Morgunblaðið - 10.04.1969, Qupperneq 4
*
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1969
BÍLAIEI6ANFALUR
car rental service
22-0-22-
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðaotræti 13.
Sími 14970
Sveinbjöm Dagfinnsson, hrl.
og Einar Viðar, hrl.
Hafnarstræti 11. - Sími 19406.
SKAUTA
HÖUUN
SKEIFUNN117
Verð: Kl. 10—13 kr. 25.
V
Ki. 13—19,30 kr. 35.
Kl. 19,30—23 kr. 40.
Skautaleiga kr. 30.
I dag verður afmarkað svæði
til æfinga fyrir fullorðna kl.
17—23.
0 Sigtún
„Kæri Velvakandi!
Frá Akureyri skrifar „Hót-
fyndinn":
Miklar þakkir fyrir margt í
dálkum þínum. Mikið þykir mér
dapurlegt, þegar þið fyrir sunn-
an eruð að tala um þetta og
þetta i Sigtúni. Mér finnst fal-
legra að segja í Sigtúnum eða að
Sigtúnum, og ég held, að það
standi í gamalli bók, að Óðinn
hafi búið að Sigtúnum. >að þykir
betra mál að segja á ingvöll-
um, heldur en á Þingvelli.
0 Brotið á Lesbók
Svo er það annað mál: Þvi
var verið að breyta broti á Les-
bók Morgunblaðsins fyrir nokkr-
um árum? Það þótti mér afar
leitt, og þykir minna vænt um
hana síSan.
Hótfyndinn."
— Það mun rétt vera, að Sig-
tún hafi verið fleirtöluorð, sbr.
það, sem Arnórr kvað:
Báru brimlogs rýri
brún veðr at Sigtúnum.
— Einnig segir Snorri í Eddu,
að Óðinn hafi kosið sér „þar borg
stað, er nú heita Sigtún".
— Brot Lesbókarinnar mun
hafa verið fært í nýtízkulegt horf
vegna þess að það veitir mun
fleiri tækifæri en hið gamla, sem
var óneitanlega all-þröngur
stakkur skorinn.
0 Lítt notað lækninga-
tæki
Steinar Guðmundsson, Bólstað
arhlíð 32, skrifar:
Velvakandi góður!
Þegar ég í forustugrein Mbl. í
Einangrunargler
íslenzk framleiðsla — jafngóð því bezta. Hagstæðasta verðið
10 ára ábyrgð 100% brotatrygging.
Gleriðja Suðurnesjo hí.
Strandgötu 18, Sandgerði — Simi 7625, 81876.
MERKJASALA
Ljósmæðrafélags Reykjavíkur verður næstkomandi sunnudag
13. apríl. Tuttugu og fimm þúsund kr. af ágóða hennar verða
látnar renna til væntanlegrar kvensjúkdómadeildar, sem fyrir-
hugað er að reisa við Fæðingardeild Landspítalans.
Ljósmæður og aðrir velunnarar félagsins, sem vilja selja merki
tilkynni þátttöku sína til Helgu M. Níelsdóttur Miklubraut 1
simi 11877, eða til Guðrúnar Halldórsdóttur Rauðarárstíg 40
sími 12944. Merkin verða afhent á eftirtöldum stöðum á
sunnudagsmorgun frá kl. 10:
Hallgrímskirkju norðurálmu, Breiðagerðisskóla, Langholts-
skóla, Vogaskóla, Álftamýrarskóla.
Mæður, leyfið bömum ykkar að selja merkin.
(Klæðið bömin vel).
STJÓRNIN.
• VERZLANIR
• HÁRGREIÐSLUSTOFUR
• IÐNFYRIRTÆKI
Hef milligöngu um kaup og sölu á hvers konar fyrirtækjum.
Hef verið beðinn að annast um sölu á neðangreindum fyrir-
tækjum:
Ein helzta fataverzlunin við Laugaveginn.
Góðkunn kvenfataverzlun við Miðbæinn.
Nýleg hárgreiðslustofa í fjölbýlu hverfi
í Austurborginni.
Prjónastofa útbúin afkastamiklum vél-
um og góðu úrvali frágangsvéla.
Upplýsingar ekki gefnar ! síma.
RAGNAR TÓMASSON, HDL.,
Austurstræti 17. 3. hæð
(hús Silla og Valda).
morgun las um þá framtakssemi
dómsmálaráðherra, að láta strax
hefjast handa við byggingu bráða
birgðahúsnæðis yfir kóbalttækin
sem Krabbameinsfélagið gaf til
geislalækninga, svo ekki þyrfti að
bíða eðlilegrar þróunar í bygg-
ingarmálum Landspítalans, datt
mér strax í hug annað fyrir-
bæri — annað krabbamein og ann
að tæki.
Við íslendingar eigum lækn-
ingartæki, sem fengið hefir við-
urkenningu allra er til þekkja
um heim allan, vegna hins ótrú-
lega árangurs sem með því næst
sé þvi réttilega beitt þegar við
á. Þetta tæki er hinn stóri hóp-
uir fullnuma sjálfboðaliða sem A.
A.-hreyfingin hefir ungað út á
undanförnum árum — og sem
heilbrigðisþjónustan hefir senni-
lega enin ekki komið auga á.
Til að ánangur náist verður
sjúklingur og sjálfboðaliði að
snertast á einhvern hátt, — enda
hygg ég, að svo sé um flest önn-
ur lækningafæki. í dag standa
málin þannig, að sjúklingurinn
eigrar einangraður í sínu um-
hverfi og nær ekki til hjálpar-
innar, en læknirinn, sem vera á
tengiliður sjúklingsins og heil-
brigði, stendur ráðþrota álengd-
ar vegna aðstöðuleysis. Og tækið
liggur ónotað.
Ef hægt er að slá upp bráða-
birgðaskúr við Landspítalann í
von um að með því megi bjarga
nokkrum mannslífum, sem ella
færu í súginn, hvað mælir þá í
móti því að vi ðBorgarspitalann
væri reft yfir nokkra fermetra,
svo að heimilislækninum yrði
sköpuð aðstaða til að koma
drukknum sjúklingum sínum i
snertingu við „kóbalttæki" alko-
holismans.
0 Alvöru-aðgerðir
Með lofsverðri ráðstöfun ráð-
herra til nýtingar hinnar dýr-
mætu aðstöðu er kóbalttæknin
skapar, er áætlað að þó nokkrum
mannslífum verði bjargað. En
þau mannslíf mundu fljótlega
skipta tugum á ári, er bjarga
mætti með alvöru-aðgerðum, er
miðuðu að því að samræma tæki
og tækni þjóðfélagsins til hjálp-
ar þeim fjölda alkóhólista sem
oft á tíðum ekki einu sinni gera
sér grein fyrir því, að þeir eru
sjúklingar. Framlagður kostnað-
ur þess opinbera væri fljótur að
skila sé aftur vegna stórbættrar
afkomu þeirra fjölmörgu heim-
ila sem nú rétt skrimta — en
yrðu aflögufær á mairgan máta ef
sjúkdómsokinu yrði af þeim létt.
0 Sá fimmti
FóUti — já, jafnvel frammá-
mönnum okkar á ýmsum svið-
um — hættir svo til að álykta,
að afvötnunarstöð hljóti að vera
einhvers konar þjónustumiðstöð
útskúfaðra. Fólk gleymir því, að
í öllum stéttum og á öllum stigum
þjóðfélagsins berjast menn við
að ná sér út úr fylliríi. Fimm
menn lyfta glösum, fjórir hátta
ófuilir að kvöldi--en sá fimmti
afklæðist varla hjálparlaust fyrr
en að viku Uðinni. Þetta er eng-
inn leikur, og því síður uppgerð.
Enginn viU vera í sporum
fimmta mannsins. Alkoholismi er
sjúkdómur.
Með beztu kveðju
— en hjúferunarstöðin verður
að komast á laggimar.
Steinar Guðmundsson.
HEILDVERZLUN
með gott dreifingarkerfi getur fengið sölu-umboð fyrir iðnaðar-
fyrirtæki í Reykjavik, sem hefur framleiðsluréttindi heims-
frægra vörumerkja á hreinlætis- og snyrtivörum, sem þegar
hafa margra ára haldgóða sölu á islenzkum markaði.
Umsóknir með upplýsingum óskast sendar afgreiðslu Morg-
unblaðsins fyrir 15. apríl n.k. merktar: „Snyrting — 2876".
RAÐHÚS—SÉRHÆB
Höfum kaupanda að 5—7 herbergja sérhæð
við t. d. Safamýri, Stóragerði, Stigahlíð og
nágrenni eða raðhúsi við Hvassaleiti, Háa-
leitisbraut, Álftamýri og nágrenni. Útborgun
1500 þús, Vinsamlegast hafið samband við
okkur sem fyrst.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN
Austurstræti 17
símar 16870 & 24645.
*