Morgunblaðið - 10.04.1969, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.04.1969, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1969 3 Kron hefur ekki skrifað undir samninga við VR Þess vegna er boðað verkfall hjá Kron sem öðrum — segir Cuðmundur H. Carðarsson, form. VR í viðtali við Mbl. ÞJÓÐVILJINN réðst í gær harkalega að forustu- mönnum Verzlunarmanna- félags Keykjavíkur vegna þeirrar ákvörðunar V. R. að boða verkfall hjá KKON í dag og á morgun eins og öðrum viðsemjend- um Verzhmarmannafélags ins. Mbl. sneri sér í gær til Guðmundar H. Garðars sonar, formanns V.R. og spurði hann um afstöðu félagsins til þessa máls. Guðmundur H. Garðarsson sagði: „V.R. sagði upp kjarasamn- ingum sínum við KRON eins og við a'ðra viðsemjendur með lögformlegum hætti. í framhaidi af því barst V. R. hinn 21. febrúar sl. bréf frá KRON um að fyrirtækið „sæi sér eigi fært að greiða laun skv. kjarasamningum frá 18. marz 1968“. Var bréf þetta sam.hljóða tilkynningu ann- arra viðsemjenda VR um þetta efni. Með þessu var samningur milli KRON og VR algjörlega úr gildi fallinn enda hafði VR raunar sagt þeim samningi upp fyrir ára- mót. VR, eins og önnur félög innan ASI, sem hafa féla.gs- svæði í Reykjavík og ná- grenni ákvað að taka þátt í myndun allsherjarsamnin.ga- nefndar ASÍ, sem ætti við- ræður vfð vinnuveitendur um kröfur verkalýðsfélag- anna en allir helztu forustu- menn verkalýðshreyfin.gar- innar lögðu þá og leggja enn mikla áherzlu á þessa sam- stöðu verkalýðshreyfingarinn ar. Á þeim grundvelli hefur VR unnið að þessari samn- ingagerð og þá m.a. með þátt töku í því verkfalli, sem nú er hafið. 1 byrjun marz gerist svo sá óvænti atburður, að dag- blöð skýrðu frá því að stjórn KRON hefði á fundi sínum 6. marz samþykkt að greiða starfsfó’ki fyrirtækisins verð lagsuppbætur á laun í marz- mánuði eins og samningarnir frá 1968 gerðu ráð fyrir, þrátt fyrir það að KRON hefði áð- ur tilkynnt VR að fyrirtæk- ið „sæi sér eigi fært að hækka útbörgað kaup frá og með 1. marz eins og samning- arnir frá 18. marz 1968 gerðu rá'ð fyrir.“ Strax og þessi frétt birtfst skrifaði VR bréf til KRON og óskaði staðfest- ingar á fréttinni. í bréfinu segir m.a.: ,,Ef frétt þessi er 'rétt, sem vér höfum ekki ástæðu til að efa, teljum vér oss skyit, sem lögformlegum samningsaðila við yður að fara fram á samningaviðræð- ur við yður um verðtrygg- ingu launa hjá verzlunar- og skrifstofufólki KRON“ og var ós.kað eftir fundi á tilteknum degi og tíma. Guðm. H. Garðarsson Forráðamenn KRON hirtu hvorki um áð svara bréfinu né mæta til þeirra viðræðna, sem óskað var eftir og gerðu það ekki heldur á síðari stig- um málsins, þrátt fyrir ítrek aðar óskir um samningavið- ræður. Hins vegar svöruðu þeir því til bréflega 26. marz að þeim hefði skilizt, að VR hefði vísað viðræðum um verðtryggingu launa verzlun- arfólks til sáttasemjara og að 'hann væri að leita eftir sam- komulagi. En enn komu þeir ekki til fundar við stéttarfé- lagið þrátt fyrir ósk okkar. T>að síðasta formlega, 'sem við höfum heyrt frá þessum aðila er í fyrsta lagi stutt til- kynning um greiðslu verð- lagsuppbótar á laun í apríl og í öðru lagi ósk um að VR taki til endurskóðunar og breyti afstöðu sinni til boð- aðrar vinnustöðvunar hjá KRON. Framkoma KRON gagnvart stærsta stéttarfélagi landsins í þessu máli gegnir mikilli furðu en afstaða VR er skýr: 1. Stéttarfélagið fær. ekki viðræður við viðsemjanda. 2. Félagið getur ekki við- urkennt einhliða yfirlýsingu viðsemjanda um kaup og kjör félagsfólks, sem félagið á áð semja fyrir. 3. Við höfum því enga samninga fengið við KRON frekar en aðra viðsemjendur og hljótum því að lýsa yfir verkfalli hjá þessum aðila sem öðrum. Að öðru leyti vísa ég til yfirlýsingar félagsstjórnar VR, sem birt er á öðrum stað í blaðinu í dag. Við forustumenn VR höf- um orðið fyrir miklu áðkasti í Þjóðviljanum og Tímanum og hefur kommúnistablaðið m.a. gripið til þess óheilla- vopns að blanda starfsfólki KRON mn í þessa deilu, m.a. með því að gera því upp and- úð á forustu VR vegna KRON-málsins. Ég hlýt að lýsa furðu minni yfir því að þetta blað, sem hefur talið sig „málsvara verkalýðshreyf- ingarinnar" skuli leyfa sér a'ð ráðast á forustu VR fyrir að taka þátt í samstöðu verka- lýðshreyfingarinnar í barátt- unni á þessu stigi og telji henni það til hnjóðs að láta ekki vinnuveitendur ákveða einhliða og samningslaust kaup og kjör. Ef að það eru Framhald á bls. 31. Lögfræðihandbók fyrir aimenning BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg- tar hf. hefur sent á markaðinn ilögfræðihandbók — „meginatriði ipersónu-, sifja- og erfðaréttar Imeð skýringum fyrir almenn- öng“ —, Sem dr. Gunnar G. iSehram tók saman. „Bók þessi ■er fyrst og fremst ætluð sem ihandhæpur leiðarvísir fyrir fólk «n er hvorki fræðirit né vísinda- íit", sagði dr. Gunnar á fundi oneð fréttamönnum í gær. • Efni bókarinnar skiptist í sex .meginkafla; Lögfræði, Manna- .nöfn, Hjúskapanmál, Ættleiðing, .Erfðaréttur og Skipti dánarbúa. .í þeim er fjallað um meginatriði Jaga á þessum sviðum og þau .skýrð á ljósan og greinargóðan imáta. í bókinni er því að finna ■glögg svör við fjölmörgum lög- .fræðilegum spurningum, sem oft •heyrist varpað fram manna á •meðal, og ítarlegt efnisyfirlit og .atriðisorðaskrá auðvelda mjög .notkun bókarinnar. • Örlygur Hálfdánarson sagði á .fundinum með fréttamönnum í igær, að bækur sem þes’si, væru mjög vinsælar erlendis og hyggð ist hann halda áfram á þessari braut, ef sú yrði raunin með þessa bók, Sem hann kvaðst alls ekki draga í efa. Gunnar G. Sdhram OPIÐ í DAG 0G Á MORGUN Kaupið borðstofusett fyrir ferminguna FYRIR 1500 KRÓNUR á mánuði og 7500,oo út eignizt Jbér BORÐSTOFUBORÐ og 4—8 stóla. FYRIR 2000 KRÓNUR á mánuði og 2000,oo út eignizt jhér BORÐSTOFUSKÁP, BORÐ og 4—8 stóla. STÓLAR KOSTA: 1.450.-, 2.390.-, 2.810.-, 2.985.-, 3.375.- — 6.880.-, 7.345.-, 7.760.-, 8.985.-, 9.365.- 12.845.-, 13.345.-, 13.900.-, 15.845.-, 17.585.- BORÐ SKÁPAR — Eingöngu vondnðnr vörur r->c* 1-þölÍirp ’T-~' ■mn i « STAKSTEIIMAR •2C 22900 LAUGAVEG 26 „Nútímablað fyiir nútíma fólk“! Alþýðublaðið breytti sjálfu sér sl. þriðjudag úr morgun- blaði í kvöldblað. Af þessu til- efni birtir blaðið á forsíðu sinni hugleiðingu um þessa breytingu. Er þar m.a. skýrt frá aðaltil- ganginum með henni. Kemst blaðið þá þannig að orði, að „markmið þess er að verða nú- tíma blað skrifað fyrir nútíma fólk“. Ennfremur segir í hugleiðing- um blaðsins um þetta efni: „Eðli kvöldblaða er og hlýtur að vera nokkuð annað en eðli morgunblaða, og sjálfsagt líður einhver tími þar til Alþýðublað- ið verður búið að fullmóta það form, sem það klæðist í sem kvöldblað/ Því má búast við því að ýmsar breytingar á efni þess verði gerðar á næstu vikum, m.a. í því skyni að auka til muna þjónustu við lesendur. Alþýðu- blaðið hyggur gott til þeirrar breytingar, sem það gerir nú. Með henni er tekinn upp gamall þráður, en Alþýðublaðið var um langt skeið siðdegisblað. Vonandi verður breytingin, sem nú er gerð upphaf að nýju blóma- skeiði. Með henni er Alþýðublað ið að gera tilraun til að svara betur kröfum tímans. Markmið þess er að verða nútíma blað skrifað fyrir nútíma fólk.“! Engin þjóð vill fara úr NATO Franska blaðið France-Soir í París ræðir nýlega um 20 ára af- mæli Atlantshafsbandalagsins. Segir blaðið að enginn dragi lengur í efa hinn mikla árangur, sem orðið hafi af stofnun Atl- antshafsbandalagsins. >að sé ein- stakt, að um leið og viðurkennt sé að bandalagið hafi náð hinum friðs*#ilega tilgangi sínum, þá skuli enginn draga tilverurétt þess framvegis i efa. Sáttmáli Atlantshafsbandalagsins, sem undirritaður hafði verið í Was- hington 4. apríl 1949 styðjist enn við hin fyllstu rök. Engri með- limaþjóð bandalagsins komi til hugar að draga sig út úr því. Sjálfur De Gaulle hershöfðingi láti ekkert tækifæri ónotað til þess að staðfesta að Frakkland sé í bandalaginu og muni verða framvegis „bandamaður banda- manna sinna“. r Otti og tortryggni í Austur-Evrópu Bandaríska tímaritið U. S. News and World Report ræðir nýlega um ástandið í Austur- Evrópu og komst þá m.a. að orði á þessa leið: „Ótti og tortryggni setja ekki aðeins svip sinn á líf fólksins í Tékkóslóvakíu. Þetta ástand rík- ir einnig í öðrum löndum hins kommúniska skipulags. Þegar tékkneskir „félagar'* fara yfir landamærin inn í Austur-Þýzka- land þá eru þeir oft tafðir klukkutimum saman, afklæddir og vandlega leitað á þeim. Sumir eru neyddir til þess að snixa við. Enginn skýring er nokkurn tíma gefin. Hvers vegna? Þýzkir kommúnistar treysta ekki tékk- neskum kommúnistum. Austur-Þjóðverjar banna einn ig ferðalög til Tékkóslóvakíu. Austur-Þjóðverji, sem fer í frí til Ungverjalads verður að aka þúsund mílna krók yfir Pólland og Rússlandi. Það er eina leiðin til þess að losna við að fara um Tékkóslóvakíu. En þar með er ekki öll sagan sögð. Rximenía og Búlgaría geyma beztu hótelherbergin og veitingastaðina fyrir ferðamenn frá Vestur-Evrópu, sem hafa harðan“ gjaldeyri.“ *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.