Morgunblaðið - 10.04.1969, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.04.1969, Blaðsíða 2
2 MORGUNB'LAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRIL 1969 Yfirlýsing VR vegna Kron-málsins: VR krefst formlegra samninga — en Kron hefur ekki sinnt því Mbl hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing frá Verzlunarmanna- félagi Reykjavíkur. Vegna umræðna og blaðaskrifa um vinnustöðvun V.R. hjá KRON skal þetta tekið fram: 21. febr- úar s.l. barst V.R. tilkynning frá KRON sem samhljóða var tilkynningum annarra samtaka vinnuveitenda, um að KRON sæi sér eigi fært að greiða laun skv. kjarasamningum frá 18. marz 1968 Þar með var sá samningur milli KRON og V.R. að sjálfsögðu algjörlega úr gildi fallinn, einnig vegna uppsagnar V.R. á þeim samningi fyrir áramót. Síðar ákvað stjórn KRON einhliða að Igreiða vísitölu í marz á grund- velli þess samnings, sem gerður var i byrjun ársins 1968, en var lúr gildi íallinn samanber fram- ansagt. f bréfi dags. 1. apríl tilkynnir KRON, að fyrirtækið myndi einnig greiða laun með sama hætti fyrir april. V.R. hefir ítrekað óskað eftir samningi við KRON um þetta efr»i, en al’ls engin svör fengið. Hafa forráðamenn KRON hvorki maett til umbeðinna fund,a né svarað erindi félagsins. V.R. næg ir ekki, fremur en öðrum verka- lýðsfélögum, einhliða yfirlýsing lar vi'ðsemjenda þess um kaup og kjör í örskamman tíma. Krafa V.R. er formlegur samningur um kaup og kjör, en því hefir KRON alls ekki sinnt. V.R. metur það að sjálfsögðu við KRON, að fyr irtækið skuli greiða starfsfólki sínu laun með vísitölu skv. fyrri samningi. En V.R. getur ekki keypt það því verði, að fá emg an formlegan samning við fyrir- tækið. Né heldur getur KRON keypt sig frá óþægindum vinnu stöðvunar með einhliða yfirlýs- ingum. Slíkar tilraunir vinnu- veitenda eru alþekktar og á t.d. dagblaðið Þjóðviljinn fjölda orða í sínu marglita orðasafni yfir slika hegðun, en af einhverjum duldum hvötrnm hefur það blað að undanförnu hamazt mjög að V.R. vegna ákvörðunar þess um að boðuð vinnustöðvun nái til KRON eins og annarra viðsemj enda V.R. og reynt með því að Veikja samstöðu félaga V.R. um vinnustöðvunina, en slíkt mun vissúlega ekki takast. Skrif þess efnis að vinnustöðvun V.R. hjá KRON sé einhvers konar hefnd araðgerð eru ósæmileg og út í hött. V.R. hefur í gegnum árin átt góð samskipti við KRON og veit að svo muni verða áfram, þótt óft geti hörð átök í kaup- og kjaramálum valdið stundarsárs auka. V.R. hefur boðið KRON upp á formlegan samning og er enn til þess reiðubúið sem og við aðra viðsemjendur sína. Athugosemd vegno guiuolls- stöðvurinnur í Bjurnurflugi AKUREYRI 8. april. Stjórn Laxárvirkjunnar hefur beðið fyrir eftirfarandi athugasemd: „Vegna missagna í fréttum tsumra dagblaða frá hinni nýju jarðgufustöð Laxárvirkjunnar Við Mývatn vill Laxárvirkjun taka þetta fram: Dagana 23. og 124. marz var stöðin tengd við Sinfóníuhljómsveit íslands: Flytur verk Jóns Leifs A 14. REGLULEGU tónleikum Sinfóníuihljómsveitar íslands er haldnir verða í Háskólabíói fimmtudaginn 10. apríl, verða flutt verk eftir Jón Leifs. Stjórn andi er dr. Lóbert A. Ottósson, en einsöngvarar Guðmundur Guðjónsson og Kristinn Halls- son. Flutt verða verkin: Sorgar- mars úr Galdra Lofti, Hinzta kveðja, sönglögin Máninn líður og Vögguvísa, Minni íslands, Sköpun mannsins úr Baldri, Nótt op. 59 við texta eftir Þor- stein Erlingsson og Rímnadans- lög. Jón Leifs var fæddur 1. maí 1899 og dó 30. júlí 1968. Um víða veröld er nafn hans sammerkt hugtakinu „íslenzk tónlist". Með liprum penna í fjölda greina í erlendum tímaritum og m. a. í bók sinni „Islands kunstlerische Anregung“ vakti hann athygli umheimsins — og margra landa sinna — á músnk- arfi íslendinga. Eddukvæðin voru músík, þar voru rætur ís- lenzkrar tónlistar. Þar voru heiðar fyrirmyndÍT þeirra blæ- brigða, er ríkja áttu í íslenzku tónlistinni. Þar var tjáningin vafningalaus, óvæmin og til- gerðarlaus. Þar var „brosið bart“. Hver var þá tónn þessar- ar arfleifðar? Hann var að nokkru geymdur í þjóðlegri list kvæðamanna, hrjúfum tóni og tilbreytimgarlitlum á yfirborð- inu. Hann var og geymdur í tærum samhljómi tvísöngs eða angurværum ómi þjóðlagsins. Vitneskjan um þetta eðli mús- íkarfleifðar íslendinga var Jóni hvatnimg til persónulegs og þjóðlegs tónskáldskapar. Hann styrkti hljóðfall hinnar einföldu stemmu, upphóf áherzlur og „hnykki“ kvæðamannsins. Hann „litaði" samhljóminn frá tví- söngnum með öðrum tlómbilum, oftast þríundum. í tónsmíðum Róbert A. Ottósson Jon Leifs sínum varð hann því heldur málari en skáld tónasambanda. Tónsmíðar hans fyrir hljóðfærin ein voru undantekningarlítið um eitthvert efni, þær lýstu eða máluðu. Flestar tómsmíðar Jóns Leifs voru fyrir söng, einsöng eða kór. Alþekkt eru t. d. lögin op. 14 við ljóð Jóhanns Jónssonar. Hins vegar er hér frumflutt verkið „Nótt“, op. 59, samið við vísur eftir Þorstein Erlingisson. Víð- frægir eru rímnadansarnir, sungnir eða leiknir og sömuleið- is forleikurinn „Minni íslands“ eða hljómleikarnir við „Galdra Loft“ Jóthanns Sigurjónssonar. Mörg verka Jóns eru samt óþekkt, hafa aldrei verið flutt. Þau eru samin fyrir slíkt lið tón listarmanna, sem Jón lét ság dreyma um, að þjóð hans eign- aðist í framtíðinni. Eitt þeirra verka er „Baldr", músíkdrama án orða, op. 34, en hluti þess. er fjallar um gköpun mannsins, heyrist nú í fyrsta sinn. kerfið og ýmis tæki vélarinnar ireynd. Þriðjudaginn 25. marz var vélin prófuið og keyrð sam- fleytt í 11 klst. með mismunandi élagi, mest 2400 kílóvött. Lengst •af var álagið á bilinu 1800—2100 íkílóvött. Þar sem Kísiliðjan starfaði með fullum afköstum þennan dag, þá reyndist ekkf unnt að ifá meira afl úr vélinni, en búast má við að vélin muni geta fram- deitt allt að 3000 kv þegar næg igufa er fyrir hendi. Unnið er iað lokafrágangi stöðvarinnar, og mun starfræksla hefjast fljót- lega eftir páska. Nánar mun iverða skýrt frá stöðinni síðar.“ — Sv. P. Nýir dansorar í Fiðlaronum í GÆR komu til landsins tveir .norskir dans'arar, en þeir heita Thorgeir Fonnlid og Jack Grub- an Hansen. Þeir eru ráðnir til 'að dansa í Fiðlaranum á þak- ánu í Þjóðleikhúsinu. Fyrsta sýningin hjá þeim verður nk. föstudag 11. apr.íl og er það 15. isýning leiksins. Uppselt befur iverið á allar sýningar og færri ikomizt að en vildu. óhætt mun að fullyrða að þetta sé ein sú mesta aðsókn, sem nokkurn ■tkna hefur verið hjá Þjóðleik- ■húsinu. Dansararnir, Svenn Berglund Og Leif Björneseth, sem dönsuðu með í Fiðlaranum fyrstu 14 sýn- .ingarnar fóru utan í morgun, ■en eins og fyrr segir koma tveir aðrir norskir dansarar í þeirra stað. t dag opnar Rúnar Gunnarsson on ljósmyndari og kvikmynda- tökumaður ljósmyndasýningu í Unuhúsi við Veghúsastíg. Á sýn ingunni er um 50 svart-hvítar Ijósmyndir, sem Rúnar hefur tekið á síðustu árum. Skemmtifundur ANGLIA og ÍSLENZK-AMERÍSKA íélagsins ANGLIA og Íslenzk-ameríska félagið efna til sameiginlegs skemmtifundar nk. föstudags- kvöld í Sigtúni. Verða þar ýmis skemmtiatriði og dans stiginn. Þetta er í annað sinn, sem fé- lögin efna til sameiginlegrar skemmtunar, en sú nýbreytni var tekin upp á sl. ári. Þótti fyrsta skemmtunin takast svo vel, að ákveðið var að gera einn slíkan sameiginlegan skmmti- fund á ári að fasitri venju, Athygli s’kal vakin á því, vegna misritunar í auglýsingum, að skemmtunin hefst kl. 8.30 á föstudagskvöld, en ekki kl. 18.30. Undanþúga vegna millilandailugs AÐ gegnu tilefni vill VR taka fram, að félagið hefur veitt Loft lenðum hf. og Flugíélagi íslands hf. undanþágu til afgreiðslu á Alþýðublaðið kvöldblað ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefur breytt útkomutíma sínum og kemur nú út síðari hluta dags. Fyrsta síð- degisblað Alþýðublaðsins korq út í fyrradag og þar segir m. a. á þessa leið um breytinguna: „Þessi breyting er þó raunar að- éins rökrétt framhald þeirrar útlits- og efnisbréytingair, sem gérð var á blaðinu fyrir röskum mánuði, en segja má að með henni hafi blaðið fengið á s'ig mikiu meiri kvöldiblaðssvip en áður.“ Fimmfagur skólameistari JÓHANN S. Hannesson, skóla- meistari Menntaskólans að Laug arvatni, er fimmtugur í dag. — Foreldrar hans voru Hanney Jónasson, bóksali á Siglufirði, og kona hans, Kristín Björg Þor- steinsdóttir. Jóhann varð stúdent frá Menntaskólanum á Afeureyri 1939. Hann nam við University of California, Berkeley, og stuind aði þar framihaldsnám með ensku sem aðalgrein til ársins 1947. Hann var lefetor í ensku við Háskóla íslands 1948—50 en frá 1952 til 1960 kenndi hann ensku við Cornell University, Ithaca, New York, og var bókavörður við The Fiske Icelandic Collec- tion. Skólameistari Menntaskól- ans að Laugarvatni varð Jó- hann 1960. Jóhann Hannesson átti sæti í Menntamálaráði frá 1963 til 1967 Jóhann S. Hannesson. og er nú ráðunautur Skólarann- sókna menntamálaráðuneytisins. Kona Jóhanns er Lucy Win- ston, fædd Hill, frá Kaliforníu, og eru börn þeirra tvö. millilandaflugi frá Keflavíkur- flugvelli. Undanþága þessi nær til samtals 13 félagsmanna VR, en á fimmta hundrað félags- menn og konur, sem starfa hjá umræddum fyrirtækjum leggja niður vinnu í boðuðu verkfallL Það skal tekið fram að vinnu- stöðvun umræddra starfsmanna ásamt örfaum félagsmönnum Verzlunanmannafélags Suður- nesja hefði stöðvað alLt milli- landaflug, ef þessi ákvörðun hefði ekki verið tekin, þar sem efekert annað félag á Suðurnesj- um boðaði vinnustöðvun. Atvinnulausum iækkaði um 1528 í marz SAMKVÆMT skýrslu, sem Mbl. hefur borizt frá félagsmálaráðu- neytinu, voru atvinnuleysingjar hér á landi í marzlok 2077. — Hafði þeim fækkað um 1528 í marzmánuði, en 28. febrúar voru 3605 manns atvinnulausir. — í kaupstöðuim voru 1572 atvinnu- lausir (2623), í kauptúnum með 1000 íbúa 129 (231) og í öðrum kauptúnum 376 (751). Noín drengsins sem iórst í bílslysinu LITLI drengurinn, sem lézt í bílslysi við Gerðu'berg í Eyja- sveit á Snæfellsnesi sl. laugar- dag, hét Jóhann Sigurjónssor frá Valbjarnaryöllum í Mýra- sýslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.