur og ull- arteppi flutt út til ýmissa landa fyrir rúmlega 263 milljónir króna. Fyllsta ástæða er til að ætla að hægt sé að auka þennan útflutn- ing verulega. Verksmiðjur SÍS á Akur- eyri hafa náð samningum um útflutning á ullarpeysum fyrir um 80 milljónir króna og verksmiðjan Álafoss vinn ur nú að því að vinna mark- aði fyrir ullarvörur beggja vegna Atlantshafsins og hef- ur þegar náð umtalsverðum árangri. Enginn vafi leikur á því, að íslenzka ullin býður upp á margvísleg tækifæri til framleiðslu varnings, sem hægt er að selja á erlendum markaði. Þegar hefur tals- verður árangur náðst í þess- um efnum og allar líkur eru á að hægt sé að stórauka þennan útflutning ef rétt er á haldið. Það verður fróðlegt að kanna um næstu áramót hversu til hefur tekizt á yf- irstandandi ári. Brighton, Englandi. AP. VÍSINDAMENN og tækni- fræðingar varðandi sjávar- útveg frá 14 þjóðum hafa að undanförnu setið á ráð- stefnu hér í Brighton, og láta þeir í ljós þá skoðun, að sá dagur muni koma er maðurinn verði að snúa sér að sjónum til þess að leysa matvæla- og hráefnavanda mál heimsbyggðarinnar. Þeir sjá jafnvel framá þá tíma, er „neðansjávarbú- garðar“ verði reknir til þess að ala upp fisk, og námugröftur neðansjávar. Um 1000 manns tóku bátt í þessari fyrstu alþjóðlegu haf fræðirá’ðstefnu, sem haldin hefur verið, og lauk nú fyrir helgina. Ráðstefnan var þeirr- ar skoðunar, að meiri fiskur væri í sjónum en næmi afla úr honum frá upphafi. Og þetta gilti ekki aðeins um fiskinn. Á hafsbotni eru gífurleg olíu- og málmasvæði,og þar er að finna bæði gull og dem anta. Naumast er hægt að segja að hreyft hafi verið við þessum auðlindum, en hægt verði að nýta þær jafnskjótt og bættar áðferðir til „upp- skeru gera það arðvænlegt. Höfin sem matvælaforðabúr ' voru mjög til umræðu á þingi þessu. Um 71% af yfirborði jarðar er hulið sjó og vatni, en hinsvegar gefur þessi gífur lega víðátta af sér aðeins ör- lítinn hluta þeirrar fæðu, sem þar mætti afla. Rannsóknir, sem fram- kvæmdar hafa verið að undir- lagi Sameinuðu þjóðanna, benda til þess að íbúafjöldi heimsins muni vera orðinn tvöfaldur árið 2000 miðað við það, sem nú er, og þrátt fyrir þetta býr nær helmingur nú- verandi íbúa jarðar við nær- ingarskort. Hver ræðumaður- inn á fætur öðrum á ráðstefn unni ræddi um áætlanir hinna ýmsu þjóða um hagnýtingu sjávarins. Ráðstefnunni var sagt, að eggjahvítuefni úr fiski kost- uðu aðeins þriðjung þess, sem YFIRNEFND Verðlagsráðs sjáv- arútvegsins hefur ákveðið eftir- farandi lágmarksverð á fiskbein um, fiskislógi og heilum fiski til mjölvinnslu eftirgreind tíma- bil. Tímabilið 15. nóvember til 31. desember 1969: a. Þegar selt er frá fisk- vinnslustöðvum til vinnslu í fiski mj öls verksmið j um. Fiskbein og heill fiskur, ann- ar en síld, loðna ,karfi og stein- bítur, hvert kg. kr. 0.79, karfa- bein og heill karfi, hvert kg. 0.95, steinbítsbein og heUl steinbítur, hvert kg. 0.49, fiskslóg, hvert kg. 0.32. b. Þegar heill fiskur er seldur beint frá fiskiskipum til fiski- mjölsverksmiðja. eggjahvítuefni nautakjöts kostuðu. Dr. Ritsura Harano frá Haf- rannsóknarstofnun Japans, taldi að um þessar mundir næmi samanlagður fiskafli heimsins áðeins 5% af þeim 1,8 milljarði tonna af þeim sjávardýrum, sem væru þess virði að veiða. Hann sagði ennfremur, að sérfræðingar væru þeirrar skoðunar, að ef aðeins væru motuð 5% af landgrunni Jap- ans til fiskiræktar mætti tvö- falda aflamagn landsins frá því, sem nú er. Nær jafnlöngum tíma var varið til þess að ræða málm- svæði á hafsbotni og fleira í þeim dúr. A.m.k. 12 lönd vinna nú olíu, jarðgas og brennisteinssambönd af hafs- botni éða úr sjónum og nemur andvirði framleiðslunnar 3,5 milljörðum Bandaríkjadala á ári. Auðæfasvæði af öðru tagi hafa fundizt í ýmsuim heims- hlutum, og þegar er tekið að nýta sum þeirra. Má þar nefna að gull er unnið af hafsbotni við Alaska, demantar úti fyrir SV-Afríku, tin úti fyrir Indó- nesíu og Malasíu og að auki eru unnir ýmsir þungir málm- ax. svo sem Mangan, nikkel, kóbalt og kopar úr hafdýpi Kyrrahafs. En það sem gerzt hefur fram að þessu, er aðeins byrj- unin. Skýrslur, sem lagðar voru fram á rá'ðstefnunni Fiskur annar en síld, loðna, karfi og steinbítur, hvert kg. kr. 0.62, karfi, hvert kg. 0.75, stein- bítur, hvert kg. 0.39. Tímabilið 1. janúar tii 31. maí 1969: a. Þegar selt er frá fisk- vinnslustöðvum til fiskimjöls- verksmiðja. Fiskbein og heill fiskur ann- ar en síld, loðna, karfi og stein- bítur, hvert kg. kr. 0.96, karfa- bein og heill karfi, hvert kg. kr. 1.12, steinbítsbein og heill stein- bítur, hvert kg. kr. 0.62, fisk- slóg, hvert kg. kr. 0.43. b. Þegar heill fiskur er 3eldur beint frá fiskiskipum til fiski- m j öls verksmið j a. benda til þess að olíu- og gassvæði á hafsbotni, sem að vísu eru enn arðvænlegasta og umfangsmesta vinnslan af hafsbotni, sé enn bundin til tiltölulega lítil svæði á land- grunnum og ekki dýpra en 200 m. Raunverulega hafa sérfræð- ingar ekki lokið rannsóknum á hafsbotninum nema á um 5% þeirra svæða, sem vitað er að eru auðug af olíu og jarðgasi. Víða um heim er nú hafin leit að gulli og mozanite á hafsbotni. Erfiðleikar þeir, sem núver andi framkvæmdir hafa átt við að stríða, eru fyrst og fremst fjármálalegs eðlis, t.d. skortur á áhættufjármagni, en einnig koma til tæknileg vandamál, svo og lögfræði- og lögsöguleg. Niðurstöður dr. Enneth O. Emery, frá Woods Hole haf- rannsóknarstofunni í Massa- chusetts, vóru að á næsta ára tug sé líklegt að vinnsla dýr- mætra efna af hafsbotni verði takmörkuð við hafsbotninn nálægt þeim stöðum, sem sömu efni eru unnin á landi. Og að því er tekur til spekúlanta, sem vonast til þess að uppskera ríkidæmi á einni nóttu, varnaðarorð: Það kostáði 5 milljónir dollara að ná demöntum að andvirði 4 milljónir dollara af hafsbotni undan strönd S-Afríku! Fiskur annar en síld, loðna, karfi og steinbítur, hvert kg. kr. 0.76, karfi, hvert kg. kr. 0.88, steinbítur, hvert kg. kr. 0.49. Verðin eru miðuð við að selj- endur skili framangreindu hrá- efni í verksmiðjuþró. Samkomulag var í nefndinni um lágmarksverðið fyrir ára- mót, en vetrarvertíðarverðið var ákveðið með atkvæðum odda- manns og fulltrúa seljenda gegn atkvæðum fulltrúa kaupenda. f yfirnefndinni áttu sæti: Jón Sigurðsson, deildarstjóri í Efnahagsstofnuninni, sem var oddamaður nefndarinnar. Guð- mundur Kr. Jónsson og Ólafur Jónsson af hálfu verksmiðjanna og Kristján Ragnarsson og Tryggvi Helgason af hálfu selj- enda. Lómarksverð á fiski til mjölvinnslu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.