Morgunblaðið - 25.02.1969, Side 16

Morgunblaðið - 25.02.1969, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1909. - MINNING Framhald af bls. 11 hann bar fyrir brjósti hverju sinni. Því réði vissulega ekki hend- in.g, að hann vsidist til forustu uim margskonar málefni. Honum vannst betur en flestum öðrum, og eins og áður sagði, veittist hon um létt að leiða menn saman til félagslegra átaka og tryiggja mál- um framgang. Á barnsaldri tók hann ást fóstri við íslenzka hestinn og ferðaðist þá þegar víða um land með föður sínum. Þá fékk hann strax það veganesti í hesta- mannafræðum, sem aldrei brást og ekki féll niður að ræ-kja allt tU hinztu stundar. í stjórn hesta mannafélagsinis Fáks sat hann lengi og vann því félagi allt er hann mátti á þeim tíma. Síðar tók hann að sér störf á vegum Landssambands hesta- mannafélaga, fyrst í ritstjórn tímarits þess, „Hestsins okkar“, þegar það hóf göngu sína, og átti stóran þátt í að móta það og leiða. Það starf var honum eink- ar hugleikið. Hann var í bezta lagi smekkvís á íslenzkt mál og étíl og brugðust í því efni hvorki erfðir né uppeldi. Ég veit fyrir víst að margir lesenda „Hestsins okkar“, gripu gjama niður í vísna þætti Einars, sér til fróðleiks og skemmtunar, en hann var jafn- an að finna í hverju hefti og er þar vissulega varðveittur mikill fróðleikur, sem hefur verulegt gildi þegar menntir okkar og menning er skoðuð og skýrð. Við tímaritið „Hestinn okkar“, hélt hann vöku sinni til endadags. Árið 1963 var hann svo kjör- inn formaður Landssambands hestamannafélaga og það var hann enn, er hann var burtu kail aður með svö sviplegum hætti. Við hestamenn getum ekki Iejmt gleði okkar, þegar við hugs um til þeirra ára, er Einar hafði leiösögn í samtökum okkar. Og við erum þakklátir fyrir það, hversu gifta hestamanna var rík að eiga þess kost að fá hann til þessara starfa. Samtökin efldust og uxu að styrk, félögum fjölg- aði stórlega og starfslhættir Landissambandsins héldu áfram að þroskast og festast í sniðum. — Og nú, í einu vetfangi, er Einar fallinn frá. Horfinn. Við, vinir hans, stöndum eftir og sjáum ekki annað en opið skarð. Við njótum ekki lengur samfylgdar hans á ferðalögum, hnittinyrða hans í skemmtisög- um og tækifæriisrvísum mæltum af munni fram né hins meitlaða máls, er hann flutti ræður á mót- um og manníundum. Við hlýtum ekki framar farar- stjórn hans. Hans, sem aldrei skoTti úrræði, atorku né dreng- skap þegar vanda bar að hömd- um. En þótt harmur byngi sýn, þessa köldu vetrardaga, þá meg- um við ekki gleyma því sem gafst. Og hollt er og gott á slík- um stundum sem þessum að rifja upp þessi vísuorð Tómasar Guð- mundssonar: „En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfa eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna“. Drottinn styrki og blessi þá, sem næstir honum stóðu og mest hafa misst. Gef vinum hans öll- um frið í hjarta. Steinþór Gestsson. Mér var ein furðufrétt að berast, frétt, sem mér olli sorgar að heyra. Válegur atburður var að gerast, varð mér sem hremsuþot við eyra. Fall mun ský á Fossvogsteiga og Fnjóskadalurinn þungan stynja. Flestir munu um Einar eiga eitthvað fagurt og gott til minja. Einar bar þokka á ýmsan miáta, var öllum mönnum og dýrum góður. Hann myndu vilja úr Helju gráta hestar landsins og skógargróður. Heiðmörk er nú í huga vorum. sem hnípin áistmey, er vinar saknar. Þar mun ætíð úr Einars sporum ilmur finnast, er gróður vaknar. Vökull félagi, vammi firtur, vandamál flestum betur leysti, af samstarfsmönnum og vinum virtur. Hans verkum og orðum sérhver treysti. Glaður í hópi góðra vina gekk hann fremstur í leik og verki. Æfður í veðrum skúra og skina skógræktarinnar bar hann merki. Þegar ættjarðareöngva sungu saman vinir á gleðiistundu, léku honum oft ljóð á tungu, er léttu skapið og markið fundu. Eins, er hann hafði fax í fangi flugu stökur til næstu knapa. í byggð sem úti á víðavangi var hann fegurð og gleði að skapa. Hans verður minnzt, er grænka grundir, er gildir stofnar úr krónum breiða, er bærast í vindi laufgaðir lundir og léttfetarnir um götur skeiða. Einars hróður mun áfram lifa og áhrif af starfi hans beraet víða. Hans ævisögu mun skógurinn skrifa á skrautblöð sín, þegar tímar líða. Ármann Dalmannsson. Það reikaði víða harmur í hús um og á þjóðbrautum og blik- uðu tár á mörgum hvarmi er fregnin um dauða Einars G.E. Sæmundsens barst um byggðir lands. Röskum sólarhring fyrir dauða Einars áttum við margir Fáks- félagar kvöldstund með honum í félagsheimili ckkar. Húsið var béttskipað áheyr- endum og mikill hluti þeirra ungmenni. Þar fengum við að sjá Einar stðast. í ræðustólnum stóð hann karlmannlegur og hlýr eins og alltaf. Hann ræddi nauðsyn þess að áseta, búnaður manna og um- hirða hesta væri fegruð og bætt og gerði grein fyrir áformum sínum og Landsambands hesta- manna til að auka þekkingu ung menna á hestum og sannri hesta mennsku. Þarna eins og oftast var það hvötin til þes3 að fegra og bæta lífið og lífsins böm, sem var grunntónninn í orðum hans. Hestamennska var Einari í blóð borin. Hann mun strax sem drengur hafa komizt í kynni við hana fyrir samvistir við föður sinn og hann sinnti henni til efsta dags. Vafaláust er óhætt að segja, að hestamennskan hafi verið annar snarasti þátturinn í hugðarefnum hns, órjúfandi sam ofin skógræktarmálefnum. Al'lt frá unglingsárum var Sumarbústuður óskust Sumarbústaður óskast til kaups. Tilboð skilist á af- greiðslu Morgúnblaðsins fyrir 1. marz n.k. merkt: „Staðgreiðsla — 2908“. N auðungaruppboð sem auglýst var í 67., 68. oig 69. tbl. Lögbirtinigablaðsisns 1968 á Vesturgötu 22, þiingl. eign Atla Björnssonar o. fL, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtuninar í Reykjavík, á eign- inmi sjálfri, föstudaginm 28. febrúar n.k. kl. 11.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. hann ein styrkasta stoð Hesta- mannafélagsins Fáks og hefur unnið því félagi ómetanlegt gagn, á stundum sem stjórnar- maður og alltaf sá félaginn, sem reiðubúinn var að fórna tíma og leggja á sig fyrirhöfn í þágu fé lagsins. Ég mun ekki fjalla um lífs- starf Einars skógarvarðarstarfið en það var göfugt starf að hlúa að lífi og kveikja nýtt líf, auka gróður landsins og fegra um- hverfi þéttbýlisbúanna. Þekking Einars á landi okk- ar var mikil. Sum svæði gjör- þekkti hann. Bæði örnefni og gamlar reiðleiðir. Hann var frá- bær ferðamaður og ferðaðist mik ið á hestum. Hann var forsjáll en þó áræðinn ef með þurfti og víkingsdugleg’ tr. Einar var jafnan hlýr og ljúf ur í viðmóti, framkoma hans, orð og handtak var þannig, að hann laðaði að sér fólk. Hver sem með honum var fann, að í glaðværri framgöngu hans, sem um leið var traust og yfirveguð, bjó svo fölskvalaus einlægni, að það hlutu allir, sem kynntust honum að laðast nær honum og fagna hverri sameiginlegri stund með honum. Ég hef átt stundir með Einari hrímuðum á íjöllum uppi og prúðbúnum í veizlusölum. Jafn an var hann sami glaðværi hátt- prúði höfðinginn. Vináttuhneígð Einars var rík og hrein. Umhyggja hans náði til hins smæsta meðal alls lifanda. Hann var raunsær og fegurðar- skyn hans var hroskað. Einar var v?l máli farinn og hafði næma kímnigáfu. Hann var ljóðelskur og kunni mikið af ljóð um og lausavísum. Sjálfur var hann ágætlega hagorður. Einar elskaði land sitt ást hins sanna föðurlandsvinar, dáði tign þess og gæði. Hann lagði öllum góðum mál- um lið. Hann bar öll beztu ein- kenni hins heilbrigða menningar manns. Líf Einars var sigur- ganga hins góða sonar. Skarð það, sem hann skilur eftir sig fyllir enginn ainn maður. Hestamenn landsins hafa misst sinn fremsta og bezta mann. Klökkum huga kveð ég Einar G. E. Sæmundsen, einn ágætasta mann, sem ég hef kynnzt. Minningin um hann verður vinum hans styrkur og hvöt til þess að bera fram sameiginlega það merki, sem hann einn bar áður með svo mikilli reisnv Hvíl þú í friði heillasonur fs- lands. Sveinbjörn Dagfinnsson. „DÁINN, 'horfinn! Harmafregn“. Þessar upphafshendingar úr kvæði Jónasar um Tómas látinn, komu fyrst af öllu í hug mér, er ég heyrði um hið sviplega frá- faU vinar míns, Einars G. E. Sæ- mundsen, skógarvarðar. Fyrir örfáum dögum höfðum við setið saman á fundi þar sem rætt var um fyrstu framkvæmd- ir skógræktar á íslandi, sem nýrr ar greinar í íslenzkum landbún- aði. Einar hafði ásamt þeim Sig- urði Blöndal, skógarverði á Hall- ormisstað og Baldri Þorsteins- syni, skógfræðingi, unnið að fræðilegum undirbúningi áætlun ar um skóggræðslu með búskap í Fijótsdal. Og hann hafði raunar gert meira til að hrinda því máli í framkvæmd. Undanfarin sum- ur hafði hann farið eldi, áhuga- eldi, um Fljótsdalinn og stuðlað að því að bændur sinntu þessu máli. Allt sem Einar lagði til á þess- um fundi, svo og öllum öðrum fundurn, sem ég hef setið með honum, var af sama toga spunn- ið. Góðri oig hagnýtri þekkingu á málefnum, ást á fagurri hugsjón, og það, sem mér fannst mest- til um, óvenjulega næmum skiln- ingi á mönnum og misjöfnum að- stæðum. Sáttfýsi hans og góðvild, á stundum blandaðar græskulausu gamni, nægðu jafnan til að deyfa eggjar tillagna og álykt,- ana, sem hefðu getað sært við- kvæman gróður í stað þess að sníða af kalkvisti, fúasár, eða illkynjuð vaxtaræxli, sem þeim var æ+.lað. í hita baráttunnar, jafnvel fyr ir hinum beztu málefnum, sjást menn oft ekki fyrir og særa oft verri sárum en ætlun var eða ástæða var til, sárum er leiða til óvildar og beizkju. Einhvernveginn fannst mér eins og í sverði Einars, sem að vísu gat verið flugbeitt, leyndist líf-steinn í eggju, líkt og var um Sköfnung — sverð Hrólfs kraka. Þeir, sem kannski særð- ust undan sverðalögum hans, gátu sagt með Skláldinu: „Líf- steinn var í sáru sverði, — sem að græddi mig“. Eftir fyrrnefndan fund, sem var hinn síðasti okkar Einars, ók hann mér heim í bíl sínum. Um- ræður okkar snerust um mál fundarins, hversu miklu máli það skipti að vel tækist um fyrstu framkvæmdir. í fram- haldi af því ræddum við um skilning og hlutdeild æskunnar í ræktunarmáluim í sambandi við vinnu ungs fólks í gróðrarstöðv- um og dáðist ég að bjartsýni Einars í þeim efnum, sem hann taldi byggða á reynslu sinni af því unga fólki, sem hj'á honum hefur unnið undanfarin ár. Er við kvöddumst við hús- tröppumar í síðasta sinn, gat ég ekki varizt þeirri hugsun að mik ið lán væri það fyrir ungt fóik að kynnast ræktunarstörfum undir handleiðslu manns, sem ekki liti á þau eins og brauð- strit eða skítverk, heldur sem hlutdeild í eilífu sköpunarstarfi hins álmáttka guðs. Ekki veit ég hvort aðrir hafa orðið hins sama varir og ég, að finnast fólk það er maður hittir, kynnist og umgengst vera mis munandi „vel“ lifandi. Með því að vera „vel“ lifandi er ekki átt við líkamlega heilsu eða atgervi. Orðið „vel“ er ekki skírskotun til niðurstaðna rannsókna á lík- •amsástandi og geðheilsu, ekiki 'heldur um „dyggðust líferni, heldur um það, hvernig viðkom- andi verkar á umhverfi sitt. Hvort hann eykur skilning manna og þar með sáttfýsi, glæð- ir menn bjartsýni um árangur góðra mála, og jafnvel hleður þá starfslöngun til að vinna drott- ins veröM eitthvað til þarfa. Það eru þessir menn, sem að mínum dómi eru „vel“ lifandi, því að þeir lifa í samræmi við innsta eðli tilverunnar og æðsta tilgang lífsins. Einar Sæmundsen var einn úr þessum hópi, og það einn af þeim „bezt“ lifandi. Ef ég ætti að skilgreina þetta mat og rök- styðja það, kæmist ég fljótt í þrot, jafnvel þótt taldir væru upp allir hans eðliskostir. Sem betur fer eru margir gæddir mörgum ágætis kostum, sem ger- ir þá að úrvalsmönnum, án þess þó að geta talizt í hópi hinna ,,vel“ lifandi manna. Hér er um að ræða einhvern óræðan eigin- leika, sem hvorki verður skilinn né skýrður eða á hann bent. Þessi óskýranlegi kostur, eðlis- kostur hlýtur það að vera, sem verkar svo kynlega á aðra, hefur mér fundizt eins og kveikjur og hvatar á mann- legan líkama. Hann kveikir áhuga og hvetur til starfa og fær menn til að leggja sig fram og taika á öllu, sem þeir eiga til, og það með ljúfu geði. Að vísu var Einar ræktunar- maður af hugsjón og þannig sam verkamaður þess máttar, er læt- ur liljurnar vaxa, en það er ekki næg skýring á því, hvernig hann gat miðlað öðrum þesisum kost- um sínum og fengið þá til að leggja sig fram. Kannski er sfkýringuna að finna í þeirri staðreynd að Einar Sæmundsen var hestamaður, einn af þeim beztu í landinu. Á landbúnaðarsýningunni í 'Sumar voru sýndir góðlhestar í dómhring og var keppt til verð- launa. Ég hitti Einar meðan á sýningunni stóð og hafði orð á því við hann, hver hina glæsileg- legu gæðinga mér sýndist líkleg- ur til fyrstu verðlauna. „Víst er þetta stórglæsilegur hestur", sagði hann, „en það verður dá- lítið erfitt að veita honum fyrstu verðlaun, því við viturn ekki hvað af glæsileiknum er að þakka eðliskostum hestsins, og hvað reiðmennsku'hæfileikum knapans, sem á honum situr. Það er svona með hann .......... að það virðist einu gilda á hvers konar hesti hann situr, þeir verða allir að gæðingum undir honum“. Þennan leyndardóm góðrar ’hestamennsku þekkja all'ir, en ég hef aldrei heyrt viðhlítandi skýr- ingu á því 'hvernig knapinn, með ásetu og taumhaldi einu saman getur breytt bikkjunni í gæðing og látið iHgengan jálkinn fara á kostum. Skáldið gafst upp á að skýra þetta furðulega fyrirbæri en lét sér nægja að tala um leyniþráð er héngi á milli manns og hests. Kannski er það einhver slíkur Leyniþráður, sem tengist á milli hins „vel“ lifandi manns og þeirra, er hann hrífu.r með sér. Þær voru fleiri, en tvær fyrstu ljóðlínurnar úr kvæði Jónasar er komu í huga minn við hina skelfi legu andlátsfregn. Einnig þessar: „Hví vil-1 drottinn þola það, landið svipta svo og reyna, svipta það einmitt þessum eina, er svo margra stóð í stað“. En við þessari spurningu fáum við, vinir Einars Sæmundsens, ekkert svar að svo stöddu. Það eitt er nú eftir fyrir okkiur, er við kveðjum hann, að færa hon- um þakkir fyrir það sem hann var og hugleiða janframt, að ekkert fær betur heiðrað min-n- ingu Einars en tvíeflt starf að áhugamálum hans. Miegi ástvinir hans njóta blessunar guðs og styrks í þungum raunum. Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum. Kveðja frá Kennaraskóla fslands. UNDANFARIN ár, um það leyti sem grös lifna og nótt verður þeið, hefur Kennarasikóli ís- lands nötið atfylgis Einars Sæ- mundsens, er kynna skyldi kenn- aranemum gróður landsins og þann þátt ræktunar, sem Einari var hjartfólgnastur. Var jafnan úr nokkrum vanda að ráða og fór vaxandi, eftir því sem fjölg-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.